Morgunblaðið - 16.04.2000, Side 8

Morgunblaðið - 16.04.2000, Side 8
8 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Yfir til Alþingis r Ósóminn sendur til föðurhúsanna. Bless bursti Nú á ég skilið að uppþvottavél fá Vinnur verk sín í hljóði Þetta er sú heitasta á markaðnum, turbo burrkun með heitum blæstri og svo hljóðlát að þú hefur ekki hugmynd um að hún er gangi. Tekur 12 manna stell, býr yfir 6 þvottakerfum, er með 6 falt vatnsöryggi og svona mætti lengi telja - þetta er alvöruvél. Við vonumst til að geta óskað þér til hamingju með áfangann en bendum þér samt á að kveðja gamla uppþvottaburstann og -vettlingana með hæfilegri virðingu. AEG 4231-U verð 49.900 stgr B R Æ Ð U R N I R Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is ___rííL_ RdDIQðÍSUS? Geislagötu 14 • Sími 462 1300 Fjársöfnun fyrir alnæmissjúk börn Mikil þörf fyrir aðstoð Kristinn Snæland VERIÐ er að hefja söfnun á íslandi til styrktar alnæmis- sjúkum bömum í Rúmen- íu. Þessi söfnun á rætur í starfi Elísabetar Alm sem er sænskur lektor við Norræna húsið í Reykja- vík, en kynni hennar af rúmensku hjálparstarfi fyrir alnæmisveik böm kallaði á sameiginlegt átak í þessum efnum. Kristinn Snæland er einn af þeim sem svaraði neyðarkalli sem Elísabet sendi út fyr- ir jólin 1999 til aðstoðar alnæmisveikum börnum í Rúmeníu. „Óskin var fyrst og fremst sú að fólk hér sendi bömunum jólagjafir og kæmi á bréfasambandi við þau, þar sem þau era flest munaðarlaus,“ sagði Krist- inn er hann var spurður um að- draganda þess að hann beitir sér nú fyrir söfnunarstarfi fyrir um- rædd börn í Rúmeníu. „Forsaga þessa máls er sú að Elísabet Alm kynntist Mörtu Banulescu, sem er forseti hjálp- arstofnunar í Búkarest sem heitir Nicolae Balcescu, og varð þess áskynja að mikil þörf væri fyrir aðstoð við alnæmisveik böm í Rúmeníu og óskað væri eftir fjárstuðningi þeim til handa. Börnin hafa að vísu þak yfir höf- uðið á vegum hjálparstofnunar- innar en lítið meira. Þau þarfnast nánast alls annars, svo sem fæðis og klæða og þess að fá stuðning til þess að létta sér aðeins upp. Börnin era flest munaðarlaus svo enginn fer með þau eitt eða neitt nema Marta og stofnun hennar. Sem dæmi má nefna að í haust fór hún með tvo hópa í fjögurra daga ferð upp Karpatafjöll og vom 45 börn í hvoram hóp. Þessi ferðalög kostuðu samtals 1200 dollara. Óskir stofnunarinnar era að eignast jafnvel bíl sem hægt væri að nota í þágu bamanna og lítið sumarhús uppi í fjöllum þangað sem þau gætu farið, enda era börnin gjarnan óvelkomin á almenna gististaði vegna sjúk- leika síns.“ - Hvernig á að haga söfnun hér á landi? „Mér varð ljóst að ég var ekki sá eini sem hafði fengið óskir um fjárstuðning og fékk því lista frá Mörtu yfir þá íslendinga sem höfðu svarað hjálparbeiðninni. Þetta fólk var kallað saman á fund þar sem ákveðið var að opna reikning í Landsbankanum í Höfðabakka sem væri þannig skilyrtur að inn á hann væri hægt að leggja fé hér en ekki hægt að taka fé út af honum nema til að senda til Rúmeníu. Hugsunin á bak við þetta var að minnka kostnað við fjársending- ar til Rúmeníu, því það kostar ámóta að senda litlar upphæðir og stórar. Hugmyndin er sú að þessi reikningur verði opinn fyr- ir fjárframlög til framtíðar og í hvert skipti sem kom- ið sé inn á reikninginn fé sem nægi til að senda til Nicolae Balcescu stofnunar- innar í Rúmeníu þús- und dollara, þá verði það gert.“ - Hvað er hópurinn stór sem að söfnuninni stendur? „Við fengum um fimmtíu heim- ilisföng á listanum frá Rúmeniu en á bak við hvert heimilisfang era gjarnan nokkrir aðilar. Við höfum stofnað til nefndar sem á að halda utan um þessi heimilis- föng og reikninginn og köllum ► Kristinn Snæland fæddist 24. 10.1935 í Reykjavík. Hann lauk rafvirkjaprófi frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1955 og varð rafvirkjameistari 1958. Hann starfaði sem rafvirki og raf- virkjameistari í tuttugu ár. Síðan varð hann erindreki Framsókn- arflokksins, næst sveitarstjóri á Flateyri, þá starfsmaður hjá Tímanum. Frá 1978 til 1985 var hann við sjómennsku og rútu- bílaakstur, eftir það skrifaði hann bókina Bílar á íslandi í máli og myndum, 1904 til 1922, jafn- framt því sem hann ók leigubfl en við það starfar hann í dag. Kristinn er kvæntur Jónu Jóns- dóttur Snæland starfskonu hjá Melaskóla og eiga þau þrjú böm. nefndina; Vinanefnd Balcescu. Vinanefndin mun síðan fylgjast með hvernig reikningnum líður og senda aðilum hópsins yfirlits- bréf öðra hveiju um hvemig mál- in standa. Við teljum að þetta fyr- irkomulag henti betur en að stofna formlegt félag um þetta hjálparstarf, en ekki síður viljum viðreyna að stuðla að persónuleg- um samskiptum í formi smásend- inga við einstök alnæmissjúk böm í Rúmeníu. Þessi börn eiga engan að og það væri því mikil gleði því samfara hjá þeim að eiga vin á Islandi.“ - Hvað er þetta stór hópur sem Balcescu-stofnunin er að aðstoða? „Stofnunin er með um tvö hundrað böm sem hún aðstoðar beint en tekur auk þess á móti hópum alnæmissjúkra bama sem koma í heimsókn annars staðar að af landinu. Um hundrað þess- ara bama era í Búkarest en hin era í nágrenni borgarinnar." -Hvert er reikningsnúmerið í Landsbankanum sem hægt er að leggja inn á framlög til þessa að- stoðarstarfs? „Reikningurinn er sparisjóðs- bók; Vinir Balcescu heitir hún og kennitalan er 080881-3559 en reikningsnúmerið er 62550, banki 116, höfuðbók 05. Berta Björg Sæmundsdóttir er ábyrgðarmaður reikn- ingsins. Fyrirmæli varðandi reikninginn era skráð þessi: Að ekki megi taka út af reikningnum utan þá upphæð sem bankan- um verði gert að senda til Nicolae Balcescu stofnunarinnar í Búkar- est í Rúmeníu. Það er von okkar í Vinanefnd Balcescu að sem flestir sjái sér fært að leggja hinum munaðarlausu alnæmissjúku bömum í Rúmeníu lið með þess- um hætti. Söfnunin er þegar haf- in. Börnin sem við söfn- um fyrir eiga flest engan að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.