Morgunblaðið - 05.05.2000, Side 27

Morgunblaðið - 05.05.2000, Side 27
'MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 27 AP Andrew og Fergie á brúðkaupsdaginn 1986. í nýjasta hefti Tatler úti- Ioka þau ekki að þau kunni að ganga í hnapphelduna á ný. Andrés og Fergie upp að altarinu á ný? London. AFP. ANDRÉS Bretaprins og Sarah Ferguson, fyrrverandi eiginkona hans, gáfu í skyn í viðtali við tfma- ritið Tatler á dögunum að svo kynni að fara að þau giftu sig aftur. „Ég útiloka ekki að við giftum okkur aftur,“ sagði Andrés í viðtal- inu og Sarah, eða Fergie eins og hún er betur þekkt, sagðist fagna því ef svo færi. Andrés og Fergie giftu sig 1986 og skildu, líkt og flest börn Elísa- betar Bretadrottningar, tæpum tíu árum síðar. Sögusagnir um að þau kynnu að gifta sig á ný hafa verið á sveimi sl. þrjú ár, eða frá því Ferg- ie og dætur þeirra fluttu á ný til Andrésar og hafa þau búið undir sama þaki síðan. „Við gerum þetta ekki bara barnanna vegna. Þetta er líka okkur til góða,“ sagði Andrés. Talsmenn Buckingham-hallar neita að Ijá sig um málið, en haft var eftir einum þeirra að þó það væri ljóst að prinsinn útilokaði ekki giftingu þá hefði hann heldur ekki mælt með henni. Eitt rtúmér fyrir alla (§ Ábendingar Þjónuvtuupplýsingar (§j|) Týndir farsímar ÍBi Sérjtjónusta o Allan sólarhringinn í 8oo 7000. færðu allar upplýsingar um þá þjónustu sem Siminn veitir. Þjónustuverið er opið allari sólarhringinn www.simmn.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.