Morgunblaðið - 23.05.2000, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jón Stefáns
Það tók lögreglu tvo tíma að skakka leikinn, en meðal annars skáru
unglingarnir á hjólbarða lögreglubíla.
Olæti í ungl-
ingasamkvæmi
ÞRETTÁN ungmenni voru færð á
lögreglustöðina í Hafnarfirði
aðfaranótt sunnudags, eftir að
samkvæmi í heimahúsi í Garðabæ
fór úr böndunum.
Nágrannar kvörtuðu til lögreglu
upp úr klukkan tvö um nóttina
vegna ónæðis en það tók lög-
regluna um tvær klukkustundir að
rýma húsnæðið.
Allt tiltækt lögreglulið var sent á
vettvang auk þess sem aðstoð
barst frá lögreglunni í Reykjavík,
en þaðan voru sendir 11 lögreglu-
bílar.
Að sögn lögreglunnar í Hafnar-
firði var ölvun ekki mjög áberandi
meðal fólksins og skemmdir á hús-
næði litlar. Ungmennin áttu í
slagsmálum og voru með ólæti og
jafnframt voru hjólbarðar lög-
reglubíla skornir með hnífi. Alls
voru um 70 manns í samkvæminu
og flest voru ungmennin 19 ára.
Lögreglumaður
kemst í eftirsótt
nám hjá FBI
GERT er ráð fyrir
plássi fyrir íslensk-
an lögreglumann á
eftirsóttu námskeiði
hjá bandarísku al-
ríkislögreglunni
(FBI) í Quantico í
Virginíufylki innan
skamms. Ríkislögr-
eglustjóri og Lög-
regluskóli ríkisins
tilnefna lögreglu-
manninn sem fær að
fara í námið sem
stendur yfir í þrjá
og hálfan mánuð og
lýkur með formlegri
útskrift.
Þátttakendur eru
m.a. þjálfaðir í'
DNA-rannsóknum,
tölvufræðum, samningaviðræð-
um við gíslatökumenn, með-
höndlun sönnunargagna, brota-
vettvangsrannsóknum og fleiru.
Önnur námskeið FBI í boði
fyrir íslenska lögreglumenn
Thomas J. Pickard varaforseti
FBI sem sat nýafstaðið Evrópu-
þing Interpol í Reykjavík segir
að sá lögreglumaður sem valinn
verði til þátttökunnar muni
verða í hópi 200 bandarískra
lögreglumanna á námskeiðun-
um, sem eru ströng en eftirsótt
af lögregluliðum um heim allan.
„Það er ætlast til þess að þátt-
takendurnir skrifi fjölda rit-
gerða um ýmis efni en þeir geta
valið sér námskeið sem fellur að
bakgrunni þeirra svo þeir fái
sem mest út úr náminu, “ segir
Pickard. „Þeir fá líka lík-
amsþjálfun til að tryggt sé að
þeir séu í góðu formi og svo geta
þeir fengið skotvopnaþjálfun ef
þeir óska þess. í sumum tilfell-
um er það þó óþarfi
enda bera lögreglu-
menn sumra landa
ekki skotvopn.“
Pickard hefur
rætt við Sólveigu
Pétursdóttur dóms-
málaráðherra um
væntanlega sam-
vinnu á þessu sviði
en að auki standa
mörgum íslenskum
lögreglumönnum til
boða önnur nám-
skeið sem annað-
hvort fara fram hér-
lendis undir stjórn
alríkislögreglu-
manna eða í Banda-
ríkjunum. Á síðasta
ári komu t.a.m. tveir
alríkislögreglumenn til Islands
og héldu námskeið fyrir íslenska
lögreglumenn í DNA-rannsókn-
um og rannsóknum á ofbeldis-
glæpum.
Pickard sat 29. Evrópuþing
Interpol í Reykjavík sem
áheyrnarfulltrúi og segir mikið
samstarf vera á milli bandarísku
lögreglunnar og hinnar
evrópsku enda um samskonar
glæpi að ræða oft á tíðum, hvort
sem eru glæpir á Netinu, fíkni-
efnaverslun eða verslun með
manneskjur. „Við skiptumst
reglulega á upplýsingum við
Evrópulöndin um fjölda mála
sem varða glæpi á Netinu og
fíkniefni," segir hann. „Það er
fjöldi eiturlyfjahringa sem telur
stundum betra að flytja inn
fíkniefni til Bandaríkjanna í
gegnum Evrópu en að flytja þau
beint inn frá Mið- eða Suður-
Ameríku því eftirlitið er veikara
með innflutningi í gegnum
Evrópu.“
Thomas J. Pickard,
varaforseti banda-
rísku alríkislög-
reglunnar, FBI.
Háskóliim stendur fyrir menningar- og fræðahátíð
Borgarlífið skoðað frá
Morgunblaðið/Kristinn
Starfshópur Opins Háskóla leggur nú lokahönd á menningar- og fræða-
hátiðina Líf í borg, sem hefst á fimmtudag og stendur til sunnudags.
LÍF í borg nefnist menningar- og
fræðahátíð sem Háskóli Islands
stendur fyrir, en hátíðin er framlag
Háskólans til Reykjavíkur - Menn-
ingarborgar Evrópu árið 2000 og
hefst á fimmtudaginn og lýkur á
sunnudaginn. Þetta kom fram í
samtali Morgunblaðsins við Mar-
gréti S. Björnsdóttur, formann
verkefnisstjórnar Opins Háskóla,
en í gær var verið að leggja loka-
hönd á undirbúninginn, sem staðið
hefur yfir í um 2 ár.
„Hátíðin er fyrst og fremst ætluð
almenningi og því verður boðið upp
á fjölbreytta dagskrá sem speglar
borgarlífið í sínum margvíslegu
myndum,“ sagði Margrét. „Við er-
um að reyna að opna Háskólann
fyrir fólki og verður ókeypis inn á
alla dagskrárliði hátíðarinnar.“
Páll Skúlason rektor setur hátíð-
ina klukkan átta á fimmtudags-
kvöldið í Hátiðarsal Aðalbyggingar
Háskóla íslands. Margrét sagði að
síðar um kvöldið myndu þeir Matt-
hías Johannessen skáld og Ástráð-
ur Eysteinsson, prófessor í bók-
menntafræðum, standa að dagskrá
um Reykjavíkurljóð Matthíasar.
Hún sagði að um kvöldið yrðu einn-
ig tilkynnt úrslit í samkeppni um
sönglag við kvæði Jónasar Hall-
grímssonar, „Vísindin efla alla
dáð,“ og að Háskólakórinn myndi
flytja verðlaunalagið.
Fyrirlestrar og
vettvangsferðir
Margrét sagði að síðdegis á
föstudag hæfist dagskráin, en hún
samanstendur af um 100 fyrirlestr-
um, þar sem m.a. verður fjallað um
þarfir borgarfjölskyldunnai-, börnin
í borginni, glæpi, klám og vændi,
trúarlíf í borginni, dýralíf, gróður-
far og jarðfræði borgarinnar. Mar-
grét sagði að fyrirlesaramir kæmu
víðsvegar að og að þessa daga sem
hátíðin stæði yfir gæfist almenningi
tækifæri til að ræða saman um má-
lefni sem vörðuðu lífið í borginni.
Eggert Þór Bernharðsson, sem
situr í verkefnisstjórn Opins Há-
skóla, sagði að auk fyrirlestranna
yrði á hátíðinni boðið upp á vett-
vangsferðir, þar sem fólki gæfist
t.d. kostur á því að fara í bátsferðir
um sundin og skoða borgina þaðan,
þá yrði einnig farið í reiðhjólaferðir
og göngutúra um borgina. Hann
sagði að auk þessa yrðu settar upp
leik-, list- og ljósmyndasýningar.
Viðburðaríkt ár
fyrir Opinn Háskóla
Stúdentar munu ekki láta sitt
eftir liggja á hátíðinni. Að sögn
Fanneyjar Karlsdóttur og Hauks
Agnarssonar frá Stúdentaráði
munu stúdentar setja upp stórt
tjald í skeifunni fyrir framan Aðal-
bygginguna og verður fjölbreytt
dagskrá í tjaldinu alla hátíðardag-
ana. Á fimmtudaginn verða t.d.
haldnir djasstónleikar í tjaldinu og
afrískir dansar sýndir.
Þar sem um mjög fjölbreytta
dagskrá er að ræða munu nokkrir
dagskrárliðir fara fram samtímis,
en hver dagskrárliður er sjálfstæð-
ur og geta hátíðargestir því ætíð
valið á milli ólíkra efnisatriða. Mar-
grét sagði að fólk gæti nálgast dag-
skrána í Aðalbyggingu Háskólans,
á bensínstöðvum Olís og á heima-
síðu Háskólans: www.opinn-
haskoli2000.hi.is.
Margrét sagði að þetta ár væri
þegar búið að vera mjög viðburðar-
íkt fyrir Opinn Háskóla. í byrjun
árs hefði verið opnaður sérstakur
vísindavefur sem notið hefði mikill-
ar hylli og að þátttaka á námskeið-
um, sem boðið hefði verið upp á
bæði fyrir almenning og börn, hefði
farið langt fram úr björtustu von-
um.
„Ég held að eftir þessar miklu
undirtektir hljóti Háskólinn að
velta því fyrir sér hvort ekki sé
hægt að halda þessari vinnu eitt-
hvað áfram og bjóða upp á eitthvað
þessu líkt í framtíðinni.“
Morgunblaðið/RAX
Mikil mildi þykir að ekki skuli hafa farið verr er fólksbifreið fór út af Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í gær.
í /7/ | IWj
iljj i % >. J
'\mi fli
iHn ! i Æ- «|
Bfll valt fjórar
veltur í Kópavogi
MIKIL mildi þykir að ekki skuli
hafa farið verr þegar bifreið valt í
Kópavogi á níunda tímanum í gær-
morgun. Bifreiðinni var ekið norður
Hafnarfjarðarveg og útaf veginum
við eystri vegarbrún, u.þ.b. 20
metrum eftir að handriðinu á
brúnni yfir Kársnesbraut sleppti.
Þar fór hún yfir grasbala, þvert yfir
tengiveginn frá Nýbýlavegi inn á
Kringlumýrarbraut og straukst við
það við afturenda annarrar bifreið-
ar.
Þaðan flaug bíllinn út af vegin-
um, lenti 30 metrum frá vegkanti,
endastakkst, fór að öllum líkindum
fjórar veltur og endaði um 70 metr-
um frá vegkanti.
Bifreiðin ónýt
Að sögn lögreglu í Kópavogi er
ótrúlegt að ökumaður bifreiðarinn-
ar, sem var ung kona, skyldi sleppa
svo sem raun varð, en hún var flutt
á slysadeild marin og aum eftir bíl-
belti. Þykir fullvíst að beltið hafi
komið í veg fyrir að verulega illa
færi. Bifreiðin er ónýt.
Árekstur
á Vestur-
landsvegi
LAUST iyrir kl. 9 í gærmorgun
lentu tvær bifreiðir saman á
Vesturlandsvegi, við Hafra-
vatnsafleggjara. Tvær sjúki-a-
bifreiðir og tækjabifreið slökkvi-
liðsins voru kallaðar á vettvang
og þurfti að klippa ökumann
annarrar bifreiðarinnar lausan.
Hann var með skurð á enni og
að sögn læknis líklega með
heilahristing. Flytja þurfti öku-
menn beggja bifreiða á sjúkra-
deild til aðhlynningai' og læknis-
rannsóknar.