Morgunblaðið - 16.04.2000, Side 36
36 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
FORNARGJOF TIL AÞENU
ÍSLAND er furðu-
legt land. Einn daginn
búum við í holum í jörð-
inni og hinn daginn er-
um við öll orðin verð-
bréfamiðlarar sem lifa í
Netinu. Sumir koma
fram og telja að við ætt-
um að skikka alla þjóð-
ina í tölvunám og selja
heiminum óáþreifanleg
■I'afmerki í ljósleiðara á
meðan aðrir draga fram
spakmæli á borð við að
hugvitið verði ekki í
askana látið og lofa því
áþreifanleg gildi fisks,
áls og orku af eljusemi
sem hefði sæmt sér vel
á sovésku áróðursplakati um næstu 5
ára áætlun. Einhversstaðar þama á
milh er hellingur af fólki sem ekki
áttar sig fyllilega á atburðarásinni og
veit ekki í hvorn fótinn það á að stíga.
Einsog þetta er lagt fyrir það, þá lít-
ur það út fyrir að síðan Netið breidd-
ist út um heiminn einsog eldur í sinu
þá hafi öllum gildum verið snúið á
hvolf og samfélagið sé að leysast upp
í eitthvert þekkingarsamfélag sem
ómögulegt sé að henda reiður á og sé
jafnvel varasamt.
Það sem hefur kannski gleymst að
benda á er að það er talsvert síðan við
höfum lifað í þekkingarsamfélagi en
við hér á Islandi höfum bara verið dá-
lítið blind á það. Þekkingin er nefni-
lega lík Aþenu, grískri gyðju þekk-
ingar og listar: hún felur sig í
hvunndagslegustu hlutum í kringum
okkur en ef menn læra að þekkja
hennar handbragð, þá fara menn að
Kjartan Pierre
Emilsson
sja nærveru
öllu.
Til að færa rök fyrir
þessu máli mínu, ákvað
ég að velja af handahófi
einhvem hversdagsleg-
an hlut sem var innan
seilingar þegar ég var
að skrifa þessa grein.
Fyrir valinu varð
kexpakki sem var á
borðinu hjá mér. Þetta
er ósköp venjuleg kex-
tegund sem heitir „Le
Petit Écolier" frá fyrir-
tæki sem heitir LU og
tilheyrir stóra fjöl-
þjóðafyrirtæki í mat-
vælagerð sem kallast
Danone Group. Ágætis súkkulaðikex
sem mig minnir að ég hafi borgað í
kringum 200 krónur fyrir og þótti
mér það alls ekki óeðlilegt verð.
Lítum hinsvegar nánar á hver er
kjarni þessarar vöra: þarna er verið
að blanda saman hveiti, eggjum,
smjöri og súkkulaði og búa til úr
þessu litla kexbita. Hver ætli hráefn-
iskostnaður hafi verið fyrir þessi 150
grömm sem í pakkanum era? Sam-
kvæmt heimildum frá bandan'ska
landbúnaðarráðuneytinu, Agricult-
ure Fact Book 1998, U.S. Depar-
tment of Agriculture (http://
www.usda.gov/news/pubs/fbook98/
contenthtm) þá er hlutfall hráefnis-
kostnaðar sem hlutfall af útsöluverði
fyrir kexvörar um 7% og fer lækk-
andi á hverju ári. Hér er ástæða til að
staldra aðeins við. Séu þessar tölur
réttar þá er ég sem neytandi að
borga 194 krónur af 200 fyrir eitt-
henn£U' ' Pað er einsog menn
treysti sér ekki til að
fjárfesta að ráði í neinu
nema það sé áþreifan-
legt, segir Kjartan
Pierre Emilsson, og
geti þannig skilið eftir
sig minnisvarða, einsog
eyðilögðu síldarþorpin
forðum.
hvað annað en það sem endar í askin-
um mínum, og það sem meira er: mér
finnst það fyllilega eðlilegt. En hvað
er það sem gerist frá sveitabýlinu þar
sem hráefnið er framleitt og þar til
ég kaupi kexpakkann sem orsakar
þessa 30-földun í verðmæti? Það er
nákvæmlega hér sem andi Aþenu
svífur yfir vötnum, því að það er að
miklum hluta þekking sem vinnur
sína vinnu þarna á milli og margfald-
arverðmætið.
Ekki sannfærð? Lítum aðeins á
ýmsa hluti sem hafa gerst á leiðinni
frá hráefninu til mín:
Þessi ákveðna tegund af kexi er
líklega afrakstur langrar vöraþróun-
ar innan fyrirtækisins sem framleiðir
það. Við þá vöraþróun hafa líklega
unnið matvælafræðingar og efna-
fræðingar. Þeir hafa lagt afurðirnar í
markvissar prófanir, þar sem bæði er
prófað hvort mönnum líki bragðið og
útlitið, hvaða aldursflokka þetta höfði
Sala á nýju hlutafé í Össuri hf.
Útgefandi: Össur hf
Óskað er eftir áskrift í nýtt hlutfé í Össuri hf. að nafnviröi 60.000.000 króna eöa
22,1% af heildarhlutafé að teknu tilliti til hlutafjáraukningar. Verðbréfaþing íslands
hf. hefur samþykkt að taka á skrá hið nýja hlutafé að loknu útboði enda séu öll
skilyrði skráningar uppfyllt.
Forkaupsréttur:
Núverandi hiuthafar í Össuri hf. hafa ekki afsalað sér lögmætum forkaupsrétti sínum
við ofangreinda hlutafjárhækkun og munu eiga forkaupsrétt að hinu nýja hlutafé í
samræmi við hlutafjáreign sína eins og hún lá fyrir hjá hluthafaskrá félagsins 8. apríl
síðastliðinn. Gengi til forkaupsréttarhafa er 64. Ef einhver hluthafa nýtir sér ekki rétt
sinn skulu aðrir hluthafar eiga aukinn rétt til áskriftar. Frestur forgangsréttarhafa til
að nýta rétt sinn ertil 2. maí n.k.
Útboðstímabil til forkaupsréttarhafa:
Útboðstímabil til forkaupsréttarhafa er frá 17. apríl til 2. maí 2000.
Útboð til annarra en forkaupsréttarhafa:
Seljist ekki allt hlutaféð til forkaupsréttarhafa kemur til almenns útboðs og mun það
standa frá 3. maí til 5. maí. Útboðsgengi í almenna útboöinu verður 69 og gefst
almenningi kostur á að skrá sig fyrir allt að 15.000 krónum aö nafnviröi eða
1.035.000 krónum að markaðsvirði.
Umsjón með útboði:
Kaupþing hf. hefur umsjón með útboði og tekur við áskriftum á útboðstímabili.
Útboðslýsingu er hægt að nálgast hjá Kaupþingi hf., Ármúla 13a,
eða á heimasíðu Kaupþings, www.kaupthing.is
Niðurstöður útboðs:
Niöurstöður útboös verða birtar í viðskiptakerfi
Veröbréfaþings íslands 3. maí 2000.
OSSUR
mest til, passi að menn fái ekki ein-
hver útbrot af þessu o.s.frv. Síðan
hafa markaðsft’æðingar og markaðs-
sálfræðingar gert rannsóknir á hin-
um ýmsu mörkuðum þar sem til hef-
ur staðið að dreifa þessari vöru og
byggt upp markaðsáætlun hvemig
sé best að markaðssetja hana. Þessi
áætlun hefur verið lögð upp í hend-
urnar á auglýsingastofu þar sem
hönnuðir og hugmyndasmiðir hafa
lagt heilann í bleyti til að finna nafn á
vörana sem hentar hverjum markaði
fyrir sig. Væntanlega hefur ljós-
myndari verið fenginn til að mynda
kexið í bak og fyrir, og síðan hafa um-
búðir og margvíslegt prentefni verið
búið til af grafískum hönnuðum og af-
urðir þeirra lagðar upp í hendurnar á
tölvustýrðri prentsmiðju. Þýðendur
hafa verið fengnir til að þýða þetta
efni á hin ýmsu tungumál þeirra
markaðssvæða þar sem vörunni
verður dreift. Á sérhverju markaðs-
svæði hafa menn væntanlega einnig
búið til markaðsherferð, kannski
fengið handritshöfunda og leikstjóra
til að búa til sjónvarpsauglýsingar,
þar sem leikai'ar, myndatökumenn
og hljóðmenn hafa komið við sögu.
Eitthvert tónskáld hefur samið lag
um þetta kex, sem hver skólakrakki á
að geta lært eftir eina hlustun. Á
sama tíma hafa umbúðirnar sjálfar
eflaust verið búnar til úr matvæla-
vænu plasti sem einhver efna- eða
eðlisfræðingurinn hefur einkaleyfi á,
og umbúðafyrirtækið sjálft öragg-
lega risastórt og væntanlega með her
manna í að finna skemmtilegri leiðir
til að opna umbúðir og finna ný og
betri efni til að pakka matvælum.
Síðan er vöranni sjálfri dreift um all-
an heim í gegnum flókið dreifikerfi
sem þó er væntanlega allt miðstýrt í
gegnum tölvukei-fi fyrirtækisins,
sem einhver slatti af forrituram og
tæknifólki vinnur við.
Hér sjáum við að á leiðinni frá
hveitiökranum hafa jafn ólíkar stétt-
ir og efnafræðingar, rithöfundar,
tónskáld, markaðsfræðingar og tölv-
unarfræðingar á einhvem hátt komið
við sögu og átt sinn þátt í því að verð-
mæti hráefnisins 30-faldaðist. Var þá
ekki heilt þekkingarsamfélag falið í
þessum vesæla kexpakka? Menn
geta vissulega deilt um siðfræðilegt
gildi þessa kapítalíska hugsunarhátt-
ar, en persónulega ftnnst mér kexið
gott.
Ef við snúum okkur nú aftur að-
eins að Islandi og stöðu þekkingar
hér á landi, þá er Ijóst að lengi virtist
ekki ríkja mikill skilningur fyrir hlut
hennar í hinu hversdagslega. Vissu-
lega tala stjórnmálamenn í dag fjálg-
lega um gildi menntunar og þörf fyrir
nýsköpun í iðnaði, en því miður vii'ð-
ast gjörðir þeirra á einhvern hátt oft-
ast missa marks. Það er einsog menn
treysti sér ekki til að fjárfesta að ráði
í neinu nema það sé áþreifanlegt og
geti þannig skilið eftir sig minnis-
varða, einsog eyðilögðu síldarþorpin
forðum. I dag er verið að hugsa um
að búa til stóra virkjun og tilheyrandi
álver fyrir einhverja tugi milljarða
króna. Vissulega er mikil þekking
fólgin í því að byggja þetta upp, en er
það þekking sem er að lokum virkjuð
og seld á margföldu verði? Ég held
ekki. Eftir að þau era komin í gang
þá geta álver og virkjanir mallað
áfram um ókomnar aldir, án þess að
virkja snefil af þekkingu, nema þá
kannski á mjög sérhæfðu sviði. Jafn-
framt era slíkar fjárfestingar erfið-
lega umbreytanlegai', sem þýðir það
að ef markaðsverð á áli hrynur á
næsta áratug, þá er lítið annað hægt
að gera en annaðhvort tapa pening-
um á öllu saman eða loka búllunni.
Hvað væri hægt að gera með segj-
um 100 milljarða króna til að virkja
þekkingu, og jafnframt ávaxta þessa
peninga á ca. 5 áram? Það tekur
u.þ.b. 3-5 ár eftir stúdentspróf að
mennta einstaklinga að því stigi að
þekking þeirra fer að öðlast veralegt
verðmæti. Tökum því 30 milljarða og
dælum því inn í háskólakerfið með
því móti að við hreinlega borgum
nemendum laun fyiir að mennta sig í
ákveðnar brautir. Þannig væri hægt
að fá ca. 8-10.000 vel lærða einstakl-
inga á næstu 3-5 áram. Notum síðan
restina, þ.e.a.s. 70 milljarða, í fram-
fjárfestingar í þekkingarfyrirtækj-
um. TO dæmis má nefna að í banda-
rískum hátæknifyrirtækjum er ekki
óeðlilegt að fyrstu fjárfestingar séu í
kringum 2-3 milljónir dollara, sem er
svona nóg til að borga um 10 manns
sæmileg laun í 1-2 ár, á meðan verið
er að þróa hugmyndir. Þannig mætti
koma af stað um 30 fyrirtækjum, sem
væntanlega hefðu nægilegt úrval af
starfsfólki, þökk sé ofangreindu átaki
okkar í menntamálum. Þessi fyrir-
tæki munu nú fara af stað með alls-
kyns vöraþróun og væntanlega
stefna á alþjóðlegan markað, og þá
Höfundasjóður Félags
kvikmyndagerðarmanna
Félag kvikmyndagerðarmanna óskar eftir umsóknum
vegna úthlutana úr höfundasjóði félagsins fyrir verk
sem sýnd voru í sjónvarpi árið 1999.
Samkvæmt gerðardómi IHM eiga rétt til úthlutunar
kvikmyndastjórar (ekki leikið efni), kvikmynda-
tökumenn, klipparar, hljóðhöfundar og ljósahönnuðir.
Með umsókn skal fylgja skrá yfír birt verk og þar
skal koma fram titill myndar, vinnuframlag, lengd
myndar, hvar og hvenær hún var sýnd. (Dags./tími).
Þessi úthlutun tekur til verka sem sýnd voru
árið 1999.
Félagsmenn FK sem og aðrir höfundar geta lagt inn
umsóknir.
Höfundum leikmynda er bent á Myndstef, höfundum
handrita á Rithöfundasambandið og leikstjórum
leikinna mynda á Samtök kvikmyndaleikstjóra vegna
höfundagreiðslna.
Umsóknir skulu berast:
Félagi kvikmyndagerðarmanna,
Pósthólf 5162,125 Reykjavík
fyrir 15. maí 2000
Stjóm Félags kvikmyndagerðarmanna.