Morgunblaðið - 16.04.2000, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 35
ningur Bandaríkjanna til
þríflokkanna og samtaka tengdum
þeim, samkvæmt Marshall-hjálpinni,
fjárlögum Bandaríkjanna og úr sjóð-
um NATO, næmi hundruðum mil-
ljóna, ef ekki milljörðum. Það er ekki
furða þótt Davíð sé andvígur allri
lagasetningu um fjárreiður stjórn-
málaflokka eða rannsókn á þeim.
Margur heldur mig sig
í greinarkomi Guðjóns E. Jóns-
sonar, „Rússagull og fleira gull“, í
Morgunblaðinu 26. nóv. sl. er komið
inn á þessi mál. Grein Guðjóns er
bráðsnjöll og reyndar væri hún
nægilegt svar við hinni nýju hrinu
um Rússagull, sem nú hefur riðið
húsum. En með leyfi Guðjóns tek ég
hér upp kafla úr greininni.
Guðjón segir:
Umræðan um hugsanlegt Rússa-
gull er ... komin á kreik á ný og ekki
dregið af sér. Menn heimta tafarlaus-
ar játningar og „undanbragðalaust
uppgjör við fortíðina". Skringilegast
af þessu öllu er þó það, þegar verið er
að reyna að kreista þessar játningar
út úr fólki, sem varla eða ekki var
fætt þegar viðkomandi „glæpur“ var
framinn en hinir „seku“ löngu komn-
ir undir græna torfu.
Mér finnst þetta svona álíka gæfu-
legt og farið væri að kalla þá til
ábyrgðar Davið og Geir fyrir það að
Sjálfstæðisflokkurinn tók gömlu nas-
istunum opnum örmum og leiddi þá
til metorða á íslandi. Hvorugur var
þá fæddur og þar af leiðandi saklaus!
Aðeins meira um peningamálin.
Er það virkilega svo að fjöldi fólks
hér á landi haldi að stjórnmálaflokk-
arnir og málsgögn þeirra hafi forðast
að nýta sér erlent fé í reksturinn hjá
sér? [...] Hvað halda menn svo að
orðið hafi af öllum fúlgunum, sem
dælt hefur verið inní íslenska pólitík
undir yfirskyni „baráttunnar gegn
heimskommúnismanum"? Ekki
komu þeir peningar frá Sovét.
Eg er ekki í vafa um að sá snjalli
rannsóknafréttamaður Árni Snæv-
arr færi létt með að grafa það upp, ef
hann og húsbændur hans kærðu sig
um. [...] Hver eru svo þau sannleiks-
vitni sem menn styðjast helst við? Jú,
jú, þarna er einkum stuðst við af-
dankaða fýlukomma og uppgjafa
KGB spíóna.
Til skamms tíma þótti nú ekki mik-
ið gefandi fyrir orð þessara manna,
en þeirra tími er greinilega kominn á
íslandi.
Ég ætla nú að leyfa mér að full-
yrða að það er mun feitara á stykkinu
annars staðar og ættu menn að
kynna sér það nánar. Þegar við svo
höfum svo öll gögnin uppi á borðinu
þá skulum við ræða hverjir eigi að
biðjast afsökunar á framferði sínu.
[...] Nú ímyndar heimsíhaldið sér að
það hafi endanlega gengið milli bols
og höfuðs á heimskommúnismanum,
eins og það kallar alla sósíalíska hug-
myndafræði. Sjálft hefur það svo að
eigin áliti öðlast eUíft líf og réttlæt-
ingu.
Næsta stig skal svo vera það að
hinn sjálfskipaði sigurvegari taki sér
sjálfdæmi um hvaðeina, sem á miUi
ber. Nú skal sko verða snúið upp á
handleggi og knúðar fram játningar!
Þessi söguskoðun byggist á þeirri
fávísu hugmynd að raunveruleg
póUtísk þróun eigi sér upphaf í náinni
fortíð og í dag hafi menn uppgötvað
þann stórasannleik sem ekki þurfi
endurskoðunar við.
Það þarf blindan mann til að sjá
ekki veikleikana í frjálshyggjufárinu,
mannfyrirUtningunni og peninga-
hyggjunni sem tröllríður samfélag-
inu í dag.
Það er áberandi og athyglisvert,
að þessari grein Guðjóns hefir mér
vitanlega hvergi verið svarað, svo
skorinorð sem hún er. Ekkert hefir
heyrst frá „húsmóður í vesturbæn-
um“ í Morgunblaðinu, menntamála-
ráðherra, foringja kaldastríðsmanna
né öðrum hugmyndafræðingum
íhaldsins. Sama er að segja um frá-
bæra grein Bjarndísar Arnardóttur í
Morgunblaðinu 29. október 1998,
„Endalok sögunnar eða hvað?“
Ekki hef ég heyrt neinn heimta
játningar af Birni Bjarnasyni, sem
hæst hefir galað um að leiðtogar á
vinstri væng geri upp við fortíðina og
játi á sig allar misgerðir austan-
tjaldsmanna og hefir hann þó mér
vitanlega ekki mótmælt misgerðum
vestrænna ríkja, heldur af alefli stutt
þessi ríki og varið. Björn ber ekki
ábyrgð á forsetanum sem sagði: Mal-
bikum Viet-Nam, né heldur þeim
sem sagði: Ég kann vel við hugsana-
gang Ku-Klux-Klan manna, né held-
ur á innbrotsþjófnum á forsetastóli,
né morðum tveggja milljóna
óbreyttra borgara, kvenna og barna,
í Viet-Nam, eða notkun efnavopna til
eyðingar öllu lífi þar.
Það er löngu kominn tími til að
lyfta umræðum um þessi mál á
hærra plan og hætta getgátum og
ósannindum, sem hægri öflin hér
vissulega hrundu af stað. Vonandi
verður samkomulag um skipun
nefndar, sem taki öll þessi mál til
rannsóknar, bæði njósnamálin og
meintan fjárstuðning erlendra ríkja
og samtaka við íslenska stjórnmála-
flokka og samtaka, beint eða gegnum
einstaklinga. Að vísu er hætta á, að
nefndinni takist ekki að komast til
botns í málinu. Stjómvöld beggja
ríkjanna, þar sem skjöl eru til um
þessi mál, eru vægast sagt mjög
hægrisinnuð og vís hætta á, að fjár-
austurinn til hægri aflanna verði hér
eftir sem hingað til falinn. Á það
verður samt að hætta.
Höfundur erfv. forstjóri.
INNRÖMMUNC/5
KAFENI 11 • S: 553 1788
s
SIEMENS
Tæki sem eiga
heima hjá þér!
Berðu saman verð,
gæði og þjónustu!
ajirTíiiiíii |
- Jfejl
Kæli- og frystiskápur
KG 36V20
235 I kælir, 105 I frystir,
h x b x d = 186 x 60 x 64 sm
r"'. „..
II
Uppþvottavél
SE 34200
Einstaklega hljóðlát og sparneytin,
fjögur þvottakerfi, tvö hitastig
Þvottavél
WM 20850BY
Tekur 4,5 kg, 800 sn./mín.,
hefur öll nauðsynleg kerfi
■
Kæli- og frystiskápur
KG 26V20
198 I kælir, 65 I frystir,
h x b x d = 150 x 60 x 64 sm
Eldavél
HL54023
Keramíkhelluborð, fjórar hellur,
fjölvirkur bakstursofn, létthreinsun
Þurrkari
WT 21000EU
Tekur 5 kg, einfaldur í notkun,
barki fylgir með, snýst í báðar áttir
Umboðsmenn um iand allt!
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir • Snæfellsbær: Blómstunællir • Grundarfjörður: Guðni Hallgrfmsson • Stykkishólmur: Skipavík • Búöardalur: Asubúð • Isafjöröur: Póllinn
Hvammstangi: Skjanni • Sauöárkrókur: Rafsjá • Siglufjöröur. Rafbær • Akureyri: Ljósgjafinn • Húsavfk: öryggi • Vopnafjörður. Rafmagnsv. Árna M. • NeskaupstaÖur: Rafalda • Reyöarfjöröur:
Rafvélaverkst. Árna E. • Egilsstaöir: Sveinn Guðmundsson • Breiðdalsvfk: Stefán M. Stefánsson • Höfn I Hornafiröi: Króm og hvltt • Vík í Mýrdal: Klakkur • Vestmannaeyjar: Tréverk
Hvolsvöllur: Rafmagnsverkst. KR • Hella: Gilsá • Selfoss: Árvirkinn • Grindavík: Rafborg • Garöur: Raftækjav. Sig. Ingvarss. • Kefiavfk: Ijösboginn • Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla, Álfaskeiði
SMITH&
NORLAND
. ;.
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • Fax 520 3011 • www.sminor.is