Morgunblaðið - 16.04.2000, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 16.04.2000, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Listasafn Reykjavfkur opnað í Hafnarhúsi Vaxtarbroddur í menn- ingarlífi borgarinnar FYRSTI áfangi húsakynna Lista- safns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu verður tekinn í notkun næstkom- andi miðvikudag, en þá verður húsið vígt og borgarstjóri Reykjavíkur, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, tekur formlega við húsinu í tilefni opnun- ar á tveimur sýningum, þeim fyrstu í nýjum salarkynnum. I gönguferð um húsið með Guð- rúnu Jónsdóttur, formanni menn- ingarmálanefndar Reykjavíkur- borgar, kom í Ijós að húsið er allt hið glæsilegasta og kemur til með að verða mikilsverð viðbót við starf- semi Listasafns Reykjavíkur í framtíðinni. Auk þess að vera í for- svari fyrir menningarmálanefnd er Guðrún formaður byggingamefnd- ar Hafnarhússins og nýs safnahúss í Tryggvagötu sem nýverið var gefið nafnið Grófarhús. Auk Guðrúnar hafa starfað í nefndinni Árni Þór Sigurðsson, formaður Hafnar- stjórnar, Ingimundur Sveinsson arkitekt, Jón Björnsson, yfirmaður þróunarsviðs Reykjavíkurborgar, og fjórir forstöðumenn þeirra safna sem flytja húsin. Frá byggingar- deild borgarverkfræðings komu Rúnar Gunnarsson og Þorkell Jóns- son að þessu starfí. Áhersla var lögð á að halda í sérkenni hússins „Upprunalega var Hafnarhúsið teiknað af Sigurði Guðmundssyni arkitekt, en það var tekið í notkun á fjórða áratugnum," segir Guðrún. „Þegar farið var að huga að endur- byggingu hússins var mikil áhersla lögð á að halda í sérkenni hússins og reyna að gera ekkert sem drægi úr meginhugmynd Sigurðar, er hverfist um húsagarðinn í miðjunni. Efnt var til boðskeppni um breyt- ingamar á húsinu og vom fjórir að- ilar valdir til að setja fram tillögur. Studio Granda varð síðan hlutskar- past en að þeirri tillögu standa arki- tektarnir Margrét Harðardóttir og Steve Christer. Þau hafa byggt fleiri hús í miðbænum, m.a. hús Hæstaréttar og Ráðhúsið. Að mati dómnefndar fóru þau mildustum höndum um húsið og komu til móts við það á aðlaðandi hátt,“ segir Guð- rún ennfremur. ,Á miðvikudag verða opnaðar tvær hæðir í húsinu en þar era sex sýningarsalir auk sjöunda salarins sem er fjölnotasalur. Önnur sýning- in sem opnar á miðvikudaginn er hugsuð sem stefnumót listaverka- eignar borgarinnar og Hafnarhúss. Menn era að byrja að fíkra sig áfram með það hvernig eigi að taka á sýningarmálunum. Þetta era myndir úr eigu Listasafns Reykja- víkur, en um 14.000 listaverk eru í eigu borgarinnar. Listaverkaeignin skiptist að nokkra leyti upp í einka- söfn; í Kjarvalssafni era um 5.000 verk, þar af era um 250 málverk auk skissna og annarra hluta frá Kjarval. Errógjöfín er um 3.000 verk núna þótt hún hafi ekki verið svo stór í byrjun. Hún hefur sífellt verið að vaxa, en hluti af þessum verkum Erró eru t.d. skólaverk, sem segja til um þróun hans sem listmanns. Þessi gjöf var færð Reykjavíkurborg árið 1989, svo það era liðin 11 ár síðan Erró gaf þetta og kominn tími til að geta sinnt þessu eitthvað. Nú, svo heyrir Ás- mundarsafn líka undir Listasafn Reykjavíkur, en þar era um 2.300 verk, þar af tæplega 400 höggmynd- ir. Verk eftir aðra en þessa þrjá era í dag um 3.200,“ segir Guðrún. Kjarval, Ásmundur og Erró eiga allir sinn stað Hvaða breytingar hefur tilkoma þessa nýja húss í för með sér fyrir starfsemi listasafnsins á Kjarvais- stöðum? „Samþykkt um byggingu Kjar- valsstaða var gerð árið 1965 á 80 Guðrún Jónsdottir, arkitekt og formaður menningarmálanefndar Reykj avíkurborg- ar, ræddi við Fríðu Björk Ingvarsddttur um Hafnarhúsið og hlutverk þess, en það verður vígt miðvikudaginn 19. apríl. Morgunblaðið/Golli Unnið við að setja upp úrval verka úr eigu Listasafns Reykjavíkur ára afmæli Kjarvals. Þegar húsið var vígt árið 1973 átti það annars vegar að hýsa verk hans í svonefnd- um Kjarvalssal, en hins vegar átti þar að vera sýningarsalur fyrir al- mennar listkynningar, sem tók þá í rauninni við af gamla Listamanna- skálanum. En síðan hefur þróunin orðið sú að við höfum ekki alltaf getað haft Kjarval á veggjum, hann hefur stundum þurft að víkja fyrir stærri sýningum sem verið hafa í öllu húsinu. Á þessu verður breyt- ing núna, þegar Kjarval fer í sinn Kjarvalssal og verður þar. Hinn sal- urinn verður áfram notaður sem sýningarsalur, svo húsið er núna að færast yfir í sitt uppranalega hlut- verk. Á sama máta verður Erró allt- af uppi í Hafnarhúsinu, honum er ætlaður varanlegur staður í norður- álmu þess húss, en þar era tveir sal- ir sem ganga undir starfsheitinu Úrval verka sett í nýtt sam- hengi ásamt Fabrice Hybert EIRIKUR Þorláksson for- stöðumaður Listasafns Reykjavík- ur sagði í samtali við blaðamann að aðstaðan í Hafnarhúsinu væri mikið framfaraskref, en á miðvikudaginn kl. 14 opna 2 sýningar í þremur söl- um í hinu nýja Hafnarhúsi, sem báðar eru liður í dag- skrá menningarárs. Önnur sýningin er einskonar úrval úr listaverkaeign safnsins og hef- ur einfaldlega verið gefíð nafnið „Myndir á sýningu" og mun standa út árið 2000. Sú sýning er að sögn Eiríks ekki endilega sett upp með beinu tilliti til hefðarinn- ar, - hún er ekki í timaröð eða sögulegs eðlis, heldur er hún er sett upp með þetta nýja húsnæði í huga þar sem gömul list er sett upp í nýju og spennandi sam- hengi. Á miðvikudaginn verður einnig opnuð sýning á innsetningu eftir franska listamanninn Fabrice Hybert, en hann hlaut gullljónið, æðstu verðlaun Feneyja-tvíær- ingsins árið 1997. Innsetn- ingunni í sal Hafnarhússins hefur Hybert valið yfír- skriftina „Á eigin ábyrgð“, en sýningin stendur til 14. maf. Við opnunina verður svo frumsýnd ný heimildarmynd um listamanninn Erró, en leiksijóri hennar er Ari Alexander Ergis Magnússon. Að sögn Eirfks veitir þetta nýja hús svigrúm til að vera með fastar sýningar, en slíkt tækifæri hefur ekki gefíst áður. Nú verður hægt að vera með fastar sýningar á verkum Jóhannesar Kjarval á Kjarvalsstöðum, Ásmundar Sveinssonar í Ásmundarsal í Sig- túni og á verkum Erró í tveimur Morgunblaðið/Golli Guðrún Jónsdóttir í húsagarði Hafnarhússins sem nú hefur fengið nýtt hlutverk „Errósafn“.“ Nú er þetta mikil aukning á sal- arkynnum fyrir Listasafn Reykja- víkur. Verður þetta til þess að hægt verður að þróa starfsemina þar í samræmi við þarfír framtíðarinnar? „Já,“ segir Guðrún, „nú eigum við að geta sett upp sýningar í hinum sölunum með verkum í eigu safns- ins, svo við eignumst í fyrsta skipti, að segja má, listasafn yfir fleiri en einn listamann, - þar sem sýnd verða þau verk sem við eigum og hægt er að ganga að því vísu, hvort heldur sem er fyrir erlenda gesti, okkur borgarbúa eða aðra lands- menn, að alltaf sé uppi sýning sem sýnir ákveðna þróun í íslenskri myndlist, eða kafla úr henni. I öðram sölum í Hafnarhúsinu verða svo breytilegar sýningar, bæði íslenskar og erlendar, svo og í vestursal Kjarvalsstaða. Þetta nýja hús eykur því mjög möguleikana á því að hafa eitthvað fast, en við- halda engu síður fjölbreytileikanum í sýningarhaldinu." Margar leiðir að opnast inn í alþjóðlegan listaheim Á Listasafn Reykjavíkur ein- göngu íslensk verk eða eru verk eft- ir erlenda listamenn þar á meðal? „Þetta eru ekki alveg eingöngu íslensk verk, en ársframlag til lista- verkakaupa hefur undanfarin ár verið 12 milljónir króna sem er ekki há fjárhæð. Við höfum samt verið svo heppin að það hafa margir gefíð okkur góð verk og svo höfum við getað keypt einstaka erlent verk. Það er þó alveg Ijóst að við þurfum að reyna að sinna þessum þætti líka. En miðað við þetta fjárframlag höfum við lagt megináherslu á ís- lenska samtímalist, auk þess að kaupa góð verk eftir Kjarval og fleiri til að fylla inn í safn okkar af verkum eftir eldri málara," segir Guðrún. Verða þessar fjárveitingar aukn- ar með tilkomu Hafnarhúss? „Það á auðvitað eftir að ræða það, því það er stór biti fyrir okkur að opna þetta safn, koma því í notkun og nýta það vel. Við þurfum aðeins að auka starfsmannahald, svo við verðum að sjá hvemig það kemur til með að þróast. En vonandi verður hægt að auka framlög til listaverka- kaupa, því þetta er orðið safn sem menn taka mark á í heiminum og með því að efla það sköpum við óskaplega mörg tækifæri, bæði fyr- ir okkar listamenn og líka á sviði at- vinnustarfsemi. Þessari starfsemi fylgja mörg störf og ef við komumst inn í þetta alþjóðlega umhverfí er þetta auðvitað atvinnuskapandi, ekki síður en ýmislegt annað. Fjár- magnið kemur þannig að einhverju leyti til baka. Erró hefur t.d. orðið okkur til mikils framdráttar, því í eigu safns- ins eru mörg hans bestu verka sem hafa opnað okkur leið inn í alþjóð- legt listaumhverfi. Hann hefur sýnt úti um allan heim, verkin okkar era tekin á þessar sýningar og þá er Listasafnsins og Reykjavíkurborg- ar getið. Út á þetta höfum við jafn- framt getað fengið sýningar til okk- ar frá söfnum erlendis, svo þetta hefur auðveldað okkur þau sam- skipti mjög.“ Þarna er þá vaxtarbroddur í menningarlegum samskiptum? „Já, mjög mikill. Sem verður von- andi einnig til þess að við eignumst Morgunblaðið/Golli Eitt þeirra verka sem komið er á stefnumót við nýtt hús. sölum í Hafnarhúsinu. Þar með hafa öll þessi föstu nöfn Listasafns Reykjavíkur loksins fengið varan- legt heimili. Fastar sýningar á verkum Erró verða þó ekki settar upp í Hafnarhúsinu fyrr en árið 2001, þar sem menningarárið býð- ur upp á margvísleg tækifæri varðandi sýningarhald sem vert er að nýta á meðan það varir, en siðan er hægt að snúa sér að fastri starfsemi. Þar að auki vill svo til að mörg verka Erró eru á flakki um heiminn þetta árið, og verða m.a. sýnd í Frakklandi, Noregi og Hong Kong. Hinn 30. aprfl verður svo opnuð sýning í tveimur sölum til viðbótar í Hafnarhúsinu, auk þess sem útirými verður tekið í notkun. Um er að ræða sýningu á vegum minjasafns Reykjavíkur og Árbæjarsafns í samstarfi við er- lenda aðila, en Listasafn Reykja- víkur leggur til húsnæði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.