Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 2 7
ERLENT
Barnamorð í Kristiansand vekja mikinn óhug meðal Norðmanna
Ekki útilokað að fleiri en
einn hafí verið að verki
Ósló. Morgunblaðið.
Ljósmynd/SCANPIX
Norskir lögreglumenn sjást hér koma börum, hugsanlega með líki annarrar stúlkunnar, fyrir í bifreið nálægt
staðnum þar sem líkin fundust á sunnudag.
Valdaránstil-
raunin á Fiji
Óvíst að
Chaudhry
taki við
að nýju
Suva, Melbourne. AP, AFP.
FORSETI Fiji-eyja, Ratu Sir Kam-
isese Mara, sagði í gær, að ekki væri
víst, að Mahendra Chaudhry forsæt-
isráðherra og ríkisstjórn hans tæki
aftur við völdum þótt bundinn yrði
endi á valdaránstilraunina í landinu.
Foringi valdaránsmannanna hótar
enn að meiða gísla sína reyni herinn
að frelsa þá.
Herinn hefur tekið sér stöðu á mik-
ilvægum stöðum í höfuðborginni,
Suva, og verslanir, bankar og skólar
eru lokaðir. Njóta valdaránsmenn-
irnir undir forystu George Speight
mikils stuðnings meðal Fiji-búa af
innlendum uppruna en Chaudhry og
ráðherrar hans eru af indversku
bergi brotnir. Voru Indverjar íluttir
til landsins á sínum tíma sem vinnuafl
og eru nú 43% landsmanna. Hafa þeir
ekki áður farið með stjórn í landinu.
Speight ítrekaði í gær hótanir um
að meiða gíslana, allt að 35 ráðherra
og þingmenn, reyni herinn að bæla
valdaránstilraunina niður og viður-
kenndi, að Chaudhry forsætisráð-
herra hefði verið barinn. Þá staðfesti
hann fréttir um, að farið hefði verið
með Chaudhry út á þinghúslóðina og
byssu beint að höfði hans í því skyni
að vara herinn við.
Kennir ríkisstjórninni um
Mara sagði í gær, að hann gæti
ekki tryggt, að ríkisstjóm Chaud-
hrys tæki aftur við völdum þótt
valdaránið yrði bælt niður. Kenndi
hann ríkisstjórninni um hvemig
komið væri en lagði áherslu á, að það
væri hann, sem nú færi með stjóm
mála í landinu en ekki uppreisnar-
menn.
Fflaiin
kæfð í eyði-
mörkinni
Sydney. Reuters.
43 ÁRA karlmaður, sem dvaldi
einn í afskekktri eyðimörk í
Ástralíu í hálft ár eftir að hafa
ekið þangað í slökkviliðsbíl,
kvaðst ekki hafa gert það til að
sækjast eftir opinberun, heldur
einfaldlega til að hætta að
reykja.
„Eg var farinn að keðju-
reykja og orðinn heilsutæpur,"
sagði Ástralinn. „Ég þurfti að
taka mér frí, fara út í auðnina
þar sem ég kæmist ekki í tób-
ak.“
Ástralinn hafði ekki samband
við fjölskyldu sína allan þennan
tíma og þegar hana var farið að
lengja eftir honum tilkynnti hún
að hans væri saknað. Lögreglan
leitaði mannsins í þrjár vikur og
sakaði hann um sjálfselsku og
tillitsleysi þegar hann fannst
loks í eyðimörkinni á dögunum.
LOGREGLAN í Kristiansand í Nor-
egi leitaði í gær enn að vísbending-
um á staðnum þar sem tvær stúlkur,
Stine Sofie Sorströnen, átta ára, og
Lena Slogedal Paulsen, sem var 10
ára, fundust myrtar á sunnudag. Að
sögn Aftenposten er ekki vitað með
vissu hvenær morðin voru framin en
lögreglan útilokar ekki að fleiri en
einn hafi verið að verki. Mikinn óhug
hefur sett að fólki í Noregi vegna
málsins.
Morðvopnið hefur ekki fundist. Að
sögn Arne Pedersen hjá rannsókn-
arlögreglunni í Kristiansand hafa
lögreglumenn fengið farþegalista
hjá ferjuútgerðinni Color Line sem
siglir milli Noregs og Danmerkur.
Einnig vill lögreglan yfirheyra tvo
geðsjúklinga á Vest Ágder-sjúkra-
húsinu sem höfðu útgönguleyfi en
komu ekki heim á föstudeginum,
eins og til stóð, heldur daginn eftir.
Tekið var fram að þeir væru ekki
grunaðir um verknaðinn.
Pedersen sagði að byrjað væri að
yfirheyra eiturlyfjafíkla sem eru
margir á svonefndu Baneheia-svæði.
Foreldrum var ráðlagt að leyfa börn-
um ekki að fara án fylgdar fullorð-
inna til Baneheia um sinn.
Lenu Paulsen var minnst í grunn-
skóla hennar í borginni í gær og
flaggað í hálfa stöng. Jafnt böm sem
fullorðnir létu í ljós sorg sína og
FORSÆTISRÁÐHERRA Bret-
lands, Tony Blair, mætti þreytuleg-
ur til messu í Westminster-
dómkirkjunni í Lundúnum á sunnu-
dag og sagði sóknarbörnum að
konu hans, Cherie, og nýfæddum
syni þeirra hjóna heilsaðist vel.
Drengurinn, sem hefur fengið
nafnið Leo, kom í heiminn skömmu
eftir miðnætti aðfaranótt laugar-
dags og gekk fæðingin vel. Sam-
kvæmt tilkynningu frá Cherie Blair
margir grétu áður en haldið var inn í
skólastofuna. Kona, sem hafði fylgt
barni sínu í skólann, sagði að fólk
væri „sem lamað“. Við verðum að
horfast í augu við að engu er lengur
hægt að treysta. Hvorki við né börn-
in geta skilið að til sé fólk sem geti
gert svona hluti. Verst er þetta fyrir
börnin, þau nota hugmyndaflugið til
að ímynda sér hvað hafi gerst," sagði
hún. Prestur, sálfræðingui', kennar-
ar og foreldrar voru með nemendun-
um í gær.
var hún þreytt eftir nóttina en yfir
sig ánægð.
Blair-hjónin eiga þrjú böm fyrir
og er það yngsta þeirra, Kathryn,
12 ára. Cherie sagði að vegna þess
hve langt er um liðið síðan hún
fæddi eldri börnin hafi hún verið
búin að gleyma hversu síðustu
klukkustundir fæðingar væm erfið-
ar.
Myndin var tekin á heimili fjöl-
skyldunnar í gær.
Fjöldi fólks tók þátt í leitinni um
helgina en lík stúlknanna tveggja
fundust klukkan rúmlega hálfníu á
sunnudagskvöld. Lögreglan fékk
þegar ábendingar af ýmsu tagi en
ekki hefur verið skýrt frá því hvort
þær voru einhvers virði. Sérfræðing-
ar lögreglunnar hófu þegar að kanna
fjarvistarsannanir fólks sem áður
hefur verið dæmt fyrir kynferðislega
misþyrmingu á börnum.
Að sögn Arne Pedersen er enginn
vafi á því að stúlkurnar tvær voru
myrtar. Byrjað var að leita þegar á
laugardag er þær skiluðu sér ekki
heim en þær ætluðu að fá sér sund-
sprett. Fyrsta vísbendingin um ferð-
ir þeirra var að plastpoki með bað-
fötum þeirra fannst um fimmleytið á
sunnudag og var þá leitin hert á
svæðinu en líkin fundust loks á
sunnudagskvöld, aðeins nokkur
hundruð metra frá bústöðunum þar
sem þær voru í helgarheimsókn.
Hafði verið reynt að fela líkin undir
greinum og barrnálum.
The Times fjallar um
kynlífsiðnaðinn á fslandi
Reykjavík „Bang--
kok norðursins“
REYKJAVÍK hlýtur nafngiftina
„Bangkok norðursins" í grein
sem birtist í breska dagblaðinu
The Times síðastliðinn laugar-
dag. í greininni, sem er eftir
Richard Middleton, segir, að á
síðustu fimm árum hafi kynlífs-
iðnaðurinn haldið innreið sína á
íslandi og þar séu nú starfandi
a.m.k. 10 strípiklúbbar.
Fram kemur, að margir nekt-
ardansarar komi frá ríkjum
Austur-Evrópu, s.s. Eistlandi,
Tékklandi og Slóvakíu. Lög-
regla á íslandi hafi sagt að
meira en 500 stúlkur hafi unnið
á strípibörum á síðasta ári.
Rætt er um að menn hafi haft af
því áhyggjur að alþjóðleg
glæpasamtök kynnu að reyna að
seilast til áhrifa í landinu gegn-
um strípiklúbbana og að eitur-
lyfjamál hafi komið upp í kring-
um þá.
Segir stjórnvöld
hafa verið sein til
Greinarhöfundur The Times
segir, að stjórnvöld hafi verið
sein til að bregðast við
ástandinu og getur þess, að son-
ur yfirlögreglustjóra höfuðborg-
arinnar hafi átt eina „illræmd-
ustu“ strípibúlluna, Club Vegas.
Þá kemur fram að sjónvarps-
þættir hafi vakið athygli á nei-
kvæðum hliðum starfsemi
strípiklúbbanna. Hafi komið upp
tilvik þar sem nektardansarar
hafi flúið í skjól Kvenna-
athvarfsins eftir að hafa verið
lokkaðar til landsins undir
fölsku yfirskyni en síðan neydd-
ar til að stunda vændi.
Fjallað er um að alþingi hafi
nú breytt lögum frá 1985 í því
skyni að setja strangari reglur
um starfsemi strípiklúbba. Er
vitnað til orða Sturlu Böðvar-
ssonar samgönguráðherra um
að borgaryfirvöld hafi algerlega
misst tök á ástandinu og að mál-
ið sé þjóðinni til skammar.
í greininni segir einnig að
landsmenn hafi áhyggjur af því
að mál strípiklúbbanna geti
skaðað ferðaþjónustu sem hafi
vaxið mjög fiskur um hrygg
vegna „Bjarkar-áhrifanna“. Þar
sé um að ræða menningarlegt
fyrirbæri sem dragi nafn af
söngkonunni íslensku og hafi
vakið mikla athygli á landinu.
Reuters
Foreldrar Leos þreyttir
Arfur aldanna
Tilvalin stúdentsgjöf
ÞJOÐS AGNAS AFN
„Glæsilegt þjóðsagnaúrval... útgáfan er einstaktega
smekkleg að útliti og öllum frágangi."
Sigurjón Björnsson, Morgunblaðinu
VAKAHELGAFELL