Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 24

Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Notkun einnota útigrilla Gæta skal ýtrustu varúðar MIKILVÆGT er að afar varlega sé farið við notkun á einnota útigrill- um, að mati Fjólu Guðjónsdóttur hjá Markaðsgæsludeild Löggilding- arstofu. Á hverju ári berast deild- inni ábendingar um tjón af völdum slíkra grilla. „Mikill hiti myndast í botni grilla þegar kolin hitna, og ef undirlagið er ekki öruggt getur hit- inn orðið svo mikill að bruni hlýst af. Sérstaklega varhugavert er að nota slík grill þar sem viðkvæmur gróður er, og ef miklir þurrkar hafa verið geta grillin valdið bruna á gróðri með ófyrirsjáanlegum afleið- Tannskemmd MÖRGUM stendur ógn af tannlækna- bornum og veigra sér jafnvel við að fara til tannlæknis af þeim sökum. Þeir sjá nú fram á bjartari daga því þeir eiga völ á nýlegum, sænskum kosti til að láta fjarlægja tannsk- emmd úr gómi sinum. Sænski kostur- inn er tanngel sem kallast Carisolv. Nýlega sátu sextiu fslenskir tann- læknar námskeið um notkun þessa tanngels. Aðferðin sem þeir lærðu, byggist á því að geldropi úr sérstöku, mildu efni er látinn drjúpa á tannskemmd- ina. Gelið er búið þeim eiginleikum að hafa einungis sækni í skemmt tann- bein þannig að heilbrigt bein verður ekki fyrir hnjaski. Notkun efnisins hefur ýmsa kosti í för með sér. „Það þarf ekki að deyfa Morgunblaðið/Ámi Sæberg Anna Margrét Thor- oddsen hefur kynnt sér notkun tanngels- ins, Carisolv. fjarlægð sjúklinginn, hann losnar við óþægindi eins og hljóð, kul og titring frá bom- um og taugaboð verða síður fyrir truflunum," segir Anna Margrét Thoroddsen, tannlæknir. Þá verða tönnin og tannholdið fyrir minna áreiti þegar þessi aðferð er notuð en þegar skemmdin er bomð burt úr tönninni. Stundum er nauð- synlegt að bora Ef tannskemmdin er undir fyllingu eða á milli tveggja tanna þarf að grípa til borsins til að fjarlægja fyll- inguna eða glemng til að komast að skemmdinni. í slíkum tilfellum getur þurft að nota deyfingu, segir Anna Margrét, þótt gelið verði siðan notað til að uppræta sjálfa skemmdina. Gel- án bors ið mun því aldrei leysa tannlæknabor- inn að hólmi. Þessi nýja aðferð hefur töluvert verið notuð í Svíþjóð. Þar hefur komið í Ijós að hún hentar vel börnum og fólki sem er hrætt við að fara til tannlæknis. Tryggingastofn- un ríkisins tekur ekki þátt í kostnaði gelsins þegar börn em annars vegar. Gelið er m.a. samansett úr þremur tegundum amínósýma. Efnið var þróað í Svíþjóð og hefur það verið töluvert rannsakað á nokkmm há- skólarannsóknarstofum. Engar auka- verkanir af notkun þess hafa verið skráðar, samkvæmt þeim upp- lýsingum sem nú liggja fyrir. Það get- ur þó talist til ókosts að efnið er dýrt, segir Anna Margrét. Þá getur þessi aðferð tekið ofurlítið lengri tíma en þegar borinn er notaður. ingum.“ Á opinberum tjaldsvæðum hefur mikið verið kvartað undan notkun slíkra grilla, að sögn Fjólu, og má þar víða sjá sviðna jörð eftir einnota útigrill. Leiðbeiningar á íslensku Við skoðun á markaði kemur m.a. í ljós að sumum einnota grillum fylgja leiðbeiningar á íslensku og telur Fjóla það góða viðleitni hjá innflytjendum. „Notendum útigrilla er eindregið ráðlagt að lesa leið- beiningar rækilega áður en notkun hefst. Ennfremur skal bent á, að aldrei má nota kolagrill innandyra, hvort sem er á heimili, í tjöldum eða hjól- hýsum, jafnvel þó loftræsting virð- ist nægileg. KoÚn gefa frá sér kol- monóxíð, sem er eitruð, lyktarlaus lofttegund sem myndast þegar kol- efni brennur í ónógu súrefni." Nýtt Pastasósa Á MARKAÐ er komin pastasósa í línunni Pasta- gusto frá ítalska matvælaíyrir- tækinu Saclá. í fréttatilkynningu segir að sósan innihaldi Mascarpone-ost og tómata og líkt og með aðrar sós- ur úr Pastagusto-línunni má hella henni beint saman við soðið pasta án frekari eldamennsku. í fréttatil- kynningu kemur einnig fram að bragðeinkenni hennar henti einnig vel með fiski. Pastasósan fæst í Fjarðarkaup- um, Nýkaupi og mörgum bakaríum. Akraness apóiek Apótek VesSmannaeyja Laugarnes apótek Apóíek Ausíurlands Árbæjar apóíek Lyfsalan Pafreksíirði Apótek Blönduóss Borgar apóíek Nes.ap.Seltjarnanesi Apóiek Keflavíkur Borgarness apóiek Grafarvogs apótek Apóíek Ólafsvíkur Dalvíkur apótek Hringbrautar apóíek ísafjarðar apótek Rlma apóiek Siglufjarðar apóiek Sauðárkróks apótek Siykkishölms apóiek _ Morgunblaðið/Sverrir I byijun maí var Sparverslun.is opnuð í Kópavoginum. Fljótlega verður einnig unnt að kaupa í matinn í gegnum Netið. Ný matvöruverslun opnuö í Kópavogi SPARVERSLUN.IS er heiti á nýrri matvöruverslun sem opnaði fyrir skömmu í Bæjarlind 1-3 í Kópavogi. Verslunin er um 700 fm að stærð og fjöldi vörunúmera er á sjötta þúsund. Seinnihluta sumars er ætlunin að selja einnig matvörur í gegnum Netið en þegar hefur ver- ið opnuð heimasíða, Sparverslun.is, meðýmsum matvörutilboðum. „Áhersla er lögð á bjarta og rúmgóða verslun og að vöruverð sé gott,“ segja forsvarsmenn Spar- verslunar. is, bræðurnir Júlíus og Ingvi Guðmundssynir sem einnig eru eigendur auk átta annaira hluthafa. Bræðurnir eru engir nýgræðing- ar í matvörugeiranum. Júlíus var lengi verslunarstjóri KEA - Nettó í Mjódd og Ingvi vann áður sem innkaupastjóri hjá Búr. Ætlunin að færa út kvíarnar Ætlunin er að fjölga verslunum Sparverslunar.is á næstu árum. „Markmiðið er verslanimar verði fimm áður en langt um líður. Ef vel gengur er hugsanlegt að opna einn- ig verslanir á landsbyggðinni," seg- ir Júlíus. Ymissa nýjunga er að vænta í Sparverslun.is sem íslenskir neyt- endur hafa ekki fengið að kynnast, að sögn Júlíusar, sem vill að svo komnu máli, ekkert láta uppi um í hverju þær nýjungar verða fólgn- ar. Spurt og svarað um neytendamál Kælarnir í Bónusi Viðskiptavinur hringdi og spurði af hveiju rjómi keyptur í Bónus væri oft orðinn súr ef hann er notaður á síðasta söludegi? Get- ur verið að kælarnir í Bónusi séu ekki nægilega góðir? „Eins og kom fram í DV fyrir skömmu, þar sem verið var að tala um könnun á kjötvörum í verslun- um, þá er kæliaðstaðan í Bónus mjög góð,“ segir Guðmundur Mar- teinsson, framkvæmdastjóri Bón- us. „Þess má geta að kælarnir hjá okkur eru skoðaðir einu sinni í mánuði af eftirlitsmönnum. Hvað varðar rjómann þá fullyrða þeir hjá Mjólkursamsölunni að það megi neyta rjómans tveim dögum eftir síðasta söludag," segir Guð- mundur. Ungabörn þurfa lítið sápur Hvers konar sápu er best að nota á kornabörn? Er sápa yfir- höfuð nauðsynleg? „I framhaldi af fýrirspuminni, hringdi ég á Barnaspítala Hrings- ins, því þar er vökudeild fyrir við- kvæmustu komabörnin," segir Ní- els Breiðfjörð Jónsson, sérfræðingur á eiturefnasviði Holl- ustuverndar ríkisins. „Starfsmað- urinn þar sagði að áður fyrr hefði verið mælt með því að börnin væru böðuð daglega en nú væri annað uppi á teningnum. Rétt er að nota sem allra minnst af sápum. Best að nota sápur með sýrustiginu, pH 5,5 en það liggur mjög nálægt sýmstigi húðarinnar. Hægt er að nota mildar sápur en nota skal sem minnst af þeim. Ohófleg sápuböð em heldur ekki æskileg fullorðnum. Þeir sem fara í sturtu daglega, ættu ekki að nota mikla sápu, því hún þurrkar húð- ina,“ segir Níels að lokum. I tilefni af 100 ára afmæli Miele hafe Eirvík og Miele ákveðið að efna til happadrættis. í verðlaun er hinn glæsilegi Mercedes-Benz A-lína frá Ræsi. EIRVÍK, HUMtUtTAK) Suðurlandsbraut 20 - 108 Reykjavík - Sfmi 588 0200 - www.eindk.is — rTTWTBioioö Mercedes-Benz ■JhliBiUMÉHikiM CnSQS Miele Ryksugan Mtele 100 ára afmæli Ending - öryggi - einfaldleiki - létt, meðfærileg og ótrúlega öftug - rykmaurarnir hata hana - hún er gut, blá, græn eða rauð Benzinnistofunm

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.