Morgunblaðið - 05.05.2000, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐT.Ð
FRÉTTIR
í 70 ár hafa Lazyboy verið vinsælustu heilsu-
og hvíldarstólarnir í Ameríku og undrar engan
því þeir gefa frábæran stuðning við bak og
hnakka. Innbyggt skammel lyftir fótum sem
léttir á blóðrás og hjarta. Lazyboy er í senn
hægindastóll, hvlldarstóll og heilsustóll.
LA-Z-BOY
Pú upplifiir hvíld á nýjan hátt
Fimmtánda landsþing ITC
Fjárfesting
í eig’in tíma
Fanney Proppé
FIMMTÁNDA þing
ITC á íslandi verð-
ur haldið í Hlégarði
í Mosfellsbæ í kvöld og
hefst þingið klukkan 19.00.
Gunnjóna.Una Guðmunds-
dóttir for.seti_ Landssam-
taka ITC á íslandi setur
þingið. Sérstakur gestur
við þingsetningu verður
Salóme Þorkelsdóttir, fyrr-
verandi þingmaður. Heið-
ursgestur þingsins er kjör-
forseti alheimssamtaka
ITC, frú Brenda Ecksdein
frá Suður-Afríku. Heiðurs-
gestir laugardagskvöldið
eru Jóhann Sigurjónsson,
bæjarstjóri Mosfellsbayar,
og kona hans, Asta
Hilmarsdóttir. Fanney
Proppé er umsjónarmaður
landsþings ITC á Islandi í
ár. Hvert skyldi verða helsta um-
fjöllunarefni þingins?
,Á þinginu verður auk venju-
bundinna þingstarfa mjög spenn-
andi kennsla um hvemig og hvað
gerir fólk að betri leiðtogum sem
frú Brenda Ecksdein mun annast,
einnig verður fyrirlestur um konur
í hefðbundnum karlastörfum sem
Guðný Halldórsdóttir kvikmynda-
leikstjóri sér um. Þá verður
fræðsla Höskuldar Frímannssonar
sem heitir ,Að láta draumana ræt-
ast“. Svo og verður ræðukeppni
haldin í kvöld. Þingið stendur í tvo
daga og það er nýjung að láta það
hefjast á fostudagskvöldi og vera
fram á laugardagskvöld. Áður stóð
það ávallt tvo helgardaga, meira að
segja áður fyrr frá fostudagshá-
degi og fram á sunnudagskvöld."
- Hvenær tók ITC á Islandi til
starfa?
„ITC-alheimssamtökin áttu 60
ára afmæli 1998 og starfið á íslandi
er orðið 26 ára gamalt. Fyrsta ís-
lenskumælandi deildin hóf starf-
semi 1975 og hétu samtökin þá
Málfreyjur á Islandi, en með jafn-
réttislögunum 1985 var nafninu
síðan breytt í Landssamtök ITC á
fslandi."
- Hvað er ITC í raun?
„Nafn samtakkanna er Inter-
national Training In Communicat-
ion. Þetta eru samtök sem leggja
áherslu á forystu og tjáskiptahæfi-
leika. Starfið miðar að því að fólk
fjárfesti í eigin tíma og vinnu til að
ná persónulegum árangri. Innaii
samtakanna lærir fólk að þróa
sjálfsöryggi, með því t.d. að læra
að stjóma umræðum og fundum,
að leiða og hafa áhrif og tjá sig af
öryggi, skilja fundarsköp og skipu-
leggja dagskrár og fundi.“
- Er mikill misbrestur á að fóik
kunni þetta yíirleitt?
„Já, þetta er ekki kennt í skólum
ermþá, því miður. Þetta ætti að
kenna öllum. ITC er ódýr skóli því
í raun er fólk þama að fjárfesta
fyrst og fremst í eigin tíma.“
- Hvar voru þessi samtök stofn-
uð?
„Þau vom stofnuð í Anaheim í
Kalifomíu 1938 og nú um þessar
mundir em þrettán landsþing
haldin víðs vegar um
heiminn. Heimsþing
verður haldið í Toronto
í Kanada í júlí í sumar.“
-Hvað ert þú sjálf
búin að vera lengi í
þessum samtökum ?
„Eg er búin að vera í þessu í
fimmtán ár og hef lært mest af því
að vera virkur meðlimur og taka
þátt í stjómar- og nefndarstörfum,
bæði hérlendis og erlendis, því þar
er þjálfunin mest. Um leið er það
skemmtilegasta við ITC að vera
virkur félagi."
- Eru mai-gir í þessum samtök-
umhérálandi?
► Fanney Proppé fæddist í
Reykjavík 1946. Hún tók gagn-
fræðapróf úr Gagnfræðaskóla
verknáms árið 1963. Hún hefur
starfað sem sölumaður á ferða-
skrifstofu undanfarin 14 ár, nú
síðast hjá Samvinnuferðum-
Landsýn. Einnig hefur Fanney
tekið mikinn þátt í félagsmálum,
hún hefur m.a. verið formaður
Foreldra- og vinafélags Sól-
heima og setið í framkvæmda-
stjórn og fulltrúaráði Sólheima,
svo og hefur hún haft með hönd-
um fjölda embætta og starfa inn-
an ITC á fslandi. Fanney er gift
Erling Proppé sölustjóra og eiga
þau tvö böm og eitt bamabam.
„í samtökunum á íslandi eru á
milli 250 og 300 manns um þessar
mundir. Þessi samtök hafa átt í
vissum erfiðleikum eins og önnur
undanfarin ár með að halda uppi
félagatölu, en í dag ríkir mikil
bjartsýni og æ fleiri ganga í sam-
tökin.“
-Hvemig er kynjaskiptingin í
samtökunum?
„ITC voru upphaflega bara
kvennasamtök en í dag hafa bæst
við karlar. Á íslandi er komin vísir
að karladeild sem í eru átta karlar.
Karlar þurfa á þessari þjálfun að
halda ekki síður en konur.“
- Eru þetta íjáröflunarsamtök?
„Nei alls ekki. Hjá okkur fer
ekki fram neinskonar sala eða
bakstursstarf í fjáröflunarskyni.
Kostnaðurinn við starfið er eins og
tveir bíómiðar í mánuði - það er
það sem kostar á hvem einstakling
að reka þessi samtök. Starfið
skiptist upp í einingar og hefst í
deildum sem geta verið með tíu og
upp í þrjátíu aðila. Þar fer grunn-
þjálfun fram og þar leggur hver og
einn af mörkum eins og hann vill,
en eigi að síður er mætingar-
skylda. Síðan eru haldnir ráðs-
fundir, sem eru sameiginlegir
fundir deilda og loks sameinast allt
starfið við landsþing, sem er beinn
tengiliður við alheimsstjóm."
- Er gestur ykkar nú mikilvæg-
ur hlekkur í alheimsstarfínu ?
„Hún er það vissu-
lega. Hún er verðandi
alheimsforseti og mun
taka við því starfi í
ágúst n.k. Það er mikill
fengur að fá hana hing-
að í heimsókn núna.
Hún hefur starfað í þessum sam-
tökum í tuttugu ár og gegnt marg-
víslegum og mikilvægum lykil-
embættum. Hún hefur BA-gráðu í
hagfræði og sálfræði og starfar
sem ráðgjafi hjá fjármálafyrirtæki
í Suður-Afríku og ekki er verra að
hún hefur í hyggju að kenna þing-
gestum afríska dansa.“
Innan samtak-
anna lærir
fólk að þróa
sjálfsöryggi