Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í CANNES Kvikmyndin Dancer in the Dark fékk Gullpálmann á Kvikmyndahátíðiimi í Cannes Takk, Björk Nokkrir af helstu kvikmyndagerðarmönnum í heimin- um tóku á móti verðlaunum á kvikmyndahátíðinni í Cannes á sunnudagskvöld. Pétur Blöndal fylgdist með afhendingunni og sat blaðamannafund að henni lokinni. „Fyrst af öllu verð ég að segja takk við Björk. Þar sem ég veit að hún trúir því ekki þegar ég segi það, ef þið hittið hana, segið henni að ég elski hana,“ sagði Lars von Trier er hann tók við gullpálmanum ásamt frönsku leikkonunni Catherine Deneuve. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Björk og danski leikstjórinn Lars von Trier virða fyrir sér verðlaunagripina en Trier fékk Gullpálmann fyrir mynd sína Dancer in the Dark og Björk leikur aðalhlutverkið í myndinni. AÐ liggur í loftinu að Björk vinni til verðlauna á kvik- myndahátíðinni í Cannes, jafnvel þótt AP og Reuters spái Lenu Endre úr mynd Liv Ullman sigri. Björk er burðarás myndarinnar Dancer in teh Dark í hlut- verki sem engin önnur hefði getað leikið eftir. Það rennir stoðum undir þennan grunn, að snemma á sunnudag er Ijósmyndari Morgunblaðsins einn af fáum sem fá að mynda sjálfa verðlaunaafhending- una. Það er því með óþreyju að blaðamaður fylgist með keppninni og röð af verðug- um verðlaunahöfum, þar til kemur að stóru stundinni... Sigur kallar á vandræði „Þessum verðlaunum deili ég með öllum ungum kvik- myndagerðarmönnum sem burðast við að hasla sér völl,“ segir Raymond Red, sem fær fyrstu verðlaun kvöldsins, Gullpálmann fyrir bestu stuttmyndina. „Eg vona að þeir haldi áfram að lesa og gera kvikmyndir; að þetta verði þeim innblástur,“ segir hann og hampar styttunni. Þetta eru fyrstu verðlaun sem kvikmynd frá Filippseyjum fær í um tvo áratugi. Red hefur þegar leikstýrt tveimur kvikmyndum í fullri lengd og verið með þá þriðju í bígerð í sjö ár, en ekki getað útvegað nóg fjármagn. Hann sneri sér því aftur að stuttmyndagerð sem hann hafði áður unnið við í átta ár. „Það á eftir að valda mér erfiðleikum að vinna hérna,“ segir hann brosandi, „í þeim skilningi að nú verður meira að gera hjá mér.“ Utlit er fyrir að hann fái kvikmyndina fjár- magnaða, en hún gerist á Filippseyjum í her- námi Japana. Sú yngsta verðlaunuð íraninn Samira Makhmalbf er aðeins tvítug og yngsti leikstjórinn sem valinn hefur verið með mynd sína í aðalkeppnina í Cannes. í of- análag vinnur myndin, sem nefnist „Dakhté si- ah“, dómnefndarverðlaun. „Ég vil segja eitt- hvað fyrir hönd ungu kynslóðarinnar í heimalandi mínu,“ segir hún, svo hrærð að hún á erfitt um mál. „Ég vil helga þessi verðlaun hetjulegri baráttu ungu kynslóðarinnar fyrir lýðræði og betra lífi í íran.“ Með einlægri framkomu sinni og orðum sínum vinnur hún hug og hjörtu hátíðargesta. Á blaðamanna- fundinum segist hún ekki einungis hugsa myndir sínar fyrir írönsku þjóðina „þær eru hugsaðar íyrir fólk um allan heim og þver- skurður þess er hér í Cannes, hringiða mis- munandi menningarstrauma og ólíkara skoð- ana“. Tími bjartsýni og sjáifstrausts Sænska myndin Söngvari af annarri hæð fær einnig dómnefndarverðlaun en leikstjór- inn Roy Anerson hefur unnið að henni í fjögur ár. Raunar er liðinn aldarfjórðungur síðan hann gerði síðustu kvikmynd sína í fullri lengd, en síðan þá hefur hann unnið að auglýsingum og stuttmyndum. Var biðin þess virði? spyr blaðamaður Morgunblaðsins. „Já,“ svarar hann heilshugar. „Ég hef unnið lengi að myndinni og veit að hún er sér á parti; ekki að það út af fyrir sig sé sér- stakt metnaðarmál hjá mér, heldur langaði mig til að breyta tungumáli kvikmyndatökunn- ar. Það er heiður að eiga mynd í keppninni, því hún hefur verið valin úr hópi þúsund annarra." Hann segir það gott fyrir kvikmyndagerðar- menn að komast á hátíðir og ekki síður að vinna til verðlauna. „Það hjálpar þeim að kom- ast lengra og fá fleiri myndir fjármagnaðar, sem dæmi má nefna Carkofsky og Bunuel. Þetta er líka gott fyrir Svíþjóð eftir nokkurra ára niðursveiflu. Það er kominn tími til breyt- inga, bjartsýni og meira sjálfstrausts." Það er gráglettni örlaganna að fyrsta kvik- mynd sem Nel Labute leikstýrir ekki eftir eig- in handriti skuli einmitt fá verðlaun fyrir besta handrit. John C. Richards og James Flamberg fá verðlaunin, en myndin „Nörse Betty“ fjallar um þjónustustúlku í litlum smábæ í Kansas. Hana dreymir á hverjum degi um hina „sönnu ást, sem leikur lækni í uppáhlads sápu- óperu hennar. Þegar eignmaður hennar er myrtur eftir misheppnuð eiturlyfjaviðskipti, flýr hún á vit stórborgarinnar Los Angeles til þess að hafa uppi á draumaprinsinum, elt af eiturlyfjasölunum, sem myrtu eiginmann hennar. Rússneski leikstjórinn Pavel Lounguine tekur við verðlaunum fyrir leikhópinn í mynd sinni „La Noce“, sem fær sérstaka viðurkenn- ingu. „Þetta er sanngjarnt því það voru engin stór hlutverk í myndinni," segir hann. „Hún er uppfull af smábæjum, lífi og fólki og allir þeir sem komu fram gáfu af sér af örlæti, sem var ómetanlegt. Það fyrsta sem ég geri þegar ég sný aftur verður að heimsækja þau og eigna „ÞAÐ hefur alltaf verið áætlunin að sýna myndina Dancer in the Dark á sama tíma hér á landi og hún verður frumsýnd ann- ars staðar,“ segir Anna María Karlsdóttir, framkvæmdastjóri íslensku kvikmynda- samsteypunnar hf. sem sér um dreifingu myndarinnar á íslandi. Að öllum likindum verður myndin frumsýnd hér á landi um miðjan september en ekki hefur verið gengið frá endanlegri dagsetningu frumsýningar. Að sögn Onnu Maríu mun það m.a. ráðast af dagskrá islensku kvik- myndahúsanna. Anna María segir þó vera ljóst að for- ráðamenn fslenskra kvikmyndahúsa muni gera allt sem þeir geta til að hliðra til fyr- ir myndinni. Það ráðist einnig af al- þjóðadreifingu á myndinni svo og útkomu þeim verðlaunin. Þetta er mynd sem þarf að skoða með hjartanu en ekki höfðinu." Erfiðasta mynd ferilsins Leikstjórinn litríki John Waters er næstur á svið og afhendir verðlaun fyrir bestu leik- stjórn. „Trúið mér, það er langur vegur frá Mambo Trash og Götum Baltimore á þessa há- tíð,“ segir hann áður en hann afhendir taí- vanska leikstjóranum Edvard Yang-verðlaun- in fyrir myndina Einn og tveir eða „Yi yi“. Tony Leung er verðlaunaður fyrir besta leik í karlhlutverki í myndinni Ástarhugleiðingum eða „In the Mood for Love“. Hann segir þetta erfiðustu mynd ferils síns, en þrátt fyrir það er tónlistarinnar en áformað er að af henni verði 25. september næstkomandi. Hún segist ekki eiga von á því að myndin verði frumsýnd hérlendis fyrr en í september en bætir þó við að margt geti breyst. Anna María segir að slegist sé um að sýna myndina á fleiri kvikmyndahátíðum en það sé í höndum danska fyrirtækisins Zentropa að ganga frá þeim samningum. En þar sem hátíðin f Cannes er stærsta kvikmyndahátíð í heimi segist Anna María ekki reikna með að mikil áhersla verði lögð á að sýna myndina á fleiri hátfðum. Anna María segist ekki eiga von á öðru en að fjárfesting íslensku kvikmyndasam- steypunnar, sem er um 10%, skili arði en það komi þó ekki endanlega í ljós fyrr en kvikmyndin verði sýnd hér á landi. hann þegar búinn að ákveða að leika í annarri mynd, 2046, eftir sama leikstjóra, Wong Kar- wai, og tökm- á henni hefjast í haust. „Mér lík- ar hvernig hann leikstýrir myndum sínum,“ segir hann. „Þær bera vott um ákveðið hand- bragð, koma á óvart, eru nútímalegar og reyna á þolrifin á leikaranum. Ég veit aldrei fyrir fram hvernig myndin þróast. Við tökum ógrynni af efni og eina haldreipið er sögupers- ónan sem maður leikur.“ Besson syngur fyrir Björk Það liggur í loftinu hver verður valin besta leikkonan, allt frá því Björk sást ganga upp rauða dregilinn við mikil fagnaðarlæti. Luc Besson, formaður dómnefndarinnar, tilkynnir verðlaunahafann með óvenjulegum hætti. „It’s oh so quiet“ syngur hann. Enn og aftur ætlar allt um koll að keyra af fögnuði. „Ég er mjög þakklát. Þakka ykkur kærlega fyrir,“ segir Björk í annan hljóðnemann, svo snýr hún sér að hinum: „Ég er mjög þakklát. Þakka ykkur kærlega íyrir.“ Þá kemur James -Caan á sviðið til að afhenda aðalverðlaun dómnefndarinnar og byrjar á því að þakka aðstandendum hátíðarinnar fyrir að nefna há- tíðina eftir sér. Svo afhendir hann kínverska leikstjóranum Jiang Wen-verðlaunin fyrir myndina „Guizi Lai Le“. Getið þig skilað til Bjarkar... Þegar svo er komið sögu er ljóst að Dancer in the Dark hreppir Gullpálmann því Lars er eini leikstjórinn í keppninni sem er viðstaddur og hefur ekki verið verðlaunaður. Engu að síð- ur eru fagnaðarlætin mikil þegar hann er kall- aður upp á svið og tekur við þessum langþráðu verðlaunum. „Vá,“ segir hann. „Ég hef verið hér sex sinn- um, því Gelles Jacob [hátíðarstjórinn] hefur verið mér góður í gegnum tíðina, þótt ég viti ekki hvort hann hefur mikið vit á kvikmynd- um.“ Þótt Trier hafi áður unnið til verðlaun er þetta í fyrsta skipti sem hann fær Gullpálm- ann. „Fyrst af öllu verð ég að segja takk við Björk. Þar sem ég veit að hún trúir því ekki þegar ég segi það, ef þið hittið hana, segið henni að ég elski hana.“ Myrkradansari líklega frumsýnd hér á landi í haust
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.