Morgunblaðið - 16.05.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2000 31
LISTIR
Guggenheim áformar byggingu ann-
ars safns á Manhattan
Gehry kallaður
til að nýju
New York. Morgunblaðið.
MIKILL hugur virðist vera í söfnum
víða um heim við upphaf nýrrar ald-
ar. Breska Tate-safnið hefur vígt nýtt
safnhús í Lundúnum og í New York
eru að hefjast viðamiklar endurbæt-
ur á safnbyggingu Nútímalistasafns-
ins, MoMA á miðri Manhattan. Það
safn hefur auk þess þanið starfsemi
sína austur yfir ána, til Queens og
Long Island City, með samruna við
listamiðstöðina P.S. 1 og kaupum á
geymslurými og skrifstofum í þessu
rótgróna verksmiðjuhverfi. Þess var
þá ekki lengi að bíða að hið stórhuga
Guggenheim-safn léti að sér kveða
aftur eftir vel heppaðar safnfram-
kvæmdir í Bilbao á Spáni og í Berlín-
arborg. Fyrir skipulagsnefnd New
York-borgar liggur tillaga að nýrri
safnbyggingu Guggenheim við aust-
urána á neðanverðri Manhattan þar
sem nú er ferjuhöfn. Arkitekt að
byggingunni er Frank 0. Gehry sem
áður hannaði safnið í Bilbao svo sem
frægt er orðið. Vöxtur Guggenheim-
safnsins hefur aukist jafn og þétt frá
því að nýr forsöðumaður, Thomas
Krens, tók við stjómun þess árið
1988. Fyrir rak safnið lítið útibú í
Feneyjum á Ítalíu, á fyrrverandi
sumarsetri listunnandans og auðkon-
unnar Peggy Guggenheim. Síðan
hafa bæst við söfnin í Bilbao og í Ber-
lín auk þess sem Guggenheim jók
tímabundið við húsakynni sín í SoHo-
hverfi á Manhattan. Aðsókn að söfn-
unum hefur aukist að sama skapi, frá
um 600.000 gestum árið 1988 til tæp-
lega 3 milljóna gesta á síðasta ári.
Með nýrri byggingu á Manhattan
gerir safnið sér vonir um að auka enn
fjölda árlegra gesta um 1,5 milljónir.
Ný öld, nýtt safn fyrir nýja list
Líkt og forsvarsmenn annarra
þekktra safna sem verið hafa að bæta
við húsakynni sín ber Krens fyrir sig
skorti á rými undir samtímamyndlist.
Þá séu verk listamanna í dag mun
stærri í sniðum og oftar en ekki inn-
setningar sem taka yfir heilu rýmin.
Ef af verður fengi safnið meira en
22.000 fermetra til viðbótar við þá
5.500 fermetra sem eru til ráðstöfun-
ar í gömlu spíralsnúnu safnbygging-
unni, hannaðri af Frank Lloyd
Wright árið 1959. Hyggst safnið til-
einka núverandi byggingu á 89.
stræti sýningum verka frá fyrri hluta
20. aldar en í nýju safni yrði áhersla
lögð á nýrri verk yngri listamanna
sem fram að þessu hafa lítið verið
sýnd. Þá er gert ráð fyrir aðstöðu
undir arkitektúr- og hönnunarsafn og
margmiðlunarverk.
Verk Rauschenbergs
til Guggenheim
Með áformum þessum vonaðist
safnið jafnframt til að laða tii sín mik-
ilvæg listaverkasöfn úr einkaeign.
Fljótlega tilkynntu svo Guggenheim-
safnið og Robert Rauschenberg-
stofnunin um samning sín á milli þar
sem þessi mikilvægi bandaríski list-
málari áhafnar safninu stóran hluta
Ljósmynd/David Heald
Ný safnbygging Guggenheim á Manhattan eftir Frank O. Gehry. Fáist tillagan samþykkt mun safnið r/sa við
austurhöfnina á neðanverðri eynni.
Ljósmynd/David Heald
Tilbrigði við stef. Tillaga að nýju safni ber höfundareinkenni hins iðandi
álþaks frá systurhúsi í Bilbao.
verka sinna og umsjón með rekstri
stofnunarinnar, svo framarlega sem
af byggingu hins nýja safns verður.
Yrðu 1.300 fermetrar lagðir undir
sýningar á yfir eitt hundrað málverk-
um og skúlptúrum listamannins, auk
teikninga og ljósmynda úr einkasafni
hans.
Fyrsta stóra verkeftii
Gehrys í New York
Þrátt fyrir mikla velgengni arki-
tektsins víða um heim er þetta í
fyrsta sinn sem Frank O. Gehry er
falið að hanna svo mikla byggingu í
New York. Og vafalaust verður það
verðugt verk fyrir Gehry að spreyta
sig á svo krefjandi og andstæðu um-
hverfi sem mótum skýjaklúfafrum-
skógar Manhattaneyju og austuránn-
ar. I tillögunni er gert ráð fyrir að
húsið verði reist á burðarbitum fram
yfir neðanverðan austurbakka Man-
hattan og ef með eru taldir skúlp-
túrgarður og göngustígar umhverfis
og framan við safnið nær það yfir um
55.000 fermetra svæði. Módel og
teikningar af nýju byggingunni verða
til sýnis í Guggenheim-safninu næstu
mánuðina.
Við
styðjum
við
bakið
ber
Fn heimsending a
Stór-Reykjavíkursvæðinu
Biörninn er
J komiim til Marco
Verð sem vekur athygli!
TÍ1 boðsverð á dýnum m/stálgrind, stgr.
Tegundir Queen King og Cal. King
Nova Bonnell fjaðrakerfí 55.440,- 76.560,-
Radiance Back supporter fiaðrakerfi 79.200,- 99.440,-
Grand Award Back supporter fiaðrakerfi 95.920,- 120.560,-