Morgunblaðið - 05.05.2000, Side 66

Morgunblaðið - 05.05.2000, Side 66
66 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vann « jeppa LEIKNUM Fjölskyldudraumur Gulls 909 og Bílabúðar Benna lauk 2. maí sl. en hann hefur staðið yfir siðan um miðjan febrúar og tóku yf- ir 100.000 manns þátt í leiknum. Dregið var fimmtudaginn 27. apríl og það var nafn Unnar Kjartans- dóttur sem dregið var úr pottinum. Á þriðjudaginn fór svo fram af- hending á verðlaununum hjá Bfla- búð Benna í Kringlunni og var það Eiríkur Fjalar sem afhenti vinning- ana, Korando-jeppa frá Bflabúð 'Benna, vélsleða og kerru undir sleðann. Morgunblaðið/Ami Sæberg EFLUM ENDURHÆFINGU TÖKUM A - TÆKIN VANTAR Landssamtök hjartasjúklinga, LHS, standa fyrir landssöfnun meö merkjasölu þann 4., 5. og 6. maí undir kjörorðunum „Eflum endurhæfingu - Tökum á tækin vantar" Tilgangur merkjasölunnar er að afla fjár til kaupa á tækjum til endurhæfingar fyrir hjartasjúklinga. MERKJASALA 4., 5. OG 6. MAÍ LANDSSAMTÖK HIARTASIÚKLINGA Landsamtök hjartasjúklinga eru opin öllum. Hægt er að skrá sig í samtökin alla virka daga milli kl. 9 og 17. Aðalskrifstofan er til húsa að Suðurgötu 10, 101 Reykjavík. Símar 552 5744 og 562 5744. Netfang hjarta@sibs.is MIR minnist stríðsloka í Evrópu UM þessar mundir eru liðin rétt 55 ár frá stríðslokum í Evrópu og uppgjöf herja Hitlers-Þýskalands og banda- manna þess. Félagið MIR minnist þessa sögulega atburðar í félags- heimilinu, Vatnsstíg 10, laugardaginn 6. maí kl. 15. Þá flytur sendiherra Rússneska sambandsríkisins, Anat- olí Zaitsév, erindi um Föðurlands- styrjöldina miklu 1941-1945. Hjalti Rögnvaldsson leikari les upp ljóð og sýnd verður heimildarkvikmynd Mikhaíls Romm, Síðustu bréfin, um örvæntingarfulla tilraun nasistafor- ystunnar til að efla baráttuþrek þýsku þjóðarinnar, þegar algjör ósig- ur blasti við fasistum í Stalingrad, segir í fréttatilkynningu. Að lokinni dagskrá í bíósalnum verða léttar veit- ingar á boðstólnum í kaffistofu. I tilefni 55 ára afmælis stríðslok- anna hefur einnig verið sett upp í fé- lagsheimili MÍR sýning ljósmynda og svartlistarmynda sem tengjast bar- áttu Rússa og annarra þjóða fyrrum Sovétríkja við innrásarheri Þjóðveija og bandamanna þeirra. Sýning þessi verður opin á laugardaginn kl. 14-18 og á sama tíma daginn eftir, sunnu- daginn 7. maí, en kl. 15 þann dag verður sýnd hin fræga heimildar- kvikmynd Romans Karmen, Föður- landsstyrjöldin mikla. Þykir mynd þessi gefa einkar greinargóða heild- armynd af baráttu Sovétþjóðanna við innrásarheri Þjóðverja og banda- manna þeirra, segir í fréttinni. Loks verður enn ein heimildar- kvikmynd, Herveldi Japana brotið á bak aftur, sýnd í bíósal MÍR sunnu- daginn 14. maí kl. 15. Sú kvikmynd var gerð upphaflega 1945 (eintakið sem sýnt verður í MIR er endurgerð frá 1985) og voru höfundarnir Alex- ander Zarkhí og Iosif Heifits í hópi fremstu kvikmyndagerðarmanna So- vétríkjanna eins og þeir Mikhaíl Romm og Roman Karmen. Aðgangur að dagskránni laugar- daginn 6. maí, myndasýningunni og kvikmyndasýningunum á Vatnsstíg 10 er ókeypis og öllum heimil. ------»-H------ Sumar- um undirbúin í SUMAR verður margt og mikið um að vera á Laugaveginum til að lífga upp á mannlífið. Kaupmenn þar hafa lagt á sig mikla vinnu við að undirbúa sumarið. Margir leggja hönd á plóg, fyrir utan kaupmenn, að gera suma- rið skemmtilegt og ánægjulegt. Þar má nefna að lítil hljómlistarsveit verður á sveimi með nýja og hressi- lega músík, The Mighty Gareth verð- ur með götusýningar og sýnir listir sem enginn leikur eftir, það verða ótrúlegar tískusýningar sem hafa ekki sést áður, dansarar sýna nýjustu dansana, heilsuefling verður eitt af markmiðum sumarsins, ásamt ótal öðrum uppákomum sem eiga að koma á óvart, segir í fréttatilkynningu. Kaupmenn ætla að hefja sumar- starfið á næsta löngum laugardegi hinn 6. maí nk. og mun það verða til- einkað ferðalögum innanlands með fellihýsasýningum frá Títan og Segla- gerðinni Ægi ásamt ferðakynningum frá Ferðafélagi íslands og Útivist. Líka er ætlunin að skapa smá grill- stemmningu þar sem Olíufélagið Es- so verður með kynningu á grillum og grillvörum. En þar við verður ekki látið sitja heldur verða líka sýndir dansar frá dansskóla Auðar og Jó- hanns Amars, hljómlistarsveitin okk- ar spilar og The Mighty Gareth sýnir listir sínar. Kaupmenn verða í sumar- skapi og bjóða alla velkomna á Laugaveginn og hvetja fólk til að koma og njóta útivistar í vinalegu og kunnuglegu umhverfi. Á löngum laugardegi eru verslanir opnar til kl. 17 og eins og ævinlega er frítt í bílastæðahúsin og í stöðu- og miðamæla eftir kl. 14. stemmning j Laugavegin Opið hús hjá Leikskólum Reykjavíkur ÍBÚUM Reykjavíkur og nágrennis gefst tækifæri til að heimsækja alla leikskóla Reykjavíkurborgar laugardaginn 6. maí nk. á milli 11 og 13. Þetta er í fyrsta sinn sem allir leikskólar í Reykjavík hafa op- ið hús á sama degi. Það tengist verkefninu „2000 börn í Reykjavík 2000“ sem er samstarfsverkefni Leikskóla Reykjavíkur, Kramhúss- ins og Reykjavíkur - menningar- borgar árið 2000. Börn sem verða sex ára árið 2000 voru fengin til að vinna verk- efni tengd náttúruöflunum, vatni, eldi, lofti og jörð undir leiðsögn starfsfólks leikskóla og listgreina- kennara Kramhússins. Reynt hef- ur verið að opna augu barnanna fyrir borg og náttúru og gefa þeim tækifæri til að kynnast því hvað borgin þeirra hefur að geyma og bera virðingu fyrir því umhverfi sem þau alast upp í. Afrakstur vinnu barnanna verður til sýnis í leikskólunum 6. maí og má því í raun segja að listsýningar verði á 75 stöðum í Reykjavík. Verkefninu lýkur laugardaginn 27. maí nk. þegar börnin koma saman á Arnarhóli í fylgd leik- skólakennara og taka þátt í sam- eiginlegri uppákomu. Þau munu flytja tónverkið „Þúsaldarljóð“ sem var samið sér- staklega fyrir verkefnið af Tryggva M. Baldvinssyni við texta Svein- björns I. Baldvinssonar en dans við verkið samdi Ólöf Ingólfsdóttir. Þegar tónverkið hefur verið flutt munu foreldrar taka við börnunum og fara í ratleik um miðborg Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir að farið verði í alla helstu sýningarsali borgarinnar þar sem búið verður að koma fyrir listaverkum barn- anna. „2000 börn í Reykjavík árið 2000“ er skipulagt af listgreina- kennurum Kramhússins í sam- starfi við starfsfólk leikskólanna. Þeir hafa á síðustu árum leitast við að tengja saman listgreinar og með þá reynslu var leitast við að fá börnin til að upplifa tónlist, mynd- list, hreyfingu, dans og leiklist sem eina heild. ------H-»------- Hækkun af- notagjalds bitni ekki á öryrkjum AÐALFUNDUR Blindrafélagins sem haldinn var laugardaginn 29. apríl sl. samþykkti ályktun sem send er samgönguráðherra, Sturlu Böð- varssyni. I ályktuninni er mótmælt hækkun á afnotagjaldi síma sem tek- ur gildi 1. júlí nk. og snertir öryrkja og ellilífeyrisþega. í ályktuninni segir: „Fundurinn hvetur samgönguráðherra til að beita sér gegn fyrirhuguðum hækk- unum á afnotagjöldum öryrkja þann- ig að þær komi ekki til framkvæmda. Það er siðferðilega óverjandi að fyr- irtæki í eigu ríkisins hækki afnota- gjöld hjá tekjulægstu öryrkjum og ellilífeyrisþegum á sama tíma og fyr- irtækið skilar umtalsverðum hagn- aði. I nafni aðstöðujöfnunar ber sam- gönguráðherra að gangast við skyld- um sínum gagnvart öryrkjum rétt eins og öðrum landsmönnum í stað þess að auka enn á einangrun þeirra." -------------------- ■ AÐSTANDENDUR sósíalíska vikublaðsins Militant halda málfund um Zimbabwe, arf aldarlangrar ný- lendukúgunar, nútíma heimsvalda- stefnu og jarðnæðisumbætur, föstu- daginn 5. maí kl. 17.30 á Klapparstig 26, 2. hæð t.v., Reykja- vík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.