Morgunblaðið - 05.05.2000, Page 60
60 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Hagnýting þekkingar stærsta
áskorun dagsins í dag
TIL AÐ ná forystu í
samkeppnisumhverfi
framtíðarinnar verða
fyrirtæki að nýta sér
tækifærin sem felast í
breytingum á undan
samkeppnisaðilanum.
Getan til að sjá tæki-
færin sem felast í
breytingum kallar á
þekkingarstj ómun
^■Knowledge Managem-
ent).
Fyrirtæki eru í stöð-
ugri þróun og forsend-
ur þess að stjóma fyrir-
tækjum hafa breyst
mikið í kjölfar hinnar
miklu byltingar sem
orðið hefur í samskiptatækni. Fyrir-
tæki leggja mikið uppúr að efla sam-
skiptatækni til að auka og bæta flæði
upplýsinga og þekkingar meðal
starfsmanna. Mikilvægi þess að
stjóma þekkingu eykst sífellt því
þekking hvers íyrirtækis markar
stöðu þess og stefnu. Mikilvægi sam-
runa hinna mismunandi þekkingar-
afla til nýsköpunar heíúr aldrei verið
4$ns mikilvæg og nú til að ná forystu á
samkeppnismarkaðinum. Það skiptir
máli að fólk vinni saman því tvíhliða
samskipti mynda nýja þekkingu og
skapar þar með nýja vöm og þjón-
ustu. Fjárfestar nútímans dæma fyr-
irtæki m.a. af þekkingarauði þeirra
og hvernig þau nýta sér þekkingu til
nýsköpunnar, því þau fyrirtæki sem
byggja starfsemi sína á þekkingu era
þau fyrirtæki sem hafa sýnt hvað
mestan hagvöxt að undanfömu.
Forsendur fyrirtækja hafa breyst
ísikið. Aður byggðu fyrirtæki fram-
lmðslu sína að stærstum hluta á að
umbreyta hráefnum yfir í fram-
leiðsluvöra, í dag byggja fyrirtæki
framleiðslu fyrst og fremst á þekk-
ingu.
Þekking er mikilvægasti þáttur
velgengni fyrirtækja í dag því þekk-
ing er grannur að samkeppnishæfni
framtíðarinnar og er
metin sem undirstaða
velgengni fyrirtækja,
en hvað er þekking íyr-
irtækja?
Þekkmgu fyrirtækja
er hægt að skipta í ytri
og innri þekkingu.
Innri þekking er sú
þekking sem starfsfólk
þess býr yfir, svo sem
leikni, hæfileikar,
menntun og aðrir pers-
ónulegir þættir. Ytri
þekking er sú þekking
sem fyrirtækið hefur á
Anna María mörkuðum, viðskipta-
Pétursdóttir vinum og vinnuferlum.
Þessa þekkingu verða
fyrirtæki að skrá því í þekkingu felast
verðmæti. Velgengni þekkingarfyrir-
tækja byggist á því að umbreyta
þekkingu í auðævi. Því þekking um-
breytir óáþreifanlegri auðlind, þ.e.
þekkingu fyrirtækisins, í áþreifan-
lega auðlind með ákveðnu þekkingar-
kerfi og mannauðsstjómun.
Miklu máli skiptir í dag að stjóma
þessari þekkingu sem býr í fyrirtækj-
um og skrásetja í gagnabanka sem
starfsfólk hefur aðgang að. Þetta ferli
að stjóma og skrásetja þekkingu er
þekkingarstjómun (Knowledge
Management).
Stjómun þekkingar
Þekkingarstjómun er meira en
starfsmannahandbækur. Þekkingar-
stjómun er samskiptastjórnun og
hefur mikil áhrif á hvemig fólk kem-
ur til með að vinna störf sín.
í þekkingarstjómun felst þekking-
aröflun, flutningur þekkingar og
notkun þeirrar þekkingar sem í fyrir-
tækdnu er. Að koma á þekkingar-
stjómun í fyrirtæki er ekki verk sem
unnið er á einni nóttu. Þekkingar-
stjómun er blanda af því að skipu-
leggja, þróa og nýta þá tækni sem
fyrir hendi er og afla menntunar.
Fyrsta skrefið til að koma á þekking-
Þekkingarstjórnun
Framtíð fyrirtækja mun
grundvallast meira á
þekkingu en verið hefur
hingað til, segir Anna
María Pétursdóttir, og
því verða fyrirtæki í
auknum mæli að huga
að þekkingarstjórnun
og þeirri hagræðingu
sem henni fylgir.
arstjómun er að finna út hvar og
hverskonar þekking liggur í fyrir-
tækinu, t.d. í gagnagrannum, vinnu-
ferlum, framleiðsluvöra og persónu-
legri þekkingu starfsfólks.
Fyrirtæki era að gera sér grein
fyrir að mannauður þeirra hefur áhrif
á samkeppnisstöðu og að velgengni
þeirra byggist að stóram hluta á
þeirri þekkingu sem starfsmenn búa
yfir. Því verða fyrirtæki að færa sér í
nyt þá þekkingu sem liggur hjá
starfsfólld tO að viðhalda samkeppn-
isfæmi sinni. Starfsfólk veit hinsveg-
ar að í þekkingu felast völd og fáir
era tilbúnir til að gefa þau völd eftir.
Ef þekkingarstjómun á að ganga upp
verða stjómendur að styðja við þekk-
ingarstjómun og skapa fyrirtækja-
brag sem styður við hana.
Hvernig er þekkingar-
stjómun komið á?
í fyrsta lagi verða fyrirtæki að
skapa þekkingaramhverfi með því að
hvetja starfsfólk sitt til að vinna sam-
eiginlega með öðram. Það skiptir
máli að stjómendur innleiði vOja hjá
starfsfólki til þess að deila upplýsing-
Þróunarsamvinnustofnun íslands, ÞSSÍ
lcelandic International Development Agency, ICEIDA
Ráðstefna á vegum Þróunarsamvinnustofnunar íslands
og Norrænu Afríkustofnunarinnar
Norræna húsinu 6.-7. maí 2000
DEVELOPMENT IN AFRICA:
Continuity and Change
Þróun í Afríku: Arfleifð og breytingar
Laugardagur 6. maí 2000
09.00-09.15
09.15-09.30
09.30-10.00
10.00-10.30
10.40-11.10
11.10-11.40
Hádegishlé
13.00-13.30
13.30- 14.00
14.00-14.30
14.30- 15.00
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra: Opening Speech
Dag Nissen, aðstoðarforstjóri utanríkisráðuneytis Noregs: Welcome
Lennart Wohlgemuth, framkvæmdastjóri Norrænu Afríkustofnunarinnar: Africa Today
Dr. Adebayo Olukoshi, Norrænu Afrfkustofnuninni: Democracy and Development in
Africa
Dr. L. A. Kamwanja, rektor Bunda landbúnaðarháskóla Malaví: The Role of Agricultural
Research and Training in Improving the Productivity of the Small African Farmer
Professor Göte Hansson, hagfræðideild Lundarháskóla: Issues on Economic
Development in Africa
Dr. Henning Melber, yfirmaður rannsóknasviðs Norrænu Afríkustofnunarinnar: From
Controlled Change to Changed Control: Southern Africa 2000
Annika Magnusson, deildarstjóri Sida: Mozambique
Guðrún Haraldsdóttir, mannfræðingur: "So the Bible said...The Politics of Fish,
Gender and Democratization in Malawi
Dr. Kristín Loftsdóttir: WoDaaBe Ethnic Identity in a Global World
t
Sunnudagur 7. maí 2000
09.00-12.00 Pallborðsumræður
um og þekkingu sem nýtist fyrirtæk-
inu. Einnig verður starfsfólk að finna
fyrir stuðningi stjómenda og að
þeirra innlegg sé virt og skipti máli
fyrir velgengni fyrirtækisins. í slíku
fyrirtæki lærir fólk að deila þekkingu
sinni með öðrum og jafnframt öðlast
aðgang að mikilvægum upplýsingum
sem það getur nýtt sér til áframhald-
andi þróunar. Til að viðhalda og safna
saman þekkingu þarf að koma á fót
vöruhúsi þekkingar sem er horn-
steinn þekkingar. Vörahús þekking-
ar krefst notkunar á tölvutækninni til
að koma skipulagi á þekkingu og
einnig til að þróa og flytja hana. En
uppsetning á t.d. Lotus Notes kerfi í
fyrirtækjum er ekki nægileg í þessu
sambandi því þekkingarstjórnun er
meira en að koma þekkingu í gagna-
granna.
Af ofangreindu er hægt að sjá að
þekkingarstjórnun krefst ákveðinnar
ferilgreiningar og skipulagningar
með þarfir og markmið fyrirtækisins
í huga.
Innleiðing
þekkingarstjórnunar
Hvað geta stjómendur fyrirtækja
gert til að innleiða hjá sér þekkingar-
stjórnun þannig að fyrirtæki þeirra
geti talist til þekkingarfyrirtækja?
Eftirfarandi era nokkur veigamikil
atriði sem fyrirtæki verða að huga að
ef þau ætla að koma á þekkingar-
stjómun:
• Fjárfesta í menntun og þjálfun
mannauðs.
• Byggja upp gagnagranna til að
geyma, deila og dreifa þekkingu.
• Byggja upp hvatningarkerfi til
að hvetja starfsfólk og stjómendur til
að færa þekkingu sína inn í gagna-
granna.
• Meta hvaða þekkingu starfsfólk
setur inn í gagnagranna fyrirtækis-
ins.
• Þróa aðferðafræði til að stjórna
°g byggja þekkingargranna á gagna-
grannum
fyrirtækisins.
• Samlaga þekkingarstjómun í
skipuriti fyrirtækisins.
I nýju efnahagsumhverfi er öflun
nýrrar þekkingar ævilangt verkefni
sem hefur áhrif á samkeppnisstöðu
fyrirtækja og stöðu starfsmanna á
vinnumarkaðinum.
Framtíð fyrirtækja mun grand-
vallast meira á þekkingu en verið hef-
ur hingað til, því verða fyrirtæki í
auknum mæli að huga að þekkingar-
stjómun og þeirri hagræðingu sem
henni fylgir.
Við getum ekki vænst þess að
þekkingarþjóðfélag muni verða síð-
asta þjóðfélagslega eða stjómunar-
lega byltingin. Við vitum ekki enn
hvað mun verða næst en við getum
vænst þess að það muni verða þörf á
þekkingarstjómun í framtíðinni, því
fyrirtæki nú og í framtíðinni munu í
auknum mæli byggja starfsemi sína á
þekkingaröflun.
Höfundur er starfsmannaráðgjafí
hjá PricewaterhouseCoopers.
Spor
í rétta átt
FRUMVARP ríkis-
stjómarinnar um fæð-
ingar- og foreldraoriof
hefur eðlilega vakið
mikla athygli og verið
uppspretta umræðu um
jafnréttismál. Björgvin
Guðmundsson, varafor-
maður Heimdallar,
skrifaði grein í Morgun-
blaðið 26. apríl síðastlið-
inn þar sem hann hafn-
ar því að binda 3 mánuði
við hvort foreldri um
sig, og vill heldur hafa
réttinn að fullu fram-
seljanlegan. Það virðist
sem svo að mikil tog-
streita sé innan Sjálf-
stæðisflokksins í þessu máli og virðist
flokkurinn klofinn í tvær fylkingar.
Björgvin bendir í grein sinni á að ef
foreldri geti ekki af einhverjum sök-
um nýtt samverastundir með bami
Orlof
Framsóknar-
flokkurinn, segír Einar
Skúlason, er flokkur
Rádstefnan er haldin í Norræna húsinu.
Hún fer fram á ensku og er öllum opin.
Adgangseyrir er enginn.
fjölskyldugilda.
sínu þá skerðist réttur bamsins. En í
hvaða tilvikum er það? Þau tilfelli sem
fæðingarorlof lengist ekki verða þeg-
ar mæður neita að feðra böm sín og
þegar forsjárforeldrið neitar foreldri
sem er forsjárlaust um fæðingarorlof.
Fæðingarorlofið þarf að taka á fyrstu
18 mánuðunum eftir fæðingu bams
og því þarf greinilega mjög sérstakar
aðstæður til þess að annað foreldrið
geti ekki tekið fæðingarorlof.
Fj ölsky ldugildin
hjá Framsókn
Markmið laganna er að tryggja
samvistir bams bæði við fóður og
móður og að réttur til töku fæðingar-
orlofs verði ekki misjafn eftir því
hvort móðir eða faðir bams á í hlut.
Framsóknarflokkurinn er nútímaleg-
ur fijálslyndur miðjuflokkur og hann
leggur höfuðáherslu á jafnan rétt ein-
staklinganna. Sá réttur
er tryggður með þessu
framvarpi og stórt skref
stigið í þá átt að gera
konur að enn virkari
þátttakendum á íslensk-
um vinnumarkaði. Við
búum því miður við kyn-
bundin Iaunamun hér á
landi og hann verður að
leiðrétta.
Frumvarpið mun
auðvelda ungu fólki,
sem er að koma sér þaki
yfir höfuðið, að hefja
barneignir þar sem þau
Einar öðlast nú rétt á 80% af
Skúlason heildarlaunum sínum á
fæðingarorlofstíman-
um. I núverandi kerfi fá starfsmenn á
almenna vinnumarkaðnum rúmlega
70 þúsund krónur á mánuði og sér
hver maður að ungt fólk með mikla
greiðslubyrði þarf að hugsa sig vel
um áður en farið er í bameignir með
tilheyrandi tekjusamdrætti á meðan á
fæðingarorlofi stendur.
Konur standi
körlum jafnfætis
Lenging fæðingarorlofs úr 6 mán-
uðum í 9 mánuði er aðgerð sem löngu
var orðin tímabær og sama má segja
um rétt foreldra til 13 vikna leyfis á
fyrstu áram bamsins til þess að njóta
samvista með því. Við lifum á tímum
þess að fólk leggur meira upp úr sam-
verustundum með fjölskyldunni en
áður. Feður leggja aukna áherslu á að
geta verið sem mest með bömum sín-
um á mótunaráram þeirra og konur
gera þá sjálfsögðu kröfu að standa
jafnfætis körlum á vinnumarkaði.
Framsóknarflokkurinn hefur sýnt
enn einu sinni að hann er flokkur fjöl-
skyldugilda og hann hefur fólldð í fyr-
irrúmi. Hér er á ferðinni eitt mikil-
vægasta jafnréttismál og fjöl-
skyldumál sem fram hefur komið í
langan tíma og leitt er til þess að vita
að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki
standa einhuga að baki þessu fram-
varpi.
Höfundur er formaður Sambands
ungra framsóknarmanna.