Morgunblaðið - 05.05.2000, Side 22
22 ’ FÖSTUllAGUR 5.' MAÍ 20001
MORGUNBDAÐIÐ
URVERINU
TEMAfísh-verkefni í verkmenntun og námsefnisgerð fyrir vélstjóra lokið
Eftirliti sinnt
Fjarlesturskerfi TEMAfish
i gegnum
gervihnött
TEMAfísh er verkefni sem snýr að nýjungum
í verkmenntun og námsefnisgerð fyrir vélstjóra.
Vélstjórafélag íslands tók þátt í verkefninu,
sem nú er nýlokið, ásamt fleiri íslenskum aðilum,
en það var unnið með styrk frá Leonardo Da
Vinci-áætlun ESB. Helgi Mar Árnason skoðaði
afrakstur verkefnisins.
Mælingar
Kaplar frá nemum í vél
Net-
sam-
skipta- skipta-
eining eining
Gagnasöfnunartölva
á mætistað
Net- ------------- Gervi-
sam-
Móttaka gagna
Módem
temafish@vsfi.is
Tölvuskráning
Gervitungl
hnatta- \/
samskipta- ____
tæki Loftnet
ií^>
Internet
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurður Sigurjónsson tækjafræðingur og Björgvin Þór Jóhannsson,
skólameistari Vélskóla íslands, ásamt nokkrum nemendum skólans við
vélbúnaðinn sem Vélskólinn fékk í tengslum við TEMAfish-verkefnið.
Jarðstöð
VÉLSTJÓRAFÉLAG íslands hef-
ur í samvinnu við Vélskóla íslands,
Verkfræðistofuna VISTA, GL-út-
gáfuna og Hitaveitu Suðurnesja
unnið að verkefni í Leonardo Da
Vinci-áætlun Evrópusambandsins
síðan í desember 1997. Unnið var
með aðilum í Belgíu og Ítalíu að
framkvæmd verkefnisins. Heildar-
velta verkefnisins var um 22 millj.
kr. Verkefnið er nefnt TEMAfish en
það hófst 8. des. 1997 og lauk 7. maí
sl. Verkefnið hefur skilað af sér
þrem megin vörum eða: 1. námsefni
í viðhaldsfræði, 2. kennslutækni-
búnaði sem er uppsettur í Vélskóla
íslands og 3. námsefni sem lýsir til-
raunakennslubúnaðinum og er m.a.
ætlað til notkunar á námskeiðum
Eftirmenntunar vélstjóra og í al-
mennu námi í skólanum eftir því
sem við á.
Verkefnið er bæði tæknilegs og
bóklegs eðlis. í tæknilega hluta
verkefnisins er ljóst að aukin þjálf-
un vélstjóra og nemenda Vélskólans
er hagnýt, sérstaklega varðandi
uppbyggingu mælibúnaðarins og
tölvuskráningarkerfisins. í bóklega
hluta verkefnisins er ljóst að árang-
ur í skipulegu viðhaldi getur áorkað
mikilli arðsemi.
Að sögn Björns H. Herbertssonar
hjá Eftirmenntun vélstjóra og verk-
efnisstjóra Temafish var forsenda
verkefnisins að bæta og þróa nám-
sefni á sviði viðhalds. „Erlendir
samstarfsaðilar okkar höfðu áhuga
á því að koma upp búnaði í skipum
sem gerir kleift að stunda eins kon-
ar fjareftirlit með viðhald í huga og
koma upp tilraunabúnaði sem kem-
ur þessu í framkvæmd en hann
gagnast einnig við kennslu. Sam-
starfið fólst í að unnið var að því sem
óskir einstakra stóðu til og allir til-
einkuðu sér að auki heildina."
Minni viðhaldskostnaður
Björn segir notagildi fjarviðhalds
líklega mest þar sem um er að ræða
tiltölulega litla vélaþekkingu og
menntun. „í því tilfelli má hugsa sér
að búnaður sé settur upp sem tekur
saman helstu mælanleg gildi þar
sem skipverjar hafa lítil eða engin
afskipti af búnaðinum. Síðan eru
þessar upplýsingar sendar í land
með gervihnattabúnaði þegar það á
við eða í gegnum farsímakerfið þeg-
ar vegalengdir eru innan marka
þess kerfis. Því næst skoðar aðili
með þverfaglega reynslu á vélasviði
þessar upplýsingar og greinir til-
hneigingu og metur hvort það þurfi
að grípa til einhverra aðgerða.“
Skipulegar viðhaldsaðgerðir skila
að sögn Björns árangri í minni við-
haldskostnaði, auknu rekstrarör-
yggi vélbúnaðarins, auknu öryggi á
vinnustað og stuðla þar með að auk-
inni arðsemi rekstrareiningarinnar.
„Til að ná árangri í þessu þarf að
byggja upp þekkingu þeirra sem
vinna við og hafa umsjón með vél-
búnaðinum á skipulegu viðhaldi og
aðferðafræði í öllu ferlinu, frá ein-
földustu aðgerðum og upp í að geta
skipulagt viðhald í stærra sam-
hengi,“ segir Björn.
Gögn send í
gegnum gervihnött
Fjarviðhaldskerfið sem þróað
hefur verið er þannig uppbyggt að
safnað er saman mikilvægum mæl-
igildum í vélbúnaði sem síðan eru
send með ákveðinni tíðni milli staða,
t.d. skips og lands, í gegnum gervi-
hnött. Þessi mæligildi eru síðan
greind og gripið til ráðstafana í ljósi
þess hve mikilvæg þau eru. Einnig
og ekki síst gefst kostur á að greina
tilhneigingu í mæligildunum sem
erfitt getur verið að sjá þróast á
löngum tíma. Settir hafa verið nem-
ar á vélbúnað sem staðsettur er í
vélasal Vélskóla Islands. Þessir
nemar skynja ýmsa eðlisfræðilega
þætti sem hafa gildi varðandi við-
hald. Sérstakur búnaður er tengdur
við nemana og kemur hann mælig-
ildunum yfir á stafrænt form og
sendir þau áleiðis til PC-tölvu sem
staðsett er í rafmagnsdeildinni.
Sendingar milli staða eru sam-
kvæmt algengum tölvusamskipta-
staðli.
í tölvunni er hugbúnaður ætlaður
til gagnasöfnunar en ítalir bjuggu
þennan þátt kerfisins til. Forritið,
sem byggt er á LabView-hugbúnað-
inum, geymir mæligögnin og gerir
notandanum kleift að fylgjast með
þróun mála eins og gerist með sírit-
un. Einnig eru nokki'ir þættir skil-
greindir í forritinu eins og mælisvið,
gerð nema, kvörðun o.s.frv. Forritið
tekur reglulega afrit af mæligögn-
um, notandinn velur hversu oft og
þau eru sett á ákveðið snið til að
minnka umfang þeirra. Síðan eru
þau gerð hæf til sendingar en skeyt-
ið er á hefðbundnu tölvupóstformi.
Sníðingarhlutinn í forritinu var
útfærður hérlendis. Sniðin mælig-
ögnin berast frá tölvunni til sér-
staks gervihnattasamskiptavélbún-
aðar í gegnum hugbúnað sem
skrifaður var á Islandi af VISTA og
var hluti af þætti íslendinga í verk-
efninu.
Hugbúnaðurinn stjórnar gagn-
astreymi því sem sent er áfram í
gegnum gervihnöttinn. Samskipta-
vélbúnaðurinn er tengdur við
loftnet en búið er að koma á gervi-
hnattasambandi í gegn um þennan
búnað og eru tilraunir í gangi þar
sem verið er að prófa þennan þátt.
Um er að ræða hnetti sem fara til-
tölulega lágt yfir en þeir hafa þá
kosti, vegna þess að sendingarfjar-
lægðin er tiltölulega stutt, að unnt
er að notast við lítið loftnet sem ekki
þarf að vera stefnuvirkt og er sam-
skiptabúnaðurinn þess vegna til-
tölulega ódýr. Gei-vihnötturinn skil-
ar tölvuskeytinu til jarðstöðvar sem
sendir póstinn þangað sem óskað er
eftir. Þessu næst þarf að taka reglu-
lega á móti póstinum og byggja upp
mæligildaskrá sem safnar mæligild-
unum saman til geymslu yfir lengri
tíma. Forrit sem tekur á móti póst-
inum var ritað á íslandi en það les
póstinn, afsníður hann og kemur
honum á það form sem hentar.
Síðasti þátturinn er greining og
mat á upplýsingunum. Sérstakt for-
rit sem fengið er að láni hjá VISTA
safnar mæligildunum saman sem
síðan er notað til að lesa upplýsing-
arnar. Hér þarf aðili með þverfag-
lega þekkingu á vélbúnaði og rekstri
hans að meta gögnin og taka
ákvörðun um hvernig og hvort
bregðast skuli við á einhvern hátt.
Búnaðurinn er enn
ekki markaðshæfur
Björn segir að unnin hafi verið
kennsluefni um viðhaldskerfið sem
verður kennt í ákveðnum áföngum í
Vélskóla íslands, en það verði einn-
ig nýtt í starfsemi Eftirmenntunar
vélstjóra. „Búnaðurinn er tilrauna-
búnaður sem er ætlaður til kennslu
en ekki til beinnar notkunar þar
sem þróa þarf marga þætti enn
frekar til að gera hann markaðshæf-
an. Meðfram tæknihluta verkefnis-
ins er unnið að því að taka saman
námsefni um aðferðir við skipulegt
viðhald sem ætlað er til kennslu og
þjálfunar í aðferðafræðinni. Efnið
verður og er nýtt í starfsemi Eftir;
menntunar vélstjóra á vegum VSFÍ
og mun einnig nýtast til kennslu í
Vélskóla íslands eftir því sem við á.“
Mjög gagnlegt fyrir
Vélskóla íslands
Björgvin Þór Jóhannsson, skóla-
meistari Vélskóla íslands, segir
þátttökuna í verkefninu hafa verið
mjög gagnlega fyi'ir skólann. „Verk-
efni af þessu tagi virka eins og víta-
mínsprauta fyrir skólann, enda fær
skólinn bæði hátæknibúnað og
mikla þekkingu í gegnum verkefnið.
Við munum nýta tækin í kennslunni
en það hefur oft verið erfitt að fá
fjármagn til kennslutækjakaupa og
því er þetta mjög kærkomið. Vinna
að verkefninu hefur auk þess vakið
mikinn áhuga nemendanna. Einnig
hafa kennarar Vélskólans komið að
verkefninu og við fáum kennslugögn
í tengslum við það. Verkefni af
þessu tagi efla tengsl skólans við at-
vinnulífið og það er ætíð mjög já-
kvætt.“
Björgin segir Vélskólann hafa átt
ánægjuleg samskipti við erlenda
þátttakendur verkefnisins og það sé
skólanum mikils virði.
Hægt er að sjá ýmislegt varðandi
TEMAfish-verkefnið í verkefnis-
handbók tengda heimasíðu félagsins
á slóðinni http://vsfi.is/temafish