Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 23.05.2000, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Hnefaleikar - slysavörn UM FRUMVARP Gunnars Birgissonar o.fl. um sk. ólympíska hnefaleika. Er nafnið sýnilega valið til þess að gefa í skyn leik og góða íþrótt. Nafnið hnefa- leikar _er í reynd öfug- mæli. í máli nágranna- þjóða er talað um box áhugamanna og at- vinnumanna. Er mun- urinn að mestu hve margar 3ja mínútna lot- ur leikurinn stendur. Að öðru leyti er þetta sami „leikurinn". Er algengt að áhugamenn fari beint frá Ólympíuleikum í at- vinnumennsku. Þekktustu dæmin eru „Ingo“ Johannsson og Cassius Clay - Muhammed AIi. Á sumum Norður- landanna eru atvinnu-„leikar“ bann- aðir. Þar fara ungir menn til útlanda til þeirrar iðju. Víst geta verið tilþrif í þessum ljóta leik enda náskylt leikum gladiatora Rómar, sem börðust með sverðum þar til annar lá dauður, eða óvígur, eða það að menn glímdu við óargadýr. Þar gilti reglan um brauð og leika fyrir pöbulinn. Léku þar vanalega þrælar eða fangar eða ann- að undirmálsfólk. Munaði þá ekkert um einn og einn kepp í sláturtíðinni. Vantar okkur ýmislegt annað frekar en að taka upp hér þetta mat á mönn- um. Enn er svo í Bandaríkjunum, Englandi og Svíþjóð að ungir menn reyna á þennan hátt að vinna sig upp úr sárustu fátækt. Eru það e.t.v. ein- ustu kostir þessarar „íþróttar", að þeir geta notað slagsmálakunnáttu af götunni til að vinna sig upp á við í þjóðfélaginu. Væri þó æskilegra að gfla þá til annarra íþrótta til þess. wlúhurinn er mikill á markmiði leiks- ihs, ásetningi og afleiðingum. í öðrum íþróttum verða slys og menn meiðast, geta jafnvel hlotið varanleg mein. Tilgangurinn er þar aldrei að slasa menn. Ef leikmaður t.d. í íshokkí slær andstæðing í höfuðið, með kylfu eða hnefa, er honum vísað úr leik umsvifa- laust, þó svo að andstæðingurinn sé varinn af hjálmi og geti haldið áfram leiknum; sýnilega ómeiddur. I boxi er tilgangurinn að slasa andstæðinginn með því að slá hann í höfuðið, síendurtekið, jafnvel eftir að hann er orðinn snarringlaður. Allra best er þó að slasa hann þannig að hann fái heilahristing og missi meðvitund. Hjálpar þá lítið þótt einhver hlíf sé á höfðinu, nema helst til að minnka ytri skrám- ur, né heldur að boxhanskar séu notaðir. Þeir hlífa ekki þeim sem sleginn er, heldur hendi þess sem slær svo að hann getur slegið fleiri og þyngri högg án þess að meiða sig. Eina leiðin til þess að nýta þessar hlífar til árangurs, væri að tengja þær við skynjara, eins og gert er í skylm- ingum. Mundi þá hvert högg á vesti um brjóstkassa gefa plússtig, en högg á höfuðhlíf, eða undir belti, nokkur refsistig, eða frávísun. Ekki er víst að það verði vinsælt hjá þeim sem koma til þess að sjá menn barða til óbóta. Enn er ótalin ein hlið þessa Ijóta leiks. Yfirleitt er það einn stærri, sterkari eða leiknari sem lemur annan lakari, þangað til að hann liggur, eða er orð- inn snarruglaður. Þeir tveir fyrmefndu hættu báðir er þeir mættu ofjarli sínum. Ingo sagði nýlega frá því, í heimalandi sínu að hann hefði misst kjarkinn og áhug- ann, þegar hann hefði verið sleginn niður 2-3svar. Hann slapp sæmilega ómeiddur og hafði efni á að hætta. Mohammed Ali hélt áfram lengur og fór verr. Þetta eru þó tveir heims- meistarar, meðal þeirra þekktustu. Fyrir hvem slíkan eru þúsundir sem aldrei hafa unnið, ekki unnið fyrir sér eða fjölskyldu og hafa ekki efni á að hætta. Þeir halda áfram að vinna fyrir sér sem boxboltar og æfingatæki fyr- ir þá sem betur em settir, eða unga efnilega boxara. Ekki er þetta eingöngu hjá at- Box Skora ég á þingmenn að fresta málinu, segir Ingvar Kjartansson, svo að það geti fengið ítarlegri umfjöllun. vinnumönnum, heldur á sínar hlið- stæður í áhugamennsku. Eini munur- inn er að þar gera menn þetta af áhuga, til að vera með. Ástæður skrifa þess er þetta ritar, em þrenns konar: í fyrsta lagi var flutningsmaður til- lögu um að banna hnefaleika faðir minn Kjartan J. Jóhannsson. Hann var þingmaður ísfirðinga frá 1953 og svo Vestfjarða til 1963. Jafnframt var hann læknir á ísafirði frá 1932-1963. Þar af hafði hann læknisstofu í húsi sínu, á Austurvegi 2, frá 1937 eða -8. Var það 40-50 metra frá Alþýðuhús- inu og 20 metra frá Uppsölum sem vom aðalsamkomuhús bæjarins. Em mér í bamsminni hringingar á bjöllu þar, frá kvöldi til 2-3 að nóttu, og hann beðinn að sauma eða tjasla sam- an þolanda hnefaleika. Þótti honum hægara að hafa þar sótthreinsuð áhöld til þess, en að fara upp á sjúkra- hús, í hvert sinn. I öðra lagi fór ég, eins og aðrir strákar á Isafirði til sjós 14 ára, með Sigga Gumm. Sumrin eftir þetta var ég til sjós, samanlagt ca 12 mánuði, til ’52. Tvö sumur á síld, með viðkomu á flestum höfnum, kmmmaskuðum, norður og austur, Drangsnesi, Skaga- strönd, Siglufii'ði, Dagverðareyri, Hjalteyri, Akureyri, Húsavík, Rauf- arhöfn og Seyðisfirði. Oft var slegið upp balli í Iandlegum. Sáust þar ýmis afbrigði af hnefaleikum. Minnisstæðast er e.t.v. að sjá æfð- an og þekktan hnefaleikara kýla drakkinn mann eftir endOöngum danssal á Raufarhöfn. Sá drakkni féll við hvert högg, en svo margt fólk var í salnum að hann gat aldrei fallið á gólf- ið, fyrr en hann var kominn út að endavegg. í annað sinn sá ég mann slá annan, svo að hann lá, á Skóla- vörðustígnum. Hélt hann svo áfram með að grípa í hár hans og banka höfðinu í malbikið. Sá sem sló hafði árið áður hlotið silfurverðlaun á Islandsmóti í hnefaleikum. Vildi ég skakka leikinn og ræða við manninn, sem ég þekkti h'tillega, en var hindr- aður af félögum, sem sögðu að maðm- inn væri hættulegur. Líkaði mér ekki og hafði oft stillt til friðar meðal sjómanna. Ræddi ég málið við félaga minn í skóla og fannst okkur báðum þetta ótækt. Fóram svo í æfingar í hnefaleikum hjá Armanni nokkm- skipti. Aldrei slíku vant, brást faðir minn illa við. Sagði þetta hið mesta óráð. Ef við vildum skakka leikinn skyldum við gera eins_ og Jónar tveir, lögreglu- þjónar á ísafii'ði og ræða við menn. Höfðu báðir áunnið sér virðingu fyrir, ekki sízt óeirðamanna. Ef það gengi ekki mætti beita glímutökum eða haustaki. Að skiptast á höggum á höf- uðið væri aldrei lausnin. „Heilinn í ykkur, og hveijum sem er, er alltof dýrmætur til að nota hann fyrir boxbolta." Hættum við tveir iðk- uninni, en hann fór að kynna sér, hvaða rannsóknir væra til um hnefa- leika. Kom í ljós að amatörboxarar um tvítugt höfðu látist eftir 1-2 lotur í leik. Höfðu enskir læknar rannsakað þessi tilvik og fleiri, án dauða, undir forystu Sheila Sherlock, prófessors. Fleiri tilvik vora í öðrum löndum Evrópu. Þegar faðr minn kom á þing 1953 flutti hann framvarp um bann við hnefaleikum. Hélt svo fram hvert ár til 1956. Vora þá 3 læknar á þingi. Auk hans Alfreð Gíslason úr Keflavík og Helgi Jónasson frá Stórólfshvoli. Báðir voru algerlega sammála máls- ferð. Einnig leitaði hann til lækna- samtaka, Læknafélags Islands og læknaráðs. Pi'ófessor Níels Dungal sýndi málinu áhuga. Sýndi með dæm- um áhrif af höfuðhöggum. Ólafur Geirsson hafði verið íþróttalæknir. Hafði hann oft séð fólk með heila- Ingvar Kjartansson hristing eftir „æfingar". Allt þetta leiddi til þess að Alþingi samþykkti 1956 bann við hnefaleikum og æfing- um á þeim. I þriðja og síðasta lagi. Undirritað- m- hefiu' starfað sem skurðlæknir í 38 ár, þai’ af 26-27 ár í Svíþjóð. Fyrstu árin þar höfðu margir sænskir læknar prð á því að þeir vissu ekki mikið um Island, annað en að við hefðum haft vit á að banna boxið. Áián 1962-76 og 1988-93 tók undirritaður vaktir á bráðamóttöku. Oft sá hann þar afleið- ingar hnefaleika sem þar era stund- aðir. Verstur var sá fjöldi kvenna sem höfðu verið slegnar sundur og saman af eiginmönnum, eða sambýlismönn- um. Komu þær gjaman kl. 23-3 beint frá verknaði, á öllum aldri, frá 17-75 ára. Að lokum, málflutningur flutnings- manna og stuðningsmanna framvar- psins, Gunnai's Birgissonar, Guð- mundar Arasonar o.fl. Guðmundi þótti ljótt að sjá karatemenn markera spark í kynfæri manna, sem gætu limlest þá. Munurinn er sá að spörk og slög era markerað en í hnefaleik- um er þeim útdeilt af öllu afli. Um- sögn Ellerts B. Schram, að hnefaleik- ar séu ekki skaðlegri en margar aðrar íþróttir og raunar allt önnur íþrótt en sú sem var bönnuð er óljós. Það er sitt hvað að verða fyrir meiðslum á stoðkerfi eða útlimum eða traflun á heilastarfsemi. Ef illa fer geta menn traflast í tali, sjón, heym, hreyfingum, hugsun eða einbeitingu. Getur það verið allt frá missi til óljósra traflana. Málflutningur Jóns Otta Jónssonar var annar og ekki síð- ur skrif og nú síðast viðtal við Martein B. Björgvinsson. Segh’ það síðasta allt sem þarf að segja. Enn skal þó róið, ekki síst vegna þess andvaraleysis sem virðist ríkja hjá þingmönnum og íþróttahreyfingunni, að þetta sé ekk- ert mál. Skora ég á þingmenn að fresta málinu, svo að það geti fengið ýtarlegi'i umfjöllun. Ég skora einnig á Katrínu Fjeldsted að halda áfrarn sinni skeleggu baráttu og taka málið með sér inn í læknasamtökin og fá það kannað og rætt þar. Frumvarpið virðist tímaskekkja innan um umræðu um hugvit og mannauð lands og þjóðar. Höfundur er læknir í Reykjavík. Áfengi í kjörbúðir? VIÐ lestur þingsályktunar efna- hags- og viðskiptanefndar Alþingis **.im sölu áfengis læðist að manni granur um að flytjendur málsins og ýmsir aði-ir sem lögðu orð i belg hafi litla þekkingu á áfengismálastefnu Islendinga fyrr og síðar. Af mörgum ranghugmyndum má nefna tvennt: Reynt er að læða því inn hjá fólki að við séum eina þjóðin í veröldinni sem leitast við að koma í veg fyrir einkagróða af sölu hins lög- leyfða vímuefnis áfengis, með því að hafa dreifingu þess i höndum opin- berra stofnana. Fátt er fjær sanni því þetta tíðkast á Norðurlöndunum að Danmörku undanskilinni, í nokkr- um ríkjum Kanada, tveim tugum ríkja Bandaríkjanna og nokkram ríkjum Evrópu. Því hefur verið haldið fram að áfengisneysla hafi ekki aukist eftir að sala áfengs öls var leyfð hér. Því miður segja staðreyndir annað. Neyslan hefur aukist um tæpan fjórðung og aukningin er mest meðal unglinga. Niðurstöðurnar eru til Það er í sjálfu sér tímaskekkja að bera fram framvarp um nefndaskip- un til að rannsaka breytingar á sölu- kerfi áfengis. Þegar er búið að rann- saka þetta víða erlendis og liggja niðurstöður fyrir, m.a. í bókinni Alcohol Policy and the Public Good sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gaf út fyrir nokkru. Þar kemur í ljós að meðal virkustu forvarna er að hafa dreifingarstaði áfengis sem fæsta og þar sem breytt hefur verið um dreif- ingarkerfi hefur áfengisneysla auk- ist. En hafa flutningsmenn tillögunn- ar lesið þessa ágætu bók og kynnt sér efni hennar? Það er nefnilega jafnfráleitt að ræða áfengismála- stefnu án þess að vita um niður- stöður rannsókna þeirra sem þar era birtar eins og að ræða um vegalög án þess að hafa séð kort af íslandi. Reynslan Eitt gleggsta dæmið um afleiðing- ar þess að dreifa áfengi í sölubúðum er í Danmörku en þar búa menn við frelsi í þessum efnum. Síðustu ára- tugina hefur meðalaldur allra Norð- urlandabúa hækkað verulega, nema Dana sem fyrir nokkram áram vora í sjötta sæti. Nú era þeir í 21. sæti og er kennt um stóraukinni neyslu áfengis og tóbaks. Danskir unglingar drekka nú meira en jafnaldrar þeirra annars staðar í Evrópu og drykkja 11-12 ára barna algeng. Er líklegt að nefnd, að líkindum skipuð fólki sem lítið veit um þessi mál, komi fram með skýrari niður- stöður en þessar? Yíh-varp tillögunn- ar er að bæta eigi ástandið, draga úr drykkjunni. Það hefur heyrst áður, alltaf þegar auka á aðgengi að áfengi. Það sögðu menn þegar leyfður var innflutningur léttra vína frá Spáni 1922. Það var sagt þegar sala sterkra drykkja var leyfð. Það hafa menn sagt í hvert skipti sem veittar hafa verið heimildir til að fjölga vínveitingahús- um. Þegar bjórinn var lögleyfður átti nú held- ur betur að bæta ástandið. _Eða þegar einkaleyfi ÁTVR á inn- flutningi og heildsölu áfengis var afnumið og merkingar á áfengis- umbúðum felldar nið- ur. En við hverja breyt- ingu hefur ástandið versnað og loforð flutn- ingsmanna um að þá skuli lögum framfylgt ef kaupmenn fái að græða á sölu áfengis er ekki nýtt hljóð úr þeim strokki. Sams konar loforð voru gefin þegar bjór var lögleyfður. Og væntanlega Áfengi Tillaga um að fjölga dreifíngarstöðum áfeng- is er tímaskekkja, segir Jón K. Guðbergsson og vill að horft sé til for- tíðar og nágrannaland- anna eftir fordæmum. þekkja flestir efndirnar. Sverrir Páll Erlendsson mennta- skólakennari skrifar grein í Mbl. 16. mars sl. þar sem hann lýsir lögbrotum veit- ingamanna og fjölmiðlafólks á Akur- eyri: „Hins vegar á ég bágt með að sætta mig við að fjölmiðlar og veit- ingastaðir auglýsi áfengi þegar það er bannað, börnum og unglingum sé selt áfengi í vinveitingahúsum, að sjónvarp skuli halda úti „skemmtiþætti" sem byggist nær eingöngu á því að gera áfengis- neyslu bama og ungl- inga spennandi og eftir- sóknarverða, að vínsalar skuli halda unglingum undh' áfeng- iskaupaaldri hátíðir þar sem þeim er gefið áfengi eða boðið áfengi á afsláttarverði til að ginna þá til drykkju." Hvað með hlutleysið? Það era sem sé ekki einungis niðurstöður er- lendra vísindamanna og ástand mála í grannlöndum okkar, sem sýna í hvert foræði flutningsmenn stefna með tillögu sinni. íslenskir vínveit- ingamenn hafa sýnt að þeir ganga eins langt og þeir þora til að koma varningi sínum í verð. Og kannanir sýna að kaupmenn skirrast ekki við að selja börnum innan lögaldurs tób- ak. I 80% verslana gátu börn og unglingar keypt tóbak. Er þá ástæða til að ætla að kaupsýslumenn hafni gróðanum af áfengissölu þó að kaup- endur séu innan lögaldurs? Rann- sóknir víða um heim sýna svart á hvítu að einkahagsmunir af vímu- efnasölu era einn helsti hvatinn til aukinnar neyslu. Ástæða er einnig til að benda á að ýmsir sem frumvarp þetta er sent til umsagnai' geta ekki talist hlutlausir þar eð þeir hafa fjárhagslegan hag af því að áfengi yrði selt í almennum verslunum. Hins vegar virðist fram- varpið ekki sent ýmsum samtökum sem að æskulýðs- og áfengisvarna- málum starfa og hafa þarna engra fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Höfundur er forstöðunmður Götusmiðjunnar - Árvnlla. Eitthvað fyrir þig Gullmoli á landsbyggðinni, vorum að fá í sölu bakarí sem er eitt um mjög stórt svæði, mikil og góð afkoma, húsnæðið fylgir svo og íbúð. Sportvöruverslun á mjög góðum stað, sú eina í 20 þús. manna byggðarlagi. Hefurfasta samninga við íþróttafélög. Falleg og skemmtileg sérverslun með eigin innflutning á fatnaði, möguleiki að selja frá sér í heildsölu, eingöngu vönduð vara. Heimilismatur, lítill kaffi- og skyndibitastaður sem selur mikið af heim- ilismat I hádeginu, vel staðsettur í þjónustu- og verslunarhverfi. Framköllunarfyrirtæki sem hefur verið á sama stað og í eigu sama aðila í 10 ár. Er með alla aðstöðu fyrir allar tegundir af Ijós- myndaþjónustu og mikið af tækjum. Þjálfun innifalin sem hver og einn getur lært. Mikið af stórum sem litlum fyrirtækjum á skrá. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. F.YRIRTÆKIASALAIM SUÐURVERI SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. JónK. Guðbergsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.