Morgunblaðið - 16.04.2000, Síða 38

Morgunblaðið - 16.04.2000, Síða 38
38 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ (Ljósm. Lopturcopy 2196). ájjliyyillk pp i hÆ:: yj '\>M : RÉill Á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar 17. júní 1911 var mikið um dýrðir í Reykjavik og margt um manninn á götum bæjarins. Þar á meðal nokkrar blómum skreyttar lystikerrur sem Hringskonur gerðu út til sölu á vorblómum, barmmerkjum á 10 aura stykkið. Hér má sjá einn söluvagninn í Kirkjustræti við Bæjarfógetagarðinn (fjærst til vinstri í baksýn er Fjalakötturinn, Aðalstræti 8). Er einhver sem þekkir telpurnar eða konuna sem stendur við hestinn? Hringur- inní Reykjavík 1904-1999 Hringurinn, félag reykvískra kvenna, hefur nánast fylgt öldinni - í fyrstu 1904-1906 - sem skemmtiklúbbur, þá berklavarnafélag til 1942 og síðan stuðlað að því að barnaspít- ali risi. Frásögn af þessu starfí félagsins er væntanleg á bók en Björg Einarsdóttir vinnur nú að ritun sögunnar. (Ljósmynd, ímynd málverk Ásgeirs Bjamþórss. eftir (jósmynd af Kristínu). Kristín Vídalín Jacobson (1864-1943) stofnandi Hringsins 1904 og for- maður til dánardags. Hún var fyrsta íslenska konan er stundaði mynd- listarnám í listaakademíu. Hrafnhildur Schram Iistfræðingur er að skrá málverk og teikningar íslenskra kvenna er fyrstar lögðu út á listabraut- ina; ef einhver kynni að hafa undir höndum verk eftir Kristínu er vitn- eskja þar um vel þegin, sími 552-3797 eða 896-0823. TILEFNI stofnunar Hringsins er heit sem Kristín Vídalín Jacobson strengdi er hún lá fárveik á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn vet- urinn 1894-1895. Kristín var fædd 1864 í Víðidals- i. tungu í Vestur-Húnavatnssýslu og átti til efnaðra að telja; hún var góðum gáfum gædd og listfeng. A yngri árum dvaldist hún um skeið í Englandi og af og til í Kaupmanna- höfn uns hún frá vori 1891 bjó þar í nokkur ár. Nam hún myndlist með- al annars í Listaakademíu kvenna sem var undir verndarvæng Lovísu drottningar Kristjáns IX. Mun Kristín vera fyrsta íslenska konan er stundar listnám við æðri skóla. I spítalalegunni mátti hún horfa upp á veikt fólk hrekjast af sjúkra- húsinu svipt hjúkrun, læknishjálp I og lyfjum. Sjálfri voru henni veik- indin þungbær þótt hún þyrfti ekki samfara þeim að hafa fjárhagsá- hyggjur. Hét hún sjálfri sér því ef henni auðnaðist líf og heilsa að verða þeim að liði sem stríddu við veikindi og fátækt í ofanálag. Með frumkvæði sínu að stofnun Hrings- ins 26. janúar 1904 efnir hún það íýeit. Skemmtiferð vistmanna á Hressingarhæli Hringsins í Kópavogi til Þingvalla í ágúst 1939. Myndin er tekin í Bolabás og gjöf til Hringsins frá Rannveigu Löve. Þekkja má: aftast standa Benóný Benediktsson (12 ára) og Einar Magnússon. í næstu röð Iengst til vinstri (með dökk gleraugu) Valgerður M. Óskarsdóttir og 5. næst drengnum) Níels Breiðljörð. Fremst Iengst til hægri (með dökk gleraugu) Aðalsteinn Hansson, næst honum Ma- ría Jónsson hjúkrunarkona og lengst til vinstri í sömu röð Ólöf Ólafsdóttir. Ef einhver getur nafngreint fleiri væri vel þegið að fá vitneskju þar um. Stofnfundurinn var í sal Hús- stjórnarskólans uppi í Iðnó og voru 46 konur mættar til leiks. Kristín, sem þá var gift Jóni Jacobson landsbókaverði og hafði eignast fjögur börn, tók við forystu í félag- inu og var formaður þess til dánar- dægurs vorið 1943. Félagsheitið mun taka mið af danska félaginu Cirklen er þá var starfandi í Dan- mörku, klúbbur kvenna með menn- ingarlegu sniði. í Hringnum í Reykjavík hafa alls starfað um 800 konur. Hringurinn er fyrstu skipulögðu samtök hér á landi um varnir gegn berklaveiki og öflun fjár varð fljótt meginverkefni félagskvenna; voru til þess farnar tiltækar leiðir. Nefna má árlega leikstarfsemi 1905-1928 og fjölmennar útihátíðir í Hljómskálagarðinum á fimmta tug aldarinnar; basara, happ- drætti, útgáfu jólakorta og ýmiss konar skemmtanir. Frá upphafi var fastmótuð stefna varðandi fjármál hjá Hringnum. Inntökugjöld og árgjöld mynduðu sjóð til að standa straum af dagleg- um rekstri félagsins. Aflafé skyldi öllu skipt til helminga, annars veg- ar í fastasjóð til síðari tíma verk- efna og hins vegar líknarsjóð til út- hlutunar jafnóðum eftir þörfum. Ur líknarsjóðnum var þegar á fyrsta ári tekið að veita styrki til berklasjúklinga heima eða á spítala og eftir að heilsuhælið á Víillsstöð- um tók til starfa 1910 var greitt með sjúklingum þar. Þessi sjóður var virkur með ýmsum hætti allt til ársins 1942 er hann verður Barna- spítalasjóður Hringsins. Varðandi fastasjóðinn láta Hringskonur þess fyrst getið opin- berlega 1910 að framtíðarverkefni félagsins sé að koma upp hressing- arhæli fyrir þá sem útskrifist af berklahæli en eru ekki færir um þegar í stað að hverfa að almenn- um störfum. Með tilkomu nýrra laga 1921 er legukostnaður berkla- sjúklinga tryggður að hluta úr op- inberum sjóðum. Meginverkefni fé- lagskvenna verður þá að koma upp hressingarhælinu; þær fá heimild Alþingis fyrir afgjaldslausri ábúð á þjóðjörðinni Kópavogi í Seltjarnar- neshreppi og reisa þar hús í því skyni. Fastasjóðurinn var þá 40 þúsund krónur en uppkomið kost- aði hælið 75 þúsund. í nóvember 1926 er Hressingar- hæli Hringsins í Kópavogi vígt og það starfrækt af félaginu til 1. jan- úar 1940 er það var afhent ríkinu endurgjaldslaust. Til jafnaðar dvöldust þar 25 vistmenn en í allt um 400 manns og heildardagafjöldi þeirra um 121.500. Læknisþjónustu á hæli Hringskvenna var sinnt frá Vífilsstaðahæli og lengst af Helga Ingvarssyni. Árin 1931-1948 starf- rækja Hringskonur búskap á Kópavogsjörðinni og annast bú- stjóri um daglegan rekstur en for- maður félagsins er framkvæmda- stjóri hælis og bús. Hringurinn selur ríkinu búið og segir lausri ábúð jarðarinnar sem þá hefur að stórum hluta verið tekin undir þéttbýli og nýtt hreppsfélag, Kópa- vogshreppur, tekið við. Frá 1942 hefur allt starf Hring- skvenna hnigið að eflingu Barna- spítalasjóðsins og varð það þeim, líkt og fleirum er veltu lausafjár- munum á eftirstríðsárunum, þol- raun að sjá fjármagn, er mikið erf- iði hafði kostað að afla, rýrna í verðbólgunni sem þá geisaði. Markmið Hringsins viðvíkjandi barnaspítala er að í tengslum við Landspítala rísi bygging sérhönn- uð sem sjúkrastofnun fyrir barna- lækningar með fullkomna inni- og útiaðstöðu. Nokkrir áfangar hafa verið á þeirri leið sem Hringurinn hefur átt hlut að: Barnadeild í ris- hæð Landspítalans 1957; Barna- spítali Hringsins á tveimur hæðum í nýrri álmu 1965; Geðdeild Barna- spítala Hringsins við Dalbraut 1970; Vökudeild við Kvennadeild Landspítalans 1976 fyrir nýbura er þurfa sérstaka meðferð og eftirlit. I áranna rás hafa Hringskonur eflt tækjakost barnaspítalans, styrkt fagfólk til sérnáms og börn til lækninga erlendis þegar þörf krafði. Nýr barnaspítali er kominn á verkefnaskrá heilbrigðisyfirvalda og vinna hafin við húsgrunn á Landspítalalóð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.