Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000
MORGUN BLAÐIÐ
FRETTIR
Deilt um undirbúning atkvæðagreiðslu um
framtíð Reykjavíkurflugvallar
Ekki skilyrði fyrir
samvinnu við ráðu-
neyti að svo stöddu
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hef-
ur beint þeim tilmælum til borgar-
ráðs að það endurskoði erindisbréf
sérfræðihóps til undirbúnings al-
mennrar atkvæðagreiðslu um
framtíðarnýtingu Vatnsmýrar og
staðsetningu Reykjavíkurflugvallar
ella sé forsenda fyrir þátttöku þess
í hópnum brostin. Tilmælin koma
til umfjöllunar borgarráðs nk.
þriðjudag en urðu borgarfulltrúum
umræðuefni á fundi borgarstjórnar
í gærkvöld.
í erindisbréfi sérfræðihópsins
sem samþykkt var á fundi borgar-
ráðs 18. apríl sl. við hjásetu sjálf-
stæðismanna í ráðinu er gert ráð
fyrir að hópurinn sé skipaður ílmm
fulltrúum; fulltrúi tilnefndur af Há-
skóla Islands veiti honum forstöðu,
einn sé tilnefndur af Reykjavíkur-
borg, einn af samgönguráðuneyti,
einn af Samtökum um betri byggð
og einn tilnefndur af Háskólanum á
Akureyri.
Hópnum er m.a. fengið það hlut-
verk að bera saman og vinna mat á
hagkvæmni mismunandi kosta
varðandi framtíðarnýtingu Vatns-
mýrar og skoða í því sambandi eft-
irfarandi kosti með tilliti til stað-
setningar Reykjavíkurflugvallar:
Að miðstöð innanlandsflugs verði
áfram í Vatnsmýrinni, flugvöllurinn
verði fluttur til Keflavíkur eða flug-
vellinum verði fundinn nýr staður á
höfuðborgarsvæðinu leiði vinna við
svæðisskipulag höfuðborgarsvæðis-
ins eða Aðalskipulag Reykjavíkur í
ljós kosti í því efni. Pá á hópurinn
að gera tillögu um hvað kosið verði
um í atkvæðagreiðslunni.
Kosið verði um
raunhæfa kosti
Samgönguráðuneytið gerir at-
hugasemdir við þetta í bréfi sínu til
borgarráðs. Þar segir að ráðuneyt-
ið telji sig hafa komið þeim skila-
boðum skýrt á framfæri í samtölum
við borgarstjóra og á öðrum vett-
vangi að forsenda fyrir þátttöku
ráðuneytisins sé að kosið verði á
milli kosta sem talist geta raunhæf-
ir. Þeir kostir eru að mati ráðu-
neytisins aðeins tveir; að Reykja-
víkurflugvöllur verði áfram á sama
stað eða að öll sú starfsemi sem
fram fer á flugvellinum verði flutt á
Keflavíkurflugvöll.
Ráðuneytið telur ljóst að þriðji
valkostur um staðsetningu flugvall-
arins sé ekki fyrir hendi og verði
ekki innan þess tíma sem sérfræði-
hópurinn hafi til ráðstöfunar, en
hópurinn á að skila niðurstöðum
sínum fyrir 30. september nk.
Ráðuneytið telur vandséð að sá
tími sem til reiðu er dugi til þess að
eitthvert lag verði á niðurstöðun-
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði á fundinum í
gærkvöldi afstöðu ráðuneytisins
ekki koma sér á óvart. Hún benti á
að bréf þess hefði enn ekki verið
lagt fyrir borgarráð en þegar það
yrði gert kæmi væntanlega í ljós
hvort, borgarráðsmenn væru þeirr-
ar skoðunar að ástæða sé til að tak-
marka valkosti sérfræðihópsins við
þá tvo kosti sem ráðuneytið telur
raunhæfa.
Hún er sjálf þeirrar skoðunar að
ekki eigi að takmarka möguleikana
með þessum hætti en leggur
áherslu á að í erindisbréfi sérfræði-
hópsins er honum einungis falið að
skoða kostina tvo, en aðra kosti að-
eins ef vinna við svæðisskipulag
höfuðborgarsvæðisins eða Aðal-
skipulag leiði í ljós að þeir séu
raunhæfir. „Mér hefur ekki heyrst
það á sjálfstæðismönnum að þeir
vilji takmarka sig við þessa tvo
kosti,“ sagði borgarstjóri.
Vinnubrögð R-lista gagnrýnd
Sjálfstæðismenn gagnrýndu
vinnubrögð R-listans í málefnum
Reykjavíkurflugvallar harkalega á
borgarstjórnarfundinum; sögðu
þau til þess fallin að slá ryki í augu
kjósenda. Þeir sögðu að svo virtist
sem fyrirhugað væri að fram-
kvæma skoðanakönnun meðal kjós-
enda án þess að vitað væri um hvað
ætti að spyrja.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks,
sagðist telja að með atkvæða-
greiðslu um framkvæmd flugvallar-
ins nú, þegar búið er að samþykkja
skipulag fyrir borgina til ársins
2016 sem geri ráð fyrir óbreyttri
skipan mála, væri einfaldlega verið
að ýta málinu til hliðar. Nær hefði
verið að efna til atkvæðagreiðslu
áður en skipulagið var afgreitt, ef
alvara byggi að baki henni, svo
unnt hefði verið að taka tillit til nið-
urstöðu hennar.
Þessari gagnrýni vísuðu borgar-
fulltrúar R-lista á bug. Helgi
Hjörvar, forseti borgarstjórnar, lét
svo um mælt að það væri ekki mál-
efnaleg ástæða fyrir andstöðu við
góða hugmynd að hún skyldi ekki
hafa komið fram fyrr.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Birkir Kristinson landsliðsmarkvörður lét sitt ekki eftir liggja.
Hreinsunardagur
1 Eyjum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
ÁRLEGUR hreinsunardagur
knattspyrnudeildar IBV var ný-
lega f Eyjum, en þá komu allir
yngri flokkar deildarinnar auk
meistaraflokka karla og kvenna
og stuðningsmenn og hreinsuðu
öll svæði í kringum knattspyrnu-
velli bæjarins. Auk þess var dytt-
að að ýmsum hlutum, grindverk
máluð og meistaraflokkur karla
kom fyrir auglýsingaspjöldum á
aðalleikvanginum við Hástein svo
og vallarklukkunni.
I lok vinnudagsins var síðan
grill sem stuðningsmannafélagið
sá um og 5. fl. karla skoraði á
meistaraflokkinn í léttan knatt-
spyrnuleik þar sem ungu dreng-
irnir fóru með glæsilegan og
sanngjarnan sigur af hólmi.
£
„Astarvírusinn“ svo kallaði dreifðist víða en olli litlum raunverulegum skaða
Utbreiddasti tölvuvandi
sem upp hefur komið
ÁSTARVÍRUSINN svo kallaði
dreifði sér víða um fyrirtæki og
stofnanir hér á landi sem viðhengi í
tölvupósti í fyrrinótt. Friðrik Skúla-
son tölvufræðingur segir að vírusinn
virðist miðað við bráðabirgðaniður-
stöður vera útbreiddasti tölvuvandi
sem komið hefur upp á íslandi, ef
miðað er við fjölda véla sem hann
hafði áhrif á. Hann segir að vírusinn
hafi farið í tugi þúsunda véla hér-
lendis en ekki valdið miklum raun-
verulegum skaða. Hann segir að
hætta sé á að aðrir tölvuþrjótar,
jafnvel krakkar, breyti vírusnum
þannig að hann geti valdið mun
meiri skaða.
„Vírusinn hefur valdið skaða og
truflunum á þrennan hátt,“ segir
Friðrik. „Hann hefur valdið álagi á
tölvupóst- og netkerfi, hann hefur
stolið lykilorðum og sent þau til Fil-
ippseyja, og hann hefur eytt JPG-
myndskrám og MP3-hljóðskrám.“
Friðrik segir að auðveldlega hefði
verið hægt að gera vírusinn þannig
úr garði að hann hefði eytt miklum
upplýsingum í hundruðum þúsunda
tölva. „Það er líka hætta á því að ein-
hver taki vírusinn og breyti honum.
Til þess þarf ekki mikla tækniþekk-
ingu, krakki á fermingaraldri gæti
ráðið við það.“
Fyrstu upplýsingar um vírusinn
bárust um klukkan níu í gærmorgun
og voru notendur Lykla-Péturs
hvattir til að sækja nýjustu gagna-
skrár Friðriks Skúlasonar ehf. til
eyða honum. Friðrik fullyrðir að
skrárnar hafi fundið vírusinn eða
sjálfan „orminn" en ekki nema 75%
af forritinu sem stelur lykilorðum,
en hins vegar viti hann ekld til þess
að þau forrit hafi borist til íslands.
Póstkerfíð tekið
niður í flestum bönkum
Hjá flestum bönkum var gripið til
þess ráðs að taka niður tölvupóst-
kerfið í heild eða að hluta til í gær-
morgun vegna innrásar vírussins.
5 til 10 einkatölvur hjá Reikni-
stofu bankanna sýktust en tölvuum-
sjónarmönnum tókst að lagfæra þær
samdægurs. Þökkuðu menn því að
viðvörun um vírusinn barst nægilega
snemma til að unnt væri að grípa í
taumana áður en áhrif vírussins
yrðu alvarleg. Vírusinn hafði engin
áhrif á stórtölvur stofnunarinnar
Hjá Búnaðarbankanum var ekki
að sjá að vírusinn hefði skemmt nein
gögn, að sögn Inga Arnar Geirsson-
ar, forstöðumanns tölvudeildar.
Kristján Hermannsson, rekstrar-
stjóri upplýsingavinnslu Lands-
bankans, sagði að tölvukerfi bank-
ans hefði alveg sloppið við skemmdir
af völdum ormsins vegna þess að
tölvukerfið byggðist ekki á Visual
Basic Script en ormurinn skaðlegi
var skrifaður á Visual Basic Script-
forritunarmálinu.
Hann sagði að það starfsfólk sem
hefði reynt að opna viðhengið í gær-
morgun hefði ekki getað það. Eigi að
síður var tölvupóstkerfið tekið niður
í skamma stund í morgun meðan
verið var að fara yfir stöðuna.
Ormurinn barst starfsmönnum
Búnaðarbankans í pósti en þar sem
hann var glænýr slapp hann fram
hjá öllum vírusvarnarforritum.
Tölvupóstkerfið var tekið niður um
stund meðan farið var yfir stöðuna.
Vírusinn hafði engin áhrif á net-
bankaviðskipti.
Sparisjóðimir sluppu við tjón af
völdum vírussins og var hann
hreinsaður út úr tölvukerfinu, að
sögn Sæmundar Sæmundssonar,
framkvæmdastjóra Tölvumiðstöðv-
ar Sparisjóðanna. Hann segir að
loka hafi þurft tölvupóstkerfi að
hluta en þó ekki tölvupóstsamskipt-
um út á við.
Vírusinn olli engum vandræðum
hjá Flugleiðum þótt bólað hefði á
honum seinni part dags að sögn
Hjartar Þorgilssonar forstöðu-
manns upplýsingatækni Flugleiða
og svipaða sögu var að segja hjá
Flugmálastjóm þar sem menn urðu
lítið varir við vírusinn.
f>T> BB ■«
/ /
BIOBLAÐIÐ
Á FÖSTUDÖGUM
Grindvíkingar kjöldrógu Keflvík-
inga í deildabikarkeppninni/C2
Bergsveinn Bergsveinsson og
Guðmundur Karlsson í FH/C3
Morgunblaðinu í
dagfylgir sérblað
um Reykjavík
menningarborg
Evrópu 2000
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is