Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 55
MINNINGAR
*
REYNIR
SIG URÞÓRSSON
+ Reynir Sigur-
þórsson fæddist í
Reykjavík 28. febr-
úar 1930. Hann lést á
heimili sínu að Funa-
lind 7 í Kópavogi 27.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Laufey Einarsdóttir,
f. 6.7. 1909, d. 10.1.
1976, og Sigurþór
Guðmundsson, f.
19.7. 1910, d. 31.3.
1946. Systkini Reynis
eru Hafsteinn, f. 21.3.
1932, og Sigríður, f.
25.5. 1938. Hálfsyst-
kini hans eru Kristján Kristjáns-
son, f. 22.7. 1927, d. 26.2. 1997, og
Gunnar Vilhelmsson, f. 26.11.
1948.
Reynir kvæntist 22.5.1954 Auði
Jensdóttur, f. 28.5.1931. Þau slitu
samvistum. Synir þeirra eru Jens
Reynisson, f. 9.3. 1957, og Þór
Reynisson, f. 3.9. 1960. Börn Jens
eru Dagný Rós, f. 19.4. 1982,
Stella Rut, f. 25.1. 1988, og Jens
Tryggvi, f. 28.7. 1989. Eiginkona
Þórs er Svala Pálsdóttir, f. 22.11.
1959. Börn þeirra eru Auður
Freydís, f. 20.12. 1985, og Alex
Freyr, f. 7.7.1990.
Hinn 31.12. 1982 kvæntist
Reynir eftirlifandi eiginkonu
sinni Kolbrúnu Ár-
mannsdóttur, f. 1.3.
1932. Börn hennar
eru Hallveig Hii-
marsdóttir, f. 30.5.
1952, Birna Hilmars-
dóttir Hasan, f. 18.2.
1955, og Tómas
Hilmarsson, f. 10.2.
1957.
Reynir lauk loft-
skeytaprófi 1948,
símritara- og yfir-
símritaraprófi.
Hann stundaði sjó-
mennsku frá 1948 til
1956, og starfaði hjá
Pósti og síma frá 1956, fyrst sem
loftskeytamaður við fjarskipta-
stöðina í Gufunesi, síðar sem sím-
ritari, yfirsímritari og varðstjóri.
Hann var loftskeytamaður við lór-
anstöðina á Gufuskálum 1961-
1966, umdæmisstjóri að Brú
1968-1969, og stöðvarstjóri í Nes-
kaupstað 1970-1976 er hann var
settur yfirmaður símamálaskrif-
stofu Pósts og síma í Reykjavík.
Hann starfaði sem umdæmisstjóri
í umdæmi IV á Egilsstöðum frá
1977, þar til hann lét af störfum
um áramótin 1998/1999.
Útför Reynis fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
í dag verður til moldar borinn
samstarfsmaður og góður vinm’ okk-
ar,Reynir Sigurþórsson. Kynni okk-
ar hófust fyrir um það bO 20 árum og
efldist vináttan eftir því sem árin
liðu. Margs er að minnast frá þessum
árum, bæði í samstarfi okkar og vin-
áttu. Reynir stjórnaði rekstri Pósts
og síma á Austurlandi með þeirri
röggsemi og dugnaði sem ávallt ein-
kenndi hann. Reynir stjórnaði nokkr-
um stjórnarfundum sem haldnir voru
á Austurlandi með skörungsskap,
sérstaklega er að minnast þess síð-
asta, sem haldinn var á Höfn í Horna-
firði. Eftir fundinn hafði Reynir
skipulagt vélsleðaferð upp á Vatna-
jökul þar sem snæddur var ljúffeng-
ur hádegisverður, ég held að öllum
þeim sem vonj í þessari ferð verði
hún ógleymanleg.
Við hjónin, Reynir og Kolbrún fór-
um saman í ferð til Brasilíu og var
hún mjög ánægjuleg enda vart hægt
að fá betri ferðafélaga, því eins og
þeir vita sem þekktu Reyni var aldrei
nein lognmolla í kringum hann. Síð-
asta skiptið sem við hjónin hittum
Reyni og Kolbrúnu erlendis var í vet-
ur og höfðum við þá ánægju að vera í
sjötugsafmæli Reynis sem haldið var
af mikilli rausn. Á afmælisdaginn fór-
um við hjónin í Lacoste-verslun til
þess að velja afmælisgjöfina, við vor-
um ekki sammála um litinn á skyrtu-
peysunni sem við ætluðum að gefa
honum, fyrir tilviljun birtist Reynir í
dyrunum og var hann að sjálfsögðu
fenginn til að velja litinn.
Daginn fyrir andlát Reynis vorum
við í vatnsleikfimi í Árbæjarlauginni
en hana stundaði hann ásamt konu
sinni flesta morgna. Seinna um dag-
inn hittumst við í sameiginlegri kaffi-
drykkju með fyrrverandi samstarfs-
mönnum. Eftir það lá leið Reynis upp
í Borgarnes til þess að spila brids við
eldri borgara með félögum sínum úr
Kópavogi. Reynir var þennan dag
eldhress eins og vanalega og ekkert
fararsnið á honum. Þessi dagur vai’
að ég held eins og flestir dagar skipu-
lagður frá morgni til kvölds.
Reynir var góður félagi sem við
RANNVEIG
MARGRÉT
GÍSLADÓTTIR
+ Rannveig Mar-
grét Gísladóttir
fæddist á Gauksstöð-
um í Garði 6. janúar
1914. Hún lést á elli-
heimilinu Grund 4.
aprfl síðastliðinn og
fór útfor hennar
fram í kyrrþey.
Elsku amma okkar.
Núna ert þú búin að yf-
irgefa þennan heim og
öragglega komin á
betri stað. Þú lifðir
löngu en frekar erfiðu
lífi á köflum en alltaf
varst þú samt svo kát og hress. Þó að
þú hafir verið orðin gömul og þreytt
þá er samt mjög skrýtið og erfitt fyr-
ir okkur að sætta okkur við að þú
skulir ekki vera hjá okkur lengur.
Það var fyrst þegar við komum til
Reykjavíkur til þess að vera við jarð-
arförina þína að við skildum að þú
ert ekki lengur hér. Það var alltaf
svo gott að heimsækja þig, elsku
amma, þegar við komum til Reykja-
víkur. Þú gerðir alltaf eitthvað
skemmtilegt með okkur og fórst með
okkur út um allt. Svo komst þú líka
oft til okkar, ég man einu sinni þegar
þú komst til Eyja, þá
kláraðir þú að prjóna
fyrir mig sokkinn sem
ég átti að gera í skólan-
um. Þegar ég mætti
með hann þá trúði
kennarinn því ekki að
ég hefði gert þetta, því
sokkurinn var svo vel
prjónaður. Að prjóna
og sauma era ekki al-
veg mínar þestu hliðar.
Við höfðum mjög gam-
an af þessu og hlógum
mikið. Það var líka
mjög gaman þegar við
fóram öll saman til
Hollands og hjóluðum meðal annars
til Belgíu. Eg gæti talað næstum því
endalaust um það sem við gerðum
saman. Þú varst mjög sterk og dug-
leg kona og alltaf svo góð og hress,
við eigum svo góðar minningar um
þig, elsku amma. Þú veittir öllum
barnabörnunum þínum alltaf mikla
athygli og fylgdist alltaf vel með okk-
ur. Elsku amma, okkur á alltaf eftir
að þykja mjög vænt um þig og við
munum aldrei gleyma þér. Við vitum
að þér líður vel núna og ert ánægð.
Kveðja,
Bergrún og Gísli Finnsbörn.
komum til með að sakna sárlega. Við
hjónin sendum Kolbrúnu og hans
nánustu ættingjum okkar innileg-
ustu samúðai’kveðjur.
Bjöm og Jóna.
Elsku afi. Þetta gerðist allt svo
snöggt. Þó að maður vissi að þetta
myndi koma einhvem tímann, var
þetta samt alltof snemmt.
Þegar ég fer að rifja upp allt sem
við höfum gert saman koma rúntam-
ir sem við fóram í á Egilsstöðum allt-
af fyrst upp í hugann. Það var svo
gaman að ránta um allan bæ, viðra
Lady og fara svo að kaupa ís. Það
sem er mér líka mjög ofarlega í huga
er þegar ég, þú, amma og Amanda, já
og auðvitað Lady fóram upp að
Laugarvatni. Við urðum veðurteppt
út af alltof miklum snjó, en það gerði
ekkert til, við gátum alltaf gert eitt-
hvað til að stytta okkur stundirnar.
Elsku afi, núna ertu farinn og get-
ur hlaupið um með Lady.
Elsku besta amma mín, ég votta
þér mína innilegustu samúð í þessari
miklu sorg. Ég veit að þú getur þetta
og við eram öll hér fyrir þig.
Þitt barnabam,
Sigrún Steinlaug.
Kæri afi, nú ert þú dáinn og ég
sakna þín svo mikið. Ég vildi að þú
værir enn hér hjá okkur en ég held að
þér h'ði betur þarna uppi, þar finnur
þú ekkert til í hjartanu. Elsku afi, ég
mun alltaf geyma þig í hjarta mínu
því þú varst alltaf svo góður við allt
og alla.
Kæra amma, ég votta þér mína
innilegustu samúð.
Þitt bamabam,
Kolbrún Tómasdóttir.
INGÞOR
LÝÐSSON
+ Ingþór Lýðsson fæddist á
Akranesi 23. mars 1963. Hann
lést á heimili sínu 15. aprfl sfðast-
liðinn og fór útför lians fram frá
Akraneskirkju 26. aprfl.
Okkur félagana langai’ að minnast
þín í nokkrum línum. Það sem kom
fyrst uppí hugann var hjálpsemi,
harka og stríðni. Það er víða áþreif-
anleg sönnun hjálpsemi þinnar.
Hörkuna þekkjum við í gegnum
vinnu og veikindi þín.
Þú ungur maður á leið á sjóinn
fékkst nýrnakast, þá átti ekki að
styðja þig uppá sjúkrahús heldur um
borð.Við hefðum gjarnan viljað sjá
þig fara betur með þig. En þú valdir
þína leið. Enda ekki mörg réttindi
sem maður hefur ef maður burðast
með erfiðan sjúkdóm frá barnsaldri.
Þú vildir enga hjálp með það, enga
sála takk. Lést það frekar bitna á
sjálfum þér eða þínum nánustu.
Þín útrás fyrir tilfinningarnar. En
að glottinu og stríðninni. Öll viður-
nefnin sem við félagarnir fengum á
okkur. Og í stríðni þinni máttir þú
aldrei sjá opið sár án þess að strá í
það. En það var oft hlegið enda alltaf
líf í kringum þig. Og nú þegar þið
hittist bróðir þinn og Grétar heldur
þú líklega áfram þar sem frá var
horfið að ergja köttinn. Og í guðs
bænum gerðu ekki pabba þinn vit-
lausan.
Takk fyrir allt.
Þínii’ vinir,
Guðjón T. og Guðni.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
frá Lambafelli,
A-Eyjafjöllum,
sem lést á hjúkrunardeild Lundar á Hellu fimmtu-
daginn 27. apríl sl., verður jarðsungin frá Ásólfs-
skálakirkju, V-Eyjafjöllum, laugardaginn 6. maí
kl. 14.00.
Kristín Hróbjartsdóttir,
Guðsteinn Hróbjartsson,
Þór Hróbjartsson, Ingveldur Sigurðardóttir,
Einar Hróbjartsson, Ólafía Oddsdóttir,
Unnur Hróbjartsdóttir, Helgi Haraldsson,
Ólafur Hróbjartsson, Kristín Geirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir, afi og iangafi,
ÁSGEIR ODDSSON,
Lönguhlíð 14,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
sunnudaginn 30. apríl.
Hann verður jarðsunginn frá Glerárkirkju mið-
vikudaginn 10. maí kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjarta-
vernd.
Helga Pálsdóttir,
Gunnhildur Ásgeirsdóttir,
Helga M. Helgadóttir,
Katla Ómarsdóttir,
Sara Helgadóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN HELGASON,
Brimhólabraut 38,
Vestmannaeyjum,
lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn
30. apríl sl.
Útför hans fer fram frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum laugardaginn 6. maí nk. kl, 14.00.
Sigríður Bjarnadóttir,
Guðrún Stefánsdóttir,
Guðrún Stefánsdóttir, Arnar Sigurmundsson,
Sigurbjörg Stefánsdóttir, Páll Ágústsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum við þeim, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
föður okkar,
ERNST P. SIGURÐSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Ljós-
heima, Selfossi.
Kristín M. Sigurðsson, Einar L. Gunnarsson,
Margrét Sigurðsson, Baldur Jónasson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Við þökkum af heilum hug öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og
útför móður minnar, systur og mágkonu,
KRISTÍNAR ÁSTHILDAR
LÚTHERSDÓTTUR,
Bæjartúni 6,
Kópavogi.
Snorri Kjartansson, Ingibjörg Árnadóttir,
Svava Lúthersdóttir,
Jón Lúthersson,
Petra Lúthersdóttir,
Óli Lúthersson, Svana Svanþórsdóttir,
Pétur Lúthersson, Brigitte Lúthersson.
m