Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 41 1 uma á því, hvað þetta hefðu verið þroskaðir einstaklingar og áhuga- samir um að aðstoða aðra. Starf gegn einelti Erla Tryggvadóttir og Elín Jó- hannsdóttir em nemendur í 8. bekk Garðaskóla. Þær hafa setið nám- skeiðið um jafningjastarf og undir- búið sig sem nemendaráðgjafar. Erla segist hafa boðið sig fram eft- ir að Helga María kennarinn þeirra kynnti þetta fyrir þeim. Við höfum lært mikið um samskipti á námskeið- inu og getum kannski aðstoðað aðra þess vegna. Við vorum 30 nemendur á nám- skeiðinu, en bara 3 strákar. Erla segist ekki hafa neina skýringu á því hvers vegna voru svona fáir strákar, aðra en þá kannski að það voru svo margar stelpur sem sóttu um að þeir hafi kannski orðið feimnh’, svo em strákar stundum tregh’ til að prófa eitthvað nýtt, bætir hún við. Elín segir ástæðuna fyrir því að hún sótti námskeiðið hafi verið að sig langaði til þess að hjálpa krökkum sem hafa lent í einelti, ég þekki krakka sem hafa lent í því. Vinir mín- ir leita oft til mín, þeim finnst gott að tala við mig, þannig að það er eigin- lega þeim að þakka að ég fór á nám- skeiðið. Vinkona mín bað mig um að sækja um þetta. Hún kemur í skól- ann á næsta ári, - hún er árinu yngri en ég. Elín segist sjálf hafa lent í svona hálfgerðu einelti. Ekki kannski einelti heldur stríðni. Erla segist aldrei hafa verið lögð í einelti, en hún þekki marga krakka sem lagðir hafa verið í einelti. Erla er frá Akureyri og talaði það sem hún kallar t-mál þegar hún byrjaði í skólanum og þá hafi henni oft verið strítt þess vegna. Það var svolítið erfitt. Ég var spurð að því hvort ég kynni ekki að tala og svona ýmislegt. Svo það var svolítið óþægilegt. Þær Erla og Elín era sammála því að sögur sem þær hafi heyrt af grófu einelti hafi ýtt við þeim og gert það að verkum að þær vildu taka þátt í því að koma í veg fyrir það. Erla segist hafa komið inn í skól- ann í 8. bekk eins og aðrir Álftnes- ingar, en ekki 7. bekk eins og úr skól- unum í Garðabæ. Okkur var tvístrað, ég var til dæmis bara með tveimur bekkjarfélögum mínum áfram. Ég held samt þetta sé skárra en að hafa okkur áfram saman í bekk af því þá tæki það okkur miklu lengri tíma að kynnast hinum krökkunum í skólan- um. Við sitjum oftast saman í frímín- útum. Krakkarnir í Garðabæ era oft- ast með okkur. Þannig að þetta gengur allt upp. Elín segir að mörgum krökkum finnist betra að tala við aðra krakka um það sem þau upplifa, heldur en fullorðið fólk. Næsta vetur verðum við í 9. bekk og þá eram við nýbúin að ganga í gegnum allt það sem þau era að upplifa. A námskeiðinu lærð- um við bæði að kynnast okkur sjálf- um og tjá okkur án þess að nota orð. Erla segii- að þau hafi lært að bera virðingu fyrir öðrum og vera traust. Maður má t.d. alls ekki tala um það sem krakkarnir segja okkur, nema með þeirra leyfi og svo þarf maður að kunna að hlusta. Reinald Guðmundsson og Ingvar Árnason era tveir af þeim þremur strákum sem tóku þátt í námskeið- inu. Þeir era báðir í 9. bekk. Ingvar telur ástæðuna fyrir því að ekki voru fleiri strákar á námskeiðinu þá, - að þetta sé bara eitthvað viðkvæmt mál hjá strákum. Þeir séu feimnir og þori ekki að stíga fram og vera öðravísi en hinir strákarnir. Reinald telui- það aðallega félags- legt atriði. Það er strákarnir beijist við að halda sjálfsímyndinni. Töff- araímyndinni, bætir Ingvar við. Þeir Reinald og Ingvar vora samt á því að það væri svolítið flott að vera nemendaráðgjafi, það era ekki allir sem fá að vera það. Þeir sögðu nám- skeiðið vera búið að vera mjög fínt. skólar/námskeið nudd ■ www.nudd.is Arkitekt- úr - ný námsleið A myndlistarbraut í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti var í fyrsta sinn boðið upp á undir- búningsnám í arki- tektúr. Gunnar Hersveinn fór og kynnti sér námsleiðina. UNDIRBÚNINGUR fyrir arki- tektanám er nýjung í Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti. Fjórða árs nemar á myndlistarbraut þai- geta tekið eina önn í þeim fræðum, m.a. áfanga í hug- myndafræði hönnunar og tölvu- studdri hönnun. Áfanginn er 18 ein- ingar. Á myndlistarbraut FB er boðið upp á nám í framgreinum myndlista en vegna aukins fjölda nemenda á listasviði og þarfar atvinnulífsins fyr- h- þekkingu í hagnýtum greinum hef- ur verið ákveðið að auka námsfram- boðið og áherslur. Aðfaranámið í arkitektúr er hluti af þeirri viðleitni. Listhönnun, sviðshönnun, gullsmíði og ljósmyndun eru einnig þættir sem huga á að. Fyrst um sinn verður lögð áhersla á arkitektúr, form og rýmis- hugsun og snertiflöt arktitektúrs við aðrar Iistgreinar þar sem nemendur kynna sér fagið út frá nokkrum for- sendum; tilftnningum, listasögu, heimspeki, efnahag, fagurfræði. Skipulögð kennsla í arkitektúr á framhaldsskólastigi heíúr ekki átt sér stað hérlendis áður og styrkti menntamálaráðuneytið undirbúning þess, undir liðnum Nýskipan náms á listasviði. Starfshópur kennara í FB var myndaður vegna þessa þróunar- verkefnis og varð leitað fanga hjá starfandi arkitektum hér á landi og hjá skólum erlendis. Stuðst var einn- ig við skýrslu sem unnin var fyrir Listaháskóla íslands um arkitekta- deild, og Helgi Gíslason og Ingiberg Magnússon kennarar fóra utan fyrir tilstuðlan styrks úr Leonardo verk- Morgunblaðið/Golli Sigríður Ásgrímsdóttir (upplýsinga- og tæknibraut FB), Ingiberg Magnússon og Magnús Ingvason sem hefur umsjón með Sumarskóla FB. Morgunblaðið/Golli Gíraffahús eftir Ingibjörgu Evu Pálsdóttur. menntaáætlun ESB og kynntu sér þetta nám í Danmörku og Svíþjóð. Þá var einnig haft samráð við rektor Há- skóla Islands. Jafnframt var leitað fanga hjá Krabbesholm Hojskole í Danmörku sem þekktur er fyrir góð- an árangur í kennslu að fornámi arki- tektúrs. Sérstaða hönnunamáms í FB verður sú að vera mjög listtengd, en nemendur taka sama aðfaranám og á myndlistarbraut. Nemendur hafa áður lokið 38 einingum í mynd- listargreinum. Hvernig eru gíraffahús? Ingiberg Magnússon myndlista- kennari segir að önnin hafi heppnast mjög vel, enda hafi undirbúningurinn verið góðim. „Eftir að nemendum tók að fjölga á myndlistarbraut gafst tækifæri tO að vinna að nýjum náms- leiðum innan hennar,“ segir hann, „við höfum undirbúið nemendur í fag- urlistum fyrir háskólanám og brautin jafngilt fornámi í Mynd- og handlista- skólanum, nú Listaháskóla íslands.“ Á þessu skólaári vora 44 nemendur á fjórða ári og ákváðu 10 þeirra að leggja stund á þessa nýju námsleið í arkitektúr, 18 einingar og 36 stundir á viku. Námsleiðin tók mið af fjög- urra ára undirbúningi og sérstaklega kennsluáætlunum Krabbesholm Hojskole í Danmörku. Einnig var Guja Dögg Hauksdóttir, arkitekt hjá Gláma/Kím, ráðgjafi vegna námsins. Helstu þættir þess vora: Mælingar og hlutfallsteikningar í húsakynnum Arbæjarsafns. Verkleg Ijós- og rým- isfræði. Hugmyndafræði og form- rannsóknir. Verkstæðisvinna/mód- elsmíði. Lokaverkefnið fólst í því að hanna og smíða gíraffahús, sem bæði væri hentug fyrir dýrin og þá sem kæmu í heimsókn að skoða dýrin, en húsið var hugsað sem hluti af dýragarði. Mjög skemmtilegar byggingar urðu til af þessu tilefni, m.a. hús sem hang- ir yfir tjöm, og önnur bygging sem þar sem formhugmyndin var sótt í járnklippur. Sumar- skóliFB -• SUMARSKÓLI FB verður starfræktur í sumar, 7. árið frá 1990. Mikil reynsla hefur fengist með árunum og eru nemendur á þriðja hundrað á hverju ári og fer ijölgandi. Kennt er í skólanum frá 29. maí til og með 23. júní, en kennslan hefst kl. 17:30. Boðið er upp á 50 áfanga í skólanum. Meðal kennslu- greina má nefna alla al- menna áfanga, s.s. íslensku, stærðfræði, ensku, dönsku, þýsku, frönsku, spænsku, bókfærslu, flestar raungrein- ar, tölvufræði, félagsfræði, grunnteikningu, markaðs- fræði, sagnfræði, tjáningu, upplýsinga- og tölvufræði, vélritun, stafsetningu og við- skiptareikning. Ymislegt nýtt er á döfínni í sumar. Tölvufræðsla er fyrir- ferðarmikil í kennsluskrá skólans. Boðið er upp á nokkra tölvuáfanga, þ.á m. fyrir byrjendur og nýjan áfanga sem heitir upp- lýsinga- og tölvunotkun. Markmiðið er að hægt sé að finna áfanga við hæfí. Þá fer Sumarskóli FB af stað með athyglisverða til- raun í sumar sem er 0- áfangar í kjarnagreinum fyr- ir 10. bekkinga. Margir nem- endur úr 10. bekk þurfa og vilja undirbúa sig vel fyrir nám í framhaldsskóla og þarna sé tilvalin leið til þess. I fyrra hafi stærðfræði fyrir 10. bekkinga verið kennd og hafi færri komist að en vildu. Núna eru fleiri áfangar eru í v boði. Innritað er í skólanum 18., 23., 24. og 25. maí frá kl. 16:00 til 19:00 og einnig 27. maífrákl. 10:00 til 13:00. Finna má frekari upp- lýsingar um Sumarskóla FB á vefsíðunni fb.is. Magnús Ingvason og Einar Arnalds Jónasson, umsjónarmenn Sumarskóla FB. Nánari upp- lýsingar gefur Magnús í min@fb.is eða í s. 570-5613. Les allar tegundir greiöslukorta sem notuö eru á íslandi. Er meö lesara fyrir snjallkort og segulrandarkort. Hraövirkur hljóðlátur prentari. MAURICE lacroix Switzerland ÚTSÖLUSTAÐiR: ------------- Úr & Diásn Garðabæ Jón & Óskar Klukkan Georg V. Hannah Laugavegi 61 Hamraborg i Keflavík Meba Kringlunni • •• Eitt vandaðasta úr veraldar V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.