Morgunblaðið - 05.05.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 39
BÆKUR
F r æ ð i b ó k
SJÚKDÓMAR OG DÁNAR-
MEIN ÍSLENZKRA
FORNMANNA
eftir Sigurð Samúelsson lækni.
Háskólaútgáfan 1998
KOMIÐ er nokkuð á annað ár síð-
an Sigurður Samúelsson læknir
sendi frá sér bók um sjúkdóma og
dánarmein íslenzkra fornmanna.
Sigurður er fyrrverandi yfirlæknir
við Landspítalann og var í mörg ár
prófessor við Læknadeild Háskóla
Islands. Hann mun fyrst hafa kynnzt
fornbókmenntum í Menntaskólanum
á Akureyri og áhugi hans kviknaði í
tímum hjá Sigurði Guðmundssyni
skólameistara. Hins vegar segist
hann hafa fyrir tveimur til þremur
áratugum farið að lesa íslenzkar
fornsögur með tilliti til dauðsfalla og
sjúkdóma, einkum til að kanna hvort
af þeim lýsingum mætti ráða kyn
sjúkdóma og orsök dauða. Einkum
þóttu honum Byskupasögur (Bisk-
upasögur) áhugaverðar vegna þess
að þar var víða að finna lýsingu á
sjúkdómseinkennum og sagt frá
helgidómum og helgiathöfnum sem
um hönd voru hafðar til lækninga.
Sigurður flutti tvo fyrirlestra um
þetta efni í hátíðasal Háskóla Islands
á sjöunda áratugnum og birti hluta
af þeim í Lesbók Morgunblaðsins ár-
ið 1985 en þegar hann var hættur
störfum gat hann gefið sér meiri
tíma í verkið.
Af lestri bókar Sigurðar má ráða
hversu hugfanginn hann er af við-
fangsefni sínu og hve ítarlega hann
hefur unnið sitt verk. Hann skiptir
sjúkdómslýsingum og greiningum í
kafla eftir eðli þeirra. Þannig er
fyrsti kafli um farsóttir og aðra
smitnæma sjúkdóma, síðan koma
sjúkdómar í blóðrásarfærum (sem er
ítarlegur kafli og Sigurði greinilega
hjartfólginn), lungnasjúkdómar, of-
næmissjúkdómar, gigtsjúkdómar,
geðsjúkdómar, flogaveiki, tauga-
sjúkdómar, augnsjúkdómar, slys og
áverkar (sem oft komu fyrir á bar-
dagaglöðum tímum), ígerðir, kviðar-
holssjúkdómar, innkirtlasjúkdómar,
kynferðismál og kynferðisafbrigði,
fæðingar og skyld efni, illkynja sjúk-
dómar, brunasár, kalsár og drukkn-
un og síðan nokkrir yfirlitskaflar.
Sigurður segir í aðfararorðum að
sumt af því sem í fornsögunum sé að
finna megi telja elstu heimildir um
sjúkdóma eða aðgerðir, svo sem lýs-
ingu á ýmsum taugasjúkdómum, en
einnig á keisaraskurði írá því á
fimmtu öld f. Kr. Einnig megi telja
sumar lýsingar á sjúkdómum og dán-
arorsökum þeirra þær fyrstu sem
skrásettar eru í heimsbókmenntun-
um, einkum kransæðasjúkdóm sem
veldur hjartabiíun og dauða, krans-
æðastíflu, háþrýstingskrísu, heila-
blóðfall (slag) og hjartalokugalla.
Ég hef sjálf ekki sótt í að lesa fom-
sögur, enda sólgin í nútímaskáldsög-
ur, en eiginmaður minn hefur sinnt
Fornmann-
anna mein
íslendingasögunum af
alúð. Mér fannst bók
Sigurðar gefa mér
nýja sýn á fomsögurn-
ar og verulega
skemmtilegt að velta
atburðarás og örlög-
um söguhetjanna fyrir
sér út frá læknisfræði-
legum sjónarhóli.
Frægum atburðum í
sögunni gerir hann
góð skil, svo sem því
þegar Egill Skalla-
Grímsson læknaðist af
þunglyndi eftir að son-
ur hans Böðvar
drukknaði. Þetta er
dæmi um hugsýki um
miðja tíundu öld og ráð þau sem Þor-
gerður dóttir Egils greip til era l£k-
ast til fyrsta sálræna lækning í ís-
lenzkum fornritum. Á bls. 93 segir
frá flogaveiki með geðrænum breyt-
ingum. Þar er lýst Þrum-Katli í
Fljótsdælasögu, en „hann var manna
hægastr hversdagliga, en hann var
þögull og fálátr snemma og var kall-
aður Þram-Ketill [að þrama mun
þýða að sitja kyrr þegjandi]. Gallar
váru stórir á hans skapsmunum.
Sumir kölluðu það meinsemd. Þat
kom at honum í hverjum hálfum
mánuði, að skjálfti hljóp á hans hör-
und, svá at hver tönn í hans höfði
gnötraði, ok hrærði hann upp ór
rúminu, ok varð þá at gera fyrir hon-
um elda stóra og leita honum allra
hægenda, þeira er menn máttu veita.
Þessum hroll ok kulda fylgdi bræði
mikil, ok eirði hann þá engu, því er
fyrir varð, hvárt sem var þil eða stafr
eða menn. Svá þó at eldar væra, þá
óð hann ok urðu menn þá alla vega at
vægjatil við hann, sem máttu. En þá
er af honum leið var hann hægr og
stjórnsamr. Þetta kom ok til mikils
honum ok mörgum öðram þá er leið
á ævi hans.“ Á bls 100 segir frá
Hrafni Oddssyni, höfðingja þeim
mikla er uppi var á 13. öld, hvernig
hann kemur sjúkur heim til Noregs
úr herför og liggur að mestu rúmf-
astur eftir það til dauðadags. Sjúk-
dómnum er svo lýst: „Dag einn sátu
þeir nær húsinu, ok er minnst varði,
kom maðr kallandi: „Herra Hrafn,“
segir hann, „kom til konungs og bitt
sár manna.“ Hann stóð upp skjótliga.
Þeir sem 1 húsinu vára, heyrðu
herramann nefndan, ok sá þann
mann er upp stóð, í auðkenndum
búnaði. Skutu þeir að honum sem í
drífu sæi. Kom ein ör í handlegginn í
músina [upphandleggsvöðvi,
m.biceps], önnur í bakit, þriðja í fing-
urinn minnsta. Grera þau tvau sár
skjótt, sem hann fékk fyrri, en blástr
hljóp í fingrinn ok batnaði ekki þat
sumar“. Síðar segir:
„Nær veturnáttum réð
Eiríkur konungur at
fara pflagrímsferð til ins
heilaga Olafs konungs í
Niðarósi Hann beiddist
þá ok til, at herra Hrafn
færi þá ok norðr með
þeim. Herra Hrafn
kærði krankleik sinn, ok
mest um þat litla sár, er
hann hafði á fingrinum
minnsta, því að þá tók
bæði at visna höndin og
handleggrinn upp frá
Gerðist þat þó af, at
Hrafn fór hvergi.“ í
þessari frásögn er lýst
lömun og vöðvarýrnun á
handlegg og hendi sem virðist verða í
framhaldi af áverka, því að handleg-
gur, bak og fingur urðu fyrir örva-
drífu. Sigurður telur þó að lömunin
stafi líkast til af taugahrörnunar-
sjúkdómi - amyotrofiskri lateral
sclerosis, sem er sjaldgæfur sjúk-
dómur sem leggst auk þess yfirleitt á
allan líkamann en ekki einn útlim, en
vöðvarýrnun eftir áverka á vöðva og
taugar finnst mér mun líklegri skýr-
ing. Kannski sé ég einkennin út frá
sjónarhóli heimilislæknisins, en eins
og vitur maður sagði einu sinni: Ef
heimilislæknir og sérfræðingur
heyra hófadyn þá telur heimilislækn-
irinn líklegt að þar fari hestur en
sérfræðingurinn fremur að zebra-
hestur sé á ferðinni.................
Lýst er læknisdómum fyrri tíma,
svo sem mögnuðum áhrifum Guð-
mundar góða Arasonar og Þorláks
biskups. Vel gafst t.d. að rjóða mein
heilögu smjöri Þorláks biskups og
einnig era mörg dæmi um áheit á þá
helgu menn. Á bls.105 segir hins veg-
ar frá veikindum Guðmundar Ara-
sonar, en í sögu hans segir: „Þeir
fóra um dag á fund hans at ganga til
skriftar ok kalla hann út til kirkju en
höfuð hans var vátt ok nýþvegit, en
frost mikit, ok lýstr kulda í höfuð
honum, ok þaðan af fló á hann mein
þat, er hafði móðir hans ok oft kom at
henni, áðr en hann söng yfir henni.“
Annars staðar segir: „Tveir kumpán-
ar hans, er sátu samhéraðs, kómu til
járningar ok kölluðu hann með votu
höfði eftir nýtekna hárlaug í grimmu
frosti, sem er í því landi svá norðar-
liga um hávetrarskeið. Ok eftir litla
útivist hrapaði á hann svo strangur
höfuðverkur með voða, at hann varð
ómáli, ok lá svo um eina eykt. Var þá
batinn fljótr, at hann söng messu
samdægris." Sigurður leggur út frá
þessu og telur að þai-na hafi verið um
mígreni-kast að ræða sem tekið hafi
að réna eftir um það bfl 3 klukku-
stundir, móðir hans hafi haft sama
Sigurður
Samúelsson
sjúkdóm og það sýni bezt hörku og
dugnað Guðmundar að hann skyldi
geta messað um kvöldið. Að mati
Sigurðar er þetta að líkindum fyrsta
lýsing á mígreni í heimsbókmennt-
unum.
Á dögum Guðmundar góða gerist
eftirfarandi atvik: „Menn fara í björg
til fyglingar. Einn manna mætir svo
bráðum lífsháska, at hann stökkr í
berginu. Kemur höfuðit á grjót, sem
von var, ok lemr hausinn, en líf hans
hélst með þeini Guðs skipan, at
himnan var heil fyrir innan. Hann er
fluttur heim á byggð einnar húsfrúr,
er guðhræðslu hafði með góðri kunn-
áttu til at hjálpa þurfendum. Hún
sker umbergis hausbrotit ok tekr
skeljamar, er muldar vóra í smátt;
fægir síðan sárit ok hreinsar, sem
hún þorði framast, allt niðr í himn-
una. Er þat verk þann tíma hægjast
eftir samlíkri heims ok manns nátt-
úra, sem flóð er sjóvar, því at þá
gengr heilinn með himnunni allt upp
undir heilabustina [hvirfil] en at
fjöra er langt í milli. Var nú opit svo
mikit í höfðinu, sem þriggja fingra
hvern veg. En hvat er hér at tala um
áburð eða smyrsl til læknidóma,
nema húsfrúin tekr ok fyllir sárit
með vatnmosa ór branni herra Guð-
mundar, bindur síðan um ok leysir
ekki til fyrr en liðnar era þrjár næt-
ur, ok er hér at greina svo dýrligan
hlut, at aldri kom óðaverkr í, en mos-
inn var gróinn niðr í hausinn, svo
sem múteraðr í beins náttúra, ok er
frá leið, tók jafnvel hörundslit, en var
á þeim stað nokkurri linara átak en á
öðram stað. Var hann innan fárra
daga alheill maður.“ Sigurður Sam-
úelsson ræðir um þessa merku að-
hlynningu og veltir fyrir sér um
hvemig mosa hafi verið að ræða.
Hann rifjar upp að prófessor Guð-
mundur Hannesson hafi sagt sér og
öðram læknastúdentum frá því 1932
eða 1933 að hann hafi notað mosa of-
an úr Vaðlaheiði sem umbúðir á hné
manns nokkurs sem gerð var á að-
gerð vegna berklaskemmdar.
Skeggleysi Njáls er gert að um-
talsefni og hvernig Hallgerður hafi
ráðlagt honum að bera skarn á
kjálka sér til skeggvaxtar, en „hinni
slægvitru konu verður virt til vork-
unnar þótt henni hafi ekki verið ljós
áhrif karlhormóns á skeggvöxt síðast
á tíundu öld.“ Þarna held ég að Sig-
urður vanmeti Hallgerði.
Helzt finnst mér ónóg áherzla á
skortsjúkdóma (til dæmis bein-
kröm), sem hljóta að hafa verið al-
gengir hér á landi. Auðvitað minnist
höfundur á beinkröm, skyrbjúg og
fleira en talsvert af sjúkdómslýsing-
um sem skýrðar era í kaflanum um
gigtsjúkdóma gætu allt eins stafað af
beinkröm.
Bók Sigurðar Samúelssonar um
mannanna mein í fomsögum er
framleg og skemmtileg, jafnvel fyrir
þau okkar sem ekki sækja í fornsög-
urnar. Tilvalið væri að þýða hana á
erlend tungumál til að gefa fleirum
innsýn í þessa hlið bókmenntaarfs
íslendinga.
Katrln Fjeldsted
Að norðan
BÆKUR
L j« ð
MYNDIR DÆGRANNA
eftir Þórarin Guðmundsson,
Akureyri, 2000, 84 bls.
SAGAN endurtekur sig ekki,
hvorki í bókmenntum né öðru, og
hugmyndin um að hún geri það
gengur ekki vel upp frá raunhyggju-
legu sjónarmiði. Hins vegar kemur
fyrir að eitt fyrirbæri minnir á ann-
að úr sögunni og eins verða straum-
ar og stefnur ekki hólfuð svo auð-
veldlega niður í söguleg tímabil
heldur dofna, rísa í breyttu formi og
bergmála svo áratugum og öldum
skiptir. Þannig var rómantíska
stefnan í íslenskri ljóðagerð langlíf-
ari en víðast hvar í Evrópu og alls
óvíst annað en að hún lifi enn, jafn-
vel í sinni hreinustu mynd. Ýmislegt
kemur til: rómantíska stefnan fann
upp þjóðernisstefnuna og hugmynd-
ina um tengsl þjóðar og tungu. ís-
lendingum varð ekki úr sjálfstæðis-
baráttunni fyrr en um síðir.
Þórarinn Guðmundsson er róm-
antískt skáld um margt, þótt ljóðin
séu ekki ort undir hefðbundnum
háttum. Þórarinn er ekki nýgræð-
ingur í ljóðagerð; Myndir dægranna
er sjöunda Ijóðabók hans. Orðfæri
ljóða hans er hátíðlegt og innilegt,
leitað er eftir ljóðrænni nálægð og
upphafningu. Islensk náttúra er
helsta yrkisefnið og kannski er það
ímyndun ein en stundum virðist mér
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
vera ekki langt undan í andblæ og
náttúramyndum, Davíð á sínum síð-
ur kaldhæðnari tímabilum. í það
minnsta eru náttúramyndirnar að
norðan sumar hverjar, svo sem í
Ijóðinu „Ut með Eyjafirði":
Grænbláfegurð
febrúarbirtunnar
um ströndina
seytlaríhugmér
með söknuðinum
kunningjamir
of margir hættir
að deila með mér
sjónglitinu.
Þóhafavitrirmenn
sagt
aðdauðinnséaðeins
dyr
til enn meiri undra
þávoruþeirallir
lifandi.
Síðan þeirfóru
hafa þeir verið furðu hljóðir.
Vel að merkja er ljóðið heldur
ekki laust við kaldhæðni, vitru
mennirnir sögðu fátt um dauðann
eftir andlát sitt (!). En oftar er ort
um mannlega hlýju andspænis til-
finningakulda: „Ýmsar eru hug-
myndir/um ísaldirnar/um
sókn jökla og hop//listræn-
ar era myndirnar/mótaðar
í bergið/mörg Grettistök-
in.//En hver hefur á hrað-
bergi/kenningar um ísöld
hugans//þegar barnið er
borið/út úr hjartanu/og
heljökull ristir/miljón
hörkurákir/á samveraflöt
okkar [...]“ („ísaldir“, 12).
Leitað er eftir ákveðinni
mannlegri kviku, ort um
nærveru og samveru, ort
til æskunnar: „Sagna-
kvöld/bera sjóði sína/til
barna Akureyrar.“ (Akur-
eyri, 44). En náttúran er
stærsta yrkisefnið og hún
er gjarnan ávörpuð með róman-
tískri lotningu.
Getur það annars verið að íslensk
menning sé sundurleitari eftir
landsvæðum en menn vilja gjarnan
vera láta? Að fyrir norðan hafi róm-
antíkin skotið dýpri rótum en fyrir
sunnan?
Hermann Stefánsson
Þórarinn
Guðmundsson
Ræningj-
ar oss
vilja
ráðast á
KVIKMYNDIR
K r i n g 1 u b í 6
REINDEER GAMESA+'A
Leikstjóri: John Frankenheimer.
Handrit: Ehren Kruger.
Aðalhlutverk: Ben Affleck,
Charlize Theron, Gary Sinise,
Dennis Farina. 1999.
ALLIR eru að reyna að vera
frumlegir og handritshöfundurinn
Ehren Kruger líka. Hann gerh-
handrit spennumyndarinnar
„Reindeer Games“ sem snýst um
rán í spilavíti en sögufléttan er
áhugaverðari en í mörgum öðram
myndum svipaðrar gerðar og tekst
að draga hana aðeins upp fyrir með-
almennskuna. Að auki hefur hún sér
til ágætis skemmtilegan leikarahóp
þar sem Gary Sinise er mest áber-
andi í hlutverki óþokkans og leik-
stjórinn, John Frankenheimer, gam-
all refur í faginu, vinnur ágætlega úr
handritinu.
Ben Affleck leikur fanga sem
losnar úr fangelsi og kemst strax í
kynni við pennavin klefafélaga síns,
glæsilega unga konu og eintaklega
tilkippilega lfldega vegna þess að
hún heldur að hann sé sá sem fékk
bréfin hennar, sem hann er ekki.
Hún á bróður sem er lífsleiður vöra-
bflstjóri og gersamlega snarvitlaust
kvikindi er ætlar að ræna spilavíti í
gi-enndinni. I ljós kemur að klefafé-
laginn vann þar áður og þau ætla að
notfæra sér þekkingu hans á innvið-
um spilavítisins og þau einfaldlega
trúa Affleck ekki þegar hann segist
ekki vera sá sem þau halda að hann
sé.
Það era reyndar fáir í þessari
mynd sem era þeir sem þeir segjast
vera. Sagan er af þeim sökum sífellt
að taka á sig nýjar myndir fram til
endalokanna og það er kannski einn
af helstu kostum hennar. Ben Affl-
eck er ágætur sem hinn granlausi
fyrrverandi fangi (sérstaklega þegar
búið er að klæða hann í kúrekabún-
ing), maður trúir sjaldnast á Char-
lize Theron sem „femme fatale,,
myndarinnar en Gary Sinise gengur
lengst allra og sleppir gersamlega af
sér beislinu í klisjuhlutverki óþokk-
ans. Honum tekst að vera í senn
bæði ógnandi og fyndinn. Dennis
Farina er hins vegar senuþjófurinn
sem framkvæmdastjóri spilavítisins.
Frankenheimer sníður þessari
kuldalegu mynd, hún gerist öll um
hávetur, dimman og drangalegan
ramma sem passar vel við þann al-
gjöra skort á siðferðiskennd sem
plagar persónurnar og býr til ágætis
hasaratriði þegar þau eiga við. Þetta
er B-mynd og lýtur öllum lögmálum
slíkra mynda; hún ætlar sér ekki
annað en að vera stundarafþreying
og tekst það.
Arnaldur Indriðason
Tölvutón-
leikar
TÓNVER Tónlistarskóla
Kópavogs heldur sína árlegu
vortónleika á morgun, laugar-
dag, kl. 17 í Salnum, Tónlistar-
húsi Kópavogs.
Á dagskránni era ný fram-
samin verk eftir nemendur tón-
versins sem ekki hafa heyrst
áður.
Sérstakir gestir verða nem-
endur úr tónfræðadeild Tón-
listarskólans í Reykjavík.