Morgunblaðið - 05.05.2000, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Sinfóníuhljóm-
sveit Norður-
lands í Reykjavík
TÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands í Iþróttaskemmunni á
Akureyri 9. apríl s.l. vöktu mikla at-
hygli og hlaut frammistaða einleik-
arans og hljómsveitarinnar einróma
lof gagnrýnenda. Nú hefur verið
ákveðið að endurtaka tónleikana í
Reykjavík og hafa þeir verið valdir
inn á dagskrá Reykjavíkur menn-
ingarborgar Evrópu árið 2000.
Efnisskráin verður sú sama og á
Akureyri. Fyrra verkið á tónleikun-
um er svítan E1 Amor brujo, eða
Astargaldur, úr samnefndum ballet
eftir Manuel de Falla. Pekktasti
þáttur verksins er hinn frægi Eldd-
ans sem án efa er þekktasta verk
Falla. Seinna verkið á tónleikunum
er píanókonsert nr. 2 í B-dúr, op. 83
eftir Johannes Brahms, eitt af
veigameiri verkum hans. Konsert
þessi hefur nokkra sérstöðu meðal
rómantískra píanókonserta. Um
hann hefur verið sagt að hann væri
sinfónía með píanóeinleik enda er
hlutverk hljómsveitarinnar veiga-
meira en oftast er í slíkum verkum.
Um leið er hlutverk píanósins mikið
að vöxtum og þannig úr garði gert
að margir telja það eitt erfiðasta
einleikshlutverk í tónbókmenntum
Listasafnið á Akureyri
Síðasta sýn-
ingarhelgi
NU eru síðustu forvöð að skoða sýn-
ingamar „Sjónauki II: Bamæska í ís-
lenskri myndlist" og „Barnið: Ég“ í
Listasafninu á Akureyri en þeim lýk-
ur núna um helgina. Þrír starfsmenn
kennaradeildar Háskólans á Akur-
eyri, Chia-jung Tsai listfræðingur,
Guðmundur Heiðar Frímannsson,
heimspekingur og deildarforseti, og
Kristján Kristjánsson, prófessor í
heimspeki, tóku að sér hlutverk
sjónaukanna, en þau könnuðu hvort
sömu tilhneiginga gætti við lýsingar á
börnum í íslenskri myndlist og alþjóð-
legri og er niðurstaða þeirra að svo sé.
í vestursal listasafnsins getur að
líta afrakstur af listrænni vinnu bama
sem fengu það verkefni, undir hand-
leiðslu Rósu K. Júlíusdóttur, að lýsa
sjálfum sér í starfí og leik. Auk bam-
anna eiga þrjátíu listamenn verk á
sýningunni.
Listasafnið á Akureyri er opið
þriðjudaga til fímmtudaga kl. 14-18,
föstudaga og laugardaga kl. 14-22 og
sunnudaga kl. 14-18. Sparisjóður
Norðlendinga styrkir Listasafnið á
Akureyri.
----. ♦ ♦ ♦-----
Karlakórinn
Þrestir í Gler-
árkirkju
KARLAKÓRINN Þrestir heldur
tónleika í Glerárkirkju laugardag-
inn 6. maí kl. 17. Þrestir em elsti
karlakór landsins, stofnaður 1912,
og er því að ljúka 88. starfsárinu. A
söngskrá kórsins kennir margra
grasa; bæði hefðbundin íslensk
karlakórslög og lög eftir erlenda
höfunda, s.s. alþýðulög frá Kanada,
bandariskir negrasálmar og vinsæl-
ir söngvar frá fyrri hluta nýliðinnar
aldar með tilbrigði tenóra, bassa og
barítona og em höfundar t.d. Jó-
hann Ó. Haraldsson, Friðrik
Bjarnason, stofnandi Þrasta, Jón
Ásgeirsson og Allister MaeGill-
ivray. Karlakórinn hefur haldið tón-
leika í Hafnarfirði að undanförnu
við góðar undirtektir. Stjómandi
Karlakórsins Þrasta er Jón Krist-
inn Cortez og undirleikari Sigrún
Grendal. Einsöng með Þröstum
syngur Þorgeir J. Andrésson tenór.
rómantískra píanókonserta.
Helga Bryndís Magnúsdóttir
píanóleikari er einleikari á þessum
tónleikum. Hún stundaði fyrst tón-
listarnám í Vestmannaeyjum og síð-
an við Tónlistarskólann i Reykjavík
hjá Jónasi Ingimundarsyni. Éftir að
hún útskrifaðist þaðan 1987 var hún
við framhaldsnám í Vínarborg og
Helsinki. Hún hefur síðan starfað
við Tónlistarskólann á Akureyri.
Helga Bryndís hefur haldið fjölda
tónleika bæði hér heima og erlendis
og er félagi í Caput. í desember s.l.
lék hún einleik með Sinfóníuhljóm-
sveit Islands í konsert fyrir tvö
píanó og hljómsveit eftir F. Poulene.
Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands er Guðmundur Óli
Gunnarsson. Hann hefur verið aðal-
stjórnandi hljómsveitarinnar frá
upphafi auk þess sem hann hefur
stjórnað Kammersveit Reykjavíkur,
íslensku hljómsveitinni og Sinfón-
íuhljómsveit íslands bæði á tónleik-
um og við upptökur. Hann er einnig
fastur stjórnandi Caput.
Forsala aðgöngumiða fer fram
hjá Pennanum-Eymundsson Aust-
urstræti 18, en þar er opið alla daga
til kl. 22.00.
Héraðsdómur
Norðurlands eystra
Sekt fyrir að
kaupa og selja
fíkniefni
TVÍTUGUR piltur hefur verið
dæmdur til að greiða 100 þúsund
krónur í sekt til ríkissjóðs vegna
fíkniefnabrots. Dómurinn var kveð-
inn upp í Héraðsdómi Norðurlands
eystra, en þrjú önnur ungmenni voru
einnig dæmd til að greiða sekt í ríkis-
sjóð vegna málsins, 31 til 40 þúsund
krónur
Maðurinn sem greiða þarf mest
keypti hass og amfetamín í Reykja-
vík og flutti með sér norður til Akur-
eyrar þar sem hann seldi hluta af því
hinum sem við sögu komu, tveim pilt-
um um tvítugt og rúmlega tvítugri
stúlku. Lögregla handtók manninn
við verslunarmiðstöðina í Sunnuhlíð í
janúar síðastliðnum og var hann þá
með í fórum sínum nær 14 grömm af
hassi og 2,25 grömm af amfetamíni.
Ungmennin fjögur játuðu sakar-
giftir skýlaust fyrir dómi. Sá er
keypti fíkniefnin og seldi þau unga
fólkinu hefur ekki hlotið refsidóma
áður, en hinir hafa áður hlotið dóma,
m.a. fyrir umferðarlagabrot, lík-
amsárás og þjófnaðarbrot.
-----H-*-------
Sumarfagn-
aður Hlífar
SUMARFAGNAÐUR Kvenfélags-
ins Hlífar verður haldinn á sunnu-
dag, 7. maí, kl. 15 í safnaðarsal Gler-
árkirkju.
í anddyri verður sýning á hand-
verki úr beinum og hornum unnið af
Guðrúnu Steingrímsdóttur frá
Stekkjaflötum í Eyjafjarðarsveit, þá
verður boðið upp á veislukaffi, happ-
drætti og tónlistaratriði. Að vanda
rennur allur ágóði í að styrkja tækja-
kaup fyrir bamadeild Fjórðungs
sjúkrahússins á Akureyri.
Bæjarbúar og Norðlendingar eru
velkomnir, verðið er 800 krónur fyrir
fullorðna og 400 krónur fyrir börn.
---------------------
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL: Kyrrðar-
og bænastund í Svalbarðskirkju á
sunnudagskvöld, 7. maí, kl. 21.
Ný gistiað-
staða opnuð
hjá Frosti
og funa í
Hveragerði
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gistihús Frosts og funa blasir vel við þegar horft er yfir Varmá.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gestgjafarnir í Frosti og funa, Knútur Bruun og Anna Sigríður Jó-
hannsdóttir.
Selfossi - Gistiheimilið Frost og
funi í Hveragerði opnaði 1. maí
glæsilega aðstöðu í nýuppgerðu
tveggja hæða húsi með 6 herbergj-
um setustofu og fundarastöðu.
Framundan er bygging 80 fermetra
baðhúss í hallanum niðuraf húsinu.
Hin nýja gistiaðstaða er í nýupp-
gerðu húsi sem stendur á fallegum
stað austan Varmár skammt frá
sundlauginni í Laugarskarði. Mjög
gott útsýni er frá húsinu yfir
Hveragerði og nágrenni, úr her-
bergjunum og frá borðsalnum. Oll
sex herbergin eru lúxusherbergi,
mjög rúmgóð ogmeð góðu baði og
öll aðstaða og umgjörð er fyrsta
flokks.
Áhersla á heilbrigði,
land og menningu
Hin nýja aðstaða kemur til við-
bótar við starfsemi Frosts og funa
að Hraunhamri í Hveragerði og
starfsemin í nýja húsinu verður
rekin undir sömu formerkjum og
gert hefur verið frá 1997 en það er
að leggja áherslu á heilbrigði, land-
ið og menninguna. „Húsið hjá okk-
ur í Hraunhamri er fullt af myndlist
og svo mun einnig verða smám
saman hér í nýja húsinu. Svo leggj-
um við áherslu á lífrænan morgun-
verð og við erum hér á mjög lff-
rænu og líflegu landi,“ sagði
Knútur Bruun sem er eigandi
Frosts og funa ásamt konu sinni
Önnu Sigríði Jóhannsdóttur.
Gestirnir í öndvegi
„Hjá okkur eru gestirnir í önd-
vegi; við hugsum eins vel um þá og
við getum og það er nú einu sinni
svo að fólk vill láta svolítinn lúxus
eftir sér og vill láta sér líða vel þeg-
ar það er i fríi til þess að slaka á,“
sagði Knútur. Anna Sigríður sagði
að margir gesta þeirra væru ungt
fólk sem kæmi til þess að láta sér
líða vel. Knútur sagði aðsókn hafa
verið vaxandi frá því þau byijuðu í
Hraunhamri 1997 og góðar bókanir
fyrir komandi sumar. Hann sagði
að þau auglýstu ekki mikið en legðu
áherslu á að staðurinn auglýsti sig
sjálfur, þau væru með staðinn á
Netinu og þar í gegn kæmi vaxandi
umferð og þessi stefna þeirra gengi
eftir.
Morgunblaóið/Benjamín Baldursson
Árni Magnússon, fjárbóndi á Ak-
ureyri, átti besta veturgamla
hrútinn á svæðinu og er þetta í
þriðja sinn sem Árni vinnur til
verðlauna af þessu tagi.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Bræðurnir Auðbjörn, Andrés og Kjartan og Kristinn faðir þeirra, hlutu
verðlaun Búnaðarsambands Eyjaíjarðar fyrir öflugt og afurðasamt
starf í áratugi en þeir reka svínabúið Hlíð sf. í Hraukbæ. Lengst til
vinstri á myndinni er Sigurgeir B. Hreinsson, formaður BSE.
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
Afurðasamt svínabú
verðlaunað
Eyjafirði - Búnaðarsamband Eyja-
fjarðar hélt aðalfund sinn á Akureyri
í vikunni en þar héldu ráðunautamir
Guðmundur Steindórsson, Ólafur G.
Vagnsson, Guðmundur H. Gunnars-
son og Ævarr Hjartarson starfs-
skýrslur sínar og Ævarr sem er
framkvæmdastjóri BSE fór yfir og
skýrði reikninga sambandsins. Um
30 bændur mættu til fundarins.
Sigurgeir B. Hreinsson formaður
Búnaðarsambands Eyjafjarðar af-
henti þeim svínabændum á svína-
búinu Hlíð sf. Hraukbæ í Glæsibæj-
arhreppi, bræðrunum Auðbirni,
Andrési og Kjartani ásamt föður
þeirra Kristni Björnssyni verðlaun
fyrir öflugt og afurðasamt bú á um-
liðnum árum. Kristinn stofnaði búið
fyrir 50 árum.
Ólafur Vagnsson afhenti Ái-na
Magnússyni fjárbónda á Akureyri
farandgrip fyrir besta veturgamla
hrútinn á svæðinu sem fram kom á
hrútasýningu síðastliðið haust. Árni
hefur lagt sig mjög fram í sauðfjár-
kynbótum og er þetta í þriðja sinn
sem hann vinnur til verðlauna fyrir
best dæmda kynbótahrútinn á svæði
BSE.