Morgunblaðið - 11.04.2000, Side 76
flltrgiittiMaMi
Leitid uppiýsinga í síma 520 2040
www.atlantsskip.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMIS69I100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Banaslys
á Grund-
artanga
BANASLYS varð á Grundartanga
síðdegis í gær þegar ungur maður
lenti undir vörubifreið og lést sam-
stundis.
Slysið átti sér stað í grunni sem
verið er að vinna í vegna stækkunar
á verksmiðju Norðuráls á Grundar-
tanga. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Borgarnesi varð slysið
þannig að vörubifreið var að bakka
inn í grunninn og lenti á manninum
og ók yfir hann.
Ekki er hægt að greina frá nafni
mannsins að svo stöddu.
-------------
Utanríkisráðherra
Fundað alla helgina hjá sáttasemjara
Samningavið-
ræður á við-
TFjölga mætti
sendiráðum í
ESB-ríkjum
í SKÝRSLU utanríkisráðherra um
stöðu Islands í Evrópusamstarfi
kemur fram að nýta megi betur
sendiráð íslands hjá ríkjum ESB til
að skýra sjónarmið Islands áður en
- <3tál sem varða sérhagsmuni landsins
eru tekin til umfjöllunar í ráðherra-
ráði ESB. Stofnun sendiráða í fleiri
ríkjum ESB myndi einnig auðvelda
erindrekstur þar.
Halldór Asgrímsson segir í
skýrslu sinni að Norðmenn hafi stór-
eflt utanríkisþjónustu sína og haldi
uppi stöðugum erindrekstri innan
ESB ríkja, ekki síst gagnvart for-
mennskuríkinu hverju sinni. Segir
ráðherra að íslendingar geti tekið
sér þetta til fyrirmyndar innan eðli-
legra kostnaðarmarka. Taka mætti
upp Evrópumálefni á tvíhliða fund-
um íslenskra ráðherra og starfs-
bræðra innan ESB, nýta mætti bet-
ur sendiráð Islands þar sem þau eru
starfandi í sjö af fimmtán aðildar-
"*Tfkjum ESB og í öðrum tilfellum
mætti gera sendimenn út til höfuð-
borga ESB ríkja til að skýra út sjón-
armið Islands.
---------------
Féll 5-6 metra
niður í lest
Bráða-
birgða-
viðgerð
BROTNAR rúður eru oft fylgikvill-
ar stórkarlalegra gleðiláta í mið-
bænum um helgar, rúðueigendum
til hremmingar. Við slíkum uppá-
komum þarf að bregðast, skipta um
rúðu eða gera við til bráðabirgða
með tiitækum efnum og aðferðum.
í Bankastræti sá þessi viðgerðar-
maður þann kost vænstan að grípa
til límbandsins og líma aftur brotna
rúðuna, og lagði greinilega áherslu
á að bíta límbandið í sundur á rétt-
um stað sem næst rúðunni.
VINNUSLYS varð í Mánafossi,
skipi Eimskips, í Sundahöfn á níunda
tímanum í gærkvöldi er skipverji féll
5-6 metra niður í lest.
Bera varð manninn upp úr lestinni
um stiga þar sem körfubíl slökkvi-
liðsins í Reykjavík varð ekki við kom-
'ié til að lyfta sjúkrabörunum upp.
Þrátt fyrir hátt fall var ekki talið
að maðurinn væri alvarlega slasaður
en hann var fluttur á Landspítalann í
Fossvogi.
Gatcwaj'
Morgunblaðið/Ómar
kvæmu stigi
VIÐRÆÐUR í kjaradeilu atvinnu-
rekenda og Verkamannasambands
Islands voru á viðkvæmu stigi í
gærkvöldi en deiluaðilar sátu enn á
fundi í húsakynnum ríkissáttasemj-
ara þegar blaðið fór í prentun.
Deiluaðilar sátu á löngum fundum
um helgina og náðu samkomulagi um
sérmál. En þegar fundur hófst í gær
voru óútkljáð mál sem varða launa-
liði og fleira, svo sem tryggingar,
veikindarétt og starfsmenntun.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, sagði í
gærkvöldi að ekki væri auðvelt að
gefa afdráttarlausa mynd af stöð-
unni í deilunni. „Viðræðurnar gengu
vel um helgina og það er flest frá
annað en það sem snýr að loka-
ákvörðunum í málinu. Þau atriði sem
eru undir eru þau lykilatriði sem
ráða því hvort þetta næst eða ekki,“
sagði Ari og vildi ekki tjá sig frekar.
Hepar Gunnarsson, varaforseti
VMSI, vildi ekki ræða stöðu deilunn-
ar við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Verkfall flestra aðildarfélaga VMSÍ
hefst á miðnætti á miðvikudag náist
ekki samningar.
Langir fundir í deilu
flugvirkja og Flugleiða
Á miðvikudag hefst einnig verkfall
flugvirkja, sem sinna millilandaflugi
Flugleiða, ef samningar nást ekki
fyrir þann tíma.
Fundur var í deilunni um helgina
og í allan gærdag. Emil Eyjólfsson,
formaður samninganefndar, gaf ekki
kost á viðtali um stöðuna í gær en á
laugardag lögðu flugvirkjar fram
gagntilboð við tilboði frá Flugleið-
um. Ari Edwald vildi heldur ekki tjá
sig um stöðuna í deilu flugvirkja.
Flugleiðir tilkynntu í gær að þeir
farþegar sem vildu flýta för sinni
vegna yfirvofandi verkfalls gætu það
án nokkurs aukakostnaðar.
Um næstu helgi hefst verkfall
flugvirkja hjá Flugfélagi íslands hafi
samningar ekki tekist fyrir 17. apríl.
Ef til þess kemur leggst niður allt
áætlunarflug innanlands nema til
þeirra staða sem íslandsflug flýgur
til. Flugvirkjar gengu á dögunum frá
kjarasamningi vegna þeirra félags-
manna, sem vinna hjá Islandsflugi.
Morgunblaðið/Ásdís
Bikarinn til
Keflavíkur
KEFLAVÍK tryggði sér íslands-
meistaratitil kvenna í körfuknattleik
í gærkvöldi þegar liðið vann KR 57-
43.
Þetta var fimmta viðureign lið-
anna í úrslitarimmunni og fór odda-
leikurinn fram í nýja KR-húsinu í
Frostaskjóli að viðstöddum fjöl-
mörgum áhorfendum.
■ Keflvíkingar/B3
Hugsanleg aðild Islands að Evrópusambandinu metin
Kostnaður er tal-
inn 7-8 milljarðar
ÁRLEGT framlag íslands sem að-
ildarríkis Evrópusambandsins gæti
orðið á bilinu sjö til átta milljarðar
króna, að því er fram kemur í
skýrslu Halldórs Ásgrímssonar ut-
anríkisráðherra um stöðu Islands í
Evrópusamstarfi og hugsanlega
aðild landsins að ESB. Skýrslan
var lögð fram á Alþingi í gær og
verður líklega rædd á fimmtudag.
Til baka gætu runnið um 5 millj-
arðar króna úr sameiginlegum
sjóðum ESB en það yrði háð samn-
ingum og aðstæðum. í skýrslunni
eru taldar líkur á að með stækkun
ESB myndi framlag íslands hækka
og endurgreiðslur lækka, að
minnsta kosti þar til efnahagur
nýrra aðildarríkja batnaði.
Samningurinn um EES er
grunnurinn að samskiptum
Utanríkisráðherra segir í skýrsl-
unni að samningurinn um
Evrópska efnahagssvæðið sé
grunnurinn að samskiptum íslands
Endur-
greiðslur
geta numið 5
milljörðum
við ríki Evrópusambandsins og er
fjallað ítarlega um daglegan rekst-
ur EES-samningsins. I síðari hluta
skýrslunnar er fjallað um einstaka
málaflokka og kosti og galla aðild-
ar út frá hverjum og einum.
Um sjávarútvegsstefnu ESB
segir að hún yrði erfiðasta við-
fangsefnið ef að þeim degi kæmi að
ísland gengi til samninga um aðild.
„Markmið sameiginlegrar sjávar-
útvegsstefnu eru ekki ósvipuð þeim
sem íslensk stjórnvöld hafa sett en
allar aðstæður innan Evrópusam-
bandsins, þar sem litið er á sjávar-
útveg sem hluta af byggðastefnu
fremur en sem sjálfbæran atvinnu-
veg, eru gjörólíkar," segir í skýrsl-
unni og bent er á að styrkjagreiðsl-
ur innan ESB hafi ekki verið
greininni til góðs. Sameiginleg
sjávarútvegsstefna ESB geri ráð
fyrir að á hverju ári séu bornar
upp til samþykkis tillögur um
heildarafla innan ESB og skiptingu
hans og gildi það einnig um flökku-
stofna.
Sameiginlegar stofnanir
ESB tækju ákvarðanir
„Sameiginlegar stofnanir ESB
tækju þá ákvarðanir sem varða
lífsafkomu íslensku þjóðarinnar
væri Island aðildarríki. Starfsregl-
ur geta breyst og aðstæður allar og
því erfitt að treysta því að ásættan-
leg niðurstaða náist um alla fram-
tíð nema sérstakar reglur væru
lögfestar,“ segir í skýrslu Halldórs
Ásgrímssonar utanríkisráðherra.
■ Gildi EES/38-39