Morgunblaðið - 11.04.2000, Side 68
'8 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Wes Craven ásamt hjónakornunum Courtney Cox Arquette og David
Arquette en þau léku saman í Scream-myndum hans.
Wes
Craven
CARPENTER, Romero, William-
son, King og Craven; ásamt örfá-
um öðrum eru þetta nöfnin á bak
við uppsveiflu og endurnýjun
hryllingsmyndarinnar. Af kvik-
myndaleikstjdrum er Wes Craven
tvímælalaust í fararbroddi. Rom-
ero hættur eftir að hafa slegið í
gegn með nokkrum sigildum
myndum á borð við Night of the
Living Dead (’68), Carpenter farið
að fatast flugið eftir fjölmarga,
framúrskarandi hrolli, menn frá
Stanley Kubrick til Jans De Bont
að krunka í greinina með misjöfn-
um árangri. Craven hefur hinsveg-
ar haldið sínu striki í hartnær 30
ár - frá því hann stimplaði sig
rækilega inn með hálf-klassíkinni
Last House on the Left (’72) til
Öskurs nr. 3 (’OO), sem nýtur mik-
illa vinsælda hér sem annars stað-
ar um þessar mundir.
Craven er fæddur 1939 og upp-
alinn í Cleveland, Ohio, þar sem
hann fékk strangt uppeldi, for-
eldrarnir heittrúaðir baptistar.
Hann tók BA-gráðu í sálarfræði
við Wheaton og síðar MA í heim-
speki frá Johns Hopkins-háskdlan-
um í Baltimore. Að námi loknu
starfaði Craven í fimm ár sem prd-
fessor í hugvísindum og fátt sem
benti til þess sem koma skyldi. Þá
tdk menntamaðurinn sér frí og
hélt til New York. Gerði síðan
slíkar breytingar á högum sínum
að hann líkir þeim við kamikaze,
sjálfsmorðsaðgerðir japanskra
hermanna í síðari heimsstyrjöld.
Fór að starfa sem aðstoðarmaður
við kvikmyndaframleiðslu nokk-
urra B-myndafyrirtækja og líkaði
vel.
Eitt leiddi af öðru, Craven fikr-
aði sig upp stigann á nýjum starfs-
vettvangi og lauk árið 1972 við
Síðasta hús á vinstri hönd, sem
hann leikstýrði, skrifaði handritið
að og klippti. Myndin kostaði
skiptimynt en tdk inn 7 milljdnir
daia; Craven var búinn að finna
köllun sína í lífinu. Uppgötvaði
það sama og Carl Laemmle hálfri
öld áður, að ddýrar hrollvekjur
gefa gull í mund. Craven hlaut
|í' King
‘á Koil
Amerískar
Verðdæmi
Twin XL: Verð áður kr. ■627ÍÖU
Nú kr. 52.900
Full XL: Verð áður kr.
Nú kr. 65.700
Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með
King Koil heilsudýnunum.
Kvöldverðarboðið í The Last House on the Left var eitt margra dþægilegra atriða í byrjendaverki Cravens.
Courtney Cox Arquette ásamt Jenny McCarthy í hrollvekjunni Scream
3 sem hefur notið mikilla vinsælda.
misjafna ddma fyrir byrjendaverk-
ið sem flestir töldu dsóma og við-
urstyggð en aðrir hdfu til skýj-
anna. Þannig hefur landið legið
hjá leikstjdranum síðan, menn
skiptast gjarnan f tvo hdpa - hata
hann eða dá. Það kom ekki síður í
ljds er leikstjdrinn frumsýndi The
Hills Have Eyes (’77). Gagnrýn-
endur og almenningur klofnuðu í
skoðunum sfnum en ddýr myndin
malaði gull og tdk inn stdrfé.
Myndin um fenjaskrímslið, The
Swamp Thing (’82), var gerð af
nokkrum efnum en varð hvorki
betri né verri fyrir vikið. Gamla
MGM-stjarnan Louis Jordan kom
við sögu, ásamt Adrienne Bar-
beau, þáverandi eiginkonu starfs-
brdður hans, Johns Carpenter, og
Ray Wise, ágætum leikara sem
virðist horfinn af sviðinu.
Næst kom Nightmare on Elm
Street (’87), myndin sem festi
Craven í sessi sem meginhöfund
nútímahrollsins, sem gjarnan er
VISA
VAKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Islandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
VISA (SLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
kenndur við unglinga. Myndin nýt-
ur gdðs af bestu eiginleikum Crav-
ens sem alhliða kvikmyndagerðar-
manns. Hrottaleg og hæðin í senn;
spennandi en jafnframt á köflum
afar óþægileg á að horfa. Sama ár
lauk Craven við The Serpent and
the Rainbow, ábúðarmikla en gjör-
samlega mislukkaða mynd um
vúdúgaldra, uppvakninga og fleira
í þeim dúr á paradísareyju í Kar-
íbahafinu. Bill Pullman (af öllum
mönnum) fdr með aðalhlutverkið.
The People Under the Stairs (’91)
er undarlega seiðandi erkivitleysa
um morðingja, suma ekki af þess-
um heimi. 1994 setti leikstjdrinn
punktinn aftan við Martraðarbálk-
inn með Wes Craven’s New
Nightmare (A Nightmare on Elm
Street 7), sem var eina fram-
haldsmyndin sem hann leikstýrði
sjálfur.
Háskdlaprdfessorinn fyrrver-
andi náði til enn stærri hdps með
næsta bálki, kenndum við öskur -
Scream. Sú fyrsta kom á markað-
inn 1996 og gerði allt vitlaust. Að
þessu sinni skrifaði Craven ekki
handritið, það kom frá Kevin
Williamson, efnilegasta hrollvekju-
skáldi kvikmyndanna um árabil.
Þeir félagar fylgdu þessu dgnvekj-
andi kassastykki eftir með Scream
2 (’97) og sem fyrr segir kom sú
þriðja út á árinu.
Það segir meira en nokkuð ann-
að um stöðu Cravens - og William-
son - að eftir fáum myndum hefur
verið apað jafn grimmt og
Scream. Stælingarnar skipta
a.m.k. tugum. Viðbrögðin enn
gríðarlegri en við Martraðarbálkn-
um, sem einnig setti eftirminnilegt
mark á kvikmyndatískuna.
Craven er tdnlistarlega sinnaður
maður, spilar á mörg hljóðfæri og
af þessum ástæðum tdk hann að
sér að leikstýra Meryl Streep í
Music of the Heart (’99), tilfinn-
ingaþrungnu drama um fiðlukenn-
ara sem gefur vændræðagemling-
um í Spönsku Harlem (hverfi ftílks
ættaðs frá Puerto Rico), innsýn í
töfraheim tdnlistarinnar. Myndin
gekk ekkert, gagnrýnendur tdku
henni fálega, svo Craven hélt aft-
ur út á blóðrauðar lendur hryll-
ingsins, þar sem Scream 3 hefur
nú tyllt sér í efsta sætið á vin-
sældalista Craven-mynda.
Sígild myndbönd
SCREAM (1996) ★★★%
B-hrollvekja af þeim toga sem
kvikmyndahúsgestir hafa séð í
massavís í gegnum tíðina. Leikstjór-
inn er hinsvegar gamalreyndur í
smíði slíkra afþreyinga og natinn við
að skapa gæsahúð úr gömlum lumm-
um. Handritshöfundurinn, Kevin
Williamson, á einnig stóran þátt í
hversu vel tekst til. Þeir fást við
morðóðan náunga sem drepur ung
fórnarlömb á hroðalegan hátt, pers-
ónan minnir talsvert á hnífakruml-
una Freddy Krueger. Hann leggst á
unglingagengi, ógnar því m.a. með
talsambandi samtímans, gemsanum.
Nokkrir erótískir undirtónar og
gálgahúmor en fyrst og fremst illþol-
andi spenna með nokkrum, rafmögn-
uðum hápunktum sem ærir lítt vön
ungmenni. Með Drew Barrymore,
Neve Campbell, Courtney Cox, Dav-
id Arquette og Skeet Ulrich.
A NIGHTMARE ON ELM
STREET (1984)*^A
Sú fyrsta og besta í vinsælum
framhaldsmyndabálki, segir frá
nokkrum ungmennum sem öll fá aft-
urgönguna Freddie Krueger
(Robert Englund), í hinar hroðaleg-
ustu martraðir. Enda þær flestar
með því að Álmstrætismóri drepur
þau með flugbeittum hnífum sem
spretta fram úr fingrum hans. Held-
ur ógeðslegar og ómerkilegar mynd-
ir, en þessi fyrsta er ótvírætt skelfi-
leg og tónninn nokkuð frumlegur, og
sýnu skárri en þær sem á eftir koma.
Undarlega valdir leikarar einsog
Ronee Blakely, Amanda Wyss,
Johnny Depp og John Saxon, era
kryddið í blóðmörnum.
LAST HOUSE ON THE LEFT
(1972) ★★★
I minningunni ein hroðalegasta og
óþægilegasta mynd frá áttunda ára-
tugnum, viðvaningsleg nokkuð en
áhrifarík. Tvær stúlkur lenda í hönd-
um mannræningja á rokktónleikum
og þær fluttar í afskekkt hús. Ræn-
ingjarnir eru forhertir glæpamenn á
flótta og er samband úrhrakanna við
stúlkurnar og foreldra þeirra allt
suddalegt og einstaklega óþægilegt.
Þær grípa að lokum til sinna ráða.
Craven segist hafa byggt myndina á
Meyjarkeldunnni eftir Bergman.
Nokkuð langsótt en ekki óhugsandi.
Fyrsta mynd leikstjórans og vakti á
honum umtalsverða athygli.
Sæbjörn Valdimarsson