Morgunblaðið - 05.05.2000, Page 65
MORGUNBLÁÐÍÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 65
Yfírlýsing Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis
Aðför VMSÍ að Sleipni
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá stjóm Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis:
„Þegar samninganefnd Bifreiða-
stjórafélagsins mætti á samninga-
fund hjá Ríkissáttasemjara þann 14.
apríl s.l. með SA, var af hálfu SA
lagður fram nýr kafli í kjarasamningi
Verkamannasambands Islands og
SA til kynningar samninganefnd
Sleipnis og sem umræðugrundvöllur.
Hinn nýi kafli í samningi þessara
aðila hefur að geyma ákvæði um kjör
hópferða- og sérleyfisbifreiðastjóra,
en kjarasamningur VMSI hefur
hingað til ekki tekið á kjörum þessa
hóps, enda hefur Bifreiðastjórafélag-
ið Sleipnir eins og kunnugt er gert
kjarasamning íyrir yfii-gnæfandi
meirihluta hópferða- og sérleyfis-
bifreiðastjóra á landinu.
Það vakti furðu og reiði samning-
anefndarmanna að sjá þennan kjara-
samning, en í umræddan kafla eru
sett ákvæði sem ganga þvert á kröfu-
gerð Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis
og fela í sér verulega Iakari kjör en
núgildandi samningur Sleipnis kveð-
ur á um.
Þar eru teknar upp nær orðréttar
ýmsar kjarakröfur Sleipnis og þær
afbakaðar og lækkaðar verulega með
smávægilegum orðalagsbreytingum
sem þó skipta öllu um innihaldið.
Ekki er unnt að tína hér allt til, en
þess í stað skal stiklað á stóru:
Meðal annars er þar um að ræða
verulega lækkun á vaktaálagsprós-
entum miðað við núgildandi kjara-
samning Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis auk þess sem álagstímum er
fækkað umtalsvert.
Svið vaktavinnu er á hinn bóginn
víkkað miðað við núgildandi kjara-
samning Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis og er vaktavinna heimil all-
an sólarhringinn samkvæmt samn-
ingi VMSÍ, en er það ekki samkvæmt
núgildandi kjarasamningi Bifreið-
astjórafélagsins Sleipnis. Felur það
einnig í sér kjaraskerðingu miðað við
núgildandi kjarasamning Sleipnis.
Samkvæmt því lækka álagsgreiðslur
á tímabilinu frá kl. 01:00 - 06:00 um
58,2 prósent.
Sleipnir hefur hins vegar gert
kröfu um hækkun á vaktaálagi, auk
þrengingar á vaktavinnusviði.
Ennfremur samdi VMSÍ um af-
nám á greiðslu fyrir ótekna kaffitíma
í yfirvinnu miðað við núgildandi
kjarasamning Bifreiðastjórafélags-
ins Sleipnis.
í upphafi kjaraviðræðna aðila
lögðu atvinnurekendur fram kröfur
af sinni hálfu sem fela í sér verulega
skerðingu á kjörum bifreiðastjóra.
Þessum kröfum hafnaði Bifreiða-
stjórafélagið Sleipnir.
Kröfur þessar eru hins vegar að
verulegu leyti teknar upp í samning
VMSÍ við SA og samþykktar þar.
Má þar nefna kröfu SA um heimild
til vaktavinnu allan sólarhringinn og
um heimild atvinnurekenda til að
reka menn í frí í miðri viku gegn
vinnu um helgar þess í stað.
Jafnframt eru í þessum samningi
ákvæði um vinnu og hvíldartíma bif-
reiðastjóra sem ganga þvert á
ákvæði laga og reglugerða um þessi
atriði. Þetta þýðir með öðrum orðum
að fari bifreiðastjórar eftir ákvæðum
samningsins, leiðast þeir út í lögbrot.
Við brotum á lögum um aksturs-
og hvíldartíma bifreiðastjóra liggja
þung viðurlög, en eins og kunnugt er
gilda önnur lög og reglugerðir um
aksturs- og hvíldartíma bifreiða-
stjóra en um aðra á vinnumarkaðn-
um. Hér er um að ræða reglugerðir
nr. 3820 og 3821/85 um aksturs og
hvíldartíma bifreiðastjóra.
Það eru forkastanleg vinnubrögð
af hálfu VMSÍ að gera samning sem
felur í sér ákvæði af þessu tagi og er
Ijóst að samningamenn VMSI hafa
að vonum litla þekkingu á lögum og
málefnum þeirra aðila sem þeir voru
að gera samning fyrir, - öllum í
óþökk - nema auðvitað atvinnurek-
endum. Sú spurning verður æ áleitn-
ari hvort stjórn VMSÍ sé gengin til
liðs við atvinnurekendur gegn
Sleipni.
Bifreiðastjórafélagið Sleipnir lítur
á umræddan gjörning sem alvarlegt
skemmdarverk framið af forystu-
mönnum Verkamannasambands ís-
lands.
Athygli vekur að í forsvari samn-
inganefndar VMSI, sem stóð að gerð
þessa kostulega „kjarasamnings" er
varaformaður þess og jafnframt
fyrsti varaforseti Alþýðusambands
Islands.
Hvað gengur VMSÍ til? Telur for-
usta þess hag verkafólks best borgið
með því að etja stétt gegn stétt?
Stjórn Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis fordæmir framferði VMSÍ
og mótmælir harðlega íhlutun þess í
málefni Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis.“
Fréttir á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= e!TTH\SA£> /VÍ71
Fréttir á Netinu
% mbl.is
BRONCO fjallahjól, dömu og herra 24"-26" BRONCO með dempara 20‘ 24"-26" DIAMOND Street, dömu og herra 24"-26" | BRONCO Duo Shock 24"-26"
Verð stgr. frá kr. 22.705 tjl 23.655 1 Verð stgr. frá kr. 20.805 5126.505 Verö stgr.frá kr. 24.130 5'25.555 1 Verð stgr. frá kr. 27.455 til 28.4051
Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar, samsett og stillt á fullkomnu reiðhjólaverkstæði
GIANT fjallahjól 1 GIANT tveggja dempara_ I GIANT City, dömu og herra______I SCOTT fjallahjól
Verð stgr. frá kr. 25.555
Verð stgr. frá kr. 39.900
Verð stgr. kr. 29.925
Verð stgr. kr. 26.505
A r s á b y
SCOTT ál með dempara
Verö stgr. frá kr. 36.955
o g f r í u p p
^ flROiVCO
OiAisrr SCOTTL-A
e r s I a e f t i
ItaltríkE viví
1 N T K K N A 11 O N \ I. - 'il'fSlfft
EUROSTAR DÍAMOND
—
n n m
Fjallahjól fyrir börn frá
DIOMOND og BRONCO
VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR
Hjálmar, barnastólar, grifflur,
blikkljós, bjöllur, hraðamælar,
brúsar, töskur, körfur, dempara-
gafflar, hjólafestingar á bíla
og margt fleira.
5% staögreiöslu-
afsláttur
Upplýsingar um raðgreiðslur
veittar í versluninni
Armúla 40
Sími: 553 5320
l/érslunin
AMRKI