Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 45
-------------------------á.
MINNINGAR
K. HA UKUR
PJETURSSON
+ K. Haukur Pjet-
ursson fæddist í
Reykjavík 15. mars
1917. Hann lést á
Droplaugarstöðum
26. mars síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Dómkirkj-
unni 6. aprfl.
Við erum á leiðinni í
Skógræktarstöð ríkis-
ins að Mógilsá. Hauk-
ur situr undir stýri.
Nú skyldi kaupa
trjáplöntur fyrir sum-
arbústaðarlandið í
Stóraskógi. Greni, lerki og birki
fyllti bílinn á bakaleið. Þessi ferð,
farin fyrir margt löngu, markaði
upphaf árlegra ferða okkar í sama
tilgangi. Arangur skógræktar kem-
ur ekki í Ijós fyrr en að mörgum
árum liðnum. Haukur hugsaði til
framtíðar.
Ég kynntist fjöskyldu Hauks
fyrir hartnær þrjátíu árum, þegar
ég fór að venja komur mínar á Sól-
vallagötuna. Haukur var þá með
fyrirtæki sitt, Forverk hf., í fullum
rekstri. Þegar hann
sýndi mér fyrirtækið
fyrst, leyndi sér ekki
hversu annt honum
var um rekstur þess.
Hann var frumkvöðull
hér á landi við gerð
korta eftir loftmynd-
um. Haukur var vak-
inn og sofínn yfir
rekstrinum. Rekstur
og stjórn heimilisins
lenti því í höndum
Jytte, eiginkonunnar,
sem fylgdi honum frá
Kaupmannahöfn rétt
eftir stríð. Haukur
hafði kynnst henni þar á námsár-
um sínum. Allt yfirbragð heimilis
þeirra er danskt. Þar hefur verið
töluð danska. Þannig urðu börnin
tvítyngd og gátu átt góð samskipti
við „mormor“ í Danmörku. Milli
Hauks og Jytte voru sterk bönd,
gagnkvæm virðing og umhyggja.
Haukur var hrókur alls fagnaðar
á mannamótum. Hann naut þess að
vera í hlutverki gestgjafans, en
skipulagning, undirbúningur og
framkvæmd var í höndum Jytte.
ARNIBJORGVIN
HALLDÓRSSON
+ Árni Björgvin
Halldórsson
hæstaréttarlögmað-
ur fæddist á Borg í
Bakkagerði í Borg-
arfirði eystra 17.
október 1922. Hann
lést á sjúkrahúsinu í
Neskaupstað 31.
mars síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Egilsstaðakirkju
8. aprfl.
Fljótlega eftir komu
okkar Bjössa hingað til
Egilsstaða hófust
kynni okkar og þeirra hjóna Árna
Halldórssonar og Kristínar. Við
Kristín unnum saman á Heilsugæsl-
unni og myndaðist þar strax góð vin-
átta.
Þegar ég hóf afskipti af bæjar-
málapólitíkinni kynntist ég svo
Arna. Hann var ekki lengur í hring-
iðunni en hafði gegnt mörgum trún-
aðarstörfum fyrir flokkinn á árunum
áður og enn var oft leitað til hans um
ráð og aðstoð. Hjá Árna var aldrei
komið að tómum kofanum, hann var
stálminnugur og rökfastur, hann var
ósínkur á skoðanir og setti þær í
samhengi við menn og málefni.
Fyrir tólf áram lágu leiðir okkai-
svo enn þéttar saman þegar fast-
eignasalinn Árni hafði milligöngu í
kaupum okkar á húsinu KIöpp,
næsta húsi við þau Kristínu, lóðirnar
liggja saman, svo náið að þar verður
varla greint í sundur. Samveran á
LEGSTEINAR
Upplýsingar í símum
562 7575 & 5050 925
LOFTLÉIÐIR
j H O T E L S
Ávallt skapaðist góður andi í veizl-
um hjá þeim hjónum. Með vilja-
styrkinn að vopni kom Haukur í
síðasta fjölskylduboðið hjá okkur
nú um áramótin, þá farinn að
kröftum.
Við Björg fluttum upp á Freyju-
götu árið 1981 eftir nær sex ára
fjarvera í Svíþjóð. I leyfum okkar á
árunum ytra stóð heimili þeirra
Hauks og Jytte okkur alltaf opið.
Eftir heimkomu hittumst við
Haukur nær daglega, þar sem fyr-
irtækið var í sama húsi. Einnig átt-
um við okkar föstu mánaðarlegu
fundi. Umsvif fyrirtækisins fóru
minnkandí þegar leið á níunda ára-
tuginn og var það síðan selt fyrir
nokkrum árum. Þetta gerðist nán-
ast í takt við þverrandi heilsu
Hauks. Á siðustu árum hafa skipst
á skin og skúrir í lífi Hauks.
Heilsuleysið og minnkandi þrek
setti mark sitt á hann. Hann missti
þó aldrei móðinn og sýndi örlögum
sínum ótrúlegt æðruleysi. Mikið
hefur reynt á Jytte þennan tíma og
hefur þrek hennar sætt undrun og
aðdáun.
Síðustu vikurnar dvaldi Haukur
á Droplaugastöðum. Starfsfólki
þar eru færðar þakkir fyrir góða
umönnun. Ég er þakklátur fyrir að
hafa átt Hauk að tengdaföður, ráð-
gjafa og umfram allt góðan félaga.
Rúnar Sigfússon.
Hjarðarhlíðinni varði í
tíu ár, eða þar til þau
hjón fluttu í skjól Önnu
Guðnýjar dóttur sinn-
ar.
Elskulegri nágranna
er vart hægt að hugsa
sér og samgangur var
ætíð mikill milli okkar.
Oft skrappum við yfir
einhverra erinda og
fengum í kaupbæti
fornar sögur af
skringilegum körlum
úr Borgarfirði eða frá
Færeyjum, kjarnyrtar
skoðanir Árna á hinum
ýmsu málefnum þurfti ekki að biðja
lengi um og svo fylgdumst við með
honum leggja kapal við eldhúsborð-
ið. Kristín nærði hundinn Kát á
meðan á jólabakkelsi eða pönnukök-
um, svo lítið bar á.
Við þessi tímamót viljum þakka
fyrir samverana og einkar ánægju-
lega viðkynningu um leið og við vott-
um þér, Kristín, börnunum og öðr-
um aðstandendum okkar dýpstu
samúð.
Þuríður Backman.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda
greinamar í símbréfi (5691115)
og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Nauðsynlegt er,
að símanúmer höfundar/send-
anda fylgi.
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðu-
gi'ein af hæfilegri lengd, en aðr-
ar greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubil og hæfi-
lega línulengd, - eða 2.200 slög
(um 25 dálksentimetra í blað-
inu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð
takmarkast við eitt til þrjú er-
indi. Greinarhöfundar era
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Glæsileg kaffihlaðborð
FAILEGIR SALIR
OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA
' íj h.
Guðmundur
Jónsson
F. 14.11.1807
D. 21. 3.1865
' æ i ■. 'A y* % i
Qraníf
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629
HEIMASÍÐA: www.granit.is
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alia þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
t
Bróðir okkar,
BJARNI GUÐMUNDSSON
bifreiðastjóri,
frá Túni,
Skarphéðinsgötu 20,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 12. apríl kl. 15.00.
Guðfinna Guðmundsdóttir,
Stefán Guðmundsson,
Unnur Guðmundsdóttir.
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ERNST P. SIGURÐSSON,
Grænumörk 3,
Selfossi,
sem andaðist miðvikudaginn 5. apríl. verður
jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn
15. apríl kl. 13.30.
Kristín M. Sigurðsson, Einar L. Gunnarsson,
Margrét Sigurðsson, Baldur Jónasson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HJÖRLEIFUR JÓNSSON,
Miðtúni 84,
Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum mánudaginn
3. apríl, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 13. apríl kl. 15.00.
Ósk Bjarnadóttir,
Bjarnveig Hjörleifsdóttir, Gunnar Ingvi Hrólfsson,
Ari Hjörleifsson, Svala Guðlaugsdóttir,
Hjördís Hjörleifsdóttir, Þorsteinn V. Reynisson,
afabörn og langafabarn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
áttu við andlát og útför elskulegrar móður
minnar, tengdamóður, ömmu og systur,
ÞÓRU BJ. TIMMERMANN
fyrrv. aðalgjaldkera Landssímans.
Björk Timmermann, Andrés Svanbjörnsson,
Frímann Andrésson,
Markús Þór Andrésson,
Friðrikka Bjarnadóttir.
f.í
t
Innilegt þakklæti til allra þeirra er auðsýndu
samúð og hlýhug vegna andláts ástkærrar
eiginkonu minnar,
LAUFEYJAR JÓNSDÓTTUR,
Teigagerði 14,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á líknardeild
Landspítalans fyrir frábæra umönnun.
Valbjörn Guðjónsson.
t
Hjartans þakkir til allra sem sýndu mér samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns,
ÞÓRARINS V.H. VILHJÁLMSSONAR,
Skúlagötu 20,
Reykjavík.
Ingibjörg Jónsdóttir.