Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 61
Samfylkingarmönn-
um gerist órótt
LÍTIÐ greinarkorn,
skrifað í gamansömum
tón af tveimur ungum
manneskjum í fram-
varðarsveit ungs fólks
í Vinstrihreyfingunni -
grænu framboði hefur
valdið miklum útbrot-
um hjá fleiri en einum
sjálfskipuðum vakt-
manni _ Samfylkingar-
innar. í grein sem þau
Sigfús Olafsson fyrr-
um ritari Alþýðu-
bandalagsins og Drífa
Snædal sem áður
starfaði með Kvenna-
listanum skrifa og birt-
ist í Morgunblaðinu sl.
fimmtudag, afþakka þau atkvæða-
seðla í formannskjöri Samfylkingar-
innar af skiljanlegum ástæðum og
biðja um leiðsögn hvernig verjast
megi því að verða óumbeðið gerður
að félaga í Samfylkingunni úr því
hefðbundnar leiðir hafi ekki dugað.
Þetta litla tilskrif hrærir svo uppí
Samfylkingin
Það skyldi nú ekki vera,
segir Steingrfmur J.
Sigfússon, að þarna hafí
verið komið við veikan
blett á nýjustu glans-
mynd ímyndarsmiða
Samfylkingarinnar.
sálarlífi Ara Skúlasonar og Jóhanns
Geirdal að ekki duga minna en
breiðsíður frá báðum tveim til svars
í sama blaði sl. laugardag þar sem
skrifað er undir áhrifum af flestu
öðru en léttleika tilverunnar. Það
skyldi nú ekki vera að þarna hafi
verið komið við veikan blett á nýj-
ustu glansmynd ímyndarsmiða
Samfylkingarinnar, sem sagt þeim
aðferðum sem reynt er að beita til
að ýkja uppávið allar tölur um fjölda
í formannskjöri og væntanlega fé-
laga hins nýja flokks sem fáir hafa
gengið í fyrir eigin atbeina, en þeim
mun fleiri verið óumbeðið skráðir í.
Þau Drífa og Sigfús eru prýðilega
fær um að svara fyrir sig sjálf ef
þau sjá ástæðu til og þurfa til þess
enga hjálp frá undirrituðum. Eg sæi
enda ekki ástæðu til að stinga niður
penna nema vegna þess að Ari
Skúlason hefur sent Morgunblaðinu
til birtingar grein, áðurnefnda, þar
sem að þvi er virðist mikilli inni-
byrgðri þörf fyrir tæmingu reiðis-
kálanna í garð undirritaðs og Ög-
mundar Jónassonar er svalað. Sá er
munur á greinum Jóhanns og Ara
að Jóhann heldur sig í aðalatriðum
við að svara skrifum
Sigfúsar og Drífu. Mér
finnst að vísu miður að
þessi ágæti fyrrum fé-
lagi minn skuli ekki ná
að halda sig við mál-
efnaleg svör en falla í
þá gryfju að gera unga
fólkinu upp eitthvert
ergelsi sem skrif hans
sjálfs eru gegnmenguð
af. Einnig verð ég að
segja að frekar hefði
ég þessa dagana átt
von á grein frá Jó-
hanni Geirdal þar sem
hann lýsti sig ósam-
mála verðandi for-
manni sínum Össuri
Skarphéðinssyni um utanríkismál
sem gagnrýnislaust skrifar uppá
veru erlends hers í landinu og aðild
að NATÓ í viðtali við Morgunblaðið
20. apríl sl. Öðruvísi mér áður brá.
Hland fyrir hjartað
á Ara Skúlasyni
Það á vel við um Ara Skúlason að
sínum gjöfum sé hver líkastur. Skrif
hans dæma sig best sjálf. Engar
skýringar kann ég á því hvers
vegna hland hleypur svo mjög fyrir
hjarta Ara Skúlasonar af þessu til-
efni. Viðbrögðin, aðallega fólgin í
tilraunum til að gera lítið úr pers-
ónu undirritaðs og Ögmundar Jón-
assonar, eru í engu samhengi við til-
efnið.
Vel get ég unnt Ara Skúlasyni
þess að eignast nú þann Evrópu-
sambandssinnaða krataflokk á Is-
landi sem mér hefur lengi virst
hann þrá. Ég tel einnig gott og hef
margsagt það opinberlega að Sam-
fylkingin verði loksins að flokki,
sérstaklega ef það skýrist í leiðinni
fyrir hvaða pólitík hún ætlar sem
slík að standa. Fyrir okkur, kepp-
inauta hennar í íslenskum stjórn-
málum, er það svo sannarlega fagn-
aðarefni ef það tekur að skýrast
fyrir hvað Samfylkingin eða jafnað-
ar-nútímamannaflokkurinn ætlar að
standa, ekki þegar hann verður stór
því ósýnt er enn um að svo verði,
heldur þegar hann verður til.
Það er misskilningur og ofmat hjá
Ara og öðrum í þeim herbúðum sem
samviskusamlega setja á þá plötu
að Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð hafi valið Samfylkinguna sem
höfuðandstæðing í stjórnmálum.
Það gildir reyndar einnig um Fram-
sóknarflokkinn sem stöðugt heldur
hinu sama fram, þ.e. að við höfum
gert hann sérstaklega að skotspæni
umfram aðra flokka. Ég hef t.d. í
engu svarað ýmsum skeytasending-
um formannskandídata Samfylking-
arinnar í minn garð og okkar í
Vinstrihreyfingunni - grænu fram-
boði að undanförnu. Þeir, og þó
einkum Össur, hafa notað flest
tækifæri í fjölmiðlum, sem gefist
hafa ófá, til að hnjóða í okkur. Með-
an þar eru hins vegar fyrst og
fremst á ferðinni sleggjudómar og
tilraunir til að líma á okkur nei-
kvæða merkimiða en engin málefna-
leg gagnrýni, fellur slíkt auðvitað
um sjálft sig. Hitt er annað mál að
það er út af fyrir sig tilhlökkunar-
efni ef loksins kemur að því að hægt
verði að fara að taka á móti Sam-
fylkingunni eins og venjulegum
stjórnmálaflokki. Það hefur verið
erfitt fram til þessa, bæði vegna
þess að margt hefur verið óljóst um
fyrirbærið sjálft og áherslur þess og
auk þess hefur manni tæpast þótt á
raunir aðstandendanna bætandi.
Um meginlfnurnar kemst aftur á
móti Björn Bjarnason næst hinu
sanna á heimasíðu sinni þegar hann
stillir Sjálfstæðisflokknum og Vin-
strihreyfingunni - grænu framboði
upp sem fulltrúm helstu andstæðna
í íslenskum stjórnmálum. Það at-
hyglisverða við þróun mála eru hins
vegar þrengslin sem eru að skapast
á miðjunni sem þáttarstjórnandi
kastljóss ríkissjónvarpsins vék
réttilega að á miðvikudagskvöldið
var.
Ari Skúlason, sem talar í dæmis-
ögum eins og frelsarinn forðum,
gerir mikið úr fjölmiðlafíkn eða at-
hygli okkar Ögmundar Jónassonar.
Má ég þá óska honum innilega til
hamingju með að eiga nú að líkind-
um í vændum að eignast fyi’ir leið-
toga jafn einstaklega fjölmiðlafæl-
inn mann og Össur Skarphéðinsson.
Höfundur er formaður Vinstrihreyf-
ingarinnar -græns framboðs.
Steingrímur
J. Sigfússon
Bossakremið
frá Weleda ótrúlegt og ómissandi
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13 s. 5512136
Fangaðu athygl
R hM
M D
HL Displeay götuskilti
Margar geróir,
tilboósverð í maí
Háteigsvegi 7 Sími 511 1100
Húðin endurheimtir kraft og styrk, skarpari endurmótaðar
útlínur. Leyndardómurinn felst í hjarta formúlunnar:
Efnasamsetning sem vinnur ó vökvasöfnun, nóttúruleg
innihaldsefni (m.a. seyði unnið úr vínberjakjarna og
greipaldini) ósamt koffíni.
Upplifðu ónægjulegan óvaxtailm greipaldinsins sem styrkir
húðina og hefur jafnframt óhrif ó hugann.
Ráðgjafi verður í versluninni
í dag og á morgun,
langan laugardag.
10% kynningarafsláttur.
H Y G E A
d nyrtivöruverj lun
Laugavegi 23,
sími 511 4533.
2 Frábært >
úrval hjá BT af
símum á 1 kr.
V með Tal12 2
LEIKIH
■ .
Öflugur Erícsson síi
tvær krónur éfþu J J.
kaupir Talfrelsispakk,
I Talfrelsispakka er Tatfrels®*™***’"'' jjyn'J'J luJ ijfúmi.i
símkort, símanúmer, geisladiskur j -\||r uö 35 kbi í bii)
og 2000 kr. inneign. Pakkmn , Alh að , Wsi i
kostar kn2990,- \ , Uuiil-ituutl (3UU/13UU)
jllukku oy 'vakjuri uil.
FiU
m
Hú
BT Kringlunni BT Skeifunni
BT Akureyri BT Reykjanesbæ BT Hafnarfirði
>