Morgunblaðið - 16.05.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2000 1 3
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda
Meira en 2000
hugmyndir bárust
Morgunblaðið/Amaldur
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, afhendir verð-
iaun í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda við athöfn í
Gerðubergi.
Reykjavtk
NÝSKÖPUNARKEPPNI
grunnskólanemenda var hald-
in nú i vor í nýunda sinn og
hefur þátttaka aldrei verið
jafn mikil. Meira en 2000 hug-
myndir bárust frá nemendum
úr um 60 skólum, en til saman-
burðar má geta þess að fyrsta
árið sem keppnin var haldin
bárust alls 75 hugmyndir.
Úrslit voru kynnt í keppn-
inni um helgina og voru veitt
þrenn verðlaun í tveimur
flokkum, annars vegar fyrir
bestu uppfinningarnar og hins
vegar fyrir besta útlit og
formhönnun.
Gelpúðar, skógrind, kart-
öfluholari og vinstri
handar hjálp
Fyrstu verðlaun fyrir bestu
uppfinningu hlaut Arni Þór
Finnsson, 12 ára nemandi úr
Hjallaskóla, fyrir gelpúða,
sem eru hnjáhlífar fylltar sílí-
koni. Önnur verðlaun hlaut
Lilja Karen Þrastardóttir, tíu
ára nemandi úr Hamraskóla,
fyrir skógrind sem er þannig
úr garði gerð að hún leggst
auðveldlega saman og tekur
lítið sem ekkert pláss þegar
hún er ekki í notkun. Tvær
uppfinningar fengu þriðju
verðlaun. Annars vegar kart-
öfluholai-i Önnu Margrétar
Sigurðardóttur, 14 ára nem-
anda úr Kópavogsskóla, sem
er kassi með átta keilulaga
stöngum sem búa til holur
þegar þeim er þrýst niður í
mold. Þannig býr eitt handtak
til átta holur. Hins vegar
Vinstri handar hjálp, sem er
uppfinning þeirra Elísabetar
Agnar Jóhannsdóttur og
Berglindar Sunnu Stefáns-
dóttur, 11 ára nemenda úr
Lækjarskóla. Vinstri handar
hjálpin er armband með kúlu
sem rennur eins og hjól og er
ætlað örvhentum þegar þeir
ei-u að skrifa. Kúlan lyftir
höndinni frá blaðinu og hindr-
ar að hún dragist eftir því og
klessi það sem búið er að
skrifa.
Túnhlið, orgelpíanóbekk-
ur og skeiðastoppari
Fyrstu verðlaun fyrir besta
útlit og formhönnun hlaut
Hákon G. Þorvaldsson, 12 ára
nemandi úr Andakilsskóla,
fyrir túnhlið með strekkjara.
Túnhliðið er búið tannhjóli
sem sett er milli túnhliða
þannig að auðveldara sé að
loka þeim. Önnur verðlaun
hlaut Birkir Örvarsson, 11 ára
nemandi úr Laugamesskóla,
fyrir orgelpíanóbekk, sem er
þannig úr garði gerður að ofan
á hefðbundinn orgelbekk hef-
ur verið sett sæti á hjólum til
að orgelleikarinn eigi auðveld-
ara með að leika með á pedal-
ana með fótunum. Þriðju
verðlaun hlaut Thehna Rún
Sigfúsdóttir, 14 ára nemandi
úr Öldutúnsskóla, fyrir
skeiðastopparann sem er lítill
hanki sem settur er á skeið til
að koma í veg fyrir að hún
renni til dæmis ofan í skál eða
krukku.
Vorhátíðir í Háteigs-
og Langholtsskóla
VORHÁTÍÐIR voru haldnar
í nokkrum grunnskólum
borgarinnar um helgina, m.a.
í Háteigs- og Langholtsskóla
á laugardaginn, en tilgangur
slíkra hátíða er að efla sam-
skipti og samveru foreldra og
nemenda og skapa vettvang
þar sem allir geta fundið ein-
hverja skemmtun við hæfi.
Ema Sveinbjarnardóttir,
skólastjóri Langholtsskóla,
sagði að það væri hefð fyrir
því í Langholtsskóla að for-
eldrafélagið stæði fyrir vor-
hátíð í byrjun maí á hverju
ári. Hún sagði að mjög vel
hefði tekist til að þessu sinni.
„Þetta var mjög góður
dagur, sagði Erna. „Við mun-
um ekki eftir öðmm eins
mannfjölda og þarna var og
allt gekk samkvæmt áætlun.“
Erna sagði að vorhátíðin
nú hefði verið svolítið lituð af
menningarárinu, en í allan
vetur hafa listamenn unnið
með nemendum skólans. Á
hátíðinni var m.a. glerlista-
verk, sem 10 til 12 ára nem-
endur unnu í samvinnu við
Jónas Braga, afhjúpað, en
það var Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri sem
gerði það. Þá vora einnig
frumflutt tvö tónverk sem
elstu nemendur skólans
sömdu í samvinnu við Hilmar
Þórðarson tónlistarmann.
Að sögn Emu var, auk
þessa, boðið upp á ýmis
skemmtiatriði. Hestar voru á
lóðinni og 8. og 9. bekkur
Morgunblaaið/Kristinn
Nemendur í Langholtsskóla syngja fyrir gesti vorhátíðar.
Mikið var um að vera í Háteigsskóla á laugardaginn en þá
var haldin vorhátíð í skólanum, þar sem nemendur og for-
eldrar skemmtu sér saman.
bakaði pönnukökur handa
gestum og gangandi.
f Háteigsskóla tókst hátíð-
in einnig mjög vel. Þar hafði
hver bekkur ákveðið hlut-
verk, t.d. sá 1. bekkur um að
skipuleggja sígilda vor- og
sumarleiki s.s. teygju-tvist,
snú-snú og parís, 3. bekkur
annaðist blöðrasöhi og fékk
lögregluna til að skoða reið-
hjól nemenda og 7. bekkur sá
um flóamarkaðinn, þar sem
hægt var að finna ýmiskonar
dót og fatnað.
Nemendur Háteigsskóla
sýndu einnig atriði úr leikrit-
inu „Gullna hliðinú' og
nokkrar stelpur sýndu fram-
saminn dans.
Reykjavík
. Morgunblaðið/Golli
Arni Þór Finnsson, 12 ára nemandi úr Hjallaskóla, hlaut
verðlaun fyrir bestu uppfinninguna.
Gelpúðar fyrir
þá sem eru mikið
á hnjánum
ÁRNI Þór Finnsson, 12 ára
nemandi úr Hjallaskóla,
hlaut fyrstu verðlaun fyrir
bestu uppfinninguna í Ný-
sköpunarkeppni grunnskóla-
nemenda, en hann fann upp
gelpúða, sem eruhnjáhlífar
fylRar silíkoni.
Árni Þór segir gelpúðana
ætlaða þeim sem þurfa að
kijúpa mikið við vinnu sína.
„Þetta er púði sem er fest-
ur utan um hnén og ég hugs-
aði þetta fyrir þá sem eru
mikið á hnjánum; til dæmis
byggingamenn, múrara og
dúkalagningamenn." Hann
segir púðana fyrirferðalitla
og að tilgangur þeirra sé að
hlífa hnjánum þannig að fólk
þreytist síður við vinnu sína.
Var að segja konunni
sinni hvað honum væri
illtíhnjánum
Árni Þór var á leiðinni á
fótboltaæfingu þegar hann
fékk hugmyndina að gelpúð-
unum.
„Ég sá mann sem var að
gróðursetja tré. Hann var að
tala við konuna sína og segja
hvað honum væri illt í hnján-
um. Þá datt mér í hug að það
væri hægt að búa til ein-
hveija rnjúka hlíf fyrir hnén
og þar sem gelið er mjög
mjúkt fannst mér það tilvalið
efni.“
Það kom Árna Þór mjög á
óvart að hann skyldi fá fyrstu
verðlaun, en hann segist ekki
hafa hugsað sér að verða
uppfinningamaður að at-
vinnu. Hann segist ekki búinn
að ákveða hvað hann ætli að
vinna við í framtíðinni en vill
gjarnan halda áfram að finna
upp hluti í frístundum sínum.
„Það væri alveg gaman að
finna upp hluti ef maður
þyrfti ekki að hafa neitt sér-
staklega mikið fyrir því. Ég
held að það sé nefnilega ekki
skemmtilegt að siija allan
daginn við skrifborðið og
reyna að finna eitthvað upp, “
segir Árni Þór.
Morgunblaðið/Kristinn
Auður Brynjólfsdóttir og Daníel Brynjólfsson skoða sýn-
ingu yngstu barnanna í Hvaleyrarskóla.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Foreldrafélag Vfðistaðaskóla bauð gestum upp á grillaðar
pylsur og gos á afmælishátíðinni.
Afmæli hafnfirskra skóla
Hafnarfjördur
AFMÆLISHÁTÍÐIR vora
haldnar í tveimur skólum í
Hafnarfirði um helgina. Hald-
ið var upp á 30 ára afmæli
Víðistaðaskóla og 10 ára af-
mæli Hvaleyrarskóla.
Afmælishátíðin í Víðistaða-
skóla hófst klukkan 11 á laug-
ardagsmorgun með fánahyll-
ingu og leik Lúðrasveitar
Hafnarfjarðar. Leiktæki voru
á skólalóðinni t.d. hoppkastali
og stór rennibraut auk þess
sem boðið var upp á stuttar
hestaferðir sem börnin kunnu
vel að meta. Sigurður Björg-
vinsson, skólastjóri Víðistaða-
skóla, sagði í samtali við
Morgunblaðið að hátíðarhöld-
in hefðu tekist mjög vel.
„Þetta tókst alveg stórkost-
lega, sagði Sigurður. „Ég veit
ekki alveg hvað það komu
margir en skólinn var troð-
fullur af fólki þegar mest var
og jdlr þúsund pylsur vora
grillaðar. Þá fengum við
blómasendingar og góðar
kveðjur frá öðrum skólum,
bæjaryfirvöldum og fyrir-
tækjum hér í bænum.“ Sig-
urður sagði að foreldrafélagið
hefði staðið að hátíðinni með
skólayfirvöldum og að sam-
8131410 hefði gengið mjög vel
en það voru foreldrarnir sem
buðu upp á grillaðar pylsur og
gos.
I íþróttahúsi skólans var
haldin menningarvaka og gat
þar að líta ýmislegt forvitni-
legt, t.d. verkefni sem börnin
höfðu unnið í vetur, mynd-
bandsupptökur frá ýmsum at-
burðum í skólalífinu á liðnum
áram vora sýndar, sem og
myndir af öllum nemendum 1.
bekkjar skólans frá upphafi.
Vegleg listgreinasýning
Sigurður sagði að i tilefni
afmælisins hefði skólinn gefið
út veglegt afmælisblað sem
dreift hefði verið inn á hvert
heimili í skólahverfinu. Hann
sagði að í blaðinu væri að
finna brot úr sögu skólans
sem og ljóð og greinar eftir
nemendur
Á Hvaleyrarholtinu var
önnur afmælishátíð en þar
héldu nemendur upp á 10 ára
afmæli Hvaleyrarskóla. Skól-
inn er töluvert yngri en Víði-
staðaskóli enda staðsettur í
tiltölulega nýbyggðu hverfi.
Skólinn hefur hinsvegar
stækkað ört, en haustið 1990
voru 140 nemendur í 9 bekkj-
ardeildum í skólanum saman-
borið við 540 nemendur í 27
bekkjardeildum nú. Skólinn
varð heildstæður grannskóli
árið 1996 með nemendur í 1-
10. bekk og er því verið að út-
skrifa nemendur úr skólanum
í fimmta skiptið.
Afmælishótíð skólans, sem
stóð í tvo daga, hófst á föstu-
daginn með ávarpi Helgu
Friðfinndóttur skólastjóra.
Vegleg listgreinasýning var
sett upp í miðrými skólans og
einnig var hægt að sjá sýnis-
horn af vinnu nemenda í
heimastofum þeirra. Þá sýndu
nemendur leikþætti á sviði
skólans og tónlistaratriði.
Boðið var upp á afmælistertu
og kaffi og fulltrúi foreldra af-
henti skólanum gjöf frá for-
eldrafélaginu. Helga sagði að
það hefði verið einkar höfð-
ingleg gjöf, en skólanum var
gefinn örbylgjuofn, sem á að
nýtast nemendum,og gjafa-
bréf fyrir leiktæki á skólalóð-
ina.
Helga sagðist vera mjög
ánægð með það hvernig til
hefði tekist.
„Þetta tókst lveg ljómandi
vel,“ sagði Helga. „í raun
hefði þetta varla getað tekist
mikið betur. Það viðraði vel á
okkur, börnin tóku virkan
þátt í hátíðarhaldinu og for-
eldrarnir virtust mjög ánægð-
ir með það hvemig til tókst.“
Helga sagði að líklega
hefðu rámlega 1.000 manns
komið á afmælishátíðina, en
allir gestirnir voru látnir
skrifa nafn sitt með tússpenna
á lítinn trékubb og vora kubb-
arnir síðan límdir saman og
mynda nú rámlega tveggja
metra háa vörðu í skólanum.
Helga sagði þetta vera mjög
skemmtilega gestabók, sem
ætlunin væri að lakka og
varðveita.