Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Könnun á aðgengi unglinga að tóbaki
Fengu afgreiðslu
á níu stöðum af tíu
Morgunblaðið/Kristján
Undirbýr jarðveginn
fyrir sumarið
KRABBAMEINSFÉLAG Akur-
eyrar og nágrennis í samvinnu við
Afengis- og vímuvarnarnefnd og
íþrótta- og tómstundaráð gekkst í
liðinni viku fyrir könnun á aðgengi
15 til 17 ára ungmenna að tóbaki á
Akureyri. Farið var í tíu verslanir í
bænum sem valdar voru í tilviljun-
arkenndu úrtaki en um var að ræða
stórmarkaði, myndbandaleigur og
sjoppur.
Beðið um skilriki
á einum stað
Af þessum tíu sölustöðum fengu
ungmennin keypt tóbak hjá níu
þeirra. Aðeins á einum stað var
beðið um skilríki og unglingurinn
ekki afgreiddur. Lögum samkvæmt
má ekki selja unglingum undir 18
ára aldri tómbak og leiki minnsti
vafi á aldri ber sölufólki að spyrja
um skilríki. Slíkt var aðeins gert í
einu tilviki eins og áður greinir. I
öðru tilfelli var unglingurinn spurð-
ur um aldur sem hann gaf upp að
væri 17 ár en fékk afgreiðslu engu
að síður.
Niðurstöður þessarar athugunar
voru sendar Heilbrigðiseftirliti
Norðurlands eystra sem jafnframt
hefur eftirlit með útsölustöðum tób-
aks og fylgist með að virt séu
ákvæði um sölu tóbaks.
í frétt frá Krabbameinsfélagi Ak-
ureyrar og nágrennis um könnun-
ina kemur fram að samkvæmt rann-
sóknum um nýgengi krabbameina á
Norðurlöndum fram til ársins 2010
sé þróun krabbameins óhagstæð og
er búist við um 76% aukningu á
krabbameinstilfellum á komandi
árum. Stærsti hluti hennar skýrist
af hækkandi aldri þjóðarinnar en
um fjórðungur af áhættuþáttum.
Telji sérfræðingar að fræðilega sé
hægt að koma í veg fyrir 20-30%
krabbameina og í þeirri baráttu
muni mest um tóbaksvarnir.
Eftirliti verður
haldið áfram
Þeir sem að umræddri könnun
stóðu munu halda eftirlitinu áfram
og gera sölumönnum tóbaks grein
fyrir afleiðingum þess að selja ungl-
ingum undir 18 ára aldri tóbak, en
mestu skipti að lög séu haldin og
aðgengi unglinga að tóbaki sé heft.
Það sé ein af mikilvægari forvörn-
um, sem eigi að vera sívirk.
I framhaldi af þessum niður-
stöðum hafa vaknað spurningar um
aðgengi ungmenna undir 20 ára
aldri að áfengi á vínveitingastöðum
og hvernig eftirliti sé háttað i þeim
efnum, segir ennfremur í frétt frá
félaginu.
KRISTÍN Jónsdóttir starfsmaður
umhverfisdeildar Akureyrarbæjar
var að undirbúa jarðveginn fyrir
sumarið, en hún var með tætara í
hönd í blómabeði á horni Kaup-
vangsstræti og Eyralandsvegar.
Þess verður væntanlega ekki
langt að bíða að litskrúðug sum-
arblómin fari að skarta sínu feg-
ursta í beðinu, ibúum í nágrenn-
inu og vegfarendum til
augnayndis.
Fyrirlestur í Háskól-
anum á Akureyri
Tengsl
mannfræði
og forn-
leifafræði
CHRIS Gosden fornleifafræðingur
flytur fyrirlestur í Háskólanum á
Akureyri miðvikudaginn 24. maí kl.
17. Fyrirlesturinn fjallar um tengsl
fornleifafræði og mannfræði, eink-
anlega í Bretlandi, og breyttar hug-
myndir um samstarf þessara
greina.
I fyrirlestri sínum mun Gosden
m.a. víkja að rannsóknum á vík-
ingatímum og ferðum norrænna
manna og samstarfi fornleifafræð-
inga og almennings. Fyrirlesturinn
verður fluttur í salnum á Sólborg
og eru allir velkomnir.
Chris Gosden er breskur og
ástralskur ríkisborgari og stai’far
sem lektor og safnvörður við Pitt
Rivers-safn Oxford-háskóla. Hann
lauk doktorsprófi í fornleifafræði
frá Sheffield-háskóla árið 1983.
Hann hefur ritað nokkrar bækur og
fjölmargar fræðigreinar um rann-
sóknir sínar.
Koma hans til landsins er á veg-
um Mannfræðistofnunar Háskóla
íslands en til Akureyrar kemur
hann á vegum Háskólans á Akur-
ejTÍ og Minjasafnins á Akureyri.
I sóknarhug
Hádegisverðarfundur með Valgerði
Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra
á Fiðlaranum, Skipagötu 14,
miðvikudaginn 24. maí frá kl. 12.00 til 13.00
• Á aö beita sértækum lausnum í byggðamálum?
• Hve langt á aö ganga í aö halda öllu landinu í byggö?
• Er ekki höfuðborgin aö springa?
• Er þaö ekki byggðastefna að lofa henni að vaxa meö eðlilegum
hraöa?
• Hvað þarf til að fólksfjölgun á Akureyri verði yfir meðaltali
landsins?
• Er í vændum einhver stefna í því að flytja ríkisstofnanir út á land?
• Er byggöakvóti lausnarorð fyrir sjávarþorp sem hafa misst frá sér
aflaheimildir?
• Eigum við yfirleitt að horfa til orku/stóriðju þegar við hugum að
uppbyggingu svæðisins eöa einbeita okkur að öðrum lausnum?
• Eða er virkjun og stóriðja forsenda framtíðaruppbyggingar á
svæðinu?
• Enn frekari uppbygging háskólamenntunar á landsbyggðinni?
• Getur stórfellt laxeldi orðið stóriðja Eyjafjarðar?
Þetta, og ýmislegt fleira, mun Valgerður fjalla um og
svara spurningum fundarmanna.
Fjölmennum á síöasta fundinn „í sóknarhug" að sinni.
Verð kr. 1.000 (léttur hádegisverður innifalinn)
Allir velkomnir
Skráning hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar í síma 461 2740
eða á netfangi benedikt@afe.is.
Arsfundur Fjdrðungssjúkrahússins á Akureyri
Flutningi nýrrar barna-
deildar frestað til hausts
NÚ ER orðið ljóst að ekki verður af
flutningi barnadeildar í nýtt hús-
næði í nýbyggingu við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri fyrr en í
haust að því er fram kom í ræðu
Halldórs Jónssonar forstjóra á árs-
fundi FSA í gær.
Hann sagði að unnið hefði verið
af töluverðum krafti við nýbygg-
ingu sjúkrahússins á liðnu ári, en
framkvæmdir við innréttingar á
barnadeildinni voru boðnar út í apr-
íl á síðasta ári og áttu verklok að
vera í janúarmánuði síðastliðnum.
Nokkur seinkun hefur orðið á þess-
um framkvæmdum en í tengslum
við verkefni á fyrirhugaðri barna-
deild sagði Halldór að nauðsynlegt
hefði einnig verið að ganga frá ýms-
um öðrum verkum í nýbyggingunni,
bæði utanhúss og innan. Fram kom
í máli Halldórs að þess hefði verið
vænst að mögulegt yrði að flytja
barnadeildina nú í maí í nýbygging-
una, en þeim flutningum verið sleg-
ið á frest og verður starfsemi deild-
arinnar ekki flutt fyrr en í haust.
Alls var framkvæmt fyrir 75,5 millj-
ónir króna í nýbyggingunni á síð-
asta ári.
Skilgreina þarf hvaða þjón-
ustu á að veita á hverjum stað
Halldór sagði rekstur sjúkra-
hússins hafa verið í jafnvægi á síð-
asta ári, en 3,9 milljóna króna halli
varð af rekstrinum. Heildargjöldin
voru 2.123 milljónir króna en þar af
námu launagreiðslur um 1,5 millj-
örðum króna. Sagði Halldór föst
fjárlög ekki æskileg þar sem tölu-
verðar sveiflur verða bæði í þjón-
ustumagni og eðli þeirrar þjónustu
sem veitt er. „Það er nauðsynlegt
að tekjumar tengist að hluta til
föstum grunni og að hluta til þeirri
starfsemi og þeirri þjónustu sem
innt er af hendi á hverjum tíma,
sagði Halldór og einnig að brýnt
væri orðið að skilgreina betur
hvaða þjónustu skyldi veita á hverj-
um stað og í hvaða mæli. Að því
gætu heilbrigðisstofnanir á skil-
greindum landsvæðum unnið sam-
eiginlega og styrkt þannig upp-
byggingu heilbrigðisþjónustunnar á
svæðinu í heild. „Það er og verður
erfiðara og erfiðara að tryggja
nægilega mönnun fagfólks á öllum
stöðum en breytt og aukin tækni
gefur möguleika til þess að endur-
skipuleggja þjónustuna, veita hana
í öðru formi og afstýra því að hún
flytjist öll á sama svæði þessa
lands, sagði Halldór.
Fundir Vinstri
grænna í
Norðaustur-
kjördæmi
ÞINGMENNIRNIR Árni
Steinar Jóhannsson og Þuríður
Bachmann, Vinstri hreyfing-
unni - grænu framboði eru nú
að hefja fundaferð um Norð-
austurkjördæmi og verður
fyrsti fundur þeirra á Vopna-
firði í kvöld, þriðjudagskvöldið
23. maí. Alls munu þau halda
tíu fundi í kjördæminu, en frá
Vopnafirði verður haldið um
Austfirðina og síðan verða
fundir fyrir norðan. Á fundun-
um munu þau kynna stefnu
Vinstri hreyfingarinnar og
græna atvinnustefnu.
REYKIAVIK-AKUREYRI-REYKIAVIK ...fljúgðufrekar
i
Atta sinnuní
Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000
t '
verð frá 8.730 kr . meí fluyvallarsköttum
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is