Morgunblaðið - 05.05.2000, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 13
Drög að stj órnmálaályktun Samfylkingarinnar verða lögð fram á stofnfundi flokksins í dag
Jöfnum leikinn!
DRÖG að stjórnmálaályktun Sam-
fylkingarinnar verða lögð fram við
upphaf stofnfundar flokksins í dag.
Alyktunardrögin voru samin af
hópi þingmanna Samfylkingarinn-
ar og verða tekin til afgreiðslu á
stofnfundinum á morgun. Drögin
fara hér á eftir í heild sinni:
Ný stjórnmálahreyfing hefur
verið stofnuð. Eftir áratuga bar-
áttu hefur langþráður árangur
náðst og ný stjórnmálahreyfing
byggð á traustum grunni lítur nú
dagins ljós. Hin pólitíska stefnu-
mörkun fær nú farveg í skipulögð-
um stjórnmálaflokki sem verður
vettvangur frjórrar og opinnar
umræðu um pólitísk verkefni líð-
andi stundar og stefnumótun til
framtíðar. Sú vinna byggir á þeim
grundvelli sem lagður var þegar
ákvörðun um sameiginlegt fram-
boð var tekin.
Samfylkingin vill með réttlátum
og sanngjörnum hætti jafna leik-
inn í samfélaginu, taka forystu-
hlutverk í íslenskum stjórnmálum
og móta samfélagið í þágu al-
mannaheilla.
Samfélagslegt réttlæti
og mannvirðing
Samfylkingin vill að allir íslend-
ingar séu fullgildir þátttakendur í
menntuðu og upplýstu samfélagi,
þar sem skapandi og gagnrýnin
hugsun er jarðvegur vaxtar og
framþróunar. Hún unir því ekki að
auður samfélagsins safnist á hend-
ur fámennra þjóðfélagshópa með-
an aðrir eru afskiptir. Hún vill að
þjóðfélagið skapi einstaklingum og
fjölskyldum öryggi til að njóta
frelsis og hamingju. Hún vill þjóð-
félag þar sem jafnrétti kynjanna
ríkir, með virkri þátttöku karla og
kvenna í fjölskyldu- og atvinnulífí
og við mótun samfélagsins.
Allir íbúar landsins eiga að fá að
njóta atgervis síns til að skapa sér
og sínum farsæld. Þeir eiga að
hafa jafna möguleika, jafnan rétt
til athafna og jafnan aðgang að vel-
ferðarþjónustu og samfélagslegu
öryggi, hvar sem þeir búa og hvaða
þjóðfélagshópi sem þeir tilheyra.
Samfélagslegt réttlæti sem
byggir á mannvirðingu á að koma í
stað einsýnnar auðhyggju, jöfnuð-
ur í stað misréttis, virk samkeppni
í stað fákeppni og einokunar.
Menntun og menning -
uppspretta framfara
í menntun og menningu felst
uppspretta framfara í efnahags-,
atvinnu- og velferðarmálum á
nýrri öld. Uppbygging þekkingar-
umhverfis er forsenda þess að Is-
land skapi ungu fólki vænleg lífs-
skilyrði.
Samfylkingin vill treysa innviði
upplýsingasamfélagsins. Samfylk-
ingin vill því stórauka fjárfestingu í
menntun til að auka samkeppnis-
hæfni þjóðarinnar á alþjóðamarkaði
og bæta lífskjör og mannlíf á Is-
landi. Hún vill hindra að stétta-
skipting verði milli þeirra sem fá
tækifæri til að afla sér menntunar
og hinna sem ekki fá slíka aðstöðu.
Þess vegna leggur Samíylkingin
höfuðáherslu á að tryggja aðgang
allra að þeirri hraðbraut upplýsinga
og þekkingar sem nú byltir fyrri at-
vinnuháttum. Það eru sameiginlegir
hagsmunir hins opinbera, samtaka
launafólks og atvinnufyrirtækja að
veita launafólki möguleika á sí-
menntun og starfsmenntun.
Samfylkingin vill aukið frum-
kvæði og sköpunargleði inn í skól-
ana í stað miðstýringar, stöðlunar
og samkeppnisnáms að hætti sitj-
andi stjórnvalda.
Flutningsnetin eru mikilvægir
innviðir upplýsingasamfélagsins
sem tryggja verður að þjóni al-
mannahagsmunum; einstaklingum,
menntastofnunum og atvinnulífínu
til frambúðar. Bráðræðisleg einka-
væðing þessa samskiptakerfis er
skammsýni í bráð og varhugaverð
í lengd.
Umhverfí, auðlindir
og almannaréttur
Farsæl sambúð manns og nátt-
úru krefst þess að við temjum okk-
ur ný viðhorf í umgengni við nátt-
úruna á grundvelli sjálfbærrar
þróunar og virðingu fyrir öllu sem
lífsanda dregur. Samfylkingin vill
að Islendingar veiti öðrum þjóðum
gott fordæmi í umgengni við land
og auðlindir og að alþjóðlegar
skuldbindingar á sviði náttúru-
verndar séu ávallt virtar. Hún
leggur áherslu á vernd ósnortinna
víðerna landsins, minja og lands-
lags. Hún vill að þjóðgörðum verði
fjölgað og að almannaréttur til að
njóta náttúrunnar verði virtur.
Umhverfisvernd er nauðsynleg
forsenda þess að lífvænlegt verði á
jörðinni um alla framtíð. Óflugt og
árangursríkt alþjóðlegt samstarf á
vettvangi umhverfismála og nátt-
úruverndar stuðlar að því. Sam-
fylkingin vill að íslensk stjórnvöld
staðfesti Kyoto-bókunina um losun
gróðurhúsalofttegunda, Einnig að
sett verði heildarlöggjöf um vernd-
un og nýtingu auðlinda á grund-
velli Ríó-samningsins frá 1992.
Langtímaáætlanir og umhverfis-
mat við nýtingu náttúruauðlinda
eiga að vera grundvöllur allra
stærri ákvarðana um virkjun
vatnsafls og jarðvarma eða aðra
nýtingu náttúruauðæfa landsins.
Samfylkingin gerir kröfu um að
vinnu við rammaáætlun um nýt-
ingu vatnsorku og jarðvarma verði
flýtt svo að hún liggi fyrir áður en
næsta virkjun verður ákveðin.
Samfylkingin vill að eignarhald
þjóðarinnar á sameiginlegum auð-
lindum lands og sjávar verði
tryggt í stjórnarskrá og að tekið
verði gjald fyrir nýtingu þeirra til
þess að dreifa arðinum réttlátlega.
Harðvítug átök hafa staðið um
eignarhald þjóðarinnar á helstu
auðlind hennar, fiskistofnunum í
hafinu. Stofnfundur Samfylkingar-
innar fagnar frumvarpi þingflokks
Samfylkingarinnar um stjórn fisk-
veiða og staðfestir stefnumörkun
þess um nýtingu þjóðarauðlindar-
innar með atvinnufrelsi og jafn-
ræði að leiðarljósi. Samfylkingin
krefst þess að sömu markmið verði
lögð til grundvallar við endurskoð-
un fiskveiðistefnunnar.
Velferð í samfélagi fyrir alla
Samfylkingin leggur sérstaka
áherslu á að bæta stöðu barnafólks
með hækkun ótekjutengdra barna-
bóta og fæðingar- og foreldraor-
lofi. Tryggja þarf réttindi barna
samkvæmt alþjóðasáttmálum s.s.
til umgengni við báða foreldra
sína.
Samfylkingin vill að samtök
aldraðra og öryrkja taki þátt í
samningum um hagsmunamál sín
og leggur áherslu á þau mannrétt-
indi að lífeyrisgreiðslur verði ekki
tengdar við tekjur maka.
Samfylkingin vill gagngera end-
urskoðun á velferðarkerfinu og
þeim frumskógi reglna og skerð-
ingarákvæða í skatta- og bótakerfi
sem notendur kerfisins nú glíma
við.
Velferðarkerfið á að vera gegn-
sætt, traust og í þágu þeirra sem
þurfa; dregið verði úr jaðaráhrif-
um í skattakerfinu, húsaleigubæt-
ur verði skattfrjálsar og félagsleg-
ir kostir í húsnæðiskerfinu efldir.
Samfylkingin varar við frekari
kostnaðarþátttöku sjúklinga í heil-
brigðiskerfinu. Gjaldtaka má
aldrei hamla nauðsynlegri þjón-
ustu og meðferð sjúklings. Sam-
fylkingin vill styrkja grunnþjón-
ustu heilsugæslunnar, forvarnir og
ráðgjöf við fjölskylduna.
Málsvarar mannréttinda
og friðar
íslendingar standa frammi fyrir
því mikilvæga verkefni að skil-
greina stöðu sína í samfélagi þjóð-
anna upp á nýtt. Endalok kalda
stríðsins, aukin efnahagsleg og
pólitísk samvinna þjóða og bylting-
arkenndar breytingar á sviði
fjarskipta, viðskipta og sam-
gangna, hafa fært okkur ný tæki-
færi. Stærð ríkis ræður ekki úr-
slitum um framlag þess á
alþjóðlegum vettvangi heldur vel
ígrundaðar hugmyndir og mark-
viss stefnumótun. Islendingar eiga
að vera málsvarar mannréttinda
og friðar í samvinnu þjóða. Jafn-
framt því að gæta hagsmuna lands
og þjóðar í alþjóðasamvinnu er það
siðferðileg skylda okkar að axla
þyngri byrðar en hingað til.
Fyrsta skrefið í þá átt er að ísland
uppfylli skuldbindingar sínar um
árlegt framlag til þróunarsam-
vinnu.
Marka þarf skýra stefnu um
samvinnu okkar við fátækustu ríki
jarðar þar sem aðstoð við konur og
börn hefur forgang. ísland verði í
framvarðasveit þeirra sem vilja
losa snauðustu ríki heims úr fá-
tæktargildrunni.
Samfylkingin vill tryggja frjálsa
verslun á alþjóðavettvangi en í
nafni hennar má þó aldrei vega að
mannréttindum ellegar slaka á
kröfum um náttúruvernd.
EES-samningurinn hefur rutt
brautina fyrir bætta neytenda-
vernd, félagslegar umbætur og
viðskiptalegt frjálsræði. Staða
samningsins hefur hins vegar
veikst og til lengdar verður hann
ekki fullnægjandi fyrir samskipti
íslands og Evrópu. í ljósi þess er
Islendingum nauðsynlegt að taka
til umræðu og ákvörðunar hvernig
hagsmunir þein-a verða tryggðir í
samvinnu Evrópuþjóðanna.
Samfylkingin mun hafa forystu
um gagnrýna og opinskáa úttekt á
þeim leiðum sem tryggja best
efnahagsleg, menningarleg og fé-
lagsleg samskipti við ríki Evrópu.
Virkt lýðræði og þátttaka
Jafnrétti kynjanna hefur ekki
enn náðst hér á landi. Það er ekki
einungis siðræn óhæfa að konur
standi höllum fæti, sem glöggt má
sjá í viðvarandi launamun á milli
kynjanna, heldur þarf nútímasam-
félag á öllum kröftum kvenna að
halda. Sameiginleg ábyrgð karla
og kvenna á barnauppeldi og
heimilishaldi er sem fyrr nauðsyn-
leg forsenda jafnréttis kynjanna.
Því ber að gjalda varhug við for-
dómum og vanaheimsku um hlut-
verk kynjanna. Samfylkingin vill
kveða niður gamaldags karlveldi
hvar sem það finnst - líka innan
stjórnkerfisins og í stjórnmála-
flokkunum sjálfum - og skapa nýj-
um kynslóðum vegvísa og fyrir-
myndir í jafnréttisbaráttunni.
í síbreytilegu samfélagi er nauð-
synlegt að stjórnkerfið sé opið og
gagnsætt. Samfylkingin vill að
samráð sé haft við samtök almenn-
ings við ákvarðanatöku í mikilvæg-
um málum og að tryggður sé rétt-
ur kjósenda til að kalla fram
þjóðaratkvæðagreiðslur. Ennfrem-
ur að lög verði sett um starfsemi
og fjármál stjórnmálaflokka.
Breyting á kjördæmaskipan
landsins er einungis áfangi til jöfn-
unar kosningaréttar. Stefna Sam-
fylkingarinnar er að atkvæðavægi
verði jafnt með því að landið verði
gert að einu kjördæmi. Jafnframt
þurfa sveitarfélögin í landinu að
eflast og stækka.
Samfylkingin vill treysta byggð í
landinu með átaki í samgöngumál-
um sem styðji við stækkun sveitar-
félaga svo þau verði öll þess megn-
ug að taka við fjölþættum verk-
efnum sem auki fjölbreytileik í
þjónustu, atvinnu og menningar-
starfsemi um allt land. Möguleikar
upplýsingatækninnar eru mikil-
vægustu samgöngumál nútímans
sem geta rofið einangrun og upp-
hafið fjarlægðir. Eitt brýnasta við-
fangsefnið nú er að gera íbúum í
dreifbýli kleift að njóta þjónustu
orku- og upplýsingaveitna til jafns
við íbúa í þéttbýli.
Samfylkingin áréttar mikilvægi
fjölbreytts mannlífs til sjávar og
sveita, sem fái stuðning við að
þróast á eigin forsendum og skapi
íbúum sínum efnahagslegt og fé-
lagslegt öryggi og velsæld.
Styrka efnahagsstjórn
og sanngjörn kjör fyrir
heimilin í landinu
Samfylkingin vill að stjórn efna-
hagsmála miði að því að bæta og
tryggja lífskjör þjóðarinnar, að
treysta stöðugleika og stuðla að
jöfnuði í samfélaginu.
Samfylkingin vill virkt markaðs-
kerfi sem byggir á samkeppni,
neytendavernd og árangursríku
aðhaldi. Samkeppnislög þarf að
styrkja gegn fákeppni og einokun.
Lítt þroskaður verðbréfamarkaður
þarf virkt aðhald og eftirlit.
Samfylkingin vill skapa fólki
jöfn tækifæri í samfélagi sem gerir
ráð fyrir þátttöku allra. Allir eiga
að njóta jafnréttis til menntunar
og heilbrigðisþjónustu. Samfylk-
ingin varar við einkavæðingu vel-
ferðar- og menntakerfisins og því
að þau séu lögð að jöfnu við al-
menna þjónustu eða rekstur á
samkeppnismarkaði.
Nú hefur stærsti hluti félaga á
almenna vinnumarkaðnum gert
kjarasamninga til næstu ára. Enn
axla félagar verkalýðshreyfingar-
innar þá ábyrgð að viðhalda stöð-
ugleikanum. Samfylkingin krefst
þess að stjórnvöld standi við sinn
hluta samningsins og takist af ein-
urð á við efnahagsstjórnina sem
hefur einkennst af lausatökum; há-
um vöxtum, hættulega miklum við-
skiptahalla, vaxandi verðbólgu og
þrýstingi á gengið. Skuldir heimil-
anna hafa aukist gífurlega að und-
anförnu. Gengi krónunnar hefur
verið keyrt upp með vaxtahækkun-
um Seðlabankans og fjármála-
stofnanir hafa brugðist við með því
að stórhækka vexti og þjónustu-
gjöld á almenning. Á sama tíma
njóta stórir lántakendur vaxta sem
taka mið af samkeppni við er-
lendar fjármálastofnanir. Þessi
stefna er aðför að því fólki sem
hefur með hóflegum kjarasamn-
ingum borið uppi stöðugleika efna-
hagslífsins.
Jafnaðarstefnan á brýnt erindi í
markaðs- og upplýsingasamfélagi
nýrrar aldar. Samfylkingin mun
krefjast forystu fyrir ríkisvaldinu
til að gæta almannahagsmuna
gegn sérhagsmunum og valdahóp-
um.
'CCfeSSO^
LOKADAGAR
Sprenghlægilegt verð!
Enn meiri verðlækkun
Öll föt á kr. 1.000.
Opið alla daga frá kl. 12-18