Morgunblaðið - 05.05.2000, Side 15

Morgunblaðið - 05.05.2000, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 15 AKUREYRI Eyþings lýsir ánægju með jarðgangaáætlun Vegagerðar Göng undir Vaðlaheiði verði líka skoðuð STJÓRN Eyþings, Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þing- eyjarsýslum, lýsti á fundi sínum nýlega yfir ánægju með jarðganga- áætlun Vegagerðarinnar og fagnar því að jarðgöng milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar skuli vera þar í flokki fyrstu verkefna. Þá hvetur stjórnin til þess að þegar verði ráðist í nauðsynlegar rannsóknir vegna jarðganga undir Vaðlaheiði. Margvísleg rök eru fyr- ir því að mati stjórnarinnar, að taka þau jarðgöng til alvarlegrar skoð- unar. Umferðarþungi er mikill, ný viðhorf eru uppi eftir að áætlunar- flugi hefur verið hætt til Húsavíkur og jarðgöng mundu styrkja Eyja- fjörð og Þingeyjarsýslu sem vaxtar- svæði og styrkja samstarf þessara svæða svo sem um orkuvinnslu. Á fundi stjórnar Eyþings var jafnframt rætt um fjarvinnsluverk- efni og að hægt gangi að flytja verkefni frá ríkisstofnunum út á landsbyggðina þrátt fyrir að þau áform komi skýrt fram í stefnu rík- isstjórnarinnar í byggðamálum fyr- ir árin 1999-2001. Flytja þarf verkefni á landsbyggðina Stjórnin samþykkti ályktun þar sem skorað er á ríkisstjórn íslands að fylgja fast eftir áformum um að flytja verkefni og einstaka starf- semi frá ráðuneytum og ríkisstofn- unum í Reykjavík út á landsbyggð- ina. Með nútíma tækni séu fjölmörg verkefni sem með góðu móti sé hægt að vinna utan höfuðborgar- svæðisins og í mörgum tilfellum betur komin utan Reykjavíkur. I ljósi byggðaþróunar á Islandi, ætti að mati stjórnar Eyþings, að vera keppikefli ríkisstjórnar ís- lands að hafa þetta sem for- gangsverkefni því í slíkum störfum felst eitt af stærstu sóknarfærum fyrir mörg byggðarlög á lands- byggðinni. Mogunblaðið/Kristján Einn á pramma HANN virkaði frekar einmana- legur, málarinn sem stóð í ströngu við að mála loðnuskipið Súluna við Torfunefsbryggju á Akureyri, en sjálfsagt hefur hann samt skemmt sér hið besta við þetta verkefni. Veðrið lék við hann sem og aðra bæjarbúa, en með sólskininu var nokkur sunnangola og tekur snjó- inn í fjöllunum hratt, og örugglega upp þegar veðurfar er með þeim hætti. Morgunblaðið/Kristján Gunnlaugur Magnússon var ásamt félaga sínum, Ti-yggva Heimissyni, við æfingar í Glerá í blíðunni. Kajak- námskeið í Glerá í sumar I SUMAR verður boðið upp á kaj- aknámskeið á Akureyri og verða þau haldin í Gleránni, sem renn- ur í gegnum bæinn. Það er Kaj- akskóli Akureyrar sem stendur að námskeiðunum en skólinn er rekinn innan Siglingaklúbbsins Nökkva. Forsvarsmenn skólans eru þeir Gunnlaugur Magnússon og Tryggvi Heimisson. Gunnlaugur sagði að þessa dagana væri verið að ganga frá tilskildu leyfi frá bæjaryfírvöld- um en að stefnt væri að því að fara af stað með fyrsta námskeið- ið eftir hálfan mánuð. „Við þurf- um að henda nokkrum steinum í ána og gera lygnu til að geta at- hafnað okkur betur við kennsl- una. En við bíðum eftir grænu Ijósi frá bæjaryfirvöldum vegna þcssara framkvæmda. Töluverður áhugi er fyrir þess- um námskeiðum en Gunnlaugur sagði að markmiðið með þeim væri að gera fólk sjálfbjarga bæði í ám og sjó. Hann sagði að þetta væri íþrótt fyrir alla ald- urshópa og fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Þegar hafi ver- ið skráðir þátttakendur á aldr- inum 17-55 ára á námskeið í sum- ar en Gunnlaugur sagði að þátttakendur mættu vera enn yngri. Gunnlaugur og Tryggvi hafa farið með kajaka sína víða um land, og reynt fyrir sér í mörgum ám bæði á Norðurlandi og víðar. Þeir hafa m.a. farið SAMHERJA hefur verið gert að greiða manni sem var skipverji um borð í Guðbjörgu ÍS 928 þúsund krónur vegna vangreiddra launa auk greiðslu málskostnaðar að upphæð um 250 þúsund krónur. Dómur þar um var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Maðurinn var netamaður um borð í Guðbjörgu ÍS sem Samherji gerði út, en hann veiktist um borð í skipinu í upphafi síðasta árs og var hann með öllu óvinnufær vegna þess. Tilkynnti hann skipstjórum um veikindi sín og var hann því ekki skráður í áhöfn skipsins er það hélt út til veiða í byrj- un febrúar. Maðurinn krafðist staðgengils- kaups vegna veiðiferðar sem stóð yf- ir frá 4. febrúar til 10. mars, en á því hafi hann átt rétt samkvæmt ákvæð- um kjarasamnings Sjómannasam- fram af Goðafossi í Skálfanda- fljóti. „Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt." bands íslands og Alþýðusambands Vestfjarða. Samherji krafðist sýknu í málinu og byggði m.a. á því að maðurinn hafði fundið til einkenna í um eitt ár áður en hann leitaði sér lækninga. Þá er bent á að maðurinn hafi ekki orðið veikur í fyrstu veiðiferð skipsins á síðasta ári og styðji ekkert slíka frá- sögn hans, hann hafi aldrei verið frá vinnu vegna veikinda í ferðinni og enga meðferð fengið. Maðurinn hafi hins vegar tilkynnt skipstjóra að hann myndi taka sér frí næstu veiði- ferð. I áliti dómsins kemur fram að vottorði um óvinnufærni skipverjans hafi ekki verið hnekkt og verði því að miða við að hann væri ekki á sjó eins og sjúkdómi hans var háttað. Honum beri því staðgengilskaup þann tíma sem krafið var um. Samið um leikskóla AKUREYRARBÆR heíur gengið frá samningi við verk- takafyrirtækið P. Alfreðsson ehf. um byggingu nýs leikskóla, Iðavöll við Gránufélagsgötu. Heildarkostnaður samkvæmt tilboði verktakans hljóðar upp á um 112,6 milljónir króna. Ráð- gert er að hefja byggingarfram- kvæmdir um miðjan þennan mánuð og að þeim verði lokið 25. mars á næsta ári. Áður þarf að rífa gamla leik- skólann og verður hafist handa við það verk í lok næstu viku. Frá þeim tíma flytur leikskól- inn í bráðabirgðahúsnæði í Glerárkirkju. Nýi leikskólinn er um 650 fermetrar að stærð, fjögurra deilda og með rúmlega 80 rýmum. Núverandi húsnæði er um 200 fermetrar að stærð og þar eru tæplega 50 börn í 26 rýmum. Leikskólarýmum mun því fjölga umtalsvert með til- komu nýja hússins. í upphafi var ráðgert að nýr leikskóli yrði tilbúinn um næstu áramót. Ásgeir Magnússon, for- maður framkvæmdanefndar, sagði að menn hafi hins vegar tekið ákvörðun um velja þá húsagerð sem P. Alfreðsson bauð uppá en verktakinn treysti sér ekki til að ljúka verkinu fyrr en í mars á næsta ári. Alls bár- ust fjögur tilboð í verkið í alút- boði og voru bæði húsagerð og verðtilboð nokkuð mismunandi. Rússarnir komnir FJÓRIR rússneskir keppendur í snjókrossi ásamt aðstoðarmönn- um sínum og nokkrum blaða- mönnum frá Rússlandi voru á meðal þeirra sem voru í rúss- neskri herflutningavél sem lenti á Akureyrarflugvelli síðdegis i gær. Keppendurnir taka þátt í al- þjóðlegri vélsleðakeppni sem Vélsleðaklúbbur Ólafsfjarðar og Kappakstursklúbbur Akureyr- ar halda í miðbæ Ólafsfjarðai- á morgun, laugardag. Vélsleða- mótið í Ölafsfirði hefst kl. 13, en auk þess sem keppendur koma frá Rússlandi og Islandi verða þar einnig á meðal þátttakenda keppendur frá Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Snjó verður ekið af Lágheiði niður í miðbæ Ólafsfjarðar þar sem verða útbúnar brautir fyrir keppnina. Að lokinni keppni verður grillveisla í miðbæ Ólafs- fjarðar fyrir keppendur og gesti. Ferðaskrifstofan Sportferðir annaðist skipulagningu rúss- neska hópsins, m.a. í samstarfi við rússneska sendiráðið á ís- landi. Með vfsan til greinar 6.2.3 í skipulagsreglugerð auglýsir Akureyrar- bær tillögu að deiliskipulagi hafnarsvæðis í Krossanesi. Uppdráttur er sýnir tillöguna ásamt skýringarmynd og greinargerð liggur frammi almenningi til sýnis í upplýsingaanddyri Akureyrar- bæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til föstudagsins 16. júní 2000, þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akur- eyri.is/. Athugasemdafrestur er til kl. 16.00 föstudaginn 16. júní 2000. Athugasemdum skal skila til Skipulagsdeildar Akureyrarbæj- ar. Þeim sem telja sig verða fyrir bótaskyldu tjóni vegna samþykkt- ar eða framkvæmdar deiliskipulagsins er bent á að gera athuga- semdir innan tilgreinds frests ella teljast þeir samþykkir tillögunni. Skipulagsstjóri Akureyrar Héraðsdómur Norðurlands eystra Samherji greiði sjó- manni staðgengils- kaup vegna veikinda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.