Morgunblaðið - 11.04.2000, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 63
BRÉF TIL BLAÐSINS ^
Banni við hnefa-
leikum verði aflétt
Kalk og ekki kalk?
eitt gerir enn brýnna að bæta
samgöngukerfið, og svo er það
flugvöllurinn á Egilsstöðum, sér-
staklega síðan áætlunarflugið var
lagt niður til Breiðdalsvíkur. Mér
er ljóst að nauðsynlegt er að
byggja upp vegi hér í sveitunum á
Héraði og er ég heldur ekki að
krefjast þess að öll þau milljóna-
hundruð verði öll lögð í þennan
vegarkafla. I fréttunum í útvarp-
inu í dag 3. apríl er sagt að áætlað
væri að 150 milljarða kostnaður
yrði við þessa framkvæmd. Er
nokkurt vit í þessu? Dettur nokkr-
um heilvita manni í hug að þessar
framkvæmdir eigi eftir að skila
þjóðarbúinu arði. Gaman væri að
fá útreikningana. Þetta er bara
pólitískur skollaleikur og þeir sem
hafa sótt það fastast munu falla á
eigin bragði.
Nýlega var sagt frá því í út-
varpsfréttum að síðastliðið ár hafi
þjóðarbúið haft mun meiri tekjur
af erlendum ferðamönnum en af
allri stóriðju á íslandi. En í stað
þess að efla ferðamannaþjónust-
una er eins og ríkisstjórnin sjái
ekkert annað bjargráð en ál-
verksmiðjur og þeim mun stærri,
þeim mun betra. Ég skal taka það
fram að ég er ekki á móti virkjun-
um á Austurlandi en það hafa fleiri
kostir verið nefndir, sem ekki
mundu setja þjóðarbúið á hausinn
þó að í þá væri farið. Aðalatriðið
er að kapp er best með forsjá.
Forfeðrum okkar hefur lengi
verið legið á hálsi eyðing skóga
hér á landi og má það til sanns
vegar færa. En skyldi ekki afkom-
endum okkar finnast líkt varðandi
núverandi kynslóð ef henni tekst
að sökkva dýrmætustu náttúru-
perlum okkar undir uppistöðulón?
SIGURÐUR LÁRUSSON,
frá Gilsá.
Frá Guðmundi Arasyni:
NÚ LOKSINS hillir undir að þing-
menn losi þjóðina undan þeirri
skömm sem bann við hnefaleikum er.
Hugrakkir þingmenn þriggja helstu
stjórnmálaflokka landsins hafa lagt
fram frumvarp um að leyfa ólymp-
íska hnefaleika, og vekur það athygli
að fremstu kvenskörungar hins háa
alþingis eru þeirra á meðal.
Það hefur vakið furðu margra að
ólympískir hnefaleikar séu bannaðir
hér á landi, og margir útlendingar
hafa spurt: Af hverju? Þið leyfið bar-
dagaíþróttir frá Asíulöndum sem
ekki flokkast undir ólympískar
íþróttir, en eru samt æfðar hér án
nokkurra athugasemda eða eftirlits.
Þrekæfingastöð í Garðabæ dreifði
auglýsingabæklingi með mynd af
þeldökkum manni með hnefaleika-
hanska vera að sparka út í loftið,
kallað Kick-Box; sú íþrótt leyfir að
sparkað sé í höfuð mótstöðumanns-
ins og í viðkvæmustu hluta líkamans.
Það sem vekur undrun flestra hér
á landi er hvað mönnum er mismun-
að. Ekki þarf glöggan mann, sem
horfir á t.d. karate-æftngar og
keppni, að þar eru hnefaleikar á ferð-
inni, en þeir nota hvorki hanska né
höfuðhlífar.
Mér fannst ekki gaman að horfa á
Norðurlandamótið í karate, sem sýnt
var í Sjónvarpinu fyrir nokkrum ár-
um, þar sem sást að ungir drengir
gengu volandi frá keppni. Einnig er
mér minnisstætt þegar hinn ágæti
íþróttafréttamaður Ingólfur Hann-
esson fékk fyrir alllöngu menn til að
sýna helstu brögð karate-íþróttar-
innar í Sjónvarpinu. Jafnframt ósk-
aði hann eftir að sýndar yrðu helstu
aðferðir við að yfirbuga andstæðing.
Fyrst sýndu þeir hvernig kasta á
manni niður, og að á eftir væri hægt
að sparka í kynfæri hans. Þetta var
sýnt með látbragðsleik. Þar næst var
sýnt hvernig manni var kastað í gólf-
ið, og að hægt væri að hoppa upp á
brjóstkassann og sprengja hjarta-
kúluna. Ennfremur var sýnt hvernig
slegið er með láréttum lófa á hálsinn.
Höfuðkúpan niður við hálsinn er sem
hnífsegg, með örsmáum æðagöng-
um, og þeir karatemenn sem hafa
æft sig í að brjóta í sundur múrsteina
fara létt með að hálsbrjóta fólk.
Umræddur þáttur er eflaust til í
safni íþróttadeildar Sjónvarpsins.
Það hefur fyrir löngu verið sannað
með rannsóknum færastu lækna að
ólympískir hnefaleikar eru síst
hættulegi-i en aðrar íþróttir, nema
síður sé. Það virðist því ástæðulaust
fyrir lækna landsins að vera á móti
þessu frumvarpi, því það er vitað að
staðreyndum verður ekki breytt. Og
hinn langi biðlisti sjúklinga með slit-
in liðbönd, ónýt hné eða ónýtar
mjaðmir er ekki frá hnefaleikum
kominn.
Hnefaleikar hafa verið bannaðir
síðan árið 1956 þrátt fyrir mótmæli
ÍSÍ, sem er aðili að Alþjóða ólymp-
íunefndinni. Samt bannar alþingi ól-
ympíuíþrótt sem nýtur virðingar um
allan heim. Þetta hlýtur að vera mjög
óvenjulegt, svo ekki sé meira sagt.
GUÐMUNDUR ARASON,
Eskiholti 12, Garðabæ.
Frá Þuríði Ottesen:
ER sama hvaða kalk maður kaupir,
er allt jafnt virkt og nýtist það eins
til beina og tanna? Margar gerðir af
kalki eru fáanlegar á markaðnum í
dag. Náttúrulegar auðlindir kalks
eru kalsíumsítrat, kalsíumlaktat og
dólómít-kalk. Allar þessar tegundir
kalks nýtast misjafnlega til beina og
tanna og hafa það sammerkt að hjá
þeim sem skortir magasýrur nýtist
kalkið frekar illa. Auk þess er hætta
á að þessar náttúrulegu kalktegund-
h- innihaldi eitraða málma á við blý
og ál sem geta haft skaðleg áhrif á
bein („Almunium and Lead Ab-
sorption from Dietary Sources in
Women Ingesting Calcium Citrate".
Nolan, Charles R., M.D. et. al,
Southern Medical Journal, Septem-
ber 1994; (9): 894-898). Kalsíum-
karbónat er verksmiðjuframleitt og
inniheldur ekki málma á við ál og
blý. Margar rannsóknir hafa verið
gerðar á virkni ofangreindra kalk-
tegunda, hversu fljótt og vel kalkið
frásogast í líkamanum. Flestar
benda til þess að kalsíumkarbónat
sé þar fremst í flokki og nýtist að
jafnaði best til beina.
Beingisnun er að verða eitt
stærsta og dýrasta heilsufarsvanda-
mál í hinum vestræna heimi. For-
varnir felast í að neyta kalkríkrar
fæðu, hreyfa sig og einnig er talið að
fáein aukakíló geti hjálpað til að
vinna gegn beingisnun. Þeir foreldr-
ar sem eru að ala upp unglinga í
dag, sér í lagi unglingsstúlkur,
verða að gæta vel að kalkneyslu
þeirra. Mjólkurdrykkju unglinga er
ábótavant og þarf því að örva börn
og unglinga til neyslu á t.d. fjör-
mjólk og undanrennu, auk þess má
nefna að sesamfræ eru kalkauði*.
Fólk með mjólkuróþol þarf að íhuj^:
alvarlega að verða sér úti um kalk,
þá í töflu- eða vökvaformi. Þá kom-
um við aftur að því hvaða kalk skal
velja þegar í verslun er komið.
Magninnihald af kalki eftir tegund-
um er mjög misvísandi, t.d. er fáan-
legt kalk sem segir að 1 tafla inni-
haldi 500 mg afkalsíumlaktati en
ráðlagður dagskammtur af kalki er
800-1.200 mg á dag. í þessu kals-
íumlaktati eru aðeins 45 mg nýtan-
leg og þyrfti því u.þ.b. 18-26 töflur
af kalki á dag til þess að sinna dags-
þörfinni. Þetta er mjög alvarlegt pg
misvísandi fyrir neytandann. Heil-
brigðisyfirvöldum ætti að vera
kappsmál að bæta úr þessu þar sem
jöfn kalkneysla getur dregið veru-
lega úr beinþynningu og í leiðinni
sparað kerfinu stórar fjárhæðir í
framtíðinni. Sem neytendur eigum
við að geta keypt kalk með réttum
leiðbeiningum um raunverulegt nýt-
anlegt kalkinnihald. Skylda ætti
framleiðendur og innflytjendur á
kalki að merkja umbúðir kalks með
upplýsingum um nýtanleika. Við hér
á Islandi höfum mjög öflugt Lyfja-
eftirlit og væri e.t.v. ráð að setja
reglugerð um þessa bráðnauðsyn-
legu upplýsingaskyldu.
Gott ráð er að spyrja t.d. sérfræð-
inginn í versluninni hversu miifíó4
kalsíum ca2+ (elemental) sé í hverri
töflu en það þýðir nýtanlegt kalk.
Ekki má gleyma að þegar velja
skal gott kalk þá er nauðsynlegt að í
það sé blandað D-vítamíni, magnes-
íum og sinki en það hjálpar til við
nýtingu kalks fyrir bein.
ÞURÍÐUR OTTESEN,
framkvæmdastjóri.
ú er tækifærið...
að eignast ekta pels
Oðruvísí Ijós og klukkur Síðir leðurfrakkar
Handunnir dúkar og rúmteppi
Sófasett og þrjú borð á
aðeins kr. 157.000 __________________________
Viðskiptanetið Fákafeni (Bláu húsin), s. 588 4545 j
Sigurstjama
Hársnyrtistofan
Hár Class Skeifunni 7
VILLI ÞÓR
HÁRSNYRTIR
TÍMAPANTANIR í SÍMA 553 8222
Glæsilegt hárkolluúrval
Nýjar sendingar
Fataprvði ÁKheimum 74,
Glæsibæ, slml 553 2347.
Tökum gömlu hárkolluna
upp í nýja - Aðeins í apríl
**STJÖRNUR *.*
^ Barna- og unglingafataverslun
vljóddin, Alfabakka 12 • Sími 557 7711
Míðjan, Hlíðasmára 17 • Sími 554 4744
Erum mættar í miðjuna
Kvenfatnaður - Unglingafatnaður - Barnafatnaður
f lott ■ föt
Hlíðasmára 17 • Sími 554 7300
Jón Böðvarsson
70 ára
2. maí 2000
Við vinir og nemendur Jóns Böðvarssonar ætlum að fagna með honum á
þessum degi og halda hátíð honum til heiðurs og í þakkarskyni.
Okkur þykir við hæfi að minnast tímamótanna með því að bjóða Jóni og
fjölskyldu hans til hátíðarsamkomu í Borgarleikhúsinu kl. 20.00 á sjálfan
afmælisdaginn. Dagskráin tengist ævistarfí Jóns.
Ýmsir af okkar bestu listamönnum voru nemendur Jóns og eru fúsir að
gleðja hann með list sinni. Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar
veitingar.
Vonandi sérð þú þér fært að taka þátt í þessu hófí með okkur og heiðra
þannig afmælisbamið. Nöfn þátttakenda verða skráð á sérstaka
heillaóskaskrá sem verður afhent Jóni innbundin.
Frekari upplýsingar veitir Soffía A. Sigurðardóttir hjá
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands í síma 525 4231.
Undirbúningsnefndin.