Morgunblaðið - 16.04.2000, Page 10
10 SUNNUDAGUR16. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR Þórhildur tók við starfi sínu ár-
ið 1995 komst hún fljótlega að raun
um að á íslandi væri mikið starf
óunnið í málefnum barna og ung-
menna og einnig ættum við margt ólært í þeim
efnum. Síðan hefur margt áunnist í þeim mál-
um þótt enn sé víða verk að vinna.
Sem umboðsmaður barna hefur Þórhildur
lagt ríka áherslu á að ná vel til umbjóðenda
sinna sem eru börn og unglingar undir 18 ára
aldri eða tæpur þriðjungur íslensku þjóðarinn-
ar.
Þórhildur segir að barn eða unglingur hafi að
jafnaði samband við hana vikulega. Henni ber-
ist póstur frá þeim í gegnum tölvu, þau hringi
eða komi í heimsókn á skrifstofuna. Eðli máls-
ins samkvæmt hafi börnin því algjöran forgang
- fram yfir hina fullorðnu er þangað leita. Hún
hefur einnig lagt áherslu á að heimsækja börn-
in í þeirra umhverfi og í því skyni m.a. heimsótt
fjöldann allan af skólum úti á landsbyggðinni.
„Ég er jú umboðsmaður allra bama, hvar sem
þau eru í sveit sett, þótt ég hafi aðsetur hér í
Reykjavík," segir hún.
Fyrir tveimur árum var opnuð á Netinu
heimasíða umboðsmanns barna (www.barn.is).
Segir hún börnin almennt mjög ánægð með
þetta framtak og hafi þau í auknum mæli not-
fært sér tölvupóstinn til þess að koma til henn-
ar ábendingum og fyrirspurnum.
„Samkvæmt 12. gr. Barnasáttmála Samein-
uðu þjóðanna eiga böm rétt á að segja skoðun
sína í öllum málum er þau varða. Þetta ákvæði
felur einnig í sér skyldur yfirvalda til að hlusta
og sömuleiðis virða skoðanir bama og unglinga
með hliðsjón af aldri þeirra og þroska. Þetta er
sú grein Barnasáttmálans sem þykir nokkuð
byltingarkennd og mörgum fullorðnum er ekk-
ert vel við þessa grein,“ útskýrir hún. „Margir
halda því fram að böm hafi ekki skoðanir, sem
er hin mesta firra. Það þarf auðvitað að ala
böm upp við að eiga skoðanaskipti
og kenna þeim að tjá sig á skil-
merkilegan hátt. Þarna gegna for-
eldramir höfuðmáli. Ég tel einnig
mikilvægt að efla kennslu innan
skólanna í tjáningu talmáls og rit-
máls.“
Gagnlegar tillögur frá
börnum í eineltismálum
Hvað er það sem bömin ræða
helst við þig?
„Algengt er að böm veki athygli
mína á því að þau séu lögð í einelti
af öðrum nemendum og jafnvel ein-
stökum starfsmönnum skóla.
Vegna fjölmargra tilmæla frá um-
bjóðendum mínum ákvað ég fyrir
tveimur árum að boða til ráðstefnu
þar sem áttatíu böm ásamt fimmtíu
fullorðnum einstaklingum, sem
vom fulltrúar ýmissa stofnana og
félaga, settust niður og ræddu
þetta alvarlega vandamál í blönd-
uðum umræðuhópum kynslóðanna.
Markmiðið með ráðstefnunni var
fyrst og fremst að fá ábendingar og
tillögur um hvaða leiðir væm færar
til að vinna gegn einelti og hvað
unnt væri að gera þegar kæmist
upp um slíkt athæfi. Þar eð börn og
unglingar em í daglegri nálægð við
vandamálið og þekkja það af eigin
raun ákvað umboðsmaður að fela
þeim stjóm umræðunnar. Bömin
komu vel undirbúin til leiks. Því
varð ráðstefnan mjög gagnleg en í
lok hennar lágu fyrir margar góðar
tillögur og ábendingar sem ég lét
vinna úr og birtar vora í skýrslunni
„Einelti kemur öllum við“.
Það sem er svo skemmtilegt við
margar tillögur frá unglingum er að
þær em oft svo einfaldar og ódýrar
í útfærslu að það væri þess vegna
unnt að framkvæma þær strax.
Þessi skýrsla hefur fengið gífur-
lega mikla útbreiðslu og vonandi
hefur hún komið að einhverju gagni
í baráttunni við þann vágest sem
einelti er.
Að fmmkvæði mínu fól menntamálaráðherra
Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntamála
að gera rannsókn á umfangi og eðli eineltis á
landsvísu. Er það fyrsta rannsókn sinnar teg-
undar hér á landi. Mér er kunnugt um að fleira
er í farvatninu hjá ráðuneytinu í eineltismálum
og mun ég fylgjast vel með því sem þar gerist."
Böm eiga líka rótt á
friðhelgi einkalífsins
Þau mál sem böm ræða einnig mikið við um-
boðsmann sinn em erfiðleikar sem þau upplifa í
tengslum við skilnað eða sambúðarslit foreldra.
Segir Þórhildur að þetta sé sá flokkur erinda
sem í gegnum árin hafi verið hvað umfangs-
mestur ásamt skólamálunum. Arið 1997 bámst
207 erindi þessa efnis til embættisins og ári síð-
ar vom þau 280. „Með hliðsjón af þessu ákvað
ég að leggja til við dómsmálaráðherra á árinu
1998 að sett yrði á fót þverfagleg sérfræðir-
áðgjöf sem hefði það hlutverk að aðstoða og
Verðum að
sýna í verki
hvers virði
börnin eru
Umboðsmaður barna, Þórhildur Líndal, hefur gegnt
starfí sínu í fímm ár og hefur hún komið mörgum þörf-
um málum áleiðis. Hildur Einarsdóttir ræddi við Þór-
hildi, sem vill að leitað verði leiða til að börn og ungl-
ingar geti komið skoðunum sínum á framfæri á
skipulagðan hátt við sveitarstjórn þegar verið er að
fjalla um málefni er þau varða.
leiðbeina börnum og foreldmm við lausn
vandamála sem óneitanlega koma upp þegar til
skilnaðar foreldra kemur. Á Norðurlöndum
þekkist þetta fyrirkomulag og hefur það reynst
mjög vel samkvæmt þeim upplýsingum sem ég
hef undir höndum.
Ég taldi einnig nauðsynlegt að upplýsingar
til almennings yrðu bættar á þessu sviði og hef
því hvatt dómsmálaráðuneytið til að gefa út
bæklinga á auðskiljanlegu máli, svo sem um
sameiginlega forsjá og um umgengnisrétt. Á
vegum dómsmálaráðuneytisins er nú verið að
gera tilraun með sérfræðingaráðgjöf við sýslu-
mannsembættið í Reykjavík.
Bæklingamir sem ég nefndi hér áðan hafa
ekki enn litið dagsins ljós en em vonandi vænt-
anlegir.
Ég hef lagt það til við sifjalaganefnd sem hef-
ur það hlutverk að endurskoða bamalögin að
inn í þau lög verði tekið sérstakt ákvæði um op-
inbera þverfaglega fjölskylduráðgjöf. Ég er
þeirrar skoðunar að skylda eigi foreldra til að
sækja fundi slíkrar ráðgjafar áður en skilnaður
er veittur."
Virðingarleysi af hálfu fullorðinna er málefni
sem börn tala gjarnan um að sögn Þórhildar.
„Þau nefna ókurteisi ýmissa sem starfa við
þjónustu, svo sem afgreiðslufólks í verslunum,"
segir hún. „Oft vill líka gleymast að börn eiga
rétt á friðhelgi einkalífsins eins og hinir full-
orðnu.“ Þórhildur segir frá skólaferðalagi þar
sem farið var í farangur krakkanna til að leita
að sælgæti sem var bannað að hafa með í för.
„Það er sjálfsagt að skoða farangur ef talið er
að þar sé eitthvað ólöglegt, en það má ekki
gleymast að böm eiga sitt einkalíf eins og full-
orðnir, og það ber að virða.“
Nauðsyn á samræmdri slysaskrá
Það em eklri aðeins böm sem hafa samband
við umboðsmann bama heldur einnig fullorðnir
sem koma til umboðsmanns með munnleg eða
skrifleg erindi. Umboðsmaður bama ákveður
sjálfur hvaða mál era tekin til meðferðar sam-
kvæmt rökstuddum ábendingum eða að eigin
fmmkvæði. Umboðsmaður fær
líka beiðnir um að gefa umsagnir um laga-
fmmvörp og reglugerðir frá Alþingi og stjórn-
völdum, auk þess sem hann kemur með tillögur
um breytingar á lögum, stjórnvaldsaðgerðum
eða stjómsýsluháttum, að eigin irumkvæði.
„Eitt af mínum hjartans málum er öryggi
bama almennt," segir Þórhildur. „Strax á árinu
1995 spurðist ég fyrir um heildartölur slysa á
börnum og unglingum en komst þá að raun um
að þær vom ekki til. Ég hvatti því slysavarnar-
áð til að beita sér fyrir gerð samræmdrar
skráningar yfir barna- og unglingaslys sem
næði til landsins alls. Ef við höfum ekki þessa
vitneskju haldbæra getum við tæplega byggt
upp markvissar forvarnir í þágu barna en
slysatíðni hér á landi er því miður allt of há. Þar
eð mér fannst helst til mikill hægagangur í
þessum málum og svör bámst treglega, gerði
ég í samstarfi við Félag íslenskra barnalækna
og bamaslysavamarfulltrúa Slysavarnarfélags
Islands tillögu um að hrandið yrði af stað af
hálfu heilbrigðisráðuneytisins tilraunaverkefn-
inu „Eflum forvarnir - fækkum slysum á börn-
um.“ Nú hefur það ánægjulega gerst að sett
hefur verið af stað þriggja ára tilraunaverkefni
sem byggir í gmndvallaratriðum á framan-
greindum tillögum."
Heggur sá er hlífa skyldi
Frá upphafi starfs síns hefur Þórhildur beitt
sér gegn hvers kyns ofbeldi gagnvart börnum
og unglingum. Á árinu 1997 var mikil umræða í
þjóðfélaginu um kynferðislegt ofbeldi á börn-
um, sem mátti meðal annars rekja til alþjóð-
legrar ráðstefnu Sámeinuðu þjóðanna um kyn-
ferðislega misnotkun barna, sem haldin var í
Stokkhólmi og vakti heimsathygli. Segir Þór-
hildur að meðal þess sem kom
fram í umræðunni hér á landi
hafi verið hvort staða bama sem
fómarlamba í kynferðisbrota-
málum væri nægilega tryggð í
réttarkerfinu. í því sambandi var
meðal annars bent á að ekki
væra til samræmdar reglur á
landsvísu um starfsaðferðir lög-
reglu við rannsókn þessara mála.
„Eg ákvað þá sem umboðsmaður
barna að taka til sérstakrar með-
ferðar, að eigin fmmkvæði, kyn-
ferðisbrot gegn bömum og ung-
mennum frá lögfræðilegu
sjónarmiði. Gaf embættið út
skýrslu um þetta mál sem ég
kallaði „Heggur sá er hlífa
skyldi".
I kjölfar þessarar skýrslu lagði
ég tO ýmsar lagabreytingar til að
bæta réttarstöðu barna sem
fórnarlamba kynferðisbrota.
Flestar þessara tillagna era þeg-
ar orðnar að lögum. Má þar
nefna að nú eiga fórnarlömb kyn-
ferðisafbrota rétt á aðstoð rétt-
argæslumanns þeim að kostnað-
arlausu strax á rannsóknarstigi.
Þá lagði ég tU að dómari sem
dæmir í málinu yfirheyrði bam
strax á rannsóknarstigi í stað
lögreglu. Þannig ætti að vera
unnt að forðast að barn þurfi að
gefa skýrslu oftar en einu sinni í
máhnu.
Ég lagði hka tU að þessi alvar-
legu brot fymtust aldrei, en Al-
þingi gekk ekki svo langt heldur
var samþykkt að fyrning þessara
brota hæfist við fjórtán ára aldur
brotaþola.
Ofbeldisefni í sjónvarpi á
þeim tíma sem börn sitja
við skjáinn
Fljótlega eftir að ég hóf störf
var athygli mín vakin á auglýs-
ingum kvikmyndahúsa og
myndbandaleiga í sjónvarpi, á
kvikmyndum og myndböndum
bönnuðum bömum. Ábendingamar miðuðust
einkum við þær auglýsingar sem birtust rétt
fyrir aðalfréttatíma sjónvarpsstöðvanna á
kvöldin, þegar böm allt niður í leikskólaaldur
era enn við sjónvarpsskjáinn. Ég beindi á sín-
um tíma þeim tUmælum til Samkeppnisstofn-
unar að sett yrði bann á þessar auglýsingar. Ég
réði jafnframt sérfræðing tU að athuga í hve
miklum mæli þessar auglýsingar væm og kom í
ljós að á hálfsmánaðar tímabUi birtust 96
auglýsingar sem höfðu að geyma ofbeldisefni
og sýndar vom fyrir klukkan tíu á sjónvarps-
stöðvunum.
Skömmu seinna samþykkti útvarpsráð að
auglýsingar sem þessar skyldu ekki sýndar í
Ríkissjónvarpinu fyrir klukkan níu á kvöldin.
Eitthvað virðist þó hafa slaknað á þessum kröf-
um upp á síðkastið.
Fyrir Alþingi liggur nú fmmvarp til nýrra
útvarpslaga og í umsögn minni til Álþingis hef
ég bent á að taka þurfi upp ákvæði sem byggir
i
i
I
f
I