Morgunblaðið - 05.05.2000, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 05.05.2000, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Frumvarp um breytingar á lögum um staðfesta samvist Stjúpættleiðingar verði leyfðar hjá samkynhneigðum TÖLUVERÐUR hópur fólks var á áhorfendapöllum Alþingis þegar frumvarp um breytingar á lögum um staðfesta samvist var tekið til annarrar umræðu seint í gærkvöldi. Breytingartillögur sem allsherjar- nefnd gerir við frumvarpið við aðra umræðu fela í sér að leyfðar verði stjúpættleiðingar samkynhneigðra sem búa í staðfestri samvist. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, mælti fyrir nefndaráliti allsherjarnefndar en í frumvarpinu er m.a. lögð til rýmkun skilyrða til að stofna til staðfestrar samvistar til samræmis við löggjöf annars staðar á Norður- löndunum. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt en hún leggur ennfrem- ur til þá viðbót- arbreytingu að einstaklingi í staðfestri sam- vist verði heimilt að ættleiða barn maka síns sem hann hefur for- sjá fyrir (stjúp- ættleiðing) en skv. gildandi lög- um eiga ættleiðingarlög ekki við um einstaklinga í staðfestri samvist. Guðrún Ögmundsdóttir, þing- maður Samfylkingar, fagnaði þeim breytingum sem allsherjarnefnd leggur til á upprunalegu frumvarpi en hún sagði þær snúa að rétti '=.r J :í ■ i i ALÞINGI barna sem búa í samkynhneigð- um hjónabönd- um. Sagði hún brýnt að réttur þessara barna væri tryggður gagnvart lögum. Þuríður Back- man, þingmaður Vinstrihreyfing- arinnar - græns framboðs, lýsti einnig ánægju með frumvarpið eins og það lítur nú út enda væri hér mikið réttindamál á ferðinni. „Það er mín skoðun að þessi nið- urstaða sem hér er lögð fram sé röng,“ sagði Arni Johnsen, þing- maður Sjálfstæðisflokks, hins veg- ar. Sagðist Árni telja að ekki ætti að setja sérstök lög um mjög tak- markaðan hóp fólks. Benti hann á að einungis hefðu verið skráðar 57 staðfestar samvistir frá því að lög um staðfesta samvist tóku gildi og það gæti því vart passað, sem fram kom í máli Guðrúnar Ögmundsdótt- ur, að þessi lagabreyting varðaði 1000 börn. Taldi hann aukinheldur ekki að hér væri fyrst og fremst hugað að réttindum barnsins. Þuríður Backman sagðist ósam- mála Árna í andsvari við ræðu hans. Sagði hún að jafnvel þó að hér væri einungis um eitt barn að ræða þá væri rétt og skylt að huga að hagsmunum þess. Þingsályktunartillaga um afnám viðskipta- banns á Irak ekki af- greidd úr nefnd Afgreiðsla nefndar gagnrýnd STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, gerði við upphaf þingfundar í gær athugasemd við að utanríkismálanefnd skyldi á fundi sínum í fyrradag hafa ákveðið að fella tillögu um að þingsályktun- artillaga vinstrigrænna um afnám viðskiptaþanns Sameinuðu þjóð- anna á Irak yrði afgreidd út úr nefndinni. Sagðist Steingrímur ekki geta unað því að hægt væri að svæfa þetta mál ár eftir ár í nefnd. Fór hann fram á að þetta vinnulag yrði rætt í forsætisnefnd þingsins og sagði forseti þingsins að hann myndi að sjálfsögðu verða við beiðninni og taka málið upp á þeim vettvangi. Steingrímur hefur nú flutt þings- ályktunartillögu um afnám við- skiptabanns SÞ á írak sex sinnum á Alþingi en málið hefur aldrei feng- ist afgreitt úr nefnd. Nú síðast var tillaga þar að lútandi felld af meiri hluta utanríkismálanefndar á mið- vikudag. Steingrímur gagnrýndi í gær harðlega að það vinnulag væri við- haft á löggjafarsamkundunni að menn kæmu ítrekað í veg fyrir að tiltekin mál væru afgreidd frá þing- inu og undir þessa gagnrýni tók Rannveig Guðmundsdóttir, þing- flokksformaður Samfylkingar. Sagði hún gagnrýnina nefnilega ekki aðeins víkja að þessu eina máli heldur að afgreiðslu þingmanna- mála almennt á Alþingi. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, tók sömuleiðis undir gagnrýni stjórnarandstöð- unnar og lýsti þeirri skoðun sinni að afgreiða ætti öll mál frá þinginu. Menn gætu þá einfaldlega fellt þau mál í atkvæðagreiðslu sem þeir teldu slæm. Taldi hann að slíkt fyr- irkomulag yrði til þess að þingmenn færu sjálfír að semja lög í ríkari mæli, í stað þess að taka við öllum lagafrumvörpum frá stjórnvöldum. Tómas Ingi Olrich, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður ut- anríkismálanefndar Alþingis, sagði að í þessu tiltekna máli hefði ein- faldlega ekki verið vilji fyrir því hjá meirihluta nefndarinnar að af- greiða málið úr nefnd. Slíkt væri ekkert nýmæli á Alþingi og fyrir því væri löng hefð að mál sofnuðu í nefnd. Lýsti hann sig hins vegar alls ekki mótfallinn því að rætt yrði um það hvort rétt væri að gera hér breytingar á. Morgunblaðið/Golli Þrenn frumvörp sem tengjast fasteignamarkaði voru afgreidd sem lög frá Alþingi í gær. N íu frumvörp ur ðu að lögum frá Alþingi NIU FRUMVÖRP voru afgreidd sem lög frá Alþingi í gær en þeirra á meðal eru þrenn lög sem lúta að því að setja á laggirnar eitt samhæft gagna- og upp- lýsingakerfi um fasteignir og réttindi sem þeim tengjast. Auk þessa voru afgreiddar frá Alþingi fjárar þingsályktanir en þær lúta allar að staðfestingu alþjóða- samninga. Lagabálkarnir þrír, sem tengj- ast stofnun svokallaðrar Land- skrár fasteigna, fela í sér breyt- ingar á lögum um skráningu og mat fasteigna, þinglýsingalögum og lögum um brunatryggingar. Þingmenn Samfylkingar greiddu atkvæði gegn síðasttöldu löggjöf- inni en hún felur í sér að um- sýslugjald, sem rennur til Fast- eignamats ríkisins, hækki tímabundið úr 0,025% af bruna- bótamati fasteignar í 0,1%, en gjaldinu er ætlað að standa undir kostnaði við gerð Landskrár fast- eigna. Alþingi samþykkti einnig lög um lagaskil á sviði samningsrétt- ar, viðskiptabanka og sparisjóði, Islenska málnefnd, lausafjárkaup, þjónustukaup og Húsgöngu- og fjarsölusamninga. Einnig voru samþykktar þingsályktanir sem veita rikisstjórninni heimild til að staðfesta samninga um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar Iögsögu á árinu 2000, samninga um veiðar úr norsk-islenska síld- arstofninum á árinu 2000, breyt- ingar á stofnsamningi Evrópu- stofnunar fjarskipta um gervi- tungl, EUTELSAT, og fullgild- ingu samþykktar Alþjóðasam- vinnustofnunarinnar um jafnrétti. Ákvæði umþljóð- ritun verði fellt út í FRUMVARPI sem Árni Johnsen, formaður sam- göngunefndar Alþingis, mælti fyrir á Alþingi í gærkvöld er gerð tillaga um að fellt verði á brott ákvæði í nýjum fjarskiptalögum um að sá að- ili að símtali, sem vilji hljóð- rita símtalið, skuli í upphafí þess tilkynna viðmælanda um þá fyrirætlan. Það er meiri hluti sam- göngunefndar sem hefur ákveðið að leggja þessa breytingu til í kjölfar mikillar gagnrýni á ákvæðið, en það var einmitt nefndin sjálf sem beitti sér fyrir því að það væri tekið inn í frumvarp til nýrra fjarskiptalaga þegar það var til umræðu á Alþingi fyrir jól. Afbrigði þurfti til að koma frumvarpinu á dagskrá, enda var það lagt fram á Alþingi eftir að útrunninn var tilskil- inn frestur til að leggja fram ný þingmál. Tillit tekið til gagnrýni I greinargerð frumvarpsins kemur fram að samgöngu- nefnd hafí ákveðið að taka þetta mál til skoðunar eftir að bera fór á gagnrýni fljótlega eftir að fjarskiptalögin voru samþykkt. Fékk hún rn.a. fulltrúa Blaðamannafélags ís- lands á sinn fund, en þeir höfðu gert athugasemd við að hafa ekki verið kallaðir á fund nefndarinnar þegar fjarskiptalagafrumvarpið sjálft var til umfjöllunar, enda ljóst að þetta tiltekna ákvæði hefði mikil áhrif á störf blaðamanna. Var einnig kallað á fulltrúa Póst- og fjarskiptastofnunar, tölvu- nefndar og Siðfræðistofnunar Háskóla Islands, auk Sigurð- ar Líndal lagaprófessors. Nefndin skoðaði málið einkum með hliðsjón af til- skipun Evrópusambandsins um vernd persónuupplýsinga í fjarskiptum og er það nú niðurstaða hennar að í tilskip- uninni sé einungis átt við hljóðritun þriðja aðila, þ.e. aðila sem ekki er sjálfur þátt- takandi í símtalinu. Af þess- um sökum telji meirihluti samgöngunefndar eðlilegt að fella umrætt ákvæði brott. Fela ákvæði annarra laga um vernd persónubundinna rétt- inda, að mati meirihlutans, í sér nægilega vernd þeirra. 42,9% vilja að Rfkisút- varpið fari á föst fjárlög RÚMLEGA 40% landsmanna eru fylgjandi því að Ríkisútvarpið verði tekið á fóst fjárlög ef marka má skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir menntamálaráðuneytið í janúar síðastliðnum. Þetta kom fram í máli Björns Bjamasonar menntamála- ráðherra við aðra umræðu um frumvarp til útvarpslaga sem fram fór á Alþingi í gær. Frumvarpinu er ætlað að mynda almennan ramma um alla útvarpsstarfsemi í landinu, bæði sjónvarp og hljóðvarp, en sér- lög munu hins vegar gilda um Ríkis- útvarpið. Björn sagði að þátttakendur í könnuninni hefðu verið spurðir hvernig þeir vildu að rekstur Ríkis- útvarpsins yrði fjármagnaður og voru gefnir þrír kostir: afnotagjald eins og nú er, nefskattur eða almenn skattheimta sem myndi þýða að RÚV yrði sett á fjárlög. Var niður- staðan sú að 42,9% þeirra sem tóku afstöðu vildu að Ríkisútvarpið væri á fjárlögum, 33,7% vildu áfram afnota- gjöld og 17,6% voru hlynnt nefskatti. Sagði Björn þetta athyglisverða nið- urstöðu og gerði hann ráð fyrir að hún yrði rædd í tengslum við endur- skoðun laga um Ríkisútvarpið sem er í bígerð. Sigríður Anna Þórðardóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokks, hafði mælt fyrir nefndaráliti menntamálanefnd- ar vegna frumvarpsins um útvarps- lög en nefndin mælir með þvi að frumvarpið verði samþykkt með nokkrum breytingum. Sigríður Jó- hannesdóttir, Samfylkingu, og Kol- brún Halldórsdóttur, Vinstrihreyf- ingunni - grænu framboði, skrifa undir nefndarálitið með fyrirvara en þær lýstu þó báðar þeirri skoðun sinni í gær að frumvarpið væri í grundvallaratriðum ágætt. Lögðu þær hins vegar báðar mikla áherslu á að farið yrði í það hið fyrsta að end- urskoða lögin um Ríkisútvarpið. Sagðist Kolbrún vonast eftir frum- varpi að nýjum lögum þegar á næsta þingi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.