Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 4^
MINNINGAR
Hrefna var sonum sínum einstök
móðir og ekkert síður vai- hún góð
amma barnabörnum sínum. Mér var
hún alltaf sem góð móðir og félagi.
Eins og gengur breytast aðstæður
í lífinu og minna varð um samgang
minn við Hrefnu hin síðari ár. Mér
fannst mjög sárt að fylgjast með
hversu erfið þau voru henni. Blessuð
ven minning hennar.
Ég sendi öllum ástvinum hennar
hlýjar samúðarkveðjur.
Halldóra Thoroddsen.
Ömmur eru englar í dulargervi en
núna er amma orðin alvöru engill
sem vakir yfir okkur um ókomin ár.
Loksins fékk hún að fljúga burt úr
veika líkamanum sínum til að gera
allt það sem hún áður gat. Flestir
eiga ömmur en við áttum þá alfjör-
ugustu.
Habbý amma, eins og við systkin-
in kölluðum hana, kom oft syngjandi
glöð á appelsínugulu Volkswagen-
bjöllunni sinni sem hún rétt náði upp
fyrir stýrið á, sökum þess hve lág-
vaxin hún var. Síðan brunaði hún
með okkur austur í kæra sumarbú-
staðinn sinn við Þingvallavatn.
Amma vissi svo margt og á sinn sér-
staka hátt fræddi hún okkur um ým-
islegt á leiðinni, t.d. fjöllin, hólana og
plönturnar og margt annað sem enn
er í fersku minni.
I minningunni eru eftirminnileg-
astir og skemmtilegastir sæludag-
arnir með ömmu í bústaðnum við
vatnið. Hún fór með okkur í göngu-
ferðir, sund í Ljósafosslaug, út á
tanga að veiða og meira að segja út á
bát. Hún leysti ófáa hnúta og flækjur
hjá okkur ungu veiðimönnunum,
hjálpaði við að beita og ef vel gekk þá
matreiddi hún aflann, þó ekki hafi
það verið vinsæl næring. Hún lét
okkur tína blóðberg og bjó til te úr
því sem við drukkum á meðan við
hlustuðum á þær mörgu sögur sem
hún veiddi upp úr sagnabrunni sín-
um, oftar en ekki af ættingjum því
hún var með óstöðvandi ættfræði-
dellu. Já, það var allt leyfilegt að
gera í og við bústaðinn hennar, en
þegar við skildum bústaðinn eftir
opinn upp á gátt, þá hljómaði
ógleymanleg setning: „Ætlið þið að
Kjossar á (eiði
‘Kyðfrítt stá( - varaníegt efni
‘Krossamir em fram(eiddir
úr Hvítfiúðuðu, ryðfríu stá(i.
‘Minnisvarði sem endist
um óífmna tíð.
Só((toss (táfqiar eiCíft (íf).
‘Jíæð 100 smfrá jörðu.
‘Jicfðínináinn (qoss
m/munstruðum endum. díceð
100 smfrá jörðu.
Krinyið í síma 431107S oy
fáið Íita6æ((ing.
BLIKKVERKsf.
Dalbraut 2, 300 Akranesi.
Sími 431 1075, fax 431 1076
kynda upp alla Þingvallasveitina?“
Amma er nú loksins komin til
Birgis afa sem hún elskaði svo mikið
en missti allt of fljótt. Við systkinin
samgleðjumst henni og geymum í
huga okkar allar minningamar sem
við eigum um fjöruga, fallega og
góða ömmu.
Amar Eggert, Birgir Om
og Eva Engilráð.
Elsku amma. Langri og erfiðri
baráttu þinni er loks lokið. Við vitum
að nú líður þér betur. Þú ert búin að
vera stór þáttur í lífi okkar systkin-
anna og þótt erfitt sé að kveðja er
gott að vita til þess að nú eruð þið afi
loks sameinuð á ný. Þú hefur skilið
eftir margar minningar sem eru okk-
ur ómetanlegar og þær munu lifa
áfram.
Þar sem þú bjóst í sama húsi og
við í mörg ár voru hæg heimatökin.
Til þín leituðum við oft og nutum
þess að vera hjá þér. Ferðirnar sem
við fórum með þér austur í bústað í
Þingvallasveit voru fjölmargar og af-
ar eftirminnilegar. Þangað fórstu
með „ættarsómana“ þína á appels-
ínugulu VW bjöllunni, en þú kallaðir
okkur alltaf ættarsómana. í bjöll-
unni var ekkert útvarp og því söngst
þú bara fyrir okkur hástöfum og auð-
vitað tókum við undir af hjartans
lyst. Þegar ekki var sungið fræddir
þú okkur um allt sem fyrir augun
bar. Enn þann dag í dag þekkjum við
öll Armannsfell, Botnsúlur, Hrafna-
björg og Vellankötlu.
Þolinmæði þín var alveg ótrúleg
þegar við fórum með þér niður að
Þingvallavatni, hvert með sína veiði-
stöngina. Þar hljópst þú á milli okkar
og beittir, leystir flækjur og losaðir
öngla úr litlum lopapeysum.
Elsku amma, það er margt sem
við höfum lært af þér. Meðal annars
kenndir þú okkur í einni bústaðar-
ferðinni að skipta um dekk á bíl og
svo hjálpaðir þú okkur við að gera
dönskustíla og ýmsa aðra heima-
vinnu.
Elsku amma, minningin um þig
mun alltaf lifa í hjörtum okkar.
Þín
Birgir, Valgerður,
Hrefna og Harpa.
Blómastofa
Friðfinns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
4
%
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
j með þjónustu allan
y sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
J
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN KR. SVEINSSON
rafvirkjameistari,
Grundarlandi 12,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 26. maí kl. 13.30.
Jórunn G. Rósmundsdóttir,
Kristrún H. Jónsdóttir, Steingrfmur Jónasson,
Nanna Jónsdóttir,
Jóhannes I. Jónsson,
Sveinn E. Jónsson,
Soffía V. Jónsdóttir,
Jón B. Jónsson,
Rósa G. Jónsdóttir,
Sigurður P. Jónsson,
Árni P. Jónsson,
Óskar Guðmundsson,
Ólöf Stefánsdóttir,
Guðlaug Harðardóttir,
Hafsteinn Ó. Þorsteinsson,
Helgi E. Kolsöe,
Annette Nielsen,
Ásta Emilsdóttir,
Guðbjörg L. Pétursdóttir,
María H. Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar,
LAUFEY SIGURÐARDÓTTIR
frá Torfufelli,
andaðist á dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn
19. maí.
Fyrir hönd vandanna.
Jón R. Björgvinsson,
Sigrún Björgvinsdóttir.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNINA GUÐRÚN EGILSDÓTTIR
fyrrum húsfreyja,
Rauðafelli, Bárðardal,
Lyngheiði 9, Hveragerði,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands föstudaginn
19. maí.
Helga Haraldsdóttir,
Egill Gústafsson,
Vigdís Gústafsdóttir,
Jón Gústafsson,
Björn Gústafsson,
Eysteinn Gústafsson,
Svanborg Gústafsdóttir, Vörður Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lotta Wally Jakobsdóttir,
Herborg ívarsdóttir,
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞURÍÐUR BALDVINSDÓTTIR,
Snorrabraut 58,
verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn
25. maí kl. 13.30.
Ingibjörg Steina Guðmundsdóttir, Gísli Þór Tryggvason,
Hrafnhildur Konráðsdóttir,
Sólrún Konráðsdóttir,
Snorri S. Konráðsson,
Bryndís Konráðsdóttir,
Guðmundur G. Konráðsson,
barnabörn og
Karl V. Jónsson,
Soffía H. Bjarnleifsdóttir,
Kristján Ágústsson,
Elín S. Bragadóttir,
barnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HAFSTEINN ÞÓR STEFÁNSSON,
fyrrverandi skólameistari,
Skúlagötu 20,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 21. maí.
Bryndís F. Guðjónsdóttir,
Auður A. Hafsteinsdóttir, Þorbjörn Gestsson,
Kristín Marfa Hafsteinsdóttir,
Stefanía Ó. Hafsteinsdóttir
og barnabörn.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
KRISTJÁN JÓHANNES EINARSSON
húsasmíðameistari,
áður tii heimilis
í Skipasundi 60,
Reykjavík,
sem lést' á Hrafnistu, Hafnarfirði, sunnudaginn
21. maí, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
föstudaginn 26. maí kl. 13.30.
Erna Margrét Kristjánsdóttir, Símon Ágúst Sigurðsson,
Ómar Árni Kristjánsson, Anna Björg Kristbjörnsdóttir,
Sólveig Kristjánsdóttir, Sigþór Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartkær eiginmaður minn, elskulegur faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR JÓNSSON
málarameistari,
Brautarlandi 14,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 21. maí.
Bima J. Benjamínsdóttir,
Gyða J. Ólafsdóttir,
Margrét Ólafsdóttir, Jón Þorgrímsson,
Birna Ólafsdóttir, Lars Nyström,
Jón Ólafur Ólafsson, Anna S. Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
r