Morgunblaðið - 23.05.2000, Page 21

Morgunblaðið - 23.05.2000, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 21 KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í CANNES Björk Guðmundsdóttir valin besta leikkona kvikmyndahátíðarinnar í Cannes Björk og Lars Von Tríer sátu fyrir svörum í hátíð- arhöllinni á sögulegum blaðamannafundi eftir að hafa tekið á móti æðstu verðlaunum kvikmynda- hátíðarinnar í Cannes á sunnudagskvöld. BJÖRK er eitt sólskinsbros á blaða- mannafundi í hátíðarhöllinni, þar sem hún situr fyrir svörum ásamt danska leikstjóranum Lars Von Trier enda hefur myndin Dancer in the Dark hreppt Gullpálmann og hún verið valin besta leikkona hátíðarinnar. Þegar þau ganga í salinn ætlar allt um koll að keyra af fögnuði. Franskur blaða- maður er valinn úr regnskógi af höndum á lofti og spyr hver munurinn sé á því að semja lag og skapa persónu í kvikmynd? „Fyrir mér er þetta orrustan milli orða og tónlistar,“ svarar Björk og brosir út að eyrum. „Þetta eru tvær ólíkar hhðar á mér, inn á við og út á við. í daglegu lífí beiti ég rökhyggju í sam- skiptum við umheiminn, í samræðum, þegar ég versla, greiði reikninga, á fundi með lögfræðing- um. En þegar ég sem tónhst, þá tel ég: Einn, tveir, þrír, fjórir. Og þegar lagið hefst, hverf ég inn á við, inn í heim þar sem allt er hægt, þar sem allir draumar geta ræst. Aftur á móti fannst mér það dáUtið skrýtið við leikUstina að í stað þess að hlakka til, eins og íyr- ú tónleika eða áður en ég fer í hljóðver, þá hlakkaði ég ekki til að leika, vegna þess að það var ekki flótti inn í heim tónUstar, drauma. Það var meiri rökhyggja, samskipti, samræður og það er ekki mín sterka hlið. Svo eftir langan tíma, fjóra mánuði af tökum, þá leið mér eins og fiski á þurru landi, vegna þess að ég hafði verið of lengi í heimi orða, en of lítið í heimi söngva." Góður töfradrykkur Því næst stendur blaðamaður Morgunblaðs- ins upp og býst til að spyrja, en Lars Von Trier ber kennsl á hann og grípur fram í: „Er þessi maður frá Islandi!?“ Hann heldur áfram: „Þá viljum við ekki heyra þessa spumingu!" Það er hlegið í salnum á meðan hann Utur flóttalega í kringum sig: „Þetta á að heita alþjóðlegur við- burður og við viljum ekki hlusta á íslenskar spumingar!" „Þú hefur þegar fengið þínar, nú er komið að Björk,“ svarar blaðamaður, pínuh'tið upp með sér, og óskar Björk til hamingju með stórkost- lega frammistöðu, yndislega tónUst og sann- gjöm verðlaun - var þetta þess virði? „Það lítur út fyrir það í dag, finnst þér það ekki?“ svarar Björk og ljómar í framan. „Ég virðist alveg hafa gleymt öllum hinum níu hundmð, eða hversu margir vom það?“ veltir hún vöngum og lítur á Trier. „Eitt þúsund eitt hundrað og - eitthvað dagar?“ Hún geislar af gleði. „Og í dag gat ég gleymt þeim öUum. það verður að teljast ansi gott, ekki satt? Þetta er mjög góður töfradrykkur, sem er boðið upp á hér í Cannes. Nei, ég er mjög hamingjusöm. Mér Uður eins og ég sé komin á áfangastað. Það heíúr verið vafinn stór bleikur franskur borði um öll þessi ár.“ En hvað fór um huga þinn, þegar Luc Besson söng „It’s Oh So Quiet“ á sviðinu og sagði nafnið þitt? Hún er sein til svars, svo stjórnandinn, Henri Behar, áréttar: „Hvað finnst þér um Luc Besson sem söngvara?" „Viltu heyra sannleikann?" spyr Björk á móti en bíður ekki eftir svari. „Ég var orðin svo spennt að það var eins og ég væri í vímu. Hjart- að sló frá 60 slögum á mínútu og upp í 210,“ seg- ir hún og trúir salnum fyrir þvi að það sé „mjög hratt og mikið stökk.“ Svo segir hún að síðustu: „Ég er ekki viss um að þessi áhrif hafi öll verið tilkomin vegna sönghæfileika Lucs Bessons." Ópíum fyrir listamennina Þá fær Lars Von Trier loks spumingu. Hvað finnst honum um verðlaun almennt og það að hafa unnið Gullpálmann? „Við erum ekki í hundrað metra hlaupi, svo það er jafnan mjög erfitt að gera upp á milli,“ svarar hann. „En ég verð að segja að þegar maður fær ekki verðlaun, þá þolir maður þau ekki. Með tímanum verða þau ópíum fyrir lista- mennina." „Tilfinningin er mjög góð,“ skýtur Björk inn í. „Ekki misskilja mig,“ heldur Trier áfram. „Ég er mjög þakklátur fyrir það sem Gilles [Jacob hátíðarstjórinn] hefur gert fyrir mig. Annars hefði ég líklega aldrei framleitt nema eina kvikmynd." Hann víkur aftur að verðlaun- unum: „Égá enn eftir að fá einn Gullpálma í við- Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Björk tekur við verðlaunum fyrir hlutverk sitt í Dancer in the Dark. Komin á áfangastað bót til að verða jafnoki Billes Augusts. Þar sem það tók mig fimmtán ár að fá minn fyrsta, þá hef ég orðið sterkari stöðu á markaðnum, og ef til vill tekur það mig aðeins tíu ár að verða mér úti um þann næsta. Þá verð ég líka orðinn alveg uppgefinn." Þetta er fyrsta hlutverk Bjarkar í kvikmynd; gæti hún hugsað sér að endurtaka þessa reynslu? „Mér hefur alltaf fundist ég lánsöm að hafa tónlistina því heimurinn er fullur af kappakst- ursbílstjórum sem vilja verða tannlæknar og tannlæknum sem vilja verða kappakstursbíl- stjórar. Mér finnst ég mjög lánsöm að vilja fást við tónlist og fást við tónlist. Mig langaði aldrei til að verða leikkona, aldrei nokkurn tíma. Þegar Lars bað mig um að gera söngleik ætlaði ég að- eins að semja tónlistina. Það var ekki fyrr en ári síðar að Lars sannfærði mig um að það yrði að vera sama persónan, sem myndi semja tónlist- ina og leika í myndinni. Ég vissi þegar ég svar- aði þessu játandi að þetta yrði ekki aðeins mitt fyrsta hlutverk heldur líka mitt síðasta og ég er ánægð með að þetta var reynslan sem ég fékk af kvikmyndum." Afsakið, hváir Behar og lítur á Björk, varstu að segja að þetta yrði síðasta myndin þin? „Já, ég verð að gefa út plötur núna,“ svarar hún full af ákafa, „og er búin að tapa miklum tíma.“ „Ekki voga þér...“ segir Behar. „Ég á aðeins fimmtíu ár eftir ólifuð,“ svarar Björk brosandi. „Ég á eftir að gera svo margar plötur." Liði eins og viðundri Því næst er Trier spurður út í þá misjöfnu dóma sem Dancer in the Dark fékk í fjölmiðlum. „Ef hún hefði ekki vakið neinar deilur liði mér eins og ég væri jafnvel enn eldri," svarar Trier. „Ég er mjög glaður yfir því að sumir þola ekki myndina, því miður. Annars liði mér eins og við- undri.“ Eru myndir ekki spuming um tilfinningu, hvaða tækni sem er notuð? „Jú,“ svarar Lars. Hvernig leið þér þegar Lars Von Trier sagði uppi á sviði að hann elskaði þig, en hann teldi að þú myndir aldrei trúa því? spyr blaðamaður frá Ástralíu. „Þau vilja að ég verði meyr!“ glettist Björk og gerir sig ekki líklega til að svara. „Svaraðu spumingunni!" segir Trier blákalt. „Ohh,“ svarar hún og hlær. „Ég vil gjarnan hafa svona lagað út af fyrir mig.“ „Lát heyra,“ ítrekar Trier og lengir eftir svari. „Má ég syngja það?“ spyr hún sakleysislega. Já, hrópa blaðamennimir í salnum í einum kór og allir fara að klappa, svo hún neyðist til að biðja um hljóð. „Ég er alveg orðlaus," svarar hún auðmjúk- lega. „Ef þið gefið mér tíu ár, þá lofa ég að svara því, í fullt af lögum og fullt af hlutum, því það er erfitt fyrir mig að stjóma því hvenær svona lag- að brýst upp á yfirborðið. Það virðist gerast á skrýtnum stundum og skrýtnum augnablikum, en það verður að gerast af sjálíú sér. Ég hef mikla trú á eðlisávísun og ætla að halda mig við það.“ Björk reynir að vera alvarleg, en fer svo að skellihlæja og segir: lvAuðvitað elska ég hann.“ Allra augu beinast að henni og hún bætir við: „Núna roðna ég.“ Athvarf frá veruleikanum Tökur á myndum em alltaf erfiðar, fullar af togstreitu og aldrei eins og leikarar lýsa þeim á blaðamannafundum, sagði Catherine Deneuve. Má segja það sama um gerð platna? „Ég hef mikið velt þessu fyrir mér og kemst að nýjum niðurstöðum í hverri viku,“ svarar Björk. „I hvert skipti sem ég geri tónlist, undan- farin fimmtán ár, hefur það verið ánægjuleg reynsla, eins konar athvarf frá raunvemleikan- um þar sem fólk dansar og býr til yndislega tón- list. Það er í eðli tónlistar að vera næsti heimur við raunvemleikann. En kvikmyndir em allir heimar í einum. Á meðan það var mjög sárs- aukafullt að gera myndina hafa allar plötumar mínar verið ánægjulegar; ef maður svífur ekki í skýjunum þá er eitthvað að. Það fannst mér skrýtið, að þjást svona mikið og standa samt í þeirri trú að allt væri í himnalagi. Það tók mig tíma að venjast sársaukanum." En hvemig var að horfa á myndina í fyrsta skipti? „Það að semja tónlistina var mun meira metn- aðarmál fyrir mér. Ég veit að í Cannes er mun meira talað um kvikmyndir, leiklist, tökur, leik- stjóra o.s.frv. En fyrir mér er tónlistin það eina sem skiptir máli. Og þegar ég horfði á tónlistina í fyrsta skipti hafði ég engar áhyggjur af leikn- um; ég vildi óska að mér hefði ekki staðið á sama um myndina, en kvikmyndir em ekki á mínu áhugasviði. Svo ég hlustaði aðeins á hljóðgæðin og skrifaði hjá mér punkta um bassann og strengina. Við voram með 120 hljóðrásir í hverju lagi og það tók mig tvö og hálft ár að gera tónlistina, en tökumar stóðu yfir í fjóra mánuði. Svo öll mín einbeiting beindist að tónlistinni. Þegar ég var á frumsýningunni hér í Cannes fyrir viku hafði ég aðeins áhuga á hljómnum, en ekki upplifuninni sem slíkri.“ Leynihnappur á Björk Þú hefur aldrei komið til Bandaríkjanna. Af hverju ferðast þú ekki? er Trier spurður. „Mér líka ekíd ferðalög," segir hann. „Ég kom hingað á bílnum mínum og það tók þijá daga. Það gekk ágætlega en ég er strax kominn með heimþrá. Ég sakna líka drengjanna minna. Þeir hafa kastað upp í alla nótt; ef til vill vegna þess að ég var ekki heima. Ég vil bara búa í litlu Dan- mörku, á litla heimilinu mínu, - þar vil ég vera.“ Annað árið í röð er leikkona verðlaunuð, sem er það ekki að atvinnu. Hvað finnst þér um það? „Ég á erfitt með að svara því,“ segii- Trier. „Ég get aðeins lýst minni aðferðafræði; ég bý yfir meiri tækni þannig að þau verða að búa yfir minni, hvemig hljómar það? Það sem ég hef gert með Björk hefúr verið sársaukafullt, eins og komið hefur fram, en ég veit um h'tinn hnapp,“ segir hann ogýtir á bakið á henni, „sem ég get ýtt á og þá verður hún svona eða svona,“ heldur hann áfram og setur upp mismunandi svip. „Við getum lesið huga hvort annars, svo í hvert skipti sem mér fannst að hún ætti að gera eitthvert „kabúmm" - þá gerði hún það. Ég er ekki að segja að tækni myndi hindra það en þetta finnst mér alveg stórkostlegt." Þú sagðir áðan á sviðinu að þú elskaðir hana, en vissir ekki hvort hún tryði þér, segir stjórn- andinn. „Já, það var búið að koma fram,“ segir Trier pirraður. „Já, jæja, ég get fullvissað þig um það,“ segir stjómandinn og leggur höndina á öxlina á Björk, „að hann elskar þig og við geram það öll.“ „Þetta segið þið öll,“ tautar Trier. „Svona er talað í Bandaríkjunum." Hann vekur hlátur í salnum, Björk hallar sér að honum og segir: „Þér er að lærast þetta.“ „Mér líkar mun betur við hana en hún held- ur,“ klykkir Trier út með, „og ég vona að henni líki mun betur við mig, en ég held.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.