Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 35
LISTIR
Lifandi og fallegur leikur
TOJVLIST
Frfkirkjan
KAMMERTÓNLEIKAR
MINGUET-KVARTETT-
INN
lék verk eftir J.S. Bach, Haydn,
Kurtag og Mendelssohn. Sunnu-
dagurinn 21. maí, 2000.
MINGUET-kvartettinn er sagð-
ur stofnaður í Diisseldorf árið 1988
og hann skipa Ulrich Isfort og
Annette Reisinger, bæði á fiðlu,
Irene Schwalb á lágfiðlu og
Matthias Diener á selló. Þetta eru
ungir og frábærir hljóðfæraleikar-
ar, sem leika af töluverðum ákafa,
leggja mikla áherslu á sterkar
andstæður í styrk og á köflum
nokkuð tilfinningaþrungna túlkun.
Meginverkefni tónleikanna voru
átta fúgur úr Die Kunst der Fuge,
eftir Johann Sebastian Bach.
Fyrsta fúgan (Contrapunctus I) er
einföld fúga, þar sem unnið er að-
eins með aðalstefið. Fúgu má líkja
við leikhúsverk, þar sem ákveðin
atburðarás er tilgreind í upphafl,
Kórtón-
leikar í
Hjalla-
kirkju
KÓR Hjallakirkju heldur vor-
tónleika í Hjallakirkju annað
kvöld, miðvikudagskvöld, kl.
20.30. Flutt verða verk úr
ýmsum áttum og af ýmsu tagi,
bæði kirkjuleg og veraldleg.
Auk venjubundins kórsöngs
verður boðið upp á kvartett-
söng, bæði blandaða kvartetta
og karlakvartett, einnig ein-
söng, tvísöng og kvennakór.
Einsöng og tvísöng syngja
þau María Guðmundsdóttir
sópran, Gréta Jónsdóttir
mezzosópran, Hákon Hákon-
arson tenór og Gunnar Jóns-
son bassi, en þau eru öll úr
röðum kórfélaga. Undirleikari
með kórnum er Lenka Máté-
ová.
t.d í fúgu nr. 2 (Contrapunctus 2)
er aðalstefið eins og í nr. 1 en
mótraddirnar í punkteruðum hryn.
í fúgu nr. 3 og 4, er aðalstefið leik-
ið í spegilmynd en mótraddirnar í
nr. 3 eru krómatískar og í nr. 4
eru mótraddirnar ekki eins
krómatískar en þó má merkja eft-
irtektarverð tóntegundaskipti í
seinni hluta fúgunnar. Nr. 6 er í
frönskum stíl þar sem heyra má
aðalstefið í punkteruðum hryn.
Mótraddirnar eru byggðar á aðal-
stefinu en í styttri hrynskipan og
bæði í réttri skipan og spegilmynd,
þannig að úr verður vinnuaðferð
sem oft er nefnd „stretto" en á ís-
lensku „skörun". Nr. 9 er því
stefjafúga og einnig nr. 10 en sam-
kvæmt útgáfu Hans Gal, er síðasta
fúgan nr. 19, en ekki 18, eins og
stendur í efnisskrá, sem stafar af
því, að 18. fúgan er sama fúgan og
nr. 17 en umrituð fyrir tvo samb-
ala. Tónleikunum lauk svo með
kóralforspili, sem aðeins var nefnt
„kóral“ í efnisskrá. Alla þættina
lék Minguet-kvartettinn mjög vel;
gáfu flytjendur hverjum kafla sér-
stakan „karakter" og með þeim
skýrleika, að unun var á hlýða.
Inn á milli fúgu þáttanna voru
flutt þrjú verk, fyrst strengja-
kvartett op. 20, nr. 5 eftir Haydn,
einn af „stóru sólarkvertettunum".
Sá fimmti þykir vera sérlega
„sorglegur" miðað við önnur verk
Haydns en fjórði kaflinn er tví-
stefja fúga. Fyrsti kaflinn og men-
úettinn voru afburða vel fluttir en
hægi þátturinn var einum of hrað-
ur, án allrar alvöru. Lokakaflinn,
tvístefja fúga, var glæsilega leikin,
en aðalstefið er að tónbyggingu
eins og eitt af frægari stefjum
Bachs, sem Mozart notaði einnig í
frægri fúgu.
Offícium breve, eins konar
„stutt skylduverkefni", eftir Gy-
örgy Kurtag (1926), rúmenskt tón-
skáld, var eina nútímaverkið á efn-
isskránni, samið 1990 og er það að
formi til nokkrir stuttir þættir,
sem hver fyrir sig er byggður á
sérstakri útsetningaraðferð, eins
konar „sýnisbók“ í vinnuaðferðum.
Margt var skemmtilega gert í
þessu verki og var það hreint ótrú-
lega vel flutt af Minguet-kvartett-
inum. Svona runuverk geta verið
leiðinleg, að því leiti til að viðdvöl-
in er aðeins örstutt sýning, músik-
alst „snæljós", án þess að efnið sé
nokkru sinni gaumgæft eða hug-
leitt að einu eða neinu leiti og allt
búið, þegar efnisskipan hefur verið
kynnt og meðtekin.
Capriccio eftir Mendelssohn var
þriðja innskotsverkið og er þetta
sérstakur kvartett-þáttur, reyndar
tveir samtengdir og merktur op.
81/3. Til eru tveir aðrir þættir 81/
1 og 2 og eru þessir þættir með því
síðasta sem Mendelssohn samdi og
ekki vitað hvort þeir hafí verið
hugsaðir sem eitt verk. Kaprísan
er sérlega skemmtilegt verk en
seinni hlutinn er frjálslega unnin
fúga eða fúgato, er var leikin í því-
líkum hraða og af sérlegum glæsi-
brag, að vart verður betur gert.
Tónleikar þessir hefðu sómt sér
sem sérstakir tónleikar á listahátíð
fyrir fullu húsi áheyrenda, sem
vanir eru að hlýða á afburða góða
kammertónlist og gera kröfur
varðandi flutning, því hiklaust má
telja þessa tónleika með því eftir-
minnilegasta, sem gefið hefur að
heyra á vettvangi kammertónlistar
hér á landi um langt skeið, fyrir
lifandi og sérlega fallega útfærðan
leik Minguet-kvartettsins.
Jón Ásgeirsson
A
Astin og fylg’ifiskar
á tónleikum
Sameiginleg dagskrá
Þriðjudagur 23. maí.
Þjóðleikhúsið - Hvert örstutt
spor. Kl. 20.30.
Endurteknir tón-
Wm leikar á Listahátíð
semTónskáldafé-
~ higiö hefur veg og
W vanda af. Flutt verður dag-
^ skrá sem samanstendur af
tón- list og söngvum úr leikhúsinu.
www.listir.is.
www.artfest.is.
ÞORUNN Stefánsdótt-
ir, mezzosópi’an, heldur
tónleika í Ymi, Skógar-
hlíð, í kvöld, þriðju-
dagskvöld, kl. 20.30. Yf-
irskrift tónleikanna er
Ástin og fylgifiskar og
vísar til þess að ástin á
sér ýmsa fylgifiska,
sem tengjast m.a. óör-
yggi, ótta við höfnun,
afbrýði, reiði og hefnd-
arhvöt, sorg og sökn-
uði. Með Þóninni koma
fram á tónleikunum
Jón Rúnar Arason ten-
ór og Claudio Rizzi
píanóleikari.
Á efnisskrá eru ís-
lensk og erlend lög, auk aría og
dúetta úr óperettunum II Trovadore,
Cavalleria Rustieana og Don Carlo.
Þórunn lauk áttunda stigi í söng
frá Tónlistarskóla Garðabæjar árið
1996 og burtfararprófi frá Söngskól-
anum í Reykjavík vorið 1998. Aðal-
söngkennari hennar hefur verið
Snæbjörg Snæbjarnardóttir. Þór-
Þórunn
Stefánsdóttir
unn hefur einnig sótt
söngtíma og námskeið
heima og erlendis hjá
André Orlowitz, Hel-
ene Karuso og Jóni
Rúnari Arasyni.
Þórunn hefur komið
víða fram og m.a. hald-
ið tvenna einsöngstón-
leika. Hún komst í úr-
slit TónVakakeppni
RÚVárið 1997.
Claudio hefur verið
píanóleikari með Kór
Islensku óperunnar
frá því haustið 1997.
Hann lætur af störfum
hjá Islensku óperunni
nú í vor og
mun halda til starfa til Þýska-
lands.
Jón Rúnar Arason tenór söng hjá
Magnúsi Jónssyni við Söngskólann í
Reykjavík. Frá árinu 1992 hefur
hann starfað erlendis og sungið m.a.
hlutverk Pinkertons í Madama Butt-
erfly, Turiddu í Cavalleria Rusticana
og Rodolfo í La Bohéme.
Otskriftargjöf sem gleður
Eitt vandaðasta úr veraldar
----------- ÚTSÖLUSTAÐÍR: -----------------
ión & Óskar j Klukkan Georg V. Hannah ! Meba
Laugavegi 61 Hamraborg ' Keflavík í Kringlunni
I I
íílouricc locroix
Switzerland
verð frá
kr.18.800
til 547.000
Árið 2000
Veldu
eitinyak
mánaðarins
ú s
og þú gætir unnið kvöldverð fyrir tvo!
______________________________________________________
Sendist til:
Morgunblaösins, merkt "Veitingahus mánaöarins", Kringlunni 1, 103 Reykjavík
Veitingahús mánaöarins er:
W9
m
Nafn:
I Kennitala:
Simi:
Heimilisfang:
Umsögn:
Einnig hægt aö velja á icelandic-chefs.is Gildir ut áriö 2000. Skilist fyrir 1. hvers mánaðar.
REVKJAVÍK
MINNINOARIORd IVRÖrU
ARIN 2000
reykjavik2000.is
>
GOLFBUDIN.IS
www.golfbudin.is - Email: golfbudin@golfbudin.is
Vinsældum Alfa 156 á íslandi og í Evrópu má fyrst og fremst
giaesilegri hönnun og frábærum aksturseiginleikum.
álfelgum, með rafdrifnum
„„ á 1*^.0 verði
armhvílu á
en nokkru sinni eða kr. 2.025.000