Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNIl, 103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Sleipnir sam-
þykkir boðun
verkfalls 8. júní
FELAGSMENN í Bifreiðastjórafé-
laginu Sleipni samþykktu á fundi í
gærkvöldu tillögu um boðun vinnu-
stöðvunar sem hæfíst á miðnætti 8.
júní. 72 greiddu tillögunni atkvæði
sitt en 2 voru henni andvígir. Ef til
verkfalls kemur mun það ná til um
160 manns.
Óskar Stefánsson, formaður
Sleipnis, segir að samningaviðræður
að undanfömu hafi ekki borið neinn
árangur. Hefur deilunni við atvinnu-
rekendur verið vísað til ríkissátta-
semjara og verður næsti sáttafundur
'< ' '*haldinn í dag.
Samkvæmt upplýsingum Óskars
barst bréf inn á fund Sleipnis í gær
frá Samtökum ferðaþjónustunnar,
sem sent hefur verið til hópferða- og
sérleyfisfyrirtækja innan samtak-
anna vegna atkvæðagreiðslu Sleipn-
is um boðun verkfalls. Þar segir að
það sé alveg ljóst að Samtök ferða-
þjónustunnar láti ekki fámennan
þrýstihóp rústa því launasamkomu-
lagi sem gert hafi verið við megnið af
launamönnum á almenna vinnu-
markaðinum. Samtök atvinnulífsins,
sem fari með samningsumboðið, séu
bundin af þeim samningum sem
gerðir hafi verið að undanfornu. Ef
Sleipnismenn fari í verkfall til að ná
fram því sem lagt sé upp með í kröfu-
gerð verði það langt og strangt því
þar séu fjölmörg atriði sem ekki sé
hægt að verða við.
Vélsleðamennirnir á batavegi
Flugu 15 metra
í frjálsu falli
VELSLEÐAMENNIRNIR tveir,
sem fluttir voru á Landspítalann í
Fossvogi eftir slys við Hrafntinnu-
sker á laugardagsmorgun, eru á
batavegi og verða undir eftirliti
lækna næstu daga á sjúkrahúsinu.
Annar þeirra hrygg- og handleggs-
brotnaði en hinn er m.a. með
sprungna mjaðmargrind á fimm
stöðum auk þess sem hann hlaut inn-
vortis meiðsli. Batahorfurnar eru
engu að síður góðar hjá báðum hinna
slösuðu, að sögn Arnar Ottóssonar,
annars þeirra. Hann segir að þeim
félögum verði líklega haldið á
sjúkrahúsinu fram yfir helgi.
■. Að sögn Arnar lentu þeir félagar,
sem eru báðir þaulvanir fjallamenn,
ofan í geil rétt sunnan við Hrafn-
tinnusker við mjög slæm birtuskil-
yrði. Þeir óku fram af brún geilar-
innar og flugu um 15 metra áfram í
lausu lofti áður en þeir féllu niður um
sex metra og lentu harkalega utan í
ísuðum bakka við fjærenda geilar-
innar. Þeir voru hvor á sínum sleðan-
um ásamt tveimur vélsleðamönnum
til viðbótar á leið inn að Álftavatni
þegar slysið varð og var þyrla Land-
helgisgæslunnar kölluð út tU að
flytja þá til Reykjavíkur á sjúkrahús.
Morgunblaðið/Ásdís
Helgi Tómasson, listrænn stjórnandi San Francisco-ballettsins, leiðbeinir ungum nemendum í Listdansskólan-
um sem munu taka þátt í uppfærslu hans á Svanavatninu í Borgarleikhúsinu.
San Francisco-ballettinn
kominn til landsins
UM FIMMTÍU dansarar San
Francisco-ballettsins komu hingað
til lands f gær til þess að undirbúa
sýningar á uppfærslu Helga Tóm-
assonar á Svanavatninu en þær
verða í Borgarleikhúsinu nk.
föstudag, laugardag og sunnudag.
Hingaðkoma ballettsins er sam-
starfsverkefni Listahátíðar í
Reykjavík og Reykjavíkur - Menn-
ingarborgar Evrópu árið 2000 en
óhætt er að segja að aldrei áður
hafi verið sett upp jafnviðamikil
danssýning hér á landi. Færri
munu komast að en vilja en miðar
á allar fimm sýningarnar seldust
upp á fjórum klukkustundum.
I samtali við Morgunblaðið í
gær kvaðst Helgi Tómasson, list-
rænn stjórnandi San Francisco-
ballettsins, hlakka mjög til að fá
að gefa íslendingum lítið sýnis-
horn af því sem hann hefði verið
að fást við þar vestra á undan-
förnum árum.
Auk fimm tuga dansara eru í
föruneyti Helga um tuttugu
tækni- og aðstoðarmenn og á sýn-
ingunum í Borgarleikhúsinu bæt-
ast við nokkrir ungir nemendur úr
Listdansskólanum. Þegar blaða-
maður og ljósmyndari litu inn í
Listdansskólann í gær var Helgi
þar á æfingu með tólf stúlkum á
aldrinum 9-11 ára, sem taka þátt í
uppfærslunni. Þær hafa nú æft í
hátt á annan mánuð undir stjórn
kennara síns, Helenu Jóhannsdótt-
Hljóp uppi
þjófinn
EIGANDI skartgripaverslun-
ar á Laugaveginum brá skjótt
við í gær þegar þjófur reyndi að
stela tveimur verðmætum
hringum úr verslun hans. Eig-
andinn hljóp uppi þjófinn, dró
hann með sér inn í verslun sína
aftur og hélt honum þar uns
lögreglan kom á vettvang og
handtók hann. Andvirði hring-
anna nam á þriðja hundrað þús-
undum króna.
Félagsmálaráðherra segir lífeyrissjóði eiga 70 milljarða í húsbréfum
Fjárfestu erlendis fyrir
15 milljarða á 3 mánuðum
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra segir að ein af ástæðum þess
að afföll af húsbréfum hafa aukist
mikið á seinustu vikum sé sú að mik-
ið fé hafi streymt úr lífeyrissjóðum í
fjárfestingar erlendis eftir að heim-
ild sjóðanna til að fjárfesta erlendis
var rýmkuð. Hann segir lífeyrissjóð-
ina eiga 70 milljarða í húsbréfum og
væntir þess að verkalýðshreyfingin
beiti áhrifum sínum í lífeyrissjóðun-
um til að rétta við hlut húsbréfanna,
Yerkalýðshreyfingin rétti hlut
húsbréfa í gegnum lífeyrissjóðina
Áhraðferð
áNetið
meðiMac
Bláberja
Skipholti 21
Sími 5301800
Fax 530 1801
www.apple.is
enda sé það sameiginlegt hagsmuna-
mál allra.
200 manns í vandræðum vegna
mikilla affalla á húsbréfum
Fram kom á fundi ráðherra með
bankastjórum Seðlabankans í gær
að lífeyrissjóðirnir fjárfestu fyrir
rúma 15 milljarða erlendis á fyrstu
þremur mánuðum ársins eða fyrir 3
milljarða í janúar, 6 milljarða í febr-
úar og 6,4 milljarða í mars. „Það sér
auðvitað á þegar svona kemur fyrir,“
sagði Páll.
Félagsmálaráðherra sagði að
ástandið á húsbréfamarkaðinum
hefði færst til betri vegar í gær og af-
föll á bréfum farið niður í 6,5% en
mest urðu þau sl. fimmtudag eða upp
undir 20%.
„Það er hins vegar ekkert spaug
fyrir fólk að lenda í því að þurfa að
láta bréf með afföllum ef menn geta
ekki setið með þau og beðið af sér
þetta hret sem stendur vonandi ekki
lengi. Samkvæmt upplýsingum frá
íbúðalánasjóði getur verið um 200
manns að ræða sem lenda í einhverj-
um vandræðum ef þeir þurfa að sæta
því að selja með afföllum," sagði Páll.
Félagsmálaráðherra sagði lífeyr-
issjóðina eiga feiknamikið af hús-
bréfum. „Þeir eiga 70 milljarða í hús-
bréfum og þar af leiðandi er það ekki
skynsamlegt fyiir þá að gera þetta
að lélegum pappírum. Þau eru með
ríkisábyrgð og eru miklu öruggari
béf heldur en þessi hlutabréf sem
mest hafa verið í tísku á undanförn-
um vikum en þar er fyrst og fremst
verið að kaupa von í einhveiju gróða-
fyrirtæki eða snjallræði sem á eftir
að sýna sig og gengur sjálfsagt ekki
allt upp,“ sagði hann.
„Maður verður að vænta þess að
verkalýðshreyfingin, sern ræður
miklu um stefnu lífeyrssjóðanna,
muni bregðast þannig við að rétta
hlut húsbréfanna, vegna þess að með
miklum afföllum eru þau öllum til
tjóns. Mikil afföll geta líka orðið til
að hækka húsnæðisverð ef hús-
byggjendur, sem eru að byggja til að
selja, sjá fram á að þeir geti ekki
losnað við bréfin með skikkanlegu
móti. Þá smyrja þeir því auðvitað á
verðið og það kemur þá niður á
neytandanum. Verkalýðshreyfingin
hefur náttúriega samfélagslega
ábyrgð og ég á ekki von á því að hún
skorist undan því að taka á því máli
ef á þarf að halda,“ sagði Páll.
Fulltrúar rflrisstjórnarinnar hittu
forystumenn ASÍ í gær að ósk ASÍ
þar sem farið var yfir stöðu mála.
Páll sagðist myndu ræða betur við
fulltrúa verkalýðshreyfingaiinnar á
næstunni um þessi mál.
Lagfæra ýmis
tæknileg atriði
Rfldsstjómin hyggst ekki grípa til
sérstakra aðgerða vegna áhrifanna
af þeirri hækkun sem orðið hefur á
ávöxtunarkröfu húsbréfa en félags-
málaráðherra sagði að það væri í
hendi stjómvalda að lagfæra ýmis
tæknileg atriði s.s. varðandi við-
skiptavakt með húsbréf og upplýs-
ingagjöf og væntanlega yrði það gert
sem nauðsynlegt væri talið til að
greiða fyrir eðlilegum viðskiptahátt-
um.
■ Mikilvægt/22