Morgunblaðið - 05.05.2000, Side 32

Morgunblaðið - 05.05.2000, Side 32
32- FÖSTUDAGUR 5.-MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ________LISTIR_____ Roberts gegn rafmagnsveitunni KVIKMYNÐIR L a u g a r á s b i ó, Stjörniibfo ERIN BROCKOVICH ★ ★★ Leikstjóri Steven Soderbergh. Handritshöfundur Susannah Grant. Tónskáld Thomas Newman. Kvikmyndatökustjóri Ed Lachman. Aðalleikendur Julia Roberts, Al- bert Finney, David Brisbin, Marge Helgenberger, Aaron Eckar, Peter Coyote. 131 mín. Framleiðandi Columbia/Universal. Argerð 2000. ÓTRÚLEGT en satt. Þessi reyf- arakennda, en fagmannlega gerða kvikmynd er byggð á sönnum at- burðum (m.a. kemur hin rétta Erin Brockowich fram í örhlutverki gengilbeinu, snemma í myndinni). Brockovich (Julia Roberts), ein- stæð, þriggja barna móðir, fyrrum fegurðardrottning sem á ekki bót fyrir boruna á sér, lendir í árekstri, þar sem bílgarmurinn hennar kveður stræti og torg. Fær lög- fræðinginn Ed Masry (Albert Finney) sér til halds og trausts, en tapar málinu. Erin er með munninn fyrir neðan nef með beini, áður en Masry veit af er hann búinn að ráða skjólstæðing sinn í vinnu, hún segist eiga það inni hjá honum Erin er betri en engin. Kemst á snoðir um að í eyðimerkurbæ í ná- grenni verksmiðju, er þorri íbúanna helsjúkur af völdum meng- unar. Þau Masry höfða að lokum mál á hendur skaðvaldinum, orku- veiturisanum Pacific Gas & El- ectric, fyrir hönd íbúanna. Stund- um nær réttlætið að sigra. Einhversstaðar kom fram að kvikmyndin um Erin Brockovich fylgdi sannleikanum í öllum aðalat- riðum, svo maður fær nánast aftur trú á jólasveininum og Öskubusku sem aðalpersónurnar minna meira en lítið á. Sagan sem slík hentar því draumaverksmiðjunni í Hollywood mæta vel og hún smjattar á þessum einstæða sigri harðsvíraðrar, skynsamrar og kjaftforrar konu sem ekki kallar allt ömmu sína heldur knésetur eina stærstu orku- veitu Bandaríkjanna með góðra manna hjálp. Fyrst og fremst Mas- rys og ekki síður mótorhjólaknap- ans Georges (Aaron Eckart), sem gerist barnapía og hjásvæfa í fá- tæklegu heimilishaldi Erins. Kona á móti öllu og öllum og vinnur sigur, er jafn óvenjuleg í raunveruleikanum og glansveröld Hollywood, sem hljóp beint til vin- sælustu leikkonu sinnar, Roberts. Hún hefur staðið sig laglega sem gamanleikkona og var reyndar ótrúlega brött sem hundelt eigin- kona sem beitt hefur verið ofbeldi í Sleeping With the Enemy, fyrir mörgum árum. Hún er hreint ekki árennileg sem Erin, gefur henni ágætan og nauðsynlegan kraft og kemst vel frá sínu. Finney er engu síður burðarás þessa spennu- drama. Hann bregst ekki frekar en fyrri daginn og gefur myndinni nauðsynlega virðingu og mannlega hlýju. Því fer fjarri að Soderbergh sé nálægt sínu besta, hann afgreiðir viðfangsefnið að hætti iðnaðarins, hratt og yfirborðskennt. Efnið er vissulega sorglegt en höfundarnir og leikararnir komast furðuvel frá því að gera þessu viðkvæma efni bærileg skil og ágæta en ógnar- langa afþreyingu í leiðinni, sem skilur við mann furðu sáttan. Sæbjörn Valdimarsson Geislaplata með leik Guð- nýjar Guð- mundsdóttur VÆNTANLEG er á markað geislaplata með leik Guðnýjar Guðmundsdóttur konsertmeistara. Guðný leikur ein- leiksverk fyrir Fiðlu eftir Þór- arin Jónsson, Guðný Johann Sebastian Guðmundsdóttir Bach, Hallgrím Hejgason og Hafiiða Hallgrímsson. í fylgibæklingi fjallar Guðný sjálf um verkin og segir meðal annars: „Eg sagði í upphafi að einskær löngun til að leika viss verk réði miklu um verkefnaval mitt. Fleira kemur þó til og má þar nefna mikil- vægi heimilda og hvað skiptir okkur Islendinga máli í sögulegum skiln- ingi, þegar við veljum íslensk verk til útgáfu. Oll íslensk verk eru hluti af arfleifð okkar. Verk Þórarins Jónssonar sýnir okkur til dæmis f hnotskurn þá óvenjulegu þróun sem íslensk tónlist gengur í gegnum á fyrri hluta aldarinnar. Við stökkv- um beint úr einföldum sönglögum yfir í flókin einleiksverk án þess að nokkuð brúi bilið þama á milli. Það er merkilegt að á þriðja áratugnum skuli hafa verið íslendingur á meg- inlandi Evrópu að senya þetta verk. Hálfri öld síðar lítur sónata Hall- gríms dagsins ljós og byggir á gam- alli hefð þegar nánast öll tónskáld keppast við að leita að nýjungum. Ég spái því þó að þetta verk Hall- gríms muni standast tímans tönn betur en mörg önnur. Enn líða tut- tugu ár og Hafliði kemur með sitt verk, frumlegt, leitandi og skemmti- legt. Öll íslensku tónskáldin, svo ólík sem þau eru, hafa þó orðið fyrir áhrifum frá meistara Johann Seb- astian Bach eins og við öll, sem höf- um kynnst honum.“ Plötuna tileinkar Guðný Birni ÓI- afssyni konsertmeistara. Upptaka fór fram í Seltjamar- neskirkju í september á siðasta ári, tónmeistari var Bjarni Rúnar Bjamason. Guðný leikur á „del Gesu“-fiðlu í eigu Ríkisútvarpsins en fiðlan var smíðuð af Guiseppe Guamerius árið 1728. Nánar er sagt frá fiðlunni í fylgibæklingi. Sjóvá-Almennar og Islandsbanki veittu styrk til útgáfunnar. Útgefandi er Polarfonia Classics ehf. í samvinnu við Ríkisútvarpið. ODYRI TONLISTAR OG MYNDBANDA MARKAÐURINN Allar tegundir tónlistar, myndbönd og tölvuleikir ó hreint ótrulegu verði! 15* APRIL~7 • MAI Opið alla DAGA VIKUNNAR Þusundir klassískra titla a frabæru verði! 4 myndbönd \ pakka, aðeins kr. 1.999,- ------ Tökum daglega UPP MIKIÐ URVAL GEISLADISKA HUNDRUÐIR NYRRA MYNDBANDATITLA / FRA KL. 10-19 VlÐSKipTATAEKIFÍERI JjMÆj Kynning a ---s SkyBiz 2000 Aukid URVAL TÖLVULEIKJ A Hofum nu baett VIO MIKLU URVALI DVD MYNDDISKA J Kynning a Pallada PALLADA Caruso The Greatest Tenor 899,- Great Divas 799,- Ymsir Ástarperlur 2 999,- Elvis Presley Classic Elvis 499,- Ymsir Sensational óo’s *999,- Björk Gling -Gló 1499,- Ymsir Landslagið '92 99," Ymsir Songs of Ireland 299,- Ymsir Klassískar perlur »499,- Tony Braxton The Heat »499,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.