Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
FRÉTTIR
ÍDAG
Málþing um samgöngur
% og loftslagsbreytingar
LANDVERND, Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda, Bílgreinasambandið
og Vegagerðin halda opna málstofu
um samgöngur og loftslagsbreyting-
ar miðvikudaginn 12. apríl nk. kl.
16-18 á Grand Hótel í Reykjavík.
Á málstofunni mun Jóhann Guð-
mundsson, skrifstofustjóri í sam-
gönguráðuneytinu, gera grein fyrir
þróun losunar gróðurhúsaloftteg-
unda (GHL) frá samgöngum og
mögulegum aðgerðum stjórnvalda.
Ásgeir Þorsteinsson, frá Fræðslu-
miðstöð bflgreina, svarar því hvort
líklegt sé að tækniframfarir leysi
vandann og Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri FÍB, greinir frá
hugmyndum um hvernig má draga
úr losun GHL án þess að leggja
einkabflnum. Þá mun Stefán Gísla-
son umhverfísfræðingur segja frá
því hvernig aðrh- og umhverfis-
vænni valkostir í samgöngum geta
verið.
• <f
Aðalfundur í
Breiðholtsskóla
AÐALFUNDUR Foreldra- og
kennarafélags Breiðholtsskóla verð-
ur haldinn miðvikudaginn 12. aprfl
kl. 20 í hátíðarsal Breiðholtsskóla.
Fundarstjóri verður Stefán Jó-
hann Stefánsson hagfræðingur. Sér-
stakur gestur fundarins verður Ste-
fán Hermannsson borgarverkfræð-
ingur.
Á fundinum verða venjuleg aðal-
fundarstörf en jafnframt verða
hverfismálin skoðuð. Þar mun Stef-
án Hermannsson veita íbúum upp-
ij^singar um það sem þeir hafa áhuga
’ á að vita um viðhald svæða og mann-
virkja hverfisins.
www.mbl.is
Dagur Parkin-
sonsamtakanna
PARKINSONSAMTÖKIN á ís-
landi halda upp á dag Evrópsku
parkinsonsamtakanna í dag, 11.
apríl.
Faralds- og erfðafræðileg rann-
sókn á parkinsonveiki er í fullum
gangi hér á landi og verður fólk á
landsbyggðinni heimsótt fljótlega.
Nokkrir taugasérfræðingar undir
forystu dr. Sigurlaugar Svein-
björnsdóttur stjórna rannsókninni.
Velunnurum Parkinsonsamtak-
anna er bent á reikning í Lands-
banka íslands, Laugavegi 77, nr.
111-26-25, sem leggja má inn á.
Parkinsonsamtökin á Islandi hafa
skrifstofu í Þjónustusetri líknarfé-
laga, Tryggvagötu 26, 4. hæð, sem
er opin miðvikudaga kl. 17-19, en
verður bráðlega opin fimm daga
vikunnar.
Verslunin hættir
s ^
Mikið urvai af Double
two einkennis- og
spariskyrtum, stærðir
37 til 46. Einnig yfir-
stærðir 46 til 50.
Úrval af góðum fatnaði.
Komið og gerið góð kaup.
Allt á að seljast.
Opið frá kl. 13 til 18
Greinir sf.
Skólavörðustíg 41,
sími 5621171.
SKi j t ÓSPRENGJ ÍRMÚLA 23 A
Ótrúlegt verð • f rá 995
Sportskór Barnaskór
Dömuskór Herraskór
Bætum daglega við skóm
Skór frá Skæði og Skóverslun Kópavogs
Opift frá kl. 1? -18 mánud. - föstud. og 10 -16 laugard.
VELVAKAMH
Svarað í sfma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Stórskemmti-
leg menn-
ingardagskrá
UNDIRRITUÐ er einn af
þeim lukkunnar pamfflum
sem fékk að njóta stór-
skemmtilegrar menningar-
dagskrár sem Rithöfunda-
samband íslands stóð íyrir
í Borgarleikhúsinu í gær-
kvöldi, 6. apríl. Dagskráin
hét „Mig minnti að þessi
borg væri brosandi kona“
og þar fluttu nokkrir úr-
valsleikarar texta í Ijóðum
og lausu máli sem allir áttu
það sameiginlegt að fjalla,
á einn eða annan hátt, um
Reykjavík. Val á tónlist og
og flutningur hennar var
sömuleiðis með miklum
ágætum.
Frá því að þessi dagskrá
var fyrst auglýst var ljóst
að hér myndi verða um at-
hyglisverða uppákomu að
ræða, þó ekki væri nema
vegna þess að Pétur Gunn-
arsson rithöfundur tók
hana saman. Að hún yrði
þar að auki svona frábær
skemmtun var algjör
kaupauki.
Hið eina sem mögulega
er hægt að finna að skipu-
lagi dagskrárinnar er að
miðarnir á hana skyldu
vera hafðir ókeypis. Ut af
fyrir sig ætti það að vera
kostur og er væntanlega
gert til þess að allir eigi
jafna möguleika á
að taka þátt í dagskrá
Menningarborgar. Þvi mið-
ur var þó afleiðingin sú að
salurinn í Borgarleikhús-
inu var ekki nema hálffull-
ur þrátt fyrir að allir miðar
væru uppurnir. Það höfðu
greinilega margir komið og
fengið sína ókeypis miða en
síðan ekki séð ástæðu til að
mæta á sýninguna. Þetta
er mikil synd því eins og
fyrr er sagt var dagskráin
mjög vönduð og vel flutt og
greinilegt var að allir sem í
salnum voru áttu sérlega
skemmtilega kvöldstund.
Ég þakka kærlega fyrir
mig og mína.
Elín Björk
Jóhannesdóttir,
Leifsgötu, Reykjavík.
Danmörk
hertekin
HINN 9. apríl sl. voru 60
ár síðan Þjóðverjar her-
tóku Danmörku. Ég var
búsett í Kaupmannahöfn
þá og man vel ringulreiðina
og óttann sem greip um
sig. Sumir flúðu út á land.
Ég var á saumastofu þá.
Ég var hjá Tantrup þegar
við fengum stóru grænu
balana inn á gólf og áttum
að sauma úr þeim þýsk un-
iform. Það urðu nú aldeilis
læti. Hinn 16. apríl sama ár
fæddist Margrét Þórhild-
ur, tilvonandi Danadrottn-
ing, sem nú verður 60 ára
hinn 16. apríl næstkomandi
og sendi ég henni innilegar
hamingjuóskir og fjöl-
skyldunni allri.
Guð varðveiti drottning-
una, Danmörku og fjöi-
skylduna alla.
Sigríður Johnsen.
Þakklæti
og ádeila
RAGNHEIÐUR hafði
samband við Velvakanda
og vildi lýsa yfir ánægju
sinni með að það skuli vera
búið að setja lög um úti-
gangshross í landinu. Nú
er það orðin skylda að
byggja yfir hrossin. Einnig
langaði hana að þakka
Magnúsi Davíð Nordhahl
fyrir greinina Rasisminn
og bóndinn í Vatnsnesi sem
birtist í Morgunblaðinu 2.
apríl sl. Einnig vill hún
deila á gatnamálayfirvöld
vegna skaða nagiadekkj-
anna.
Tapad/fundið
Silfurhálsmen
týndist
HANDUNNIÐ silfurháls-
men með náttúrusteini
týndist fyrir um það bil
mánuði. Fundarlaun. Upp-
lýsingar í síma 552-7873.
Poki með
fötum týndist
POKI með fötum í, m.a. ör-
yggisskóm og úlpu, týndist
17. mars sl. Skilvís finnandi
komi þessu til óskilamuna-
deildar lögreglunnar.
Fundarlaun.
Morgunblaðið/RAX
Víkverji skrifar...
STÝRIMANNASKÓLINN í
Reykjavík var nýlega með opið
hús til að kynna starfsemi sína. Það
var gert af myndarbrag og allt gert
til að skýra námsefni og síðar við-
fangsefni skipstjórnarmanna sem
bezt. Það er einkennileg sú þróun
sem orðið hefur í aðsókn að sjó-
mannaskólum landsins. Sífellt færri
sjá ástæðu til þess að afla sér mennt-
unar sem skipstjórnarmenn og vél-
stjórar. Einhverra hluta vegna telst
það ekki eftirsóknarvert lengur.
Kannski að mikill fjöldi undanþága
til skipstjórnarmanna og vélstjóra
ráði einhverju um þessa þróun.
Svipaða sögu hefur verið að segja
af Fiskvinnsluskólanum. Á hinn bóg-
inn er sjávarútvegsdeild Háskólans
á Akureyri að dafna og aðsókn í sjáv-
arútvegstengt nám í Háskólanum
hefur einnig aukizt. Það virðist því
sem svo að meiri ásókn sé í menntun,
sem leiðir til stjórnunarstarfa í landi,
fremur en á sjó, þrátt fyrir mikla
tekjumöguleika á sjónum. Þannig
sýnist Víkverja einnig að þeir, sem
afla sér menntunar sem vélstjórar
stefni miklu frekar á vinnu í landi en
ásjó.
Þetta er alvarleg þróun, því hæfir
millistjórnendur í sjávarútvegi eru
ekki síður mikilvægir en topparnir.
Á sínum tíma var mikil aðsókn að
Fiskvinnsluskólanum og á fyrstu ár-
um hans útskrifaðist þaðan mikill og
fríður hópur og eru margir úr þeim
hópi í mikilvægum stöðum innan ís-
lenzks sjávarútvegs í dag. Menntun í
sjávarútvegi er mikilvæg og nauð-
synlegt að hlú þannig að henni að
hún verði eftirsótt og haldi áfram að
skila góðu starfsfólki.
xxx
AÐ VAKTI athygli þeirra, sem
komu í Stýrimannaskólann um-
ræddan kynningardag, hve vel var
að kynningunni staðið. Víkverja er
einnig kunnugt um það að mikil
vinna hafði verið lögð í þrif innan-
húss eins og reyndar daglega til að
hafa allt sem fínast. Á hinn bóginn
var tekið eftir því að utan húss var
ekki staðið eins að verki. Þar blasti
við ýmis sóðaskapur og má segja að
sums staðar hafi hlaðið við skólann
verið eins og stór öskubakki. Það er
ekki góð aðkoma.
XXX
NÚ STYTTIST í það að Kennara-
háskólinn útskrifi kennara á
þessu vori. Það verður að vanda stór
hópur ungs fólks með miklar vonir
og væntingar um ævistarfið. Spurn
eftir kennurum er ætíð mikil úti á
landsbyggðinni, sem ekki virðist
hafa sama aðdráttaraflið og skólar á
höfuðborgarsvæðinu. Fyrir
skemmstu var haldinn eins konar
kynningardagur fyrir nema í Kenn-
araháskólanum. Flykktust þá skóla-
stjórar og sveitarstjórnarmenn á
samkomu í skólanum og fóru að
„bjóða“ í kennaraefnin. Skólarnir og
viðkomandi sveitarfélög lýstu á
fjálglegan hátt hinum góðu aðstæð-
um, sem kennarar þeirra búa við og
væntanlega góðum kjörum einnig.
Sumir voru með myndbandasýning-
ar, skyggnur og buðu upp á konfekt,
en aðrir höfðu minna við.
Það er vissulega gott fyrir vænt-
anlega kennara að vera eftirsóttir.
Það gefur þeim möguleika á betri
kjörum en ella og kost á því að velja
og hafna. Það er hins vegar hætt við
því að aðstæður sem þessar leiði til
þess að fjársterkari sveitarfélögin
geti boðið bezt og þau sem minna
mega sín verði að sætta sig við þá
sem lakari eru taldir. Það getur svo
aftur leitt til þess að börn í þeim
sveitarfélögum fái slakari menntun
en í hinum. Einhvern veginn finnst
Víkverja þetta ekki í lagi, en hann
hefur á hinn bóginn enga lausn á
þessu vandamáli, fremur en svo
mörgum öðrum.
xxx
OKS leggur Víkverji til að orð-
skrípinu samkeppnisaðili verði
útrýmt úr íslenzkri tungu. Orðið aðili
tröllríður daglegu máli margra,
einkum þeirra, sem stunda viðskipti
af ýmsu tagi. Orðið samkeppnisaðili í
stað keppinautar er að mati Víkverja
álíka gáfulegt og orðið hjónabands-
aðili yfir annað hjóna.