Morgunblaðið - 16.04.2000, Side 55

Morgunblaðið - 16.04.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 55 FÓLK í FRÉTTUM ERLENDAH Valdís G. Gregory, fjórtán ára, fjallar um geisla- disk hljómsveitarinnar Venga- boys, „The Platinum Album". Partídiskur af bestu gerð VENGABOYS er hljómsveit með fjórum meðlimum, tveimur strákum og tveimur stelpum. Hún heitir Vengaboys af því að upprunalega samanstóð hún af tveimur plötusnúðum sem heita Danski og D J Del- mundo, þeir hafa verið að síð- an árið 1992 þegar þeir héldu diskótek um allan Spán. Þeir hittu hina meðlimina fjóra í strandpartíi. Plötusnúðamir sem nú semja allt fyrir Vengaboys eru frá Hollandi en hinir meðlimirnir eru frá hinum ýmsu löndum; Kim er frá Brasilíu, Roy er frá Spáni, Denise er frá Ung- verjalandi en Yoriek frá Hollandi. Yorick tók við af vini sínum sem fékk nóg af því að vera frægur eftir að fyrsta plata Vengaboys kom út sem heitir The Party Album. Kim og Den- ise unnu báðar sem söngkonur og dansarar, Roy var dansari en Yorick var höfrungaþjálfari. Það sést líka í myndböndunum þeirra og á sviði að þau eru öll mjög góðir dansarar og svo eru þau náttúrulega líka góðir söngvarar. Mér hefur verið sagt að það sé frábært að sjá þau á tónleikum. Allir í hljómsveitinni hafa sinn stfl; Kim er hermaðurinn, Denise er diskó-gellan, Roy er kúrekinn og Yor- ick er sjóarinn. The Party Album innihélt marga góða smelli s.s. Boom Boom Boom Boom!!! sem komst á toppinn í Eng- landi og Hollandi, We like to party og We’re going to Ibiza. The Platinum Album inniheldur tíu lög sem öll eru í svipuðum takti. Svo er þetta líka CD-rom diskur, en þá getur þú séð myndbandið við lagið Kiss (When the sun don’t shine), sem er fyrsta smáskífa Vengaboys af þessari plötu og einnig getur þú séð gerð myndbandsins við sama lag. Þú getur einnig náð í „screensaver“ og þú getur einnig fengið vefföng að leynisíðum á netinu. Það eru búnar að koma tvær smáskífur af þessum diski en þær eru Kiss (When the sun don’t shine) sem fór á toppinn í mörgum löndum, og Shalala Lala sem fór beint í þriðja sætið á breska smáskífulist- anum. Bestu lögin á þessum diski eru Shalala Lala (og eflaust eru margii- sammála mér um það að myndbandið við það lag er mjög skemmtilegt), Cheekah Bow Bow (that computer- song) er mjög skemmtilegt lag en það er mjög frábrugðið hinum lögunum, þetta lag kom mér mjög á óvart þar sem ég bjóst ekki alveg við svona, því það er ekki sungið heldur er búin til rödd í tölvu. Skinny- dippin’ er einnig mjög skemmtilegt með mjög skemmtilegum texta og ég myndi vilja sjá myndband við það lag. Annars er mjög erfitt að gera upp á milli laganna, mér finnst eiginlega engin lög leið- inleg. Nema þá helst Your place or mine?, sem er í ró- legra kantinum en það er samt ekkert voða rólegt og svo er lagið Opus 3 in D# ekkert sérstakt heldur af því að mér ftnnst lög sem er ekkert sungið í ekkert sérstök. Það er sungið í öllum lögunum nema Opus 3 in D# og 48 hours. í heildina er þetta mjög góður disk- ur til að dansa við því að flest lögin eru mjög fjörug og með góðum danst- akti nema lagið Forever as one, sem er mjög rólegt en það er mjög skemmtileg laglína í því. Mjög auð- velt er að læra lögin, eða allavega við- lögin sem eru mjög grípandi eins og flestir kannast við úr lögunum þeirra, textamir eru líka mjög skemmtilegir ogvelsamdir. Vengaboys er greinilega hijóm- sveit næstu aldar og þetta verður ábyggilega með bestu geisladiskum ársins 2000. Ég mæli eindregið með The Platin- um Album. Hún er góð fyrir partí eða þegar maður er að laga til. Ef þið eruð að leita ykkur að eigulegum diski, ekki hika við að fara út í búð og kaupa ykkur The Platinum Album. Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir Fjölmargar konur tóku þátt í hár- og tískusýningu kvöldsins. HÆTTU BARA! PAÐ ER ENGiNN VANDI 90^ Valgeír Skagfjörð Pét ur Einarsson HRINGDU NÚNA! m/íA/av Allen Carr's EASYWAY á íslandi. Símar: 899 4094 898 6034 663 9690 GEFÐU GJOF Fallegt úr hentar við öll tækifæri PIERPOÍIT SWISS Swissnesk gæði hjá næsta úrsmíð /ír eru totlfrfdls^ fqd úrstniðnum ts Úrsmiðafélag Islands Gott úr er gjöf sem endist Glæsilegt konukvöld á Club67 HÚSFYLLIR var á konukvöldi sem haldið var á Club67 í Hveragerði nú nýverið. Að loknum glæsilegum kvöldverði sem Tryggvi Sigurðsson átti heiðurinn af söng Halldóra Steindórsdóttir nokkur lög fyrir gestina. Stór hópur kvenna á öllum aldri tók sfðan þátt í viðamikilli hár og tískusýningu sem Hársnyrtistof- an Ópus og Heilsuhæðin sáu um. Endahnótinn á skemmtunina hnýtti síðan karlkyns dansari. Kynnir kvöldsins var Arngrímur Baldurs- son. Club67 er nýopnaður skemmti- staður í Hveragerði sem rekinn er í tengslum við Pizza67 þar í bæ. Með tilkomu þessa nýja salar gefst eig- endum kærkomið tækifæri til að auka þjónustu staðarins og bjóða uppá enn fjölbreyttari skemmtanir en áður var mögulegt. Fjölmargar konur á öllum aldri tóku þátt í hár- og tískusýningu kvöldsins. Ertu acffara aðgifta þig? AlLt d einum ótað Hár — neglur — förcfun, Perdónuleg [fóniuta. Ailar upplýdingar í étnui 588 5566. primadonna Hórgreiðslustofa Förðunar- og naglastudio Grensósvegi 50, sími 588 5566. Laugavegi 54 - Sími 5525201 --------------------------------------------i Jakkar nú 4.990 áður 7.990 Gallabuxur nú 3.990 með kanti áður 6.990 Flíspeysur Bolir 2.490 990 ...og mörg önnur tilboð 20% afsláttur af öðrum vörum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.