Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Kristján
Helgu Bryndísi Magnúsdóttur var vel fagnað í lok tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
Gildir einu hvort maður er
á Akureyri eða í London
150 íslensk-
ir listamenn
taka þátt í
EXPO 2000
FJÖLBREYTT menningardagskrá
verður á þjóðardegi íslands á heims-
sýningunni EXPO 2000 í Hannover
þann 30. ágúst nk. Menntamálaráðu-
neytið auglýsti eftir dagskráratrið-
um á síðastliðnu hausti og bárust
margar umsóknir. M.a. á grundvelli
þeirra hefur ráðuneytið gert sam-
komulag við eftirtalda aðila um að
koma fram þennan dag.
Þjóðleikhúsið sýnir Sjálfstætt fólk
- Bjart og Ástu Sóllilju og jafnframt
verður sett upp farandsýning um
verk og ævi Halldórs Laxness. Kam-
mersveit Reykjavíkur leikur íslensk
tónverk eftir m.a. Atla Heimi Sveins-
son, Jón Leifs og Þorkel Sigur-
bjömsson á tónleikum að kvöldi
þjóðardagsins, en einnig mun Kam-
mersveitin leika við upphaf menn-
ingardagskrárinnar. Tónlistarhóp-
urinn Guitar Islancio leikur
nokkrum sinnum við skála Islands
þennan dag. í íslenska skálanum
verða Örsögur úr Reykjavík - stutt-
mynd með þremur dansverkum eftir
íslenska höfunda - sýndar nokkrum
sinnum á þjóðardeginum.
Dansleikhús með ekka sýnir dans-
inn Ber sem fjallar um einelti, of-
beldi og útskúfun og Eskimo-models
sýnir íslenska fatahönnun og er það
hluti af hönnunarsýningunni Futur-
ice.
Karlakórinn Heimir syngur við
upphaf þjóðardagsins, en jafnframt
mun kórinn halda tónleika síðar um
daginn. Kvikmyndin Englar al-
heimsins verður frumsýnd í Þýska-
landi á EXPO-kvikmyndahátíðinni
að kvöldi þjóðardagsins og hljóm-
sveitin Sigur Rós heldur tónleika.
Stefnt er að því að 12-16 knapar á ís-
lenskum hestum myndi skjaldborg
við fánahyllinguna við upphaf þjóð-
ardagsins.
-----------------
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir
við verk sín á Krákunni.
Málverkasýn-
ing á Krákunni
Grundarfírði. Morgunblaðið.
NÚ stendur yfir sýning Hrafnhildar
Jónu Jónasdóttur x' veitingastaðn-
um Krákunni í Grundarfírði. Þetta
er fyrsta einkasýning Hrafhhildar
og eru verkin olíu- og akrýlverk.
Sýningin stendur til 15. apríl.
----------♦-♦-4------
Nýjar bækur
• BARA stelpa - endurminningar 1
er eftir Lise Norgaard í þýðingu
Sverris Hólmarssonar.
Bókin fjallar um uppvöxt Lise allt
frá fæðingu, þangað til hún byrjar 18
ára sem blaðamennskulærlingur á
Roskilde Dagblad. Hún segir frá
uppvexti sínum á þriðja og fjórða
áratugnum úti á landi þar sem for-
eldrar hennar reyna að móta hana og
systkini hennar samkvæmt venjum
borgarstéttarinnar. Einnig fjallar
bókin um ástríka móðursystur, vofu
þýskrar föðurömmu og heilt safn af
sprellifandi syngjandi og spilandi
fjölskyldurneðlimum, segir í frétta-
tilkynningu. Lise Nprgaard hefur
skrifað sem blaðamaður í Hjemmet,
Berlingske Tidende og Politiken.
Hún er höfundur nokkurra skáld-
sagna og var höfundur Matador.
Útgefandi er PP-forlag. Bókin er
333 bls., prentuð í Danmörku. Verð:
3.480 kr.
TONLIST
Sinfónfuhljómsveit
Norðurlands í
fþróttaskemmunni á
Aknreyri
LOKATÓNLEIKAR
E1 Amor brujo (ástargaldur) eftir
Manuel de Falla og píanókonsert í
B dúr nr. 2 eftir Johannes Brahms
voru á efnisskrá Sinfónfuhljóm-
sveitar Norðurlands á tónleikum í
Iþróttaskemmunni á Akureyri sl.
sunnudaginn 9. aprfl kl. 16.
MEÐ tónleikunum lauk sjöunda
starfsári hljómsveitarinnar, en tón-
leikarnir voru þeir fimmtu á þessum
vetri. Aðalstjórnandi hljómsveitar-
innar frá upphafi og jafnframt
stjórnandi á þessum tónleikum var
Guðmundur Óli Gunnarsson. Helga
Bryndís Magnúsdóttir var einleikari
í hinum stórfenglega píanókonsert
Brahms nr. 2, en sá konsert er af
mörgum talinn eitt helsta verk sinn-
ar tegundar, sem samið hefur verið
fyrr og síðar.
Sinfóníuhljómsveitin var skipuð
47 hljóðfæraleikurum og var Jaan
Alavere konsertmeistari. Það hefði
svo sem verið ánægjulegt að fá helm-
ingi fleiri strengjaleikara í píanókon-
sert Brahms, því þar eru kröfur til
mikils hljómmagns í margslungnum
og þéttum tónavefnum óhemjumikl-
ar og raunar einnig var fjöldans þörf
á stöðum þar sem leika þurfti veikt.
Það verður þó að segjast að hljóð-
færaleikarar skiluðu hlutverki sínu
með glæsibrag og bættu víða upp
KVIKMYNDIR
Bfóhöllin, Kringlu-
bíó, Bfóborgin,
Nýja bíó Akureyri
og ÍVýja bíó Keflavfk.
„DEUCE BIGALOW
MALE GIGOLO“t**
Leikstjóri: Mike Mitchell. Handrit:
Rob Schneider og Harris Goldberg.
Franfleiðandi: Adam Sandler o.fl.
Aðalhlutverk: Rob Schneider, Willi-
am Forsythe, Eddie Griffin, Arija
Bareikis og Oded Fehr. 1999.
BANDARÍSKA gamanmyndin
„Deuce Bigalow Male Gigolo“ er
dellumynd sem sver sig stundum í
ætt við myndir Farrelli-bræðra.
Grínið kann sér engin takmörk,
það vottar fyrir nokkurskonar
heimskuhúmor og ekkert er kvik-
fæð hljóðfæraleikara, jafnvel fannst
mér á stundum í Brahms, að hljóm-
sveitin léki betur en hún ætti að
geta.
Verkið E1 Amor brujo eða ástar-
galdur eftir de Falla var frumflutt í
Madrid árið 1915, sem ballett í
tveimur meginþáttum. Endanleg
gerð og sú sem flutt var á þessum
tónleikum er eins konar svíta í 10
dönsum eins og höfundur gekk end-
anlega frá verkinu og frumflutt var í
París árið 1925. Astargaldur þessi
hefur löngum verið tónelskum hug-
leikinn og vinsæll. Efst á vinsældar-
listanum er þó Elddansinn. Tón-
skáldið sækir í sjóð sígaunatónlistar
og rímar það vel við tilvitnun
Brahms í lokaþætti píanókonserts-
ins, þar sem hann grípur til ung-
verska sígaunadansins, sem hann
hafði ungur að árum hrifist af. Flutn-
ingur hljómsveitarinnar á E1 Amor
var í heild góður, en helst þótti mér
vanta á snerpu og léttleika í hröð-
ustu þáttunum. Það verður að teljast
mikið lán fyrir tónelskt fólk að fá að
hlýða á píanókonsert nr. 2 eftir
Brahms í hrífandi flutningi á tónleik-
um. Ef flutningur þessa íburðar-
mikla og stói'kostlega verks tekst vel
þá gildir einu hvort maður er á Akur-
eyri eða í London, maður er einfald-
lega í miðju alheimsins og upplifir
heimsviðburð.
Þetta gerðist í íþróttaskemmunni
á umræddum tónleikum. Ljótleiki
salarins og handboltamörkin hurfu
fyrir galdri sem hrífur mann burt,
þannig að staður og stund hverfur
um hríð. Helgu Bryndísi tókst í ein-
leik sínum að beita tæknilegri full-
komnun í þjónustu heitra tilfinninga
og skilnings, og túlka þetta ægifagra
myndahöfundunum heilagt. Gert er
grín að hávöxnu kvenfólki, ofsa-
feitu kvenfólki, kvenfólki með
svefnsýki og þar fram eftir götun-
um en þó er mesta grínið á kostnað
aðalpersónunnar, Deuce Bigalow,
sem er vandræðalegur smárindill
er fyrir glettni örlaganna verður
svokölluð karlmella.
Myndin er brokkgeng eins og
verða vill þegar sagðir eru brand-
arar með jöfnu millibili. Sumum er
hægt að hlæja að en aðrir falla ger-
samlega flatir. Höfundur þeirra er
Rob Schneider, sem skrifar hand-
ritið ásamt Harris Goldberg, auk
þess að fara með aðalhlutverkið.
Hann er nokkuð spaugilegur sem
peðraninn Deuee Bigalow og kring-
umstæðurnar, sem hann flækir sig
í þegar hann tekur að sér að gæta
íbúðar alvöru karlmellu, bjóða upp
á fyndnar uppákomur.
Bigalow þessi þrífur fiskabúr
fyrir fólk og kynnist í gegnum starf
sitt sérstaklega myndarlegu en
verk á heillandi hátt. Góð samvinna
einleikarans og stjórnandans birtist í
góðu vali á hraða og styrkleika,
næmri hendingamótun, ásamt mús-
íkölsku næmi, sem gæddi túlkun
verksins hrífandi brag. Víða birtast
áhrifamiklar tónhendingar einleik-
shljóðfæra í hljómsveitinni, og er
ástæða til að nefna sérstaklega leik
Örnólfs Kristjánssonar í þriðja þætti
á selló stefið sem svipar mjög til
sönglagsins „Immer leiser wird
mein Schlummer" eftir Brahms.
Áheyrendur kunnu vel að meta
glæsilegan flutning verksins og
fögnuðu vel og innilega.
Það voru tímamót í tónleikahaldi á
Akureyri að fá nýjan Steinway-kon-
sertflygil fyrir nokkrum árum, og
þess nutum við á tónleikunum að
þessu sinni í flutningi á píanókonsert
Brahms og einnig áður í flutningi á
þriðja píanókonsert Beethovens og
öðrum píanókonsert Rachmaninoffs,
en það eru píanóleikarar búsettir hér
sem hafa leyst einleikshlut þeirra
verka prýðilega af hendi. Þannig
gegnir nýr flygill ekki aðeins því
hlutvei’ki að veita tónlistarunnend-
um áhrifamiklar fagnaðarstundir,
heldur stuðlar hann einnig að eflingu
byggðar við Eyjafjörð. Nýtt menn-
ingarhús með fullkomnum tónleika-
sal hér á Akureyri mun svo bæta um
betur og þá loksins verða tónleikar
eins og þessir í verðugu umhverfi.
Með árangursríku starfi Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands og Guð-
mundar Óla Gunnarssonar er ein
mikilvæg forsenda menningarhúss-
ins/yrir hendi.
Áfram veginn.
mjög hugsanlega brengluðu glæsi-
menni. I ljós kemur að þar er á
ferðinni karlmella sem býr í glæsi-
legri íbúð og lifir ríkmannlega og
hann biður Deuce að gæta íbúðar-
innar á meðan hann skreppur í
þrjár vikur til Sviss. Það er aðeins
tvennt sem Deuce má ekki gera:
Svara símanum og aka sportbíln-
um. Og ef eitthvað kemur fyrir
íbúðina verður hann einfaldlega
drepinn.
Þess verður ekki langt að bíða að
Deuce telur sig knúinn til þess að
gerast karlmella nema kúnnahóp-
urinn er langt í frá kræsilegur og
reyndar með ólíkindum furðulegur.
Hér er á ferðinni sauðmeinlaus
húmor í rauninni, yfirdrifinn eins
og krafan er í dag og mjög á kyn-
ferðislegum nótum. Persónurnar
eru skrautlegar og sprellið heppn-
ast stundum og þá er gaman en
heildarmyndin er óþarflega veik.
Arnaldur Indriðason
Nýjar bækur
• SAGA Kjalarnessprófastsdæmis
er komin út í tilefni þúsund ára af-
mælis kristnitöku á íslandi. Jón Þ.
Þór sagnfræðingur ritaði söguna.
í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Kjalarnesspróf-
astsdæmi nær yf-
ir Gullbringu- og
Kjósarsýslu og
V estmannaeyj ar.
Allt til ársins 1940
voru Reykjavík,
Seltjarnarnes og
Kópavogur innan
marka prófasts-
dæmisins. Nátt-
úrufar og land-
fræðilegar aðstæður settu mark sitt
á sögu prófastsdæmisins og íbúa
þess. Þar hefur ávalt verið stundað-
ur landbúnaður, en jafnframt sjáv-
arútvegur settsterkan svip á líf og
starf fólksins. Á höfuðkirkjum og
menntasetrum í prófastsdæminu
sátu ýmsir vel lærðir kenni- og lær-
dómsmenn. Ýmsar miðstöðvar
menningar og trúai’lífs voru í Kjal-
arnessprófastsdæmi frá því snemma
á öldum, og þar hafa margar nýjung-
ar í kirkjustarfi, bæði safnaðarstarfi
og stjórnskipun, litið dagsins ljós.“
Útgefandi er Kjalarnesprófasts-
dæmi. Bókin er 200 síður, prýdd
fjölda ljósmynda.
• Drykkja - Ástarsaga er eftir
bandarísku blaðakonuna og rithöf-
undinn Caroline Knapp í þýðingu
Ragnheiðar Margrétar Guðmunds-
dóttur. Höfundur lýsir flóknu sam-
bandi sínu við áfengi um tveggja
áratuga skeið, þykjustuleiknum
með fíknina og því ægivaldi sem
drykkjan hafði á lífi hennar. Að
endingu náði hún tökum á fíkn
sinni og hóf hina hægu göngu til
nýs sjálfsskilnings án áfengis.
I fréttatilkynningu segi m.a.:
„Þetta er frásögn af sérstakri ævi
gáfaðrar og hæfileikaríkrar konu
sem átti góða foreldra, ólst upp í
fögru og ríkmannlegu umhverfi og
naut frábærrar menntunar en var
þó allt frá unglingsárum flækt í
net fíknar, kvíða og brenglaðs
sjálfsmats." Bókin varð metsölu-
bók í Bandaríkjunum og hefur
trónað á toppi sölulista víða um
heim.
Útgefandi er Forlagið. Bókin er
288 bls., prentuð í Svíþjóð. Kápu-
hönnun: Hunang. Verð: 3.890. kr.
Bókin er bók mánaðarins í apríl,
þá á verðinu: 2.690. kr.
-------------------
Dúettar frá
Moravíu
Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í
Norræna húsinu á morgun, mið-
vikudag, kl. 12.30 flytja Margrét
Árnadóttir sópran, Nanna María
Cortes mezzosópran og Iwona
Jagla, píanó, Fimm dúetta frá
Moravíu op. 32 eftir Antonín Dvor-
ák (1841-1904) og Fimm dúetta op.
20 eftir Johannes Brahms (1833-
1897).
Margrét Árnadóttir hóf nám í
söng árið 1992 við Tónlistarskóla
Mosfellsbæjar. Síðastliðin tvö ár
hefur Margrét numið við Söngskól-
ann í Reykjavík hjá Ólöfu Kol-
brúnu Harðardóttur og Iwonu
Jagla. Margrét hefur komið fram
sem einsöngvari við ýmis tækifæri.
Nanna María Cortes hóf nám við
Söngskólann í Reykjavík haustið
1991. Hún lauk burtfararprófi
1998. Nanna María hefur sungið í
kór Islensku óperunnar frá 1993;
jafnframt hefur hún oftsinnis kom-
ið fram sem einsöngvari.
Nanna María stundar nú nám við
kennaradeild Söngskólans í
Reykjavík.
Iwona Jagla er pólsk að upp-
runa. Hún lauk masters- og ein-
leikaraprófi í píanóleik í Gdansk
árið 1983. Hún starfaði í nokkur ár
hjá Islensku óperunni en kennir nú
við Söngskólann í Reykjavík.
Aðgangseyrir er kr. 500, en
ókeypis er fyrir handhafa stúd-
entaskírteinis.
Jón Hlöðver Áskelsson
Karlmella lendir í kröggum