Morgunblaðið - 23.05.2000, Side 22

Morgunblaðið - 23.05.2000, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Ovissa um viðskipti með íslensk sjáv- arútvegsfyrirtæki í Norex-kerfinu VÞÍ kallar eft- ir viðbrögðum stjórnvalda ISLENSK stjómvöld verða sjálf að ákveða með hvaða hætti eigi að tak- marka viðskipti erlendra aðila með hlutabréf í íslenskum sjávarútvegs- íyrirtækjum, að sögn Stefáns Hall- dórssonar, framkvæmdastjóra Verð- bréfaþings íslands. Eins og kunnugt er hefur Verð- bréfaþing gengið til viðræðna við kauphallimar í Noregi, Danmörku og Svíþjóð um aðild að Norex-samstarf- inu og aðgang að sameiginlegu nor- rænu viðskiptakerfi. Stefán segir að Verðbréfaþing hafí ekki rætt við stjómvöld um hvemig best sé að haga viðskiptum með ís- lensk sjávarútvegsfyrirtæki í kerfinu. VÞI er hins vegar að skoða mismun- andi möguleika viðskiptakerfisins tii að meðhöndla ýmis verðbréf er lúta takmörkunum, en engar ákvarðanir hafa verið teknar í þeim efnum. „Verðbréfaþing er að skoða þessi mál, en þetta er þó ekki okkar verk- efni eingöngu, heldur þurfa stjóm- völd einnig að vera vakandi fyrir því að aðstæður em að breytast. Nú er í vaxandi mæli verið að opna leiðir fyr- ir erlenda aðila til að fjárfesta hér- lendis og tengingin við aðrar kaup- hallir á Norðurlöndunum er hluti af því.“ Stefán segir að í sjálfu sér sé ekk- ert sem banni erlendum þingaðilum að eiga viðskipti með íslensk sjávar- útvegsfyrirtæki fyrir hönd íslenskra fjárfesta. Ef verðbréfafyrirtæki á Norðurlöndunum gerist aðili að VÞÍ þá sé því heimilt að vera milligöngu- aðili um slík viðskipti á milli tveggja íslenskra aðila. Þess vegna sé ekki sjálfgefið að loka fyrir aðgang er- lendra verðbréfafyrirtækja eða banka að hlutabréfum íslenskra sjáv- arútvegsfyrirtækja í viðskiptakerf- inu. Aðspurður hvort hann telji ekki að lög um fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri muni valda vandkvæð- um í tengingu íslands við Norex seg- ist Stefán ekki búast við því. Danir hafa óskað eftir frestun Stefán segir að nú sé unnið að samningagerð um aðild íslands að Norex samstarfinu og stefnt sé að því að undirrita samninga í júní. Gert var ráð fyrir að kauphallimar í Svíþjóð og Danmörku tækju í notkun nýja út- gáfu viðskiptakerfisins í september nk. og að skömmu síðar yrði opnað fyrir aðgang Verðbréfaþings íslands eða í byrjun október. „Nú hafa Danir hins vegar óskað eftir því að nýja útgáfan verði ekki tekin í notkun fyrr en 9. október, að loknum kosningunum í Danmörku um hvort taka eigi upp evruna þar í landi. Þeir telja að það mál geti haft áhrif á fjármagnsmarkaðinn og ekki síst skuldabréfamarkaðinn. Islend- ingar munu væntanlega tengjast kerfinu hálfum mánuði síðar,“ segir Stefán Halldórsson. Hann segir að engin vandamál hafi komið upp á í samningaviðræðunum um Norex. Notkun nýja viðskipta- kerfisins muni hins vegar leiða til breytinga á viðskiptaháttum á Verð- bréfaþingi og þau mál séu í skoðun. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Miss Selfridge-verslunin sem Baugur-Sverige opnaði við Jakobsbergsgatan í Stokkhólmi á Iaugardag. Baugur opnar fyrstu verslunina í Svíþjóð BAUGUR-Sverige AB, dótturfyrir- tæki Baugs hf., opnaði á laugar- daginn fyrstu verslun sína í Stokk- hólmi. Ber hún nafnið Miss Selfridge, sem er eitt þeirra vöru- merkja sem Baugur hefur umboð fyrir á Norðurlöndunum og er í eigu breska fyrirtækisins Arcadia Group Plc. Verslunin er staðsett í hjarta verslunarhverfis miðbæjar Stokk- hólms, við Jakobsbergsgatan. Fær hún nýjar tískuvörur sendar viku- lega frá London, sem einkum eru fyrir stúlkur og yngri konur. Að sögn forsvarsmanna Baugs voru viðskiptavinir á fyrsta opnunardeg- inum fyrst og fremst úr þeim Viðtökurnar fram úr vonum markhópi. Baugur hafði lagt tals- vert í auglýsingar fyrir opnunina og þótti mega merkja að flestir komu beint að versluninni en urðu hennar ekki varir fyrir tilviljum. Kristjón Grétarsson, fram- kvæmdastjóri verslunarinnar, segir að fyrsti dagurinn hafi farið fram úr vonum hvað sölu varðar og virkni allra kerfa verslunarinnar. sölunni fyrstu þrjá dagana má ætla að verslunin muni velta vel á annað hundrað milljónum króna á ári. Almennur áhugi virðist mikill og til marks um það hafa þrjár sjónvarpsstöðvar haft samband í morgun til þess að fjalla uin versl- unina og fá föt fyrir tískuþætti sína.“ Jón Asgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs, kveðst vera ánægður með verslunina, en bendir á að hún sé ný af nálinni svo að ekki sé rétt að segja of mikið um framhaldið. „Byrjunin lofar vissulega góðu. Baugur-Sverige ráðgerir að opna a.m.k. þrjár Miss Selfridge-versl- anir í Stokkhólmi á þessu ári og 15 Arcadia-verslanir í Skandinavíu næstu þrjú árin. Auk þessa stefnir félagið að opna a.m.k. fimm Deben- hams-verslanir fyrir árið 2005.“ Mikilvægt að verja fólk fyrir miklum sveiflum Þau miklu afföll sem hafa verið á húsbréfum undanfarið hafa valdið óróleika á fasteigna- markaði, Flestir telja þó að markaðurinn muni jafna sig. Ymsir eru þeirrar skoðunar að verja þurfí fólk fyrir miklum sveiflum. ÞÆR miklu sveiflur sem verið hafa á húsbréfamarkaði undanfarna daga mega ekki koma til, að sögn Sigurðar B. Stefánssonar, framkvæmdastjóra VÍB. Hann telur að allir sem að hús- bréfamarkaði koma beri ábyrgð á því að viðskipti gangi þar eðlilega fyrir sig og að það eigi jafnt við um stjórn- völd, Seðlabankann, viðskiptabanka, lífeyrissjóði og aðra. Sigurður segir að mikið sé í húfi. Kostnaðaraukning vegna aukinna af- falla á húsbréfum geti hlaupið á hundraðum þúsunda króna sem setji áætlanir fólks algjörlega úr skorðum. Slíkt geti ekki gengið í húsnæðislána- kerfi. Þá segir hann að virkur skulda- bréfamarkaður sé ein af undirstöðum allra viðskipta, hann sé til að mynda ein af grunnforsendum íslenska myntkerfisins. Hugsanlegt sé að þau vandræði sem upp hafa komið að undanförnu á húsbréfamarkaði séu jafnvel hluti af hnignun íslenska gjaldeyriskerfisins. Grundvailarmunur á verðbréfa- markaði og skuldabréfamarkaði Sigurður segir að grandvallarmun- ur sé á almennum verðbréfamarkaði, annars vegar og skuldabréfamarkaði hins vegar. Fólk sé í flestum tilvikum ekki að taka þátt á skuldabréfamark- aði með húsbréf af fúsum og frjálsum vilja, eins og reyndin sé á almennum verðbréfamarkaði. Ibúðarkaup séu mesta fjárfesting flestra á lífsleiðinni og húsbréfakerfið spili þar megin- hlutverk, því flestir þurfi á langtíma- lánum að halda til að fjármagna sín kaup. Sigurður segir að fólk verði að geta treyst þvi að áætlanir standist í megindráttum þegar skrifað er undir kauptilboð eða kaupsamning. Sigurður telur Ijóst að stjómvöld verði að bregðast við og taka á hinum ýmsu tæknilegu atriðum, sem bent var á í yfirlýsingu frá Islandsbanka- FBA þegar bankinn, ásamt Lands- bankanum, sagði upp viðskiptavakt með ríldsskuldabréf á fimmtudaginn í síðustu viku. Meðal þess sem Is- landsbanki-FBA benti á að þyrfi að laga er bætt upplýsingagjöf stærstu útgefenda á skuldabréfamarkaði. Nauðsynlegt sé að áætlanir um út- gáfu og uppkaup ríkistryggðra skuldabréfa séu birtar. Sigurður seg- ir að það gangi ekki að viðskiptavakt sé ekki til staðar en að það ætti ekki að kosta mikið að kippa þeim tækni- legu atriðum í lag sem gerðar hafi verið athugasemdir við. Viðskiptavakt Framsýnar i athugun Ávöxtunarkrafa húsbréfa tók kipp uppávið þegar Íslandsbanki-FBA og Landsbankinn tilkynntu að þeir hefðu sagt upp viðskiptavakt með ríkisskuldabréf. SPRON fylgdi svo í kjölfarið daginn eftir. Verðbréfamiðl- un Framsýnar ehf. tilkynnti síðastlið- inn föstudag um viðskiptavakt með húsbréf. I gær bárast hins vegar þær fréttir frá Verðbréfaþingi íslands að vegna athugasemda frá Fjármálaeft- irlitinu geti Verðbréfamiðlun Fram- sýnar ehf. ekki sinnt slíkri viðskipta- vakt. Ástæða þess er sú að Fjármálaeftirlitið hefur efasemdir um að viðskiptavakt rúmist innan starfsheimildar Verðbréfamiðlunar Framsýnar ehf. Málið er hins vegar í skoðun samkvæmt upplýsingum frá Jóhanni Albertssyni, yfirlögfræðingi á verðbréfasviði Fjármálaeftirlitsins. Veruleg aukning í útgáfu hús- bréfa hefur haft mest áhrif Hrafn Magnússon, framkvæmda- stjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að ein skýringin á því að ávöxt- unarkrafa húsbréfa hafi tekið að hækka upp úr síðustu áramótum sé sú að fram til þess tíma hafi við- skiptabankamir keypt mikið af hús- bréfum, enda hafi þeir hagnast vel á slíkum viðskiptum á meðan ávöxtun- arkrafan lækkaði og verðmæti bréf- anna fór hækkandi. Þegar komið hafi hins vegar að því að viðskiptabank- amir hafi viljað losna við bréfin hafi fáir kaupendur verið til staðar til að kaupa meira en þeir gerðu venjulega. Afleiðingin hafi verið hækkandi krafa húsbréfa, sem hafi keyrt um þverbak nú síðustu daga. Hrafn segir að lífeyrissjóðimir hafi verið langstærstu kaupendur hús- bréfa. Aukning á útgáfu þeirra hafi hins vegar verið mjög mikil á síðasta ári, eða rúmlega 10 milljarðar króna frá fyrra ári. Eignir lífeyrissjóðanna í húsbréfum hafi verið um 80 milljarð- ar króna í lok marsmánaðar síðastlið- inn. Á einu ári hafi húsbréf í eigna- safni þeirra aukist að verðmæti um 9 milljarða króna. Ljóst sé því að kaup lífeyrissjóðanna á húsbréfum hafi verið umtalsverð á síðustu mánuðum. Hrafn telur að því sé ekki hægt að rekja hækkandi ávöxtunarkröfu hús- bréfanna til lífeyrissjóðanna heldu miklu fremur til aukins framboðs á bréfum. Hann segir að hvergi í heim- inum þekkist að lífeyrissjóðir eigi eins hátt hlutfall ríkisskuldabréfa í eignasöfnum sínum og hér á landi. Fasteignaviðskipti stjómast af markaðsaðstæðum Eitt af grandvallaratriðum hús- bréfakerfisins er að mikið viðvarandi framboð húsbréfa leiðir til hækkunar vaxta. Húsbréfin lækka þá í verði, þ.e. afföll aukast, og áhugi almenn- ings á fasteignaviðskiptum minnkar. Þá dregst úr framboði á húsbréfum og að því ætti að koma að eftirspum svari framboðinu og þá ætti verðið aftur að hækka, þ.e. afföllin að minnka. Á þennan hátt er hugsunin á bakvið húsbréfakerfið sem markaðs- kerfi og að fasteignamarkaðurinn leiti í jafnvægi. En þessi fræði í fast- eignaviðskiptum henta ekki í öllum tilvikum þó þau gangi vel upp gagn- vart þeim sem era að hugsa um að festa kaup á íbúð og geta vel haldið að sér höndum á meðan ástandið er óhagstætt. Þeir sem festu til dæmis kaup á íbúð í smíðum fyrir nokkram mánuðum geta lent í veralegum vandræðum ef það kemur í þeirra hlut að bera afföllin af sölu húsbréf- anna, ef viðkomandi íbúð er til að mynda fokheld um þessar mundir. Hvort sem það era þeir eða seljend- umir sem bera afföllin er ljóst að miklar sveiflur á húsbréfamarkaði era augljóslega afarslæmar í þessum viðskiptum. Leysist af sjálfu sér? Af viðtölum við aðila á fjármála- markaði að dæma era flestir sam- mála um að húsbréfamarkaðurinn muni jafna sig. Sú ávöxtun sem nú býðst á húsbréfum geri það að verk- um að þau ættu að vera álitlegur fjár- festingarkostur. Raunávöxtun þeirra er orðin um 6% og þegar haft er í huga að þau eru svo til áhættulaus er talið líklegt að lífeyrissjóðir sjái sér hag í því að auka kaup á þeim. Þannig geti það gerst af sjálfti sér á einhveij- um tíma að húsbréfamarkaðurinn muni jafna sig, hvort sem stjómvöld grípa til einhverra aðgerða eða ekki, því draga muni úr framboði húsbréfa og verðið muni því fara hækkandi. Ýmsir telja þó að sveiflur af þessu tagi megi ekki vera of stórar, því hús- bréfakerfið sé ekki venjulegt mark- aðskerfi þegar tekið er mið af því hvert hlutverk þess er. Þessir aðilar telja að kerfið þurfi að verja fólk fyrir eins miklum sveiflum og verið hafa að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.