Morgunblaðið - 23.05.2000, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 59
FRÉTTIR
Alþjóðablóðgj afadagurmn
Opið hús í Blóð-
bankanumí dag
ALÞJÖÐA blóðgjafadagui’inn er í
dag, þriðjudaginn 23. maí. Dagurinn
var haldinn hátíðlegur víða um lönd í
fyrsta sinn árið 1995. Tilgangur með
alþjóða blóðgjafadegi er að vekja at-
hygli almennings og stjómvalda á
málefnum blóðgjafa og blóðbanka-
þjónustu. Forseti Islands er vemdari
dagsins. Alþjóða Blóðgjafasamtökin,
IFBDO (Intemational Federation of
Blood Donor Organizations) sem
Blóðgjafafélag íslands, BGFÍ, er aðili
að, ákvað að helga 23. maí ár hvert
þessu málefni. I dag halda yfir 80
þjóðlönd í heiminum upp á þennan
dag.
Alþjóða Blóðgjafasamtökin vora
stofnuð árið 1955 og gekk Blóðgjafa-
félag íslands í samtökin árið 1998.
Meðal markmiða IFBDO em sjálf-
bæri (self-sufficiency) hvað varðar
blóð frá sjálfboðaliðum sem þiggja
ekki greiðslu fyrir (nonpaid voluntary
donors). Einnig að stuðla að auknu
trausti almennings á blóðframboði
þjóða með því að samstilla öryggis-
staðla og efth-lit með blóðgjöfum.
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin
WHO helgar árið 2000 málefnum
blóðgjafa undh’ slagorðinu „Öraggt
blóð“.
Traust og öragg blóðgjöf byggist á
heilbrigðum blóðgjöfum. Þeir sem
njóta heilbrigðis ættu að sýna þakk-
læti sitt í verki og gefa sjúkum blóð.
Þriðjudaginn 23. maí verður opið í
Blóðbankanum frá kl. 08 -17. Allir
sem koma og gefa blóð þann dag og
það sem eftir lifir vikunnar fá rauða
rós fyrir blóðgjöfina. íslensk garð-
yrkja og Islenskir blómabændur gefa
blómin.
Fuglaskoðunar-
ferð á Alftanes
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir í
kvöld, þriðjudag 23. maí, til fugla-
skoðunarferðar á Álftanes og að As-
tjörn við Hafnarfjörð.
Ekið verður út á Álftanes og geng-
ið um ströndina þar sem hugað er að
umferðarfarfuglum, m.a. margæs,
tildru og rauðbi-ystingi, auk margra
annarra tegunda. Síðan er ekið að
friðlandinu við Ástjörn í Hafnarfirði
og skoðaður flórgoði. Leiðbeinandi
er Hallgrímur Gunnarsson.
Skráðar verða þær tegundir sem
sjást. Þátttakendur era hvattir til að
hafa með sér sjónauka og fuglabók
ef þeir eiga. Verð er 800 kr. fyrir fé-
laga og 1.000 kr fyrir aðra. Áætluð
heimkoma er um kl. 23.
Þetta er kjörin fjölskylduferð.
Brottför frá BSÍ, miðar í farmiða-
• sölu. Hægt er að koma í rútuna við
Engidal.
Ný sending, mikið úrval
Opið mán.-fös. 10—18, lau. 10—14
Hlá Svönu
Kvenfataverslun, Garðatorgi 7, Garðabæ, sími 565 9996.
Klæjar ykkur í iljarnar
að komast í hitann?
Þið verðið svöl í
þessum...
Slate-Slide sandalar
Vandaðir sandalar úr leðri, fóðraðir með neoprene. Stamur
gúmmísóli heldur þér á jörðinni. Kr. 6.990.-
♦Columbia U D EVCTI
Sportswear Company* M H fc H W0 |
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
------ Skeifunni 19 - S. 568 1717 -
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Birna Sigmundsdóttir, nýr eigandi bldmaverslunarinnar í Suðurveri.
Ný blómaverslun
í Suðurveri
NÝR eigandi, Birna Sigmundsdótt-
ir, hefur tekið við rekstri Blóma-
hofsins í Suðurveri.
Birna er lærður blómaskreytir
með reynslu úr faginu. Hún starfar
sjálf í versluninni við blómaskreyt-
ingar og afgreiðslu auk þess að
veita viðskiptavinum faglega ráð-
gjöf um val og meðferð blóma.
Blómaverslunin Blómahofið í
Suðurveri er opin alla daga frá kl.
10 til 21.
Ráðstefna
um sam-
■%r
göngnr
RÁÐSTEFNA LÍSU, samtaka um
samgöngur og landupplýsingakerfi,
verður haldin fimmtudaginn 25. maí
á Versölum v/Hallveigarstíg kl. 13-
17.
Fjölmargir aðilar framleiða og
vinna með landupplýsingar um sam-
göngumál. Möguleikar á samnýtingu
og úrvinnslu aukast mjög ef gagna-
grannar era aðgengilegir og hægt að
tengja þá saman. Á ráðstefnunni r
verða erindi um ólíka gagnagrunna
og verkefni á sviði samgöngumála.
Fjallað verður um upplýsingakerfi,
uppbyggingu gagnagranna og notk-
un þeirra. Flutt verða erindi frá
Vegagerðinni, Siglingastofnun,
Grindavík, Umferðardeild Borgar-
verkfræðings, Ferðaklúbbnum 4x4,
Boðvaka ehf., Stefju ehf. og Hnit hf.
Ráðstefnustjóri er Heiðar Þ. Hall-
grímsson borgarverkfræðingur og
umræðustjóri Geir Þórólfsson, Hita-
veitu Suðumesja.
Þátttökukostnaður fyrir félags-
menn LÍSU er 5.000 kr. og 7.500 kr.
fyrir aðra. Fimmti hver þátttakandi
frá sama fyrirtæki fær frítt inn.
Komdu
í ísold og sjáðu...
heildarlausn fyrir lagerinn
Smelltar og skrúfulausa
heildarlausnir fyrir öll
fyrirtæki
Fáðu sölumarm okkar í heimsókn og við veitum
ráðgjöf um hámarks nýtingu rýmis.
STYRKUR
ENDING
EINFALT í
SAMSETNINGU
FRÁBÆRT VERÐ
ISOldehf.
Umboðs- og heildverslun
Nethyl 3-3a -110 Reykjavík
HILLUKERFl
vVElílSEZGNK
TUVUgi ISO9001
Öryggis- og gæðastaðlar
Sími5353600- Fax5673609
isold@isold.is - www.isoid.is
'x.
Opið mánud.- föstud. kl. 9 - 18, laugard. kl. 10 - 14
Gerum tilboð i stærri sem smærri einingar - Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar
Lli