Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Faðir okkar og tengdafaðir, HUXLEY ÓLAFSSON fyrrum forstjóri, Tjarnargötu 35, Kefiavík, sem lést á Hrafnistu, Hafnarfirði sunnudaginn 14. maí sl., verður jarðsettur frá Ytri-Njarðvíkur- kirkju í dag, þriðjudaginn 23. maí, kl. 13.30. Ámundi H. Ólafsson, Dagný Þorgilsdóttir, Ólafur H. Óiafsson, Guðrún Árnadóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, GUÐLAUG DÓRA SNORRADÓTTIR, Breiðumörk 8, Hveragerði, sem lést þriðjudaginn 16. maí sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 26. maí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á dvalarheimilið Ás, Hjúkrunar- heimilið Hveragerði. Hans Christiansen, Bryndís Pape, Gréta Pape, Jóhann Haraldsson, Þóra Christiansen, Guðmundur Guðmundsson, Daníel, Bersi, Alexander, Egill lan og Arna Katrín. + Elskulegur faðir okkar, STEFÁN ÞÓRARINN SIGURÐSSON, Steiná, Svartárdal, Austur Húnavatnssýslu, er látinn. Börnin. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ÓLAFAR KRISTINSDÓTTUR frá Núpi, Dýrafirði, Reynimel 63. Guðný Kristinsdóttir, Valdimar Kristinsson, Áslaug Jensdóttir + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför sonar míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGMARS JÓHANNESSONAR, Sunnuvegi 2, Skagaströnd. Guð blessi ykkur öll. Dagný Guðmundsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Adolf H. Berndsen, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Benjamín L. Fjeldsted og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, SIGURLAUGAR ÓLAFSDÓTTUR, Steinagerði 9, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landsþítalans. Óskar K. Ólafsson, Ólafur M. Óskarsson, Hólmfríður Pétursdóttir, Rúnar Óskarsson, María Antonsdóttir, Valdimar Ó. Óskarsson, Kristín S. Guðmundsdóttir og barnabörn. OLAFUR KRISTMANNSSON + Ólafur Krist- mannsson fædd- ist í Reykjavík 27. janúar 1915. Hann lést á Landspítalan- um 12. maí síðastlið- inn og- fór útför hans fram frá Neskirkju 22. maí. Það er skrítið að dauðinn var það síðasta sem mér datt í hug þegar gekk út af Land- spítalanum, örstuttu síðar var afi minn samt allur. Eftir sitjum við og reynum að hughreysta hvort annað, við höfum svo margar minningar sem við get- um yljað okkur við. A Holtsgötunni var ævintýra- heimur fyrir stuttan snáða, smíða- verkstæðið hans Guðjóns frænda, undirgöngin dimmu og ekki má gleyma bókbandsherberginu hans afa á annarri hæð. Þar var afi eins ég mun minnast hans, rólegur og yfir- vegaður, gaf sér tíma til að skýra út til hvers þetta og hitt var og sá til þess að litlir fingur fengu eitthvað til að dunda við. Þar gat ég setið og horft á hann með öll þessi undratæki og tól sem þá virtust risastór og gíf- urlega flókin. Saxið ógurlega, press- urnar og öll smámyntin í vindlaköss- unum. Mér fannst afi alltaf vera að binda inn Lesbók Morgunblaðsins, ég veit svo sem ekki hversu margir árgangar liggja innbundnir eftir hann, en þeir eru ekki fáir og það hefur ekki verið auðvelt að hafa uppi á þeim fyrstu. En þær voru enn fleiri bækurnar sem hann batt inn og munu þær heiðra minningu hans um ókomin ár. Afi vann hjá Skelj- ungi í 55 ár, nokkuð sem þekkist ekki í dag, byrjaði sem sendill og endaði sem gjaldkeri. A Suðurlandsbrautinni var skrifstofan hans með stóra peninga- skápnum og útsýni yfir sundin blá. Þar byrjuðu og enduðu labbitúrarnir frægu sem við systkinin munum aldrei gleyma. Þá var gengið milli bensínstöðva og sölunni safnað sam- an og hún síðan sett í stóra skápinn, ég trúi því varla ennþá að við höfum labbað allan þennan hring enda var ýmsu hvetjandi gaukað að manni sem kætti lítinn snáða. Eitt var það þó sem afi gat æst sig yfir, fótbolti . Hann var meiri KR- ingur en nokkur sem ég þekki og þekki ég þó nokkra. Hann spilaði sem bakvörður með Gullaldarliði KR og vann allt sem hægt var að vinna í þá tíð, þjálfaði yngri flokka félagsins og fór sem fararstjóri til útlanda með þeim. Gaman þótti mér í seinni tíð að glugga í ljósmyndir sem teknar voru í þeim ferðum. Eg man að ég gat montað mig af því að afi minn hefði þjálfað ekki ómerki- DULSPEKI 11 FÉLAGSLÍF Innri Ijósvera mannsins. Námskeið veröur haldið helgina 27. og 28. maí nk. frá kl. 10.00 til 18.00 báða dagana. Það er ætlað þeim sem áhuga hafa á að dýpka skilning sinn á andlegri verund sinni og tengjast sál sinni betur. Kynntar verða aust- rænar og vestrænar dulspeki- kenningar og kenndar æfingar sem ætlað er að tengja betur saman innri Ijósveru einstak- lingsins við hinn ytri persónu- leika m.a. austurlensk æfing, At- man Vichara og æfing til þess að fá betri skilning á hvert hlutverk einstaklingsins og hæfileikar eru í þessari jarðvist. Leiðbeinandi verður danski dulspekingurinn Asger Lorentsen, sem m.a. hefur skrifað bækurnar Innri gerð mannsins og Stjörnumenn og englafólk. Uppl. og innritun í sima 566 7832. Verð kr. 9.500,- Þriðjudagur 23. maí kl. 20.30. Fuglaskoðunarferð: Álftanes — Astjörn. Leiðbeinandi: Hallgrímur Gunn- arsson. Tegundir verða skráðar. Verð 800 kr. f. félaga og 1.000 kr. f. aðra, frítt f. börn m. fullorðn- um. Brottför frá BSÍ. Miðar í far- miðasölu. Miðvikudagur 24. maí kl. 20.30. Opið hús í Skagfirðingabúð. Ari Trausti og ferðakynning. Jeppadeild Útivistar með fræðslufund og ferðakynningu i Skagfirðingabúð, Stakkahlíð 17. Kynning á almennum Útivistar- ferðum og jeppaferðum. Ari Trausti spjallar um 101 fjall sbr. bókina Fólk á fjöllum. Allir vel- komnir. Frítt. Færeyjar 9. —14. júní. Pantið strax. + Mágur okkar, VILHELM JACOBSEN, andaðist á sjúkrahúsi í Flórída föstudaginn 19. maí. Fyrir hönd aöstandenda Árni H. Árnason. + Elskulegur faðir minn og afi, BRYNJÓLFUR MAREL VILBOGASON fyrrverandi leigubílstjóri, er látinn. Jarðarförin auglýst síðar. Kristfn Brynjólfsdóttir, Lilja Huld Steinþórsdóttir. legri kappa en Albert Guðmundsson, raunar er ég viss um að ég hef sagt öllum að allt sem hann síðar afrekaði væri afa að þakka en það er annað mál. Amma Ingibjörg dó þegar ég var sjö ára gamall og þá flutti afi til okk- ar í Básendann þar sem hann bjó í 13 ár. Þar þurfti hann að horfa upp á mig ganga í Víking og þótti honum það held ég ekki gott því þeir voru ekki hátt skrifaðir þegar hann var að spila en hann studdi mig alltaf í öllu mínu íþróttabrölti og var glaður þegar stráknum gekk vel. Það er dýrmæt reynsla að fá að búa með afa sínum og sögurnar um hvernig allt var og hvernig hlutirnir hafa breyst eru brunnur sem ég mun búa að allt mitt líf. Reyndar var ég svo heppinn að deila herbergi með hinum afa mínum þau sumur þegar ég fór í sveit þannig að ég er ríkur maður af sögum og frásögnum um það hvemig hlutirnir voru og hvern- ig þjóðfélagið hefur gjörbreyst á einni mannsævi. Afi sagði einhvern tíma við mig að hann ætlaði ekki að deyja fyrr en KR væri orðið íslandsmeistari í fót- bolta, við það stóð hann og veit ég að það var glaður KR-ingur sem kvaddi þennan heim og fór yfir í þann næsta. Blessuð sé minning Olafs afa. Jörgen. Elsku Óli afi. Er þá kveðjustundin runnin upp, fyrr en okkur óraði fyrir. Við kveðj- um þig með söknuði og hlýju er við hugsum til allra góðu stundanna sem við áttum saman. Við kynntumst Ól- afi fyrii' um það bil níu árum þegar móðir okkar, Jóhanna Harðardóttir og Magnús Ólafsson hófu sambúð. Það var ætíð létt yfir Ólafi, sérstak- lega þegar KR kom til tals. Hann var góðlegur að sjá og yfirleitt var stutt í mildan hláturinn. Það var því auð- velt fyrii' okkur systkinin að kynnast honum. Hann tók okkur sem sínum eigin barnabörnum og við höfum æt- íð litið á hann sem afa. Ólafur gekk alltaf í finum frakka og með höfuð- fat. Undantekningar voru þó gerðar ef heitt var í veðri, þá kom fyrn- að hann fór úr frakkanum en hatturinn var alltaf á sinum stað, hvernig sem viðraði. Ólafur bauð af sér góðan þokka og þannig minnumst við hans, sem herramanns og yndislegs afa. Þó að þinn tími hafi verið kominn er samt afar sárt að kveðja þig. Guð geymi þig, elsku Ólafur. Minningin um þig á alltaf eftir að lifa í hjarta okkar. Christína og Thomas. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar i simbréfi (5691115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðu- grein af hæfilegri lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blað- inu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú er- indi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.