Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 70
70 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Hundalíf
Þetta er aldeilis skrítið land. í hvert
skipti sem haldnar eru kosningar
brjótast fiðlumar út.
Brýst út
ofbeldi.
Hvað svo sem það er.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Spurt var um
íþróttamál
Frá Ellerti B. Schram:
í AÐSENDU bréfi frá Jóni Otta
Jónssyni, sem birtist í Mbl. 19 apríl
sl., er nokkrum fyrirspurnum beint
til mín vegna íþróttamála. Skal nú
leitast við að svara Jóni Otta, sem
mér er að góðu kunnur sem einlægur
áhugamaður um íþróttir.
Spurt er: Er eftirsóknarvert að er-
lent íþróttafólk taki þátt í keppni um
íslandsmeistaratitla?
Svar: Hvort heldur það er eftir-
sóknarvert eða ekki blasir sú stað-
reynd við að ísland er aðili að
evrópska efnahagssvæðinu og hlítir
af þeim sökum þeim reglum sem þar
gilda um eitt atvinnusvæði og frelsi
og jafnræði þess fóiks sem býr í við-
komandi löndum.
Lagt er bann við því að takmarka
eða hefta íþróttafólk til að taka þátt í
keppni innan Evrópusambands- og
EES-landa. Svokallaður Bosman-
dómur er öllum kunnur og þeir sem
fylgjast með íþróttum þekkja afleið-
ingarnar af þeim dómi. Nærtækast er
að benda á ensku knattspymuna, þar
sem fjölmörg lið eru með útlendinga í
meirihluta í kappliðum sínum. Chels-
ea hefði getað orðið Englandsmeist-
ari með ellefu útlendinga í sínu liði.
Islensk íþróttahreyflng verður að
una þessari stöðu, hvort sem okkur
líkar betur eða verr.
Það er rétt hjá Jóni Otta að eftir
því sem útlendingar eru fleiri því
færri stöður eru eftir fyrir innlenda
leikmenn. A móti kemur að íslenskt
íþróttafólk hefur að sama skapi
aukna möguleika til að komast að hjá
erlendum félögum.
Hér er með öðrum orðum ekki á
ferðinni stefna íþrótta- og ólympíu-
sambands íslands eða íþróttaforyst-
unnar. Hvað varðar mína persónu-
legu skoðun, þá væri ég hlynntur því
ef íslensk sérgreinasambönd, sem
önnur hliðstæð sambönd í Evrópu,
mættu setja þak á fjölda erlendra
leikmanna. Að því er unnið af hálfu
alþjóðaíþróttasamtaka gagnvart
Evrópusambandinu og íslensk
íþróttaforysta styður þá viðleitni.
Spurt er: Mun stjórn ÍSÍ senda
Alþingi áskorun um að fella fram
komið frumvarp um að leyfa iðkun
hnefaleika?
Svar: Framkvæmdastjórn ÍSI
hefur sent Alþingi umsögn um um-
rætt frumvarp þar sem mælt er með
því að bannið sé fellt niður. Ólymp;
ískir hnefaleikar eru að mati ISI
ekki skaðlegri en margar aðrar
íþróttir og raunar allt önnur íþrótt
en sú sem bönnuð var á sínum tíma.
Ólympískir hnefaleikar eru viður-
kennd íþrótt um allan hinn vestræna
heim og að okkar mati óeðlilegt að
löggjafarsamkundan sé að hafa af-
skipti af því hvaða íþróttir eru leyfð-
ar hér á landi og hverjar ekki. Sú
ákvörðun á að vera í höndum íþrótta-
samtakanna sjálfra.
Eg vona að ég hafi hér með svarað
málefnalegum spurningum Jóns
Otta og biðst afsökunar á þeim
drætti sem hefur orðið á svari mínu,
sem stafar af því að ég var erlendis
um páskana.
ELLERT B. SCHRAM,
forseti ÍSÍ.
Ert þú í tvíhliða
hjónabandi?
Frá Sigurði Grétari
Guðmundssyni:
ÞAÐ ER með fádæmum hvað fjöl-
miðlamenn geta búið til af ambögum
og þar étur hver upp eftir öðrum,
það er eins og í fjósinu; þegar einni
beljunni verður mál míga allar.
Lengi hef ég haft það álit að tveir
fjölmiðlar hérlendis stæðu fremstir í
málnotkun, Ríkisútvarpið og Morg-
unblaðið. En svo bregðast krosstré
sem önnur tré.
Nýjasti húsgangur fjölmiðla-
manna, sem þeir éta hver eftir öðr-
um, er að troða orðinu „tvíhliða“ inn í
allar mögulegar setningar. í Morg-
unblaðinu mátti nýlega sjá þessa fyr-
irsögn: „Ræða tvíhliða samskipti
ríkjanna.“ Hefði ekki nægt að segja:
„Ræða samskipti ríkjanna" eru ekki
samskipti tveggja aðila alltaf ;,tví-
hliða", þarf að taka það fram? I há-
degisfréttum 1. maí kom merkileg
frétt, Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra ætlar að eiga „tvíhliða" við-
ræður við Madeleine Albright, utan-
ríkisráðherra Bandai-íkjanna.
Það verður spennandi að heyra
fréttirnar þegar Halldór fer í „ein-
hliða“ viðræður við Madeleine, mun
Halldór þá tala af mikilli mælsku en
Madeleine þegja sem fastast?
Eða felast tvíhliða samræður
þeirra í því að sitja ýmist við vinstri
eða hægri hlið hvort annars?
Og samkvæmt þessari uppáhalds
málleysu fjölmiðlamanna, hvað ger-
ist þegar þeir ganga í hjónaband?
Ganga þeir þá ekki í „tvíhliða" hjóna-
band?
Vonandi, því mikil lifandis ósköp
hlýtur „einhliða" hjónaband að vera
leiðinlegt.
SIGURÐUR GRÉTAR
GUÐMUNDSSON,
Sæbólsbraut 26, Kópavogur.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.