Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ h FRETTIR LIU vísar sjómannadeil- unni til sáttasemjara SAMTÖK atvinnulífsins vísuðu í gær fyrir hönd LIU kjaradeilu útvegsmanna og sjómanna til sátta- semjara ríkisins til umfjöllunar og verkstjómar. Hinn 11. maí sl. slitnaði upp úr viðræðum LIU og Sjómannasambandsins og kom samninganefnd sjó- manna saman í gær til að fara yfir stöðuna og und- irbúa næstu skref. Að sögn Hólmgeirs Jónssonar, framkvæmda- stjóra Sjómannasambandsins, bárust fregnir af ákvörðun Samtaka atvinnulífsins um að vísa deil- unni til sáttasemjara inn á fund samninganefndar sjómanna. Hólmgeir sagði að sjómenn væru reiðu- búnir til viðræðna. „Við væntum þess að þeir hafi eitthvað nýtt og ferskt fram að færa. Við erum til- búnh- í viðræður," sagði hann. Hann sagði það nýtt að atvinnurekendur vísuðu deilum til ríkissáttasemjara og þeir hlytu því að hafa eitthvað nýtt í pokahominu. í fréttatilkynningu frá LÍÚ segir að deilunni haf verið vísað til sáttasemjara af tveimur megin ástæðum. Samtök útvegsmanna eigi aðallega þrjá aðila að viðsemjendum, þ.e. Sjómannasambandið, Farmanna- og fiskimannasambandið og Vélstjóra- félagið. Smala ekki öllum í hóp „Flest atriði kjarasamninga varða alla í áhöfn skips og byggjast í aðalatriðum á hlutaskiptum. Því verður ekki samið við þrjá aðila um sama efni nema það sé sambærilegt. Þeir þrír aðilar sem fyrr em nefndir hafa ekki fengist til viðræðna sameiginlega heldur hver í sínu lagi. Sáttasemjari getur boðað þessa aðila til fundar samtímis, þótt hann geti ekki sett þá, gegn vilja þeirra, að sameiginlegu fundar- borði,“ segir í tilkynningu LÍÚ. Hólmgeir segir að þótt útvegsmenn vísi málinu til ríkissáttasemjara fari Sjómannasambandið áfram með sín mál. „Þeir smala ekki öllum í hóp. Við ræðum auðvitað sér um okkar mál á meðan annað er ekki ákveðið. Það breytist ekkert þótt þeir hafi vísað málinu til ríkissáttasemjara," sagði hann. Færri menn í áhöfn vegna nýrrar tækni í annan stað vísa útvegsmenn til þess að þeir hafi gert kröfu til þess að með nýrri tækni sem leysi mannshöndina af hólmi, þannig að hægt sé að hafa færri menn í áhöfn, komi sá hlutur í hendur út- gerðar, en gangi ekki allur til launþega og verði til þess að auka launakostnað í heild ef fækkar í áhöfn. „Slíkt launafyrirkomulag þekkist ekki í neinni at- vinnugrein. Samtök sjómanna hafa ekki viljað fall- ast á þessa kröfu útvegsmanna og því er nauðsyn- legt að fá verkstjórn frá sáttasemjara í umræðu um þetta efni,“ segir í tilkynningu LÍÚ. Togarinn Hannover til við- gerða í Noregi Aætlað að skipið verði 60 daga frá veiðum ÁKVEÐIÐ hefur verið að gert verði við frystitogarann Hannover í Noregi. Ekki er vitað nákvæm- lega hversu langan tíma viðgerðin tekur en áætlað hefur verið að skipið verði frá veiðum í 60 daga. Fram kemur í tilkynningu á Verð- bréfaþingi íslands að miðað við það muni töpuð framlegð Sam- herja og hins þýska dótturfélags þess, sem gerir út skipið, geta numið um 30 milljónum kr. Innlendir og erlendir sérfræðingar meta tjónið Innlendir og erlendir sérfræð- ingar hafa að undanförnu unnið að því að meta tjónið sem varð í elds- voðanum um borð í Hannover. Skipið er mikið skemmt, bæði af eldinum sjálfum og einnig af sóti or reyk. Fram hefur komið í til- kynningu frá Tryggingamiðstöð- inni að Hannover var tryggt fyrir því eignatjóni sem varð í eldsvoð- anum. Fram kemur í tilkynningu Verðbréfaþings að það tjón sem fellur á hið þýska dótturfélag Sam- herja stafi af aflatapi á meðan á viðgerð stendur en tryggingar fyr- ir slíku tjóni tíðkist ekki í útgerð. Dráttarbátur er nú á leiðinni til íslands og verður Hannover dreg- inn til Noregs í lok vikunnar. Eldur kom upp í vélarrúmi Hannover þegar skipið var að veiðum á Grænlandshafi 14. maí sl. Áhöfnin neyddist til að yfirgefa skipið eftir að það var orðið vélar- vana og rafmagnslaust. Engin slasaðist í óhappinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjóböð hefjast að nýju í Nauthólsvíkinni SJÓBÖÐ hefjast að nýju í Nauthólsvíkinni í sumar eftir áralangt hlé, en þar er nú unnið hörðum höndum að því að Ijúka við gerð svokallaðrar ylstrandar. Búið er að dæla um 14 þúsund rúmmetrum af skeljasandi í Naut- hólsvíkina og í sumar er ráðgert að dæla rúmlega 30 gráða heitu affallsvatni frá Orkuveitunni víkina þannig að vatnið þar verði um 18 til 20 gráða heitt að meðaltali. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hyggst vígja ylströndina með því að leggjast til sunds í Nauthólsvíkinni klukkan 14 stundvíslegaáþjóðhátíðardaginn 17.júní. Nýtt kjörtfmabil forseta hefst 1. ágúst Olafur Ragnar Gríms- son sjálfkjörinn forseti NÝTT kjörtímabil forseta ís- lands hefst 1. ágúst næstkomandi og er orðið ljóst að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, er sjálfkjörinn í embættið þar sem hann lagði fram eina gilda fram- boðið sem fram kom áður en framboðsfrestur rann út sl. föstu- dag. Ástþór Magnússon, sem stefnt hafði að framboði, skilaði ekki inn tilskildum fjölda meðmælenda af kjörskrá í Sunnlendingafjórðungi skv. vottun kjörstjórnar að sögn Björns Friðfinnssonar, ráðuneyt- isstjóra í dómsmálaráðuneytinu. Dómsmálaráðuneytið sendir Hæstarétti niðurstöðu ráðuneyt- isins en Hæstiréttur gefur út nýtt kjörbréf þegar nýtt fjögurra ára kjörtímabil forseta Islands hefst 1. ágúst nk. íslandsbanki - FBA hækk- ar vexti SAMKVÆMT fréttatilkynningu frá Islandsbanka-FBA munu vextir verðtryggðra inn- og útlána hækka 1. júní næstkomandi um 0,7 prósentustig. Að sögn bankans er þessi hækkun í samræmi við þá þró- un sem verið hefur á markaðnum að undanförnu. Eftir hækkunina munu innláns- vextir á Sparileið 60 verða 6,00% í stað 5,30% nú. Kjörvextir verð- tryggðra skuldabréfa mimu hækka úr 6,45% í 7,15%. Utlit fyrir að bensín hækki um 3-4 kr. HORFUR eru á því að útsölu- verð á bensínlítra, 95 oktana, hækki um á fjórðu krónu um mánaðamótin. Geir Magnússon, forstjóri Olíufélagsins hf., segir að þessu valdi hækkun á heimsmarkaði. Hann segir að 16. maí hafi verðið hækkað um 8 dollara, og síðan um 10 dollara næstu þrjá daga. Bensínverð er nú það hæsta í tíu ár. Geir segir að hækkunarþörfin um mánaða- mótin verði á bilinu 3-4 krónur. 95 oktana bensín var skráð á 296 dollara síðast í apríl, en er nú 362 dollarar. Meðalverð í apríl á 95 oktana bensíni var 285 dollarar. Geir segir að hér sé um árstíðabundna hækkun að ræða en einnig hafi gert vart við sig taugatitringur um bensínskort í Bandaríkjunum og Evrópu þar sem olíuríkin hafi neitað að auka framleiðslu sína eins og mark- aðurinn er metinn. Til viðbótar þessum hækkunum er dollarinn nú skráður á tæpar 77 krónur, sem er um þremur krónum hærra en meðal sölugengið í apríl, sem var um 74 dollarar. * Islendinga- sögur á kínversku FYRSTA útgáfa íslendinga- sagna á kínversku kom nýverið út í Kína. Gefnar eru út sjö Is- lendingasögur í tveimur bind- um, alls 1140 blaðsíður. Fyrra bindið hefst með Vín- landssögunum - Grænlendinga- sögu og Eiríks sögu rauða - í til- efni af þúsund ára afmæli landafunda Leifs Eiríkssonar í Vesturheimi. Aðrar sögur í bindinu eru Vatnsdæla saga og Njála. I síðara bindinu eru Laxdæla saga, Egils saga og Gunnlaugs saga ormstungu. Fjórir Kínverjar þýða sögum- ar, en umsjónarmaður verksins, ein þýðenda og aðalritstjóri var frú Shi Qing’er. Útgáfuna prýða 28 teikningar sem sex íslenskir myndlistarmenn hafa gert. Ein elsta og virtasta bókaút- gáfa í Kína, Commercial Press, gefur Islendingasögumar út. Menntamálaráðuneytið styrkti útgáfuna og Fasteignasjóður- inn styrkti gerð myndskreyt- inganna. Bækurnar era fyrst í stað gefnar út í 5.000 eintökum sem dreift er í Kína og í nokkram öðram löndum þar sem kín- verskumælandi fólk er fjöl- mennt. I I Sérblöð í dag stomt Á ÞRIÐJUDÖGUM Heimili
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.