Morgunblaðið - 16.05.2000, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2000
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ
Maximus
S
Islendingur
Augljóst er, ad þessi svokallaði Maxim-
us var Islendingur, því að nafnið Max-
imus hljómar næstum alveg eins og ís-
lenska najhið Magnús, ogþvíþarfekki
frekari heimilda við.
Það er full ástæða til að
hvetja íslendinga til
að sniðganga kvik-
myndina „Skylm-
ingaþrællinn"
(Gladiator), sem nú er komin
upp á tjaldið hérlendis. í mynd-
inni eru sagnfræðilegar stað-
reyndir að engu hafðar, og
spánskur maður settur í sögu-
frægt hlutverk sem íslensk hetja
í raun hafði í falli Rómarveldis.
Er þarna rétt eina ferðina ver-
ið að eigna Spánverjum mann-
kynssöguhlutverk sem íslenskar
hetjur unnu, líkt og þegar
Kristófer Kólumbusi, sem líka
var Spánverji (eða þama sunna-
nað), var löngum hampað sem
manninum sem fann Ameríku,
þegar staðreyndin er sú, að það
var Leifur
VIÐHORF
Eftir Kristján G.
Arngrímsson
heppni sem
fann nýja
heiminn, eins
og greint hef-
ir verið frá í virtum, útlendum
blöðum, og verður þar af leiðandi
ekki dregið í efa.
Kvikmyndin Skylmingaþræll-
inn greinir frá Maximusi, sem
var herforingi í liði Rómverja og
vann mikla sigra gegn germön-
um í norðri, og vildi Markús Ar-
elíus Rómarkeisari að hann tæki
við völdum og gerði Róm að lýð-
veldi. En svo fór, að illviljaður og
óvandaður sonur Markúsar,
Kommódus, ætlaði sér keisara-
embættið að föður sínum gengn-
um, og með samsæri bolaði hann
Maximusi í útlegð og hélt til
Rómar og tók völdin.
En Maximus, sem eins og
flestum réttþenkjandi íslending-
um hlýtur þegar að vera orðið
ljóst, hét í raun og veru Magnús,
-hófst til virðingar sem skylm-
“ingaþræll í útlendum Rómar-
veldis, og síðan lá leið hans til
sjálfrar Rómar þar sem skarst í
odda með honum og Kommódusi.
Augljóst er, að þessi svokallaði
Maximus var íslendingur, því að
nafnið Maximus hljómar næst-
um alveg eins og íslenska nafnið
Magnús, og því þarf ekki frekari
heimilda við.
Það er aldeilis óskiljanlegt að
bandarískir kvikmyndaframleið-
endur skuli ekki vita betur en
svo, að þeir trúi því að þetta hafi
verið spánskur maður. Vita þess-
ir myndagerðarmenn ekki að
sendiherra íslands í Banda-
ríkjunum, Jón Baldvin Hanni-
balsson, lýsti því yfir nýverið að
sjálf Smithsonian-stofnunin
bandaríska hefði úrskurðað að
það hefðu verið fslendingar sem
fundu nýja heiminn, en enginn
herjans Kólumbus?
Reyndar dettur manni í hug
að þeir hafí vel vitað þetta en um
samsæri sé að ræða. Leikstjóri
myndarinnar heitir Ridley Scott
og er Breti, og aðalleikkonan í
myndinni heitir Connie Nielsen
og er dönsk. Þarna komu því
greinilega saman tveir erki-
fjendur Islendinga og ákváðu að
hefna fyrir annars vegar sam-
bandsslitin við Danakóng og hins
vegar töpuð þorskastríð, með því
að gera Magnús að Spánverja.
Þessi Ridley er reyndar vel
þekktur um allan heim fyrir að
hafa gert myndir á borð við
„Blade Runner“ og „Alien“, og
er sagt að þessi nýja mynd hans
standi þeim tveim hvergi á
sporði. Skal hér viðurkennt að
þetta er í alla staði rétt. í þessari
mynd ber fyrir augu einhver
flottustu atriði sem sést hafa í
bíó, og þau hafa allt það yfír-
bragð sem aðdáendur þessa ann-
ars svikula kolabreta hafa kunn-
að svo vel að meta síðan þeir
féllu í stafi við að horfa á Blade
Runner. Þá verður að nefna að
Richard gamli Harris (annar
Breti til!) leikur Markús Árelíus
af sérdeilis grípandi snilld.
Svo er þessi mynd og saga öll
slík að ljóst er að hún er undir
sterkum áhrifum frá íslenskum
fornsögum. Þarna skylmast
menn og höggva mann og annan
(og annan og annan og annan...)
í herðar niður. AJlt er þetta þó
jafn smekklega gert og ef sjálfur
Snorri Sturluson hefði um vélað.
Má mikið vera ef Ridley þessi er
ekki í raun og veru afkomandi
Snorra. Slík er frásagnarsnilldin
að hann hlýtur eiginlega að vera
íslendingur.
Ekki má gleyma drullunni,
óhreinindunum og svitanum sem
allar persónur eru ataðar, svo að
segja frá upphafi til enda. Það
rennur upp fyrir manni, að þetta
er myndin sem Hrafn Gunn-
laugsson er búinn að vera að
reyna að gera frá þvi hann fyrst
filmaði menn ataða auri, og
hérna kemur líka vel í ljós hvað
það er sem Hrafni hefir aldrei
tekist að gera; það er að segja
mynd með persónum sem manni
stendur ekki nákvæmlega á
sama um.
Nú verður sendiherra Islands
í Bandaríkjunum að bregða sér
án tafar til Hollywood og hitta
Steven Spielberg, aðaleiganda
DreamWorks filmuverksmiðj-
unnar sem stóð að gerð Skylm-
ingakappans, og fá úrbót þess-
ara mála. Ekki er að efa, að
Spilbergur tekur vel í að leið-
rétta þær misfærslur sem
greinilega hafa átt sér stað.
Getur Jón Baldvin sendiherra
einfaldlega leitt Spilberg um sali
Smithsonian og sýnt honum að
það voru íslenskar víkingahetjur
sem gerðu heiminn að því sem
hann er í dag. Eins og Jón hefir
bent á rengir enginn Smithsoni-
an og þar af leiðandi mun Spil-
bergur ekki efast.
Svo er bara að vinda sér í að
finna einhverjar heimildir um
Magnús þennan, svo sagan megi
skrifast í nákvæmum smáatrið-
um. Síðan þarf að fá eriend blöð
til að fjalla um þessa íslensku
hetju og ísland yfirleitt. Þá
munu útlendingar vita að ísland
er mest og best í heiminum -
eins og íslendingar hafa alltaf
vitað.
Reyndar hafa einhverjir menn
með annarlega heilastarfsemi
verið að sífra um að sagan um
Maximus skylmingakappa gerist
árið 180, og þess vegna geti
Maximus ekki hafa verið íslend-
ingur, því að á því ári hafi engir
íslendingar verið til. En mönn-
um sem láta svona verður hik-
laust að svara með staðreyndum,
og munu þeir þá fara að hugsa
rétt, og vita að allar heimsins
hetjur hljóta að vera íslending-
ar.
Háskólinn i Reykjavík - Væntanlegir kerfísfræðingar kynna loka-
verkefnin sín í HR fram á miðvlkudag. Þeir hafa undanfarið unnið
myrkranna á milli að hugbúnaðargerð. Gunnar Hersveinn spurði
nokkra nemendur um verkefnin og forsvarsmenn um námið.
Morgunblaðið/Golli
Védís Siguijónsdóttir var í hópi sem hannaði vefverslun með léttvín.
N etforritun áber-
andi í kerfisfræði
s
% Arlega þarf að skipta um 30-40% námsgagna á nám-
skeiðum 1 tölvunarfræðideild.
% Verkefni eru oft unnin í fyrirtækjum og verða síðar
fullgild vara á alþjóðlegum markaði.
STARFIÐ í Háskólanum
í Reykjavík við Ofan-
leiti umbreytist síðustu
vikur hverrar annar.
Nemendur safnast
saman í hópum til að vinna verk-
efnin sín og skilrúmum er slegið
upp á stofum og göngum. Síðustu
dagana fyrir verkefnaskil er svo
unnið langt fram á nótt og jafnvel
sofið í skólanum. Verkefnum
verður að skila á réttum tíma en
þau eru annaðhvort raunveruleg
verkefni í samstarfi við fyrirtæki
eða þá að látið er eins og þau
væru raunveruleg. Allt þarf að
standast og virka. Nemendum
finnst þetta vera mikil vinna en
jafnframt skemmtilegasti og
mest krefjandi tími annarinnar.
„Mér líkar mjög vel í svona törn-
um,“ segir Védís Sigurjónsdóttir
á 1. ári í tölvunarfræðideild HR,
„þá notum við það sem við höfum
lært, fáum að nýta þekkinguna.“
„Við erum orðnir ansi lúnir,“ seg-
ir Jónas Sigurðsson, eftir að hafa
skilað verkefni um rafrænt sam-
þykktarkerfi, um sig og félaga
sína sem útskrifast í núna í sum-
ar sem kerfisfræðingar frá HR,
en þeir hafa unnið verkefni fyrir
Fakta. Geta má þess að 3. júní
útskrifast einnig fyrstu BS-nem-
endur Háskólans í Reykjavík.
skólar/námskeiö
nudd
Leiðarijós í starfi HR eru ný-
sköpun, tölvu- og tæknivæðing og
alþjóðavæðing. Hlutverk hans á
að vera að efla samkeppnishæfni
íslensks atvinnulífs. Nemendur
eru núna um 430 en gert er ráð
fyrir að fjöldi þeirra verði tæp:
lega 600 á næsta háskólaári. í
HR eru tvær deildir auk
Símenntar; tölvunarfræðideild og
viðskiptadeild. í undirbúningi er
MBA-nám í rafrænum viðskipt-
um. Nefna má að hægt er að taka
1. árið í tölvunarfræði í fjarnámi.
Guðfinna S. Bjarnadóttir, rekt-
or Háskólans í Reykjavík, segir
mikla stemmningu ríkja í skólan-
um þegar verkefnin eru leyst, en
hefðbundin kennsla fellur niður á
meðan. Verkefnavinnan er skyld
hugmyndinni um „Problem based
learning" - eða að nema með því
að leysa verkefni/vandamál.
Guðfinna segir tilganginn m.a.
vera eftirfarandi, að: Vekja at-
hygli á gagnsemi fræðilegra
námsgreina, stuðla að verkþekk-
ingu og verklagskunnáttu, þálfa
„Gott að læra að vinna í hóp“
„Við erum alltaf að gera eitt-
hvað nýtt,“ segir Védís Sigur-
jónsdóttir, en hún er á 1. ári í
kerfisfræði við tölvunar-
fræðideild Háskólans í Reykja-
vík, „þetta er ny'ög krefjandi
svið vegna þess að það þarf að
fylgjast vel með.“ Hún er stúd-
ent frá Fjölbrautaskóla Suður-
lands á Selfossi og var í eitt ár í
almennu tölvunámi í Banda-
ríkjunum.
„Mér líka verklegu tarnimar
vel, að fá að nota það sem mað-
ur hefur lært og nýta þekking-
unu. Það er gott að fá að
spreyta sig upp á eigin spýtur í
skjóli kennaranna."
Henni finnst einnig gott að
iæra að vinna í hóp, enda er
það mikilvægt þegar út í at-
vinnul/fið er komið. „Hiuti af
náminu er að spjara sig f hóp,“
segir hún, „við fáum krefjandi
verkefni sem við þurfum að
leysa saman. Við þurfum að
skipuleggja tíma okkar vei og
standast áætlanir."
Védís og hópurinn hennar
hannaði vefverslun með léttvín,
og þurftu þau að huga að öllu
frá A-Ö: Smíða kerfið og einn-
ig ýmisskonar viðbætur eins og
til að svara spumingum um
hvaða vín henti með tilteknum
mat eða hvað aðrir hafi keypt
sem hafi valið svipað og sá sem
er að velja. Afgreiðslan þarf að
virka og einnig umsjón með
viðskiptavinum.
Hópurinn fékk svo einkunn
fyrir verkið og þurfti einnig að
sýna vöruna; virkni hennar og
fiæði lfkt og á sölusýningum.
Védís segir cinna erfiðast að
velja sér svið innan kerfísfræð-
innar. Eftir það sé svo aðal-
málið að fylgjast vel með.
■ www.nudd.is