Morgunblaðið - 05.05.2000, Page 17
LANDBÐ
Ný minningar-
kort Lions
Hveragerði - Minningarkort
Lionshreyfingarinnar hafa nú ver-
ið endurhönnuð og er útlit þeirra
nú í senn hlýlegt og fallegt. Það
var Auglýsingastofa Guðjóns Inga
sem hannaði kortin í samvinnu við
Aðalheiði Kristinsdóttur, öldrunar-
og sjónverndarfulltrúa hreyfingar-
innar, og Kristin Kristjánsson um-
dæmisstjóra Lions.
Minningarkortin voru kynnt
Lionsmönnum á fjölumdæmisþingi
hreyfingarinnar, sem haldið var í
Mosfellssveit um síðustu helgi.
Sala minningarkorta hreyfingar-
innar hefur verið eina fjáröflun ís-
lensku Lionshreyfingarinnar sem
heildar nema þegar Lionsmenn
sameinast um landsátök eins og
sölu rauðu fjaðrarinnar, sem gerist
á nokkurra ára fresti. Eins og
flestum er kunnugt standa síðan
einstakir klúbbar fyrir fjáröflunum
til styrktar góðum málefnum. Ur
þessum sameiginlega sjóði hefur
fjölumdæmisstjórn veitt styrki til
sérstakra verkefna svo sem til
svæða sem hart hafa orðið úti
vegna náttúruhamfara og í brýn
framfaramál.
Hægt verður að nálgast minn-
ingarkort Lions í bankastofnunum,
pósthúsum og blómabúðum. Einn-
ig munu kortin fást hjá formönn-
um Lionsklúbbanna vítt og breitt
um landið.
■erfisilak
Morgunblaðið/Ingiraundur
Stefán Kalmansson bæjarstjóri, Stefán Gíslason, ráðunautur um um-
hverfismál, og Guðbrandur Brynjúlfsson, formaður nefndar um um-
hverfisstefnu Borgarbyggðar.
Umhverfísstefna Borgarbyggðar kynnt
Fjölskylduvænt og
eftirsótt til búsetu
Borgarnesi - Á degi umhverfisins
kynnti Stefán Kalmansson, bæjar-
stjóri Borgarbyggðar, umhverfis-
stefnu bæjaryfirvalda og umhverf-
istengd verkefni í íþróttamiðstöðinni
í Borgarnesi. Sýnd voru kort og
ýmsar upplýsingar er tengjast um-
hverfisstefnu Borgarbyggðar.
Þar kemur m.a. fram að stefnt sé
að því að Borgarbyggð verði í farar-
broddi meðal íslenskra sveitarfélaga
í umhverfisstarfi. Unnið verði að því
að sveitarfélagið verði eftirsótt til
búsetu sem fjölskylduvænt svæði
með heilnæmu og aðlaðandi um-
hverfi.
Sveitarfélagið stuðli að fræðslu
um umhverfismál. Leitast verði við
að nota endurnýjanlegar auðlindir.
Lögð verði áhersla á verndun lífrík-
isins og að varðveita líffræðilega fjöl-
breytni. Sveitarfélagið sýni gott for-
dæmi í umgengni og varðveislu
landgæða. Sjálfbær þróun verði höfð
að leiðarljósi við gerð skipulagsáætl-
ana. Allir hafi greiðan aðgang að
hreinu og heilnæmu neysluvatni.
Lögð verði áhersla á að draga úr
myndun úrgangs. Stefnt verði að
endurnýtingu og endurvinnslu þess
úrgangs sem til falli. Leitað verði
vistvænna leiða til að uppfylla lög og
reglur um fráveitumál. í sveitarfé-
laginu verði öflugt og fjölbreytt at-
.vinnulíf þar sem sjálfbær þróun
verði höfð að leiðarljósi.
Kappkostað verði að ti-yggja íbú-
um umhverfi til búsetu og útivistar,
þar sem loft- og hávaðamengun er í
lágmarki. Þess gætt að Ijósmengun
utan svæðis verði í lágmarki. Lögð
verði áhersla á skoðanaskipti um
umhverfismál. Gerð verði stafræn
skrá yfir auðlindir í sveitarfélaginu.
Sveitarfélagið mun koma sér upp
Staðardagskrá 21 í formi aðgerðar-
áætlana sem verður endurskoðuð og
uppfærð reglulega.
Vorar á
Kaldá
Flateyri - Guðmundur Betúelsson á
Kaldá í Onundarfirði varð þekkt
andlit fyrir nokkrum árum þegar
Ragnar Axelsson ljósmyndari tók
mynd af honum horfandi út um
gluggann á bænum sem þá stóð í
miðjum snjóskafli. Myndin var
prentuð á póstkort og hefur þótt
lýsandi fyrir harðbýli íslands.
Kaldá lagðist hins vegar í eyði
árið 1991 og eru systkinin Guð-
mundur og Anna sem bjuggu á
bænum frá árinu 1930 bæði dáin.
Myndin sem RAX tók hefur þó gert
þennan stað ódauðlegan og í augum
sumra er bærinn Kaldá hinn eini
Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson
Eyðibýlið Kaldá í Önundarfirði.
raunverulegi mælikvarði á það hve-
nær farið sé að vora í Önundarfirði.
Morgunblaðið/Kristján
Viltu ekki sopa?
ÖRN ÞÓR, þriggja ára snáði úr Reykjavík, var held-
ur betur heppinn þegar hann var í heimsókn í sveit-
inni hjá afa og ömmu í Aðaldalnum um helgina. Þá
fæddust þar tveir kálfar og var það heilmikil upp-
lifun fyrir strákinn að fylgjast með þeim stíga sín
fyrstu skref í tilverunni. Örn Þór er þrátt fyrir ung-
an aldur liðtækur við bústörfin og hjálpaði heima-
fólki að fæða kálfana. Hér er hann að gefa öðrum
þeirra, hryggjóttum myndargrip, að drekka mjólk
úr flösku.
Svigmót haldið í ná-
grenni Kröfluvirkjunar
. . .. ,. . , ,, ... Morgunbiaðið/BFH
Að morgu er að hyggja á skiðamóti.
Mývatnssveit - í vetur hafa verið
reglulegar skíðaæfingar fyrir börn-
in og er það að forgöngu Þorvaldar
Þorsteinssonar sem flutti þessa
menningu til okkar frá Siglufirði og
vakti þar með alpagreinar til nýs
lífs með Mývetningum. Þrátt fyrir
fremur lítinn snjó og óstöðuga
veðráttu hafa æfingar gengið vel.
Fyrir skömmu fóru 15 börn á
Andrésar Andar-leikana til Akur-
eyrar í fylgd foreldra sem sumir
kepptu á leikunum fyrir 20 árum.
Laugardaginn 29. apríl var síðan
lokaþáttur vetrarstarfsins með
skíðamóti sem haldið var fyrir bæði
börn og foreldra og fór það fram
skammt frá Kröfluvirkjun, veðrið
var eins og best gerist á vordegi 12°
hiti og sól og varla seinna vænna að
ljúka vetrarstarfinu.
Urslit urðu sem hér segir:
Drengir fæddir 1992
Steingrímur Örn Kristjánsson,
Pétur Jónasson og Sigurður Rúnar
Magnússon.
Stúlkur fæddar 1992-3
Andrea Dögg Kjartansdóttir,
Eygló Karlsdóttir og Aðalbjörg
Birgisdóttir.
Drengir fæddir 1989-90
Andri Karlsson, Anton Freyr
Birgisson og Einar Örn Kristjáns-
son.
Stúlkur fæddar 1989-90
Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir
og Þórey Kolbrún Jónsdóttir.
Drengir fæddir 1987-88
Pétur Freyr Jónsson, Snorri
Björn Gunnarsson og Þorsteinn
Þorvaldsson.
Stúlkur fæddar 1987-88
Þórhalla B. Jónsdóttir, Drífa H.
Daníelsdóttir og Sigurlín Elín Þor-
valdsdóttir.
Stúlkur fæddar 1985-86
Ásta M. Rögnvaldsdóttir og Hild-
ur Harðardóttir.
Börn yngri en 6 ára
Helga Þorvaldsd., Nanna Krist-
jánsd., Ásdís Kjartansd. og Ásgeir
Magnússon.
Að lokum kepptu foreldrar sín í
milli og sáust þar víða ákaflega
frumleg tilþrif, jafnvel lærdómsrík.
í lok mótsins fór fram verðlaunaaf-
hending.
Það hefur háð starfseminni að
togbrautarbúnaður er ófullkominn
og brekka stutt í Reykjahlíð. Nú
hefur verið keypt notuð skíðatog-
braut frá Reykjavík og er unnið að
undirbúningi þess að koma henni
fyrir í brekku þeirri sem notuð var
nú í vor við Kröfluvirkjun þar fæst
400 metra togbraut og varla mun
skorta snjó þar í um 500 metra hæð.
Dreginn
að landi
Flateyri - Jakob Hermannsson á
Jóa ÞH 108 varð fyrir því óhappi
að missa vélaraflið á heimleið af
miðunum um 15 sjómílur norður af
Flateyri aðfaranótt 30. apríl. Ekki
var vitað um orsök bilunarinnar.
Trillan er gerð út frá Flateyri
og barst aðstoð þaðan skömmu síð-
ar frá Anthony Wales á Kristrúnu
ÍS 72 sem dró félaga sinn að landi.
Gekk ferðin vel og sagði Jakob
siglingarhraðann í raun vera svip-
aðan hjá sér og venjulega. Enda er
Kristrún ÍS 72 nýsmíði og knúin
helmingi stærri vél en Jói ÞH 108
þótt bátarnir séu af svipaðri stærð.
Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson
Jdi ÞH 108 í togi hjá Kristrúnu ÍS 72 á leið til hafnar undir morgfun.