Morgunblaðið - 11.04.2000, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ
tí
PRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
MINNINGAR
HULDA GUÐBJÖRG
, HELGADÓTTIR
+ Hulda Guðbjörg
Helgadóttir
fæddist á Þingeyri
við Dýrafjörð 5.
október 1925. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans 6.
mars síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Patreks-
kirkju, Patreksfirði
13. mars.
^Blsku amma okkar.
Eftir erfiðu veikindin
þín er það okkar mesta
huggun að þér líður vel
núna. Við eigum svo margar dýr-
mætar og fallegar minningar um þig,
sem við munum alltaf geyma í hjarta
okkar.
Amma, okkur langar
svo til að kveðja þig
með bæninni sem þú
kenndir mömmu okkar,
mamma kenndi okkur
og við kennum börnum
okkar.
Guð geymi þig elsku
amma.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesú þér ég sendi
bænfrámínubrjósti
sjáðu,
blíði Jesúað mérgáðu.
Elsku afi, megi Guð
styrkja þig á þessum
erfiðu stundum.
Ingibjörg Birna, Ester
og íjölskyldur.
ALMA ELÍSABET
HANSEN
+ Ahna Elísabet
Hansen fæddist á
Siglufirði 20. júní
'Í935. Hún lést á
kvennadeild Land-
spítalans 22. mars
síðastliðinn og fór
útför hennar fram í
kyrrþey.
Mig langar með
þessum orðum að
minnast móðursystur
minnar, Ölmu Elísa-
betar Hansen, en hún
lést eftir erfið veikindi
('«íf\n 22. mars sl. Nú
þegar Alma er öll koma upp í hugann
minningar frá bemskuárum, en fyrir
okkur börnin var ætíð spenningur í
kringum Ölmu, sem dvaldi svo lengi í
útlöndum. Þegar hún kom í heim-
sókn til íslands færði
hún okkur eitthvað
gott. Okkur varð
snemma ljóst að hún
bar hag okkar fyrir
brjósti og hafði áhuga á
öllu því sem við vorum
að fást við. Þegar ég
hugði á nám í Þýska-
landi var Alma mér
mjög innan handar og
er ég henni ávallt þakk-
látur fyrir stuðning
hennar. Hún vísaði mér
á gott fólk sem ég hef
síðan haldið tryggð við.
Alma var fróð og
skemmtileg og tel ég mig hafa lært
mikið á því að umgangast hana. Góð
frænka er fallin frá.
Guð blessi minningu hennar.
Svavar Bragi Jónsson.
Frágangur afmælis-
og minningargreina
i
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Það
v eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá
er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (569 1115)
og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að
símanúmer höfundar/sendanda
fyigi-
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðu-
grein af hæfilegri lengd, en aðr-
ar greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubil og hæfi-
lega línulengd, - eða 2.200 slög
(um 25 dálksentimetra í blað-
inu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð
takmarkast við eitt tii þrjú er-
indi. Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
€y I i
Persónuleg þjónusta
Hötum undirbúiö og séð um úttarir á höfuðborgar-
svæðínu sem og þjónustu vrð landsbyggðlna í 10 ár
og erum samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægsta
verð allra á líkkistum og þjónustu við útfarir.
Sími 567 9110 & 893 8638 R“"a' Geirmundsson Sigurður Rúnareson
www.utfarir.is utfarir@itn.is utfararstjóri úlfararstjóri
UTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður \
Útfararstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt |
verðkönnun Mbl. með-lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar. §
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu.
Baldur Bóbó
Frederiksen
útfararstjóri.
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
CTW, r
mjSwm i1 m rsson IBh
útfararstjóri. Olsen WBja Æ|
mA.Æ sími 896 8242 útfararstjóri. ÆmK.Æm
Kortsnoj efstur,
Hannes Hlífar í 2. sæti
SKAK
Reykjavfkur-
s k á m ó t i ð
FIMM umferðum er lokið á 19.
Alþjóðlega Reykjavíkurskákmót-
inu, þegar þetta er ritað. Viktor
Kortsnoj er einn í efsta sæti, með
4)4 vinning, en í hópi næstu manna
er Hannes Hlífar Stefánsson, með
4 vinninga.
Mótið fer fram í Ráðhúsi
Reykjavíkur og teflt frá kl. 17-24
alla daga. Þar er lífleg taflmennska
og áhorfendur verða ekki fyrir
vonbrigðum með það, sem teflend-
ur bjóða þeim upp á. Keppnin fer
harðnandi, eftir því sem lengra líð-
ur á mótið, en þegar þessi skrif
bh-tast í blaðinu, eru einungis þrjár
umferðir eftir. Skákáhugamenn
mega ekki láta þessar umferðir
fram hjá sér fara.
A skákstaðnum í Ráðhúsinu eru
stöðurnar á fjórum efstu borðun-
um sýndar á stóru tjaldi og að auki
er boðið upp á skákskýringar. A
heimasíðu mótsins á „Netinu“ geta
skákáhugamenn að auki fylgst með
skákunum á 7 efstu borðunum, um
leið og þær eru tefldar, og fengið
allar skákir og upplýsingar um
mótið. Slóðin er
http: //www.simnet.is/hellir/
Reykopen00.htm
Hér á eftir verður fjallað um það
helsta, sem gerðist í 3.-5. umferð
mótsins.
3. umferð, 7. apríl:
Helstu úrslit:
Short-Wojtkiewicz, 1/2;
McShane-Bu, 1-0;
Hannes Hlífar-Jonkman, 1-0;
Oral-deFirmian, 0-1;
Timman-Sævar Bjarnason, 1-0;
Martinez-Sokolov, 0-1;
Kortsnoj-Salmensuu, 1-0;
Conquest-Grisjúk, 1/2;
Sarbok-Þröstur Þórhallsson,
1/2; •
Heigi Ólafsson-Sig. Páll Stein-
dórsson, 0-1;
Helgi Áss Grétarsson-Wiley,
1-0;
Jackson-Jón Viktor Gunnars-
son, 0-1;
Hillarp-Persson-Benedikt Jón-
asson, 1/2;
Ehlvest-Schulz, 1/2;
Vinningsskák Sigurðar Páls
Steindórssonar gegn Helga Ólafs-
syni, stórmeistara, vakti athylgi,
en hún verður rakin síðar í þessum
skrifum.
Ungstirnin, McShane og Bu,
tefldu skemmtilega skák, þar sem
Englendingurinn sýndi góða tækni
við úrvinnsluna.
Hannes Hlífar, Helgi Ass og Jón
Viktor unnu sínar skákir, en Þröst-
ur varð að sætta sig við jafntefli og
Sævar stóðst ekki Timman snún-
ing.
4. umferð, 8. apríl:
Helstu úrslit:
Sokolov-Conquest, 1-0;
deFirmian-Hannes Hlífar, 1/2;
Short-McShane, 1-0;
Sigurður Páll Steindórsson-
Timman, 0-1;
Wojtkiewicz-Kprtsnoj, 0-1;
Grisjúk-Helgi Áss Grétarsson,
1-0;
Jón Viktor Gunnarsson-Miles,
0-1;
Benedikt Jónasson-Oral, 0-1;
Tómas Björnsson-Helgi Ólafs-
son, 1/2;
Christiansen-Bricard, 1-0;
Þröstur Þórhallsson-Lampen,
1/2;
Bykhovskij-Guðmundur Kjart-
ansson, 1-0;
Bu-Westerinen, 1-0;
Salmensuu-Hillarp-Persson,
0-1;
Sævar Bjarnason-Júlíus Frið-
jónsson, 1-0.
Slæm umferð fyrir íslensku
keppendurna í efri hluta móstsins.
Það var aðeins Hannes Hlífar, sem
hélt sínu, en Helgi Áss, Sigurður
Páll, Jón Viktor og Benedikt töp-
uðu allir.
Helgi Ólafsson og Þröstur ná sér
ekki á strik og eftir jafnteflið
minnka vonir um, að þeir blandi
sér í baráttuna á toppnum.
Kortsnoj sýnir engin þreytu-
merki, þótt árin séu að verða 69.
Hann vann hinn sterka Pólverja,
Wojtkiewicz, með svörtu.
McShane tapaði sinni fyrstu
skák á mótinu, fyrir Short.
Tilþrif hins 12 ára gamla Guð-
mundar Kjartanssonar halda
áfram að vekja athygli. Reynslu-
leysi hefur komið í veg íyrir að
hann hafi hlotið fleiii vinninga. I
þessari umferð var hann sannar-
lega óheppinn að tapa betri stöðu
fyrir rússneska alþjóðlega meist-
aranum, Bykhovskij.
5. umferð, 9 apríl:
Helsu úrslit;
Kortsnoj-Sokolov, 1-0;
Hannes Hlífar-Short, 1/2;
Timman-Grisjúk 1/2;
Miles-DeFirmian, 1/2;
Helgi Áss Grétarsson-Sigurður
Páll Steindórsson, 1-0;
Arnar Gunnarsson-Þröstur Þór-
hallsson, 1-0;
Helgi Ólafsson-Schnabel, 1-0,
Conquest-Sævar Bjarnason, 0-1;
Oral-McShane, 0-1;
Ehlvest-Bykhovskij, 1-0;
Nyysti-Jón Viktor Gunnarsson,
1-0;
Schmied-Benedikt Jónasson,
0-1;
Hillarp-Persson-Markowski,
1/2;
Sarbok-Bu, 1/2;
Guðmundur Kjartansson-Jack-
son, 1-0;
Kortsnoj komst einn í efsta sæt-
ið með því að vinna Sokolov, en
skákimar á næstu borðum urðu
jafntefli. Tap McShanes í síðustu
umferð dró ekki úr honum baráttu-
viljann, nú vann hann tékkneska
stórmeistarann, Oral.
Sævar vann góðan sigur á stór-
meisraranum, Sutart Conquest,
Helgi Áss og Helgi Ólafsson unnu
sínar skákir, en Þröstur og Jón
Viktor töpuðu.
Benedikt heldur áfram að tefla
vel, í þessari umferð vann hann
Sehmied.
Staða efstu mann, eftir 5. um-
ferð:
1. Kortsnoj (Sviss), 4V2 vinning;
2.-8. Short (Englandi), McShane
(Engl.), Grisjúk (Rússlandi),
Timman (Hollandi), DeFirmian
(Bandaríkjunum), Hannes Hlífar
Stefánsson, Christiansen
(Bandar.), 4 vinninga hver;
9.-19. Wojtkiewicz (Póllandi),
Helgi Áss Grétarsson, Markowski
(Póll.), Bu (Kína), Hillarp-Persson
(Svíþjóð), Sokolov (Bosníu), Sar-
bok (Þýskalandi), Sævar Bjarna-
son, Miles (Englandi), Arnar E.
Gunnarsson og Ehlvest (Eistl-
andi), 3V2 vinning hver.
Meðal þeirra, sem eru í 20.-30.
sæti, með 3 v., eru Helgi Ólafsson,
Benedikt Jónasson og Stefán Kri-
stjánsson.
Með 2Vz vinning em margir ís-
lenskir þátttakendur, m.a.
Þröstur Þórhallsson, Sigurður
Páll Steindórsson og Guðmundur
Kjartansson.
I toppbaráttunni vekja tveir 16
ára piltar, McShane og Grisjúk,
mikla athygli. Þeir era ólíkir í út-
liti, þótt jafnaldrar séu, sá fyrr-
nefndi lágvaxinn og grannur, en sá
síðarneí'ndi stór og kröftugur.
íslensku keppendunum hefur
gengið misjafnlega. Hannes Hlífar
fer fyrir stórmeisturunum, Helgi
Áss er enn í nálægð við toppinn,
Helgi Ólafsson hálfum vinningi þar
á eftir og Þröstur enn aftar.
Alþjóðlegi meistarinn, Sævar
Bjarnason, er að taka við sér, og
Arnar E. Gunnarsson er einnig
kominn með 3V4 vinning.
Frammistaða Jóns Viktors
Gunnarssonar veldur vonbrigðum,
hann er ekkert líkur sjálfum sér.
Um frammistöðu annaraa ís-
lendinga á mótinu ber helst að geta
góðrar taflmennsku Benedikts
Jónassonar og hinna ungu og efni-
legu, Sigurðar Páls Steindórsson-
ar, 17 ára, og Guðmundar Kjart-
anssonar, 12 ára.
Við skulum nú sjá vinningsskák
Sigurðar Páls Steindórssonar við
Helga Ólafsson úr þriðju umferð
mótsins.
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: SigurðurPáll Steindórs-
son
Ninizo-indversk vörn
1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. d4 Bb4 4.
Dc2 d5 5. cxd5 exd5 6. Bg5 00 7. e3
h6 8. Bh4 c6 9. Bd3 Rbd7
Staðan er í anda uppskiptaaf-
brigðisins í drottningarbragði.
Munurinn er hvíti í hag, því að
svartur tapar leik, þegar hann
verður að leika Bb4-e7 í framhald-
inu.
10. Re2 b6 11. 00 Bb7 12. Hadl
He8 13. Bf5 Be7 14. f3 c5 15. Hfel
cxd4 16. Rxd4 Re5 17. Bf2 g6?! 18.
Bh3 —
Það er eðlilegt að Helgi haldi í
biskupinn, en staða hans á h3 veld-
ur miklum erfiðleikum í lok skák-
arinnar. Spurningin er hvers
vegna hvítur leikur ekki 18. f4!?
Rc6 (18. - Reg4 19. Bxg6 fxg6 Re6
og svarta drottningin fellur) 20.
Rxc6 Bxc6 21. Bxg6 fxg6 22.
Dxg6+ Kh8 23. e4! með sterkri
sókn.
18. - Bc5 19. Rb3 De7 20. Rxc5
bxc5 21. b3 Had8 22. Bg3 Rh5 23.
Bxe5 Dxe5 24. Ra4 -
Nú fellur peð svarts á c-línunni,
en hann fær spil fyrir það.
24. - c4! 25. bxc4 dxc4 26. Hxd8
Hxd8 27. Dxc4 Da5 28. Hcl Ba6
29. Dh4 -
Ekki gengur 29. Dc7? Dxc7 30.
Hxc7 Hdl+ 31. Kf2 Hfl+ mát.
Besta vörnin er 29. Dc2, en eftir
það á svartur ekkert einfalt fram-
hald á sókninni. Hann ætti þó að
hafa gott mótspil, eftir 29.
Hd2 30. Db3 De5 31. Dc3 Dd5
o.s.frv.
29. - g5! 30. Dxh5 Dd2!
Sigurður Páll teflir af miklum
krafti. Hann hugsar ekki um að ná
manninum til baka heldur teflir
hann upp á veikleika hvíts á fyrstu
reitaröð.
31. Hal Dxe3+ 32. Khl Bc2!
33. Dg4 Bdl 34. Db4? -
Eftir 34. Dg3 virðist hvítur
sleppa úr þrengingunum. Það er
ekki að sjá, að svartur eigi neitt
betra í þeirri stóðu en að vinna
manninn til baka.
34. - Df2 35. Dc5 Hd4
og hvítur gafst upp, því að eina
leiðin til að koma í veg fyrir mát er
36. Dxd4, en eftir það fellur ridd-
arinn á a4 líka.
Bragi Kristjánsson