Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 6

Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Tölvunefnd setur reglur um upp- tökur í skólum TÖLVUNBFND hefur gefið út álit þar sem fram kemur að uppsetning myndavéla á skólalóðum og í næsta umhverfi skóla sé heimil þar sem sérstök þörf sé á, en uppsetning véla innanhúss sé óheimil annars staðar en við anddyri, í matsölu nemenda, við nemendaskápa og á opnum svæðum og göngum skólans, enda beri nauðsyn til. Sigrún Jóhannesdóttir, fram- kvæmdastjóri tölvunefndar, sagði í gær að fjölmörg erindi hefðu komið frá einstökum skólum og þegar er- indi hefði borist frá menntamála- ráðuneytinu hefði nefndin ákveðið að gefa út reglur, sem hægt yrði að vísa til. Skulu settar upp með áberandi hætti í álitinu segir að uppsetning myndavéla í grunnskólum sé háð leyfi skólanefndar viðkomandi sveitarfélags. Þar sem myndavélum sé komið fyrir skuli með merki eða á annan áberandi hátt gera glögg- lega viðvart um tilvist þeirra. Segir að bannað sé að skoða myndefni nema samkvæmt ákvörð- un skóiastjóra eða yfirkennara þeg- ar upp komi mál, sem varði þjófnað, skemmdarverk, einelti eða annars konar ofbeldi. Skoðun myndefnis sé óheimil öðrum en skólastjóra og yf- irkennara viðkomandi skóla. Þeim sé hins vegar heimilt að kalla til aðra starfsmenn skóla, beri brýna nauðsyn til, til dæmis til að bera kennsl á einstak nemendur. Bjóða skuli því barni, sem hlut eigi að máli, og foreldrum þess að vera við- statt skoðun myndefnis. Ekki má geyma myndefni eða myndbönd lengur en eina viku og skal efnið geymt á öruggum, læst- um stað. Að þeim tíma liðnum skal myndefninu eytt. Tölvunefnd leggur fyrir skólayf- irvöld að haga uppsetningu eftir- litsmyndavéla í skólum og notkun og meðferð myndefnis í samræmi við þessar reglur. Tekið er fram að reglurnar eigi aðeins við um upp- tökur á hliðrænu formi. Sérstakt leyfi tölvunefndar þurfi hins vegar til að setja upp og nota stafrænan búnað, sem til dæmis geri kleift að finna í einni svipan allar myndir eða myndskeið af tilteknum einstakl- ingum. Þá eigi þessar reglur ekki við þegar notaður sé búnaður, sem ekki tekur upp myndir, heldur sýnir þær aðeins á skjá, til dæmis hjá húsverði. Viðvarandi upptökur í kennslustofum ekki boðlegar Sigrún kvaðst ekki telja ólíklegt að eitthvað væri um að skólar þyrftu að breyta því fyrirkomulagi, sem væri á myndbandsupptökum. Það ætti einkum við um þau tilfelli, sem geymslutími væri lengri, en einnig þyrftu menn að taka niður búnað í kennslustofum þar sem hann hefði verið seftur upp. Hún sagði að í lagi væri að setja upp búnað í kennslustofum ef um væri að ræða afmörkuð verkefni, sem ættu sér upphaf og endi. En hins vegar væri ekki hægt að bjóða nem- endum upp á viðvarandi myndatök- ur í kennslustofunni. í álitinu segir að í lögum um skráningu og meðferð persónuupp- lýsinga frá 1989 sé ekki að finna sérstakt ákvæði um notkun mynda- véla við söfnun persónuupplýsinga um fólk, en nefndin hafi hins vegar litið svo á að myndataka og kerfis- bundin söfnun mynda geti eftir at- vikum jafngilt skráningu persónu- upplýsinga í skilningi laganna. Slík skráning sé heimil ef hún er eðlileg- ur þáttur í starfsemi viðkomandi aðila og nái einungis til þeirra, sem tengist starfi hans eða verksviði: „Af því leiðir að lögmæti kerfis- bundinnar söfnunar mynda úr skólastarfi ræðst af því hvort hún sé framkvæmd þannig að hún geti talist vera „eðlilegur liður“ í starf- semi skólans í skilningi framan- gi'einds ákvæðis," segir í álitinu. „Hvort svo sé ræðst einkum af því hvort gengið sé lengra í slíku eftir- liti en þörf krefur til að ná lögmætu og sanngjörnu markmiði sem að er stefnt. Augljóst er að slíkt eftirlit getur átt sér málefnalegan tilgang, s.s. til að stemma stigu við skemmd- arverkum, þjófnaði, ofbeldi, einelti o.þ.h., en afar mikilvægt er að ganga ekki svo langt að brjóti gegn grundvallarréttindum manna til að njóta friðhelgi um einkalíf sitt.“ Morgunblaðið/Ingólfur Þrír voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur á mótum Gullengis og Reyrengis á laugardag. Harður árekstur í Grafarvogi HARÐUR árekstur varð á mótum Gullengis og Reyrengis laust fyrir klukkan 19 á laugardaginn. Jeppa var ekið inn í hlið fólksbíls, með þeim afleiðingum að ökumaður og tveir farþegar fólksbílsins slösuð- ust og voru fluttir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Meiðsli ökumannsins voni talin alvarleg, en hann skarst í andliti og fékk áverka á mjöðm. Ökumaður jeppa- bifreiðarinnar slapp ómeiddur. Kranabifreið kom á staðinn og fjarlægði báðar bifreiðarnar, en þær voru óökufærar, að sögn lög- reglunnar í Reykjavík. Talsvert hefur verið um slys við þessi gatnamót og virðist svo sem ökumenn átti sig ekki á að bílar sem koma úr botnlanganum eiga réttinn. Verk eftir Lawrence Weiner afhent í bókasafni Háskólans á Akureyri Morgunblaðið/Einar Falur Lawrence Weiner og Þorsteinn Gunnarsson, rektor IiA, við afhendingu á verki Weiners. Verkin segja allt sem segj a þarf í BÓKASAFNI Háskólans á Akur- eyri var í gær afhent listaverk eft- ir bandaríska listamanninn Lawrence Weiner. Hann er einn þeirra listamanna sem hefur verið tengdur við upphaf hugmyndalist- arinnar á sjöunda ártugnum. Verkum sínum hefur Weiner fyrst og fremst fundið farveg í formi tungumálsins, sem hann yfirfærir á sjónrænan máta. Orð sín og hug- myndir notar hann sem hluti eða skúlptúra sem hann birtir áhorf- endum, oft á óvæntum stöðum í umhverfinu. Að sögn Jóhannesar Þórðarson- ar, arkitekts hjá Glámu-Kími, sem hafði umsjón með verkinu, eru tvö ár frá því fyrst var farið að huga að því að finna þessu verki stað, en Gláma-Kím hefur séð um breyt- ingar og uppbyggingu á húsnæði háskólans. Verkið, sem er texta- verk unnið í þykka stálplötu, blas- ir við notendum safnsins þegar gengið er að bókahillunum og nýt- ur sín vel í björtu og látlausu um- hverfi. Rektor veitti verkinu viðtöku Þorsteinn Gunnarssou, rektor Háskólans, veitti verkinu viðtöku við hátíðlega athöfn í bókasafninu, en listamaðurinn og kona hans, Alice, voru bæði viðstödd ásamt öðrum sem hlutdeild höfðu átt í verkefninu. Jóhannes sagði það sérstaka ánægju að taka við verki eftir listamann á borð við Lawrence Weiner þar sem það væri yfirlýst stefna Weiners að færa listina út til hins almenna manns, út úr þeim fílabeinsturnum þar sem henni væri oftast fundinn staður. Það væri í fullkomnu sam- ræmi við það megin hlutverk skól- ans að veita almenningi aðgang að æðri menntun. Lawrence Weiner sagði að stærsti kosturinn við að nota orð í skúlptúra væri sá að hann þyrfti þar fyrir utan ekki að segja mikið, því verkin segðu allt. Hann lét þess þó getið að hann hefði ekki orðið sá maður sem hann væri án bóka og að Iistaverkum á borð við hans væri ekki ætlað að kenna fólki eitt eða neitt, heldur einfald- lega að vera til staðar svo það gæti lært sjálft. Að lokum sagði hann að það væri sér sérstakt ánægjuefni að færa háskólanum þetta verk að gjöf. Nýr skólameist- ari Iðnskólans í Reykjavík BALDUR Gíslason hefur verið ráðinn skólameistari Iðn- skólans í Reykjavík frá 1. júní nk. Átta umsækjendur sóttu um stöðuna, sem menntamálaráðun- eytið veitir til fimm ára í senn. Fráfarandi skóla- meistari er Ingvar Ásmundsson. Baldur er fæddur árið 1947 og lauk meistaraprófi í rafvirkjun árið 1970. Hann lauk prófi í uppeldis- og kennslufræði frá Kennarahá- skóla íslands árið 1982 og meistaraprófi í skólastjórnun og skólaþróun frá School of Education, University of Bristol árið 1996. Hann kenndi við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti um ára- tugaskeið og var deildarstjóri við raf- iðnaðardeild skólans samhhða kennslunni og kennslustjóri frá 1994 til 1998. Baldur hefur frá árinu 1998 gegnt starfi verkefn- isstjóra hjá Prent- tæknistofnun og Starfsgreinaráði upp- lýsinga- og fjöl- miðlagreina og hefur að auki gegnt ýmsum störfum fyrir menntamálaráðuneytið. Baldur Gíslason skólameistari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.